Víkurfréttir - 12.09.2002, Side 19
37. tölublað • fimmtudagurinn 12. september 2002
NÝJUSTU FRÉTTIR Á WWW.VF.IS_______________|
160tonn af járnarusli
í umhverfisátakinu
Alls söfnuöust 160 tonn
af málmum, sem nú eru
á leið til endurvinnslu í
umhverfisátaki Reykjanes-
bæjar sem nú er nýlokið. A-
takið hófst þann 8. ágúst sl.
og stóð til 1. september. Fjall-
að er um átakið á vefsíðu
Vistverndar sem segir það
falla vel að verkefninu „vist-
vernd í verki“ sem Reykja-
nesbær tekur þátt í ásamt
Staðardagskrá 21.
Markmið átaksins var að
hreinsa jaðra Reykjanesbæjar
af öllum málmum og öðru rusli
sem safnast hefúr upp í gegn-
um tíðina. Átakið var unnið í
samvinnu við Njarðtak,
Hringrás, Sorpeyðingarstöð
Suðumesja og unthverfissam-
tökin Bláa herinn og var öll
vinna í átakinu gefin í þágu
málefnisins. Þá hafa íbúar og
fyrirtæki lagt sitt af mörkum og
tekið virkan þátt í átakinu.
Árin 1999 og 2000 hreinsaði
Blái herinn höfnina í Keflavík
íyrir utan þyngri hluti sem sem
voru látnir liggja af tæknileg-
um ástæðum. A dögunum var
látið til skarar skriða og ruslið
sem eftir varð tekið með bíl-
krana. Því miður kom í ljós að
talvert af rusli hefur bæst í
höfnina ffá fyrra átaki m.a. raf-
geymar sem eins og flestir vita
eru mjög skaðlegir umhverf-
inu. Það er sotglegt til þess að
hugsa að enn skuli finnast
menn sem láta slíkt gossa í sjó-
inn, segir á vefsíðu Reykjanes-
bæjar.
Leoncie missti
hárkolluna á sviði
Hinn landskunni tónlist-
armaður, Leoncie, eða
indverska prinsessan,
fór skyndilega af sviðinu á
útitónleikum í Reykjanesbæ
á föstudagskvöld eftir að
hafa fallið á sviðið og misst
hárkollu sem hún bar á höfð-
inu. Söngkonan var í mikilli
sveiflu og stemmningin var
góð á svæðinu þegar söng-
konan skyndilcga þagnaði og
steinlá á sviöinu. Skömmu
áður hafði hún fengið dansfé-
laga á sviðið úr hópi áhorf-
enda.
Uppákoman var að vonum
mjög vandræðaleg fyrir söng-
konuna. Hún reyndi að fela
andlit sitt og snéri baki í áhorf-
endur þegar hún afkynnti atriði
sitt og fór af sviðinu.
ATVIIUIUA
starfsfólki til ræstinga
KeflavíkurverktakaTO., oska eftir að ráða fólk til starfa
í ræstideild fyrirtækisins. Um er að ræða heilsdags og
hálfsdags störf. Umsóknarfrestur er til 30. september
nk. Umsóknarblöð liggja frammi á skrifstofu fyrirtækisins.
Einnig er hægt að sækja um á kv.@kv.is. Upplýsingar
gefur María Þorgrímsdóttir sími 420 6408 og maria@kv.is.
Fyrirtækið áskilur sér rétt til að
ráða strax hæft starfsfólk í
störfin þó umsóknarfrestur sé
ekki útrunninn.
KEFLAVIKURVERKTAKAR hf.
...tilbúnir á nýrri öld!
Persóna opnar nýja verslun við Hafnargötu
jr
ALjósanæturlaugardaginn opnaði tískuvöruverslunin Persóna nýja verslun að Hafnargötu
29, en verslunin flutti af Túngötunni. Að sögn Ágústu Jónsdóttur, eiganda Persónu býður
verslunin nú uppá breiðari fatalínu og aukiö úrval: „Við höfum aukið við úrvalið í kven-
fatalínunni, auk þess sem við bjóðum uppá breiðari fatalínu, ódýrari fót og úrval af skófatnaði.“
Agústa segir að þegar verslunin var opnuð á nýja staðnum á laugardaginn hafi mikið af fólki
komið í búðina til að skoða: „Fólk tekur Jiessu mjög vel og er ánægt með að við séum komin
miðsvæðis á aðalverslunargötuna,“ sagði Ágústa í samtali við Víkurfréttir.