Víkurfréttir - 15.03.2001, Síða 22
»1 IGS
Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf., IGS,
er nýstofnað hlutafélag í eigu Flugleiða.
Hlutverk Flugþjónustunnar er að veita flugrekendum alhliða
þjónustu. Hjá félaginu starfa 500-700 manns eftir árstímum
og skiptist starfssemin i fjögur rekstrarsvið;
farþegaþjónustu, flugeldhús, fraktmiðstöð og
veitingaþjónustu i Flugstöó Leifs Eiríkssonar.
Starfsmenn Flugþjónustunnar eru lykillinn að velgengni
fyrirtækisins. Við leitum eftir duglegum og ábyrgum
starfsmönnum sem eru reiðubúnir að takast á við krefjandi
og spennandi verkefni.
Farþegaþjónusta
• Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf.,
óskar eftir að ráða starfsfólk í sumar-
afleysingar í farþegaþjónustu í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
á Keflavíkurflugvelli.
Leitað er eftir fólki sem hefur góða
samskiptahæfileika og þjónustulund
• Um er að ræða hlutastörf í
farþegaþjónustu
• Stúdentspróf er æskilegt,
aldurstakmark er 20 ára.
• Nauðsynlegt er að viðkomandi
hafi góða kunnáttu í íslensku,
ensku og þriðja tungumáli.
• Umsóknareyðublöð liggja frammi
á skrifstofu félagsins í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og er umsóknarfrestur
til og með 21. mars 2001.
• lÉlSir AT\/TNNA
. KEFLAVlKUWLUGVILLl | V lll M fl FRÍHÖFNIN
Flugstöð Leifs Eirikssonar hf.
Fríhöfnin
• Flugstöó Leifs Eiríkssonar hf. óskar eftir að ráða
starfsfólk í Frihöfnina i afLeysingarstörf i sumar.
• Leitað er eftir áhugasömu fóLki meó góóa
þjónustuLund, samskiptahæfiLeika og
tungumálakunnáttu. ALdurstakmark er 20 ár.
• Um er að ræóa vaktavinnu í heiLu og háLfu starfi
og þurfa umsækjendur aó geta hafið störf í maí.
• Umsóknareyðublöó liggja frammi á skrifstofu
Frihafnarinnar í Flugstöó Leifs Eirikssonar og óskast
umsóknum skiLaó fyrir 21. mars nk.
ELdri umsóknir frá fyrra ári óskast endurnýjaóar.
• Upplýsingar um starfið veitir
SóLey Ragnarsdóttir í síma 425 0427.
Hársnyrting fyrir skóladag á heimili litlu Ijósanna.
Börn hjálpa bönnum
Söfnunin „Börn hjálpa
bömum” stendur yfir nú
í mars. Þessi söfnun er
orðin árviss liður í starfi ABC
hjálparstarfs. Islensk börn
ganga þá í hús með merkta
bauka og safna fé til styrktar
munaðarlausum börnum.
Söfnunin fer fram um allt
land. Á næstu dögum munu
skólaböm banka á dymar hjá
þér með sérstakan bauk
merktan ABC hjálparstarfi.
Þessi börn leggja á sig heil-
mikla vinnu við að ganga í hús
og treysti ég því að Suðumesja-
rnenn taki vel á móti bömun-
um og láti sinn hlut ekki eftir
liggja-
Styrkja barnaheimili
á Indlandi
Á síðasta ári söfnuðust um 3,6
miljónir króna yfir landið allt og
var þeim fjármunum varið til
heimila starfsins á Indlandi.
Keypt var viðbótarland fyrir nýj-
an skóla á heimili Litlu Ljósanna
á Indlandi auk ýmissa skóla-
gagna. Einnig var sent fé til að
reisa veggi og þak E1 Shaddai
barnaheimilisins á Indlandi.
Söfnunarfénu í ár er áætlað að
verja til heimilis Litlu Ljósanna í
Gannavaram á Indlandi en þar
búa um 1500 munaðarlaus böm.
Þessir dýrmætu einstaklingar
hafa eignast nýja von vegna jtess
að til er fólk sem er tilbúið að
gefa af fjármunum sínum og
tíma til að sýna þeim kærleika í
verki.
Gætum okkar minnstu bræðra
Á fyrstu síðum biblíunnar er bor-
in fram spumingin fræga: „Á ég
að gæta bróður míns?“ Þessari
spumingu er afdráttarlaust svarað
játandi það sem eftir er Biblíunn-
ar. Þetta kemur skýrt ffam í verk-
um og boðskap frelsarans t.d. í
dæmisögunni um miskunnsama
Samverjann og í gullnu reglunni
og hann segir einnig: „Allt sem
þú gerir einum þessara minnstu
bræðra minna gerir þú mér, þar
af leiðir að allt sem þú ekki gerir
þeim, það gerir þú mér ekki held-
ur.“ Þetta eru skýr skilaboð. Við
vitum að gæðum heimsins er
hróplega misskipt. Á hverjum
degi heyja margir baráttu fyrir
lt'fi sínu og eins og gefur að skilja
verða bömin oft verst úti í þeirri
baráttu. Þessi böm deyja úr ör-
birgð og sjúkdómum sem vissu-
lega stafa af vanþekkingu en því
miður einnig vegna mannlegrar
grimmdar og eigingimi. Við get-
um ekki látið þetta sem vind um
eyrun þjóta heldur eigum við að
bera ábyrgð á náunga okkar hvar
sem hann er og hver sem hann er.
Það er þama sem ABC hjálpar-
starf kemurtil sögunnar.
Samkirkjulegt hjálparstarf
ABC hjálparstarf er íslenskt,
samkirkjulegt hjálparstarf, stofn-
að árið 1988. Starfið er byggt á
kristilegum gmndvelli. Markmið
jress er að veita hjálp sem kemur
að varanlegu gagni með því að
gefa fátækum börnum kost á
skólagöngu og munaðarlausum
og heimilislausum bömum kost á
heimili. I dag em yftr 3000 böm í
6 löndum sem fá hjálp í formi
skólagöngu, læknishjálpar, fæðis
og klæða. Þar af eru um 1700
böm sem búa á heimilum ABC
hjálparstarfs á Indlandi og í
Kambódíu. ABC hjálparstarf er
allt unnið í sjálfboðavinnu.
Hægt að taka að sér
styrktarbarn
Hægt er að gerast stuðningsmað-
ur ABC hjálparstarfs með því að
styrkja ákveðin verkefni starfsins
eða að taka að sér styrktarbam.
Þá er greidd ákveðin upphæð
mánaðarlega sem nægir til að
kosta fæði, lækniskostnað, skóla-
göngu eða fulla framfærslu
bamsins. Styrktarforeldrar fá þá
reglulega fréttir af barninu og
möguleiki er á bréfaskriftum við
barnið. Þessi tengsl verða oft
mjög persónuleg og skemmtileg.
Suðumesjamenn, stöndum sam-
an og tökum vel á móti skóla-
bömunum þegar þau mæta með
baukana sína, gerum hlut okkar á
landsvísu veglegan í ár. Þegar
niðurstöður úr söfnuninni liggja
fyrir í vor mun ég gera grein fyrir
þeim. Þeir sem hafa áhuga á að
gerast reglulegir stuðningsmenn
ABC hjálparstarfs eða vilja taka
að sér styrktarbam geta haft sam-
band við skrifstofu starfsins Sól-
túni 3, R.vík sími 561 6117.
Bestu kveðjur.
María Magnúsdóttir fulltrúi
ABC Á Suðurnesjum.
Eitt af kornabörnunum á Indlandi sem bjargað
hefur verið frá útburði.
22