Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 14.11.2002, Side 19

Víkurfréttir - 14.11.2002, Side 19
____________UMRÆÐAN Um fegurðarsamkeppni og klámstjörnu Nú hefur klámstjarna af karlkyni riðið hús- um tjölmiðla hér um slóðir undanfarið. Þennan ólánsama mann bar ég augum hér í blaðinu fvrir skömmu þar sem sdjjjl hann baðaði sig í Bláa lóninu I með þátttakendum í Herra Suö- í7- urnes. Ungu piltarnir brosa þar ■L -• Æ breitt og umveija „stjörnuna” Hk áH elsku sinni. Ég get ekki lagt ann- i fl " 'Vj an skilning í myndbirtinguna en þann að Sódómu-stjarnan sé fyr- irmynd þessara sólbrúnu pilta. Því spyr ég: Eru keppendur í Herra Suðurnes upprennandi klámmyndastjörnur. Heimur versandi fer og nú þykir mér fegurðarsam- keppni karla á Suðumesjum hafa lagst lágt. Hvaða augum yrði það t.d. litið ef þátttakendur í Ungfrú Suðurnes myndu sitja fyrir á mynd með heims- þekktri klámmyndaleikkonu? Það held ég að mörg- um þætti nú miður. Myndu nánustu aðstandendur stúlknanna sætta sig við það? Slikt myndbirting gæfi ekki annað til kynna en það að stúlkurnar væru bólglaðar og á hraðri leið inn í klámmynda- bransann, ef ekki þegar komnar þangað. Það er með ólikindum hvað þessi blessaði maður hefúr fengið mikla athygli í fjölmiðlum. Fréttakona nokkur á Stöð 2 á hrós skilið fyrir að hafa neitað að taka viðtal við hann. Hefúr hún orðið fyrir aðkasti vegna þessa eins og fram hefúr komið m.a. af sinum samstarfsmönnum. Nær væri að fjölmiðlar gerðu sér grein fyrir áhrifamætti sínum og misnotuðu hann ekki eins og raun ber vitni. Með því að upp- hefja umræddan mann er klámiðnaðinum gert hátt undir höfði. Umrædd mynd hefúr eflaust átt að vera fyndin og ef til vill er hún það, enda maðurinn nokkuð dólgslegur. Með þessu var hins vegar verið að senda skilaboð sem mjög auðvelt er að mistúlka. Ungt fólk er áhrifagjamt og meðal unglinga eru fyr- irmyndir ákaflega mikilvægar. Skilaboðin hér eru á þá leið að klám sé sjálfsagt og eftirsóknarvert. Fegurðarsamkeppnir eru umdeildar. Reynt hefur verið að hefja þær til vegs og virðingar með ýmsum hætti og því verður ekki neitað að það er góð land- kynning þegar þátttakendur ná langt á þessu sviði erlendis. En góður árangur í þessum efhum er ekki ávísun á hamingju eins og komið hefúr fram í opin- skáu viðtali við Lindu Pétursdóttur, fyrr á þessu ári. Undirbúningur fyrir keppni af þessu tagi er marg- víslegur. Legið er lengi í Ijósalampa og lært að ganga! Keppendur eru allir steyptir í sama mót og settir í stífar æftngar og aðhaldsaðgerðir sem sumar hveijar hafa dregið dilk á eftir sér og jafhvel endað í alvarlegum sjúkdómum á borð við lystastol. Athygl- isverð íslensk heimildarmynd var frumsýnd nú ný- verið um fegurðarsamkeppni kvenna. Hún sýnir vel það sem gerist á bak við töldin i þessum bransa. Mynd þessi vann til Edduverðlauna. Guðfheðilega er ekki hægt að mæla með keppnum af þessum toga. Fegurðin kemur innan frá í augum Guðs. Frá hjartanu eins og segir í orðinu. Hún fellst í hugsunum okkar, orðum og athöfnum. Líkami mannsins er musteri Guðs sem manninum ber að rækta. Það gerir hann með heilsusamlegu lífemi. Maðurinn á ekki að upphefja sjálfan sig fyrir sköp- unarverkið. Ég skora á þátttakendur í þeim fegurðarsamkeppn- um sem hér eru framundan að íhuga gildi þess að taka þátt í keppni af þessu tagi og láta ekki misvitra stjómendur þeirra leiða sig í ógöngur. Dæmin sanna að keppendur sjálfir ráða oft litlu um það hvaða brögðum er beitt til þess að ná augum og eyrum fólks í þessum efnum. Birgir Þórarinsson Höfundur er guðfræðingur. 46. tölublað • fimmtudagurinn 14. nóvember 2002 Ertu með ábendingu nm hættu í umhverfinu? Hringduí síma 421 6780! 230 keflavIk SKYGGNILÝSINGAFUNDUR María Sigurðardóttir miðill verður með skyggnilýsingarfund í húsi félagsins að Víkurbraut 13, Keflavík sunnudaginn 17. nóvember nk. kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 20. Aðgangseyrir við innganginn. Allir velkomnir. Stjórnin. Efnilegir hönnuðir í Sandgerði eir voru glæsilegir kjól- arnir sem nokkrir ung- lingar úr Sandgerði hönnuðu og sýndu á fatahönn- unarkeppni á vegum Samfés sem haldin var í gær í nýju fé- lagsmiðstööinni þar í bæ. Margt var um manninn á keppninni og var ekki bctur séð en ttestir skemmtu sér vel. Hafið var þema kvöldsins og voru kjólarnir, sem voru fjórir talsins, allir túlkaðir út frá því. Keppnin sem var í Sandgerði var undankeppni fyrir stærri keppni sem Samfés mun halda síðar á árinu þar sem sigurvegarar úr svipuðum keppnum af öllu land- inu koma saman. LESENDAL Pennans Bókabúðar Keflavíkur og Víkurfrétta Þú getur unnið bókina Suðurnesjamenn! Svaraðu einni laufléttri spurningu. Skrifaðu svarið á svarseðillinn og skilaðu honum í Pennann Bókabúð Keflavíkur. IKUR lUtCHM ies‘n:ym°9hepp eslanienn eftir Guöraunds<tnn **>**<£& SPURNING1: Nefnið tvo af þeim einstaklingum sem talað er við í bókinni Suðumesjamenn. Nafn: Símanúmer: Sérstakur lokaúrdráttur 17.desember. Vinningan íslenska Orðabókin og Suðumesjamenn Heildarvemiæti kr. 20.000.- Iregið verður úr ÖLLUM innsendum miðum. BókaJbúð KefLunJcur 19

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.