Víkurfréttir - 14.11.2002, Blaðsíða 16
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
;; maður vikunnar
Nafn: Jón Gunnarsson
Fædd/-ur hvar og hvenær. 26. maí 1959 í Hafnarfirði
Atvinna: Framkvæmdastjóri Sæbýlis hf.
Maki: Guðrún Gunnarsdóttir
Börn: Gunnar 20 ára og Svanhvít 10 ára
Hvaða bækur ertu að lesa núna? Það hefur verið lítill tími til
lestrar undanfarið, en ég er að lesa íslendingasögurnar upp á nýtt
Hvað er það fyrsta sem þér kemur í hug, þegar þú vaknar á
morgnana? Veðrið
Ef þú gætir unnið við hvað sem er, hvað væri það?
Gaman væri að vera geimfari, hlýtur að vera ótrúleg tilfinning
að fara út í geiminn.
Hvað er það allra skemmtilegasta sem þú gerir? Fara í ferðalög
með fjölskyldunni innanlands sem erlendis. Það er líka óskaplega
gaman að matreiða og þá eru stórveislur skemmtilegastar
Hvað fer mest í taugamar á þér, og hvers vegna? Óheiðarleiki,
vegna þess að hann hefur aldrei neitt gott í för með sér.
Ef þú værir Sjávarútvegsráðherra í einn dag, hverju myndir þú
breyta? Sjávarútvegsráðherra í einn dag gerir aldrei mikið, en ef
ég réði öllu og gæti gert hvað sem er myndi ég leggja af núverandi
fiskveiðistjórnunarkerfi
Hvað gerir þú til að láta þér líða vel?
Útivera og hreyfing orsaka alltaf vellíðan
Hvað finnst þér mikilvægt að gera? Að gera alltaf mitt besta
Hvað er með öllu ónauðsynlegt í lifi þínu? Fótanuddtæki
Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta rætast?
Já, en hann væri ekki leyndur lengur ef ég segði ykkur frá honum
Gætir þú lifað án síma, sjónvarps, og tölvu? Sjóvarps gæti ég
verið án, en sími og tölva eru víst nauðsyn í dag
Hvað er mikilvægasta heimilistækið á heimili þínu, og hvers
vegna? Kaffikannan, nýlagað kaffi á morgnana telsttil grunnþarfa
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur gert?
Stundum má satt kyrrt liggja
Lífsmottó? Lifðu lífinu lifandi
LINUR AÐ SKYRAST
í SUÐURKJÖRDÆMI
- hlutur Suðurnesjamanna rýr
Eftir Uokksval Samfylkingarinnar sem fram fór um síðustu lielgi
er ljóst hvernig framboðslisti þeirra skipast fyrir alþingiskosning-
arnar sem fram fara þann 10. maí nk. Suðumesjamenn sem Vík-
urfréttir hafa rætt við telja að ef Jóhann Gcirdal og Sigríður
Jóhannesdóttir hefðu tekið sig saman og stefnt á sitthvort
sætið hefðu þau hugsanlcga bæði náð inn á listann. Enginn
Suöurnesjamaöur er í þremur efstu sætunum, en Jón Gunn-
arsson náði fjórða sætinu. I>að er því Ijóst að mikil barátta
verður að koma Jóni inn í öruggt sæti. Hið nýja Suðurkjör-
dæmi mun hafa 10 þingmenn og baráttan um þessi sæti
verður hörð á milli allra flokka. Kjördæmisráð Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins hafa ákveðið að hafa upp-
stillingu á sínum listum í kjördæminu.
Ljóst þykir að Guðni Ágústsson landbúnaðarráöherra
mun skipa fyrsta sæti á lista framsóknarmanna í kjör-
dæminu, en heimildir Víkurfrétta herma að Hjálmar
Arnason muni skipa annað sætið. Innan Framsóknarflokks-
ins er rætt um að það verði gríðarlcg barátta um þriðja sæti
listans, en Isólfur Gylfi Pálmason þingmaður sækist eftir því
sæti. Heimildarmenn Víkurfrétta segja að konur innan Framsóknar-
flokksins í Vestmannaeyjum sæki fast að því að fá þriðja sætið og ein-
nig er talað um aö ungt fólk geri kröfu um það sæti. Það verður því
mikil barátta um þriðja sætið innan Framsóknarflokksins í Suður-
kjördæmi. Kjördæmaþing verður haldið þann 18. janúar á Selfossi og
þá mun endanlega koma i Ijós hvernig listinn verður uppsettur, en
fyrstu sex sætin eru bindandi.
Baráttan verður harðari þegar litið er til uppröðunar á lista Sjálf-
stæðisflokksins en þar koma Kristján Pálsson og Drífa Hjartar-
dóttir sterklega til greina sem leiðtogar sjálfstæðismanna í kjör-
dæminu. Heimildarmenn Víkurfrétta segja að Kristján sé þó líklegri
sem leiðtogi listans því hann býr á Suðurnesjum og ef sú verður raun-
in er ljóst að Kristján færi sig mjög nálægt ráðherrastól innan Sjálf-
stæðisflokksins. Mikil barátta verður um þriðja sætið en þar verður
baráttan á milli Árna Ragnars Árnasonar, alþingismanns og Guðjóns
Hjörleifssonar, fyrrverandi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum. Heimild-
armaður innan Sjálfstæðisflokksins sagði þó aö staða flokksins væri
sterk í kjördæminu og hann taldi líklcgra að Árni Ragnar yrði valinn í
þriðja sætið.
W
Asamráðsþingi Frjálslynda flokksins síðasta laugardag var ákveð-
ið að við val á framboðslista muni verða stillt upp á lista og verða
framboðslistar kynntir eftir áramót. Heimildir Víkurfrétta
herma að mikill þrýstingur sé á Magnús Þór Hafsteinsson frétta-
mann um að taka fyrsta sæti á lista Frjálslynda flokksins í Suðurkjör-
dæmi. Efsti maður á lista flokksins í Revkjaneskjördæmi fyrir síðustu
alþingiskosningar var Grétar Mar Jónsson úr Sandgerði, en heimild-
armenn Víkurfrétta telja að Magnús Þór yrði fyrir valinu ef hann
myndi ákveða aö bjóða sig fram í fyrsta sætið.Aðilar sem Víkurfréttir
ræddu við telja að ef Magnús Þór skipaöi efsta sæti lista Frjálslynda
flokksins í Suðurkjördæmi gæti hann breytt landslagi kosningaúrslit-
anna töluvert og náð kjöri.
Það er verið að vinna að uppstillingu á lista Vinstri grænna í Suð-
urkjördæmi og heyrist nafn Ragnars Sigurjónssonar, framhalds-
skólakcnnara í Vestmannaeyjum ítrekað í samtölum við fólk sem
þekkirtil mála.Víkurfréttir hafa ekki heyrt neina aðila nefnda afSuð-
umesjum sem hugsanlega sækjast eftir sæti á lista flokksins.
Ba|þóJcJö^re^Ia
LÖGR EGLAN í KEFLAVÍ K
Á fostudag urðu tvö umferðaró-
höpp á Grindavíkurvegi, en á
veginum hafði myndast glerhálka
í ljósaskiptunum. Það fyrra var
tilkynnt kl. 08:31 en þá missti
ökumaður stjóm á bifreið sinni í
hálku með þeim afleiðingum að
bifreiðin lenti utanvegar og valt.
Okumaður var einn í bílnum og
er talið að hann hafi hlotið tals-
verða áverka. Hann var fluttur á
Sjúkrahús Suðurnesja. Klukkan
09:50 missti annar ökumaður
stjórn á bifreið sinni í hálkunni
og lenti utan vegar. Bifreiðin
skemmdist töluvert en ökumaður
slapp ómeiddur. Lögreglan vill
vara ökmenn við þessum aðstæð-
um sem skapast oft á þessum árs-
tíma, sérstaklega í ljósaskiptum.
Á föstudagskvöldið klukkan
22:03 missti ökumaður stjórn á
bifreið sinni innanbæjar i Grinda-
vík, þegar hann var að skipta um
geisladisk í hljómflutningtækj-
um, leit af veginum og þegar
hann leit upp stefhdi bifreiðin á
ljósastaur. Við það að sveigja hjá
staurnum missti hann stjórn á
bifreiðinni, lenti utanvegar og
hafhaði á grindverki. Ökumaður-
inn slapp ómeiddur.
Á laugardagskvöldið kl. 20:10
var tilkynnt um eld í eyðibýli á
Vatnsleysuströnd. Þegar lögregla
og slökkvilið komu á staðinn var
húsið alelda. Við rannsókn máls-
ins kom i ljós að tveir drengir,
annar 10 ára og hinn 11 ára,
höfðu verið i húsinu fyrr um dag-
inn, kveikt þar á kertum og þar
sem þeim haft verið kalt þá hafi
þeir kveikt í netum. Þeir fóru
heim um kl. 18:30, en töldu sig
hafa slökkt eldinn áður en þeir
fóru heim.
Á laugardagskvöidinu um kl.
23:22, tóku lögreglumenn mikið
ölvaðan 15 ára ungling í Njarð-
víkum og óku honum til síns
heima. Mun hann hafa verið í „-
heimaparýi ásamt fleiri krökkum
13-15 ára og var þar haft áfengi
um hönd.
Upphafshópur Baðstofunnar
og Hótel Keflavík eiga skilið að
fá lof vikunnar. Báðir þessir
aðilar hafa auðgað menningar-
líf bæjarins og vonandi munu
þeir halda því áfram um
ókomin ár.
Halli í Stapanum fær lof fyrir
frábært kvöld í Stapanum um
síðustu helgi. Hljómarnir,
Selma og Hansa, maturinn og
umgjörðin - allt var þetta
frábært. Útsendari Víkurfrétta
var á staðnum og sat til borðs
með árshátíðarhópi úr
Reykjavík sem gisti á Hótel
Keflavík og hópurinn vildi gefa
Suðurnesjamönnum 10 í
einkunn fyrir skipulagningu og
skemmtun.
LASTIÐ
Nú hafa Suðurnesjamenn
verið heimilislæknalausir í
tvær vikur og á sama tíma
hefur gengið yfir mjög skæð
flensa. Foreldrar barna á
Suðurnesjum þurfa að fara til
Reykjavíkur með börn sín til að
njóta læknisþjónustu eða
greiða fyrir læknisþjónustu á
uppsprengdu verði. Last vikun-
nar fær heiIbrigðisráðherra og
aðstoðarmaður hans.
Grjótvarnargarðurinn á nýja
hringtorginu hlýtur að fá smá
last. Þeir hefðu kannski mátt
setja hann nær sjónum?:-)
SKRIFIÐ!
Víkurfréttir
hvetja Suðurnesjamenn til að
skrifa lesendabréf til birtingar
hér á síðunni. Verið málefnaleg
og stuttorð. Frábiðjum okkur
deilumálum eða meiðandi
umræðu.
Víkurfréttir
Grundarvegi 23
260 Njarðvík
eða pc@vf.is
Lesendabréf og aðsendar greinar
berist fyrir hádegi á mánudögum
til Víkurfrétta.
á Netinu!
www.vf.is
16