Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 14.11.2002, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 14.11.2002, Blaðsíða 13
Davíð Ólafsson bassi stund- aði nám við Tónlistarskólann í Keflavík hjá Árna Sighvats- syni, Nýja Tónlistarskólann hjá Sigurði Demetz, Keith Reed og Signýju Sæmunds- dóttur og við Söngskólann í Reykjavík, þar sem aðalkenn- ari hans var Guðmundur Jónsson. Þá hélt hann til framhaldsnáms við óperu- deild Tónlistarháskólans í Vínarborg, en meðal kennara hans þar voru Helene Karus- so og Norman Shetler. Að námi loknu var Davíð ver- ið fastráðinn við Óperuna í Líibeck í tvö ár, auk þess sem hann hefur verið gestasöngv- ari við óperuhús í Sviss, Aust- urríki, Þýskalandi og San Francisco í Bandaríkjunum. Hann hefur haldið fjölda tón- leika á íslandi og á megin- landi Evrópu. Meðal hlut- verka sem Davíð hefur sungið eru Leporello í Dpn Giovanni, Don Magnifico í Öskubusku, Rocco í Fidelio, Figaro og Bartolo í Brúðkaupi Fígarós, II Re í Aidu, John Falstaff í Kátu konunum frá Windsor, Sarastró í Töfraflautunni og Arnolphe í Schule der Frauen. ( Lubeck söng hann hlutverk Don Alfonso í Cosi fan tutte eftir Mozart vorið 2001 og sumarið 2002 söng hann hlutverk Don Basilio í Rakaranum í Sevilla á óperuhátíðinni í Merzig í Þýskalandi. Davíð er fastráðinn við (s- lensku óperuna frá ágúst 2002 og er fyrsta hlutverk hans þar Doktor Bartolo í Rakaranum í Sevilla. 46. tölublað • fimmtudagurinn 14. nóvember 2002 BAKSVIÐS MEÐ SUÐURNESJAMÖNNUM í ÓPERUNNI M------------------------------------------------------ Rakarinn frá Sevilla er fyrsta óperan sem ég hef séð. Ég var nokkuð spenntur þegar ég settist niður á svalir íslensku Óperunn- ar og horfði yfir sviðið áður en sýningin hófst. Horfði niður á sviðið og fylgdist með því þegar hljómsveitarmeðlimir Sinfóníu- hljómsveitarinnar samstilltu sig fyrir sýn- inguna og beið eftir því að hún hæfist. Klukkan 20:00 voru ljósin dregin niður og hljómsveitin byrjaði að spila. Eg hallaði mér aftur í sætinu og var staðráðinn í því að njóta hvers einasta augnabliks.Tónarn- ir flögruðu um salinn og hvílíkir undur- tónar. Það var sérstakt að sitja í góðu sæti og hlusta á samhljóm tuga hljóðfæra mynda svo fallega heild. Þegar söngvararn- ir komu á sviðið var upplifunin engu minni. Ég sat dolfallinn og horföi, hlustaði og skyldi það sem um var að vera á sviðið- inu. Éyrir ofan sviðið, nærri því í loftinu er textavél þar sem texti óperunnar rennur eftir skjá. Maður skyldi því óperuna frá byrjun. Ég verð að segja að ég sat gjörsamlega límdur og dáðist að þessu undraverða list- formi. Söngvararnir svifu um sviðið og hrifu áhorfendur með sér. Mér fannst allir söngvarar sýningarinnar syngja mjög vcl og leikur þeirra var einnig góður. Saga verksins er falleg, en söngvararnir náðu með leik sínum og söng að gera hana skemmtilega um leið. Þó að um alvarlega ástarsögu sé að ræða þá náðu söngvararnir að flétta hana svo miklum húmor að á- horfendur og ég sjálfur hlógum dátt. Sýningunni lauk rétt fyrir ellefu, cn það var eins og ég væri nýsestur í sætið mitt þegar sýningin var búin. Fyrsta óperuupp- lifun mín var ejnstök og hana geymi ég í minningunni. Ég er enginn sérfræðingur á sviði söngs, leikrænna tilburða, sviðsmynd- ar, Ijósahönnunar, búninga eða annara at- riða sem gagnrýnendur horfa á þegar þeir gagnrýna sýningar sem þessa. En sem leik- maður fannst mér þessi sýning frábær og hcf ekkert út á hana að setja. Það eina sem ég gct gcrt er að hvetja fólk til aó sjá sýn- inguna og því get ég lofað að enginn verður svikinn. Jóhannes Kr. Kristjánsson Lukkumiðar í Samkaup Bleikir miðar í gildi 14. nóvember til 20. nóvember. iez iilx Tilboð í nóvember 20°/° afsláttut af hreinsun á gluggatjöldum og rúmteppum. Efnalaug Suðurnesja Hafnargötu 55b • 230 Keflavík • Sími 421 1584 13

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.