Víkurfréttir - 18.10.2001, Side 30
SpKef styrkir Freyju
á heimsmeistaramót
reyja Sigurðardóttir
mun taka þátt í heims-
meistarmótinu í titncss
I en það verður haldið í Brasil-
I íu 26.-27. október. Sparisjóð-
I urinn í Keflavík hefur gert
I styrktarsamning við Freyju
vegna þátttöku í mótum inn-
anlands sem utan og var
J skrifað undir samning þess
■ efnis á þriðjudaginn.
I Freyja æfir tvisvar á dag í
| Periunni en reynir aó taka einn
I dag í hvíld í viku. „Ég er búin
I að vera í mjög ströngu lyftinga-
I og matarprógrammi í tvo mán-
• uði. Svona undirbúningi fylgir
mikið álag en ég er líka í skóla
og með fólk í einkaþjálfun, auk
. þess að æfa svona mikið sjálf.
■ Ég er yfirleitt mætt upp í Perlu
I upp úr hálf sex á morgnana og
I kem heim á kvöldin um kl. niu.
I Þá tekur heimalærdómurinn
I við fyrir skólann", segir Freyja
I en að heimsmeistaramótinu
I_____________________________
loknu tekur við undirbúningur
fyrir bikarmót fitness sem
haldið verður í Keflavík 24.
nóvember nk.
„Ég stefhi á að komast í 15
manna úrslit á heimsmeistara-
mótinu sem ég tel raunhæft,
þar sem keppinautar mínir eru
flestar atvinnumenn í íþróttinni
og gera því ekkert annað æfa“,
segir Freyja og lætur engan bil-
bug á sér finna.
Þess má geta að Galaxy fimess
mótið verður haldið t íþrótta-
húsinu við Sunnubraut nk.
laugardag. Freyja verður ekki á
meóal keppenda en hún ætlar
svo sannarlega að mæta á stað-
inn og hvetja hina keppenduma
til dáða. „Ég hefði ekkert á
móti því að keppa á mótinu en
þetta er í fyrsta sinn sem ég
mæti sem áhorfandi", segir
Freyja sem hefur sigrað á öll-
um fitness mótum sem haldin
hafa verið á íslandi hingað til.
GRINDVÍKINGAR!
Hafnargötu 7b Grindavík
Sími 426 9888
Gler í gegn ehf.
Dalshrauni 11, Hafnarfirði
Mikið úrval af glerjum
og öllu sem til þarf
Námskeið í glerskurði
og glerbræðslu.
upplýsingar í síma 555 6599
Netfang: maggie@tv.is • www.glerlist.is
Kæru viðskiptavinir
er komin til starfa
að nýju.
Verið velkomin,
Bylgja.
Hársnyrtistofan Klifs.
Sími 4214155.
Körfubolti:
Keflavík
og Njaðvík
sigruðu
Keflvíkingar og Njarð-
víkingar sigruðu í sín-
um viðureignum í
annarri umferð Epson-deild-
arinnar í körfu en Grindvík-
ingar máttu lúta í gras á
heimavelli gegn KR sl. sunnu-
dag og hafa tapað tveimur
fyrstu viðureignum sínum.
Grindvíkingar fengu KR-inga í
heimsókn og töpuðu með
naumindum 90-94. Stórleikur
Helga Jónasar Guðfinssonar á
lokakaflanum dugði ekki og
KR-ingar voru ánægðir að fara
með öll stigin heim.
Njarðvíkingar unnu léttan sigur
á Blikum í Ljónagryfjunni þar
sem lokatölur urðu 101-84.
Blikar héldu aðeins í við
heimamenn í bytjun en síðan
ekki söguna meir. Páll Kristins-
son og Logi Gunnarsson voru
atkvæðamestir hjá íslands-
meisturunum og skoruðu báðir
21 stig. Kenneth Richards var
stigahæstur blika með 16 stig.
Keflavík lagði Stjömuna ör-
ugglega 95-83 þar sem Guðjón
Skúlason rifjaði upp fyrir
mönnum þriggjastiga-hita og
skilaði 27 stigum í körfúmar en
í fyrstu umferðinni töpuðu
Keflvíkingar gegn Hamri í
Hveragerði 90-93 og Grindvík-
ingar máttu lúta í lægra haldi
gegn Haukum í Haínarfirði
með firnm stiga mun, 77-72.
Njarðvíkingar sóttu Borgnes-
inga heim og unnu 78-92.
Keflavíkurstúlkur góðar
Keflavík vann KR í uppgjöri
toppliða deildarinnar sl. sunnu-
dag nokkuð ömgglega því
lokatölumar urðu 81 -65 þrátt
fyrir að þær röndóttu hafi verið
með góða forystu í fyrsta leik-
hluta 13-21. Keflavíkjaíriaði
og náði síðan 8 til 10 stiga for-
skoti sem hélt til leiksloka og
rúmlega það. Erla Þorsteins-
dóttir var spræk og er að mæta
með skemmtilega endurkomu
eftir bakmeiðsli. Kristín Blön-
dal og Bima Valgarðsdóttir
vom líka góðar eins og reyndar
yngri stúlkumar líka í þessum
mikilvæga leik. Stúlkumar fara
til Grindavíkur í næsta leik sem
verður á laugardaginn kl. 14.
Kjörísbikarinn um helgina
Kjörísbikarinn hefst í kvöld.
Njarðvíkingar leika gegn Þór,
Þorlákshöfn, Grindvíkingar
fara norður og leika gegn Þór
Ak. og Keflvíkingar fara til Isa-
fjarðar og munu leika báða
leikina þar.
Eins og venja í þessari keppni
er leikið heima og heiman en
bæði liðin em í spamaðarátaki
og var ákveðið að leika báða
leikina á Isafirði. Sá fyrri verð-
ur á fóstudagskvöld en sá
seinni á laugardaginn kl. 13.
REYKJANESBÆR
TJARNARGÖTU 12
230 KEFLAVÍK
REYKJAN ESBÆR
Útboð
Reykjancsbær, óskar eftir tilboðum í verkið:
„DÆLUHÚS VIÐ EYJAVELLI“
Verkið felst í að byggja dæluhús íyrir Vatnsveitu
Reykjanesbæjar. Um er að ræða steinsteypt hús
fullfrágengið að innan og utan.
Helstu stærðir eru eftirfarandi:
Flatarmál48 m2
Rúmmál 157 m3
Verklok 1. apríl 2002.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Reykjanesbæjar
ákr. 3.000,-Tjamargötu 12,230 Keflavík, frá
ogmeð þriðjudeginum 23. október 2001.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn
19.nóvember2001,kl. 11:00.
Reykjanesbær.
30