Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 14.11.2002, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 14.11.2002, Qupperneq 20
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is vno» í'RÉTTIR fl ;; fyrst og fremst Logi Gunnarsson, körfuknattleiks- maðurinn knái úr Njarðvík, og fél- agar hans í þýska 2. deildar liðinu Ulm riöu ekki feitum hesti í viður- eign sinni við USC Heidelberg um helgina en þeir töpuðu á 85:93. Þetta var annað tap liðsins í vetur en með tapinu féli liðið niður í 8. sæti deildarinnar. Logi setti niður 25 stig í leiknum en þess má til gamans geta að Logi varð í 3. sæti í kjöri um leikmann mánaðarins hjá Ulm. Pete Philo hefur verið sagt upp störfum hjá Njarðvikingum í körfuknattleik og í stað hans mun liðið hafa samið við GJ Hunter, 31 árs gamlan Bandaríkjamann, sem komið hefur viða við. Þá hafa Njarðvíkingar einnig samið við Þor- stein Húnfjörð úr Keflavík en hann fékk lítið að spreyta sig með Kefl- víkingum í byrjun tímabilsins og ákvað því að leita á önnur mið. Sacha Montgomery, bandaríski leikmaður Njarðvíkurstúlkna í körfu, hefur verið látin taka poka sinn. Hún þótti ekki hafa staðið undir þeim væntingum sem til hennar voru gerðar. Óvíst er hvort Njarðvík- urstúlkur fái annan erlendan leik- mann til liðsvið sig. flgúst Hilmar Dearborn, leikmaður Njarðvíkur í körfuknattleik, var i gær úrskurðaður í sex leikja bann vegna atviksins sem átti sér stað í leik liðsins gegn Haukum í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins 5. nóvem- ber þegar hann sparkaði í Ingvar Guðjónsson leikmann Hauka. Ágúst missir af fimm deildarleikjum og einum bikarleik. Næsti leikur sem Ágúst getur tekið þátt í er gegn Breiðabliki 20. desember. Ágúst hefur þegar beðist afsökunar á framferði sínu og har- mar það. Ragnar Steinarsson, fyrrum leik- maður Keflavíkur í knattspyrnu, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Keflavíkur. Mun hann vera nýráðn- um þjálfara liðsins, Milan Stefán Jankovic, til halds og trausts. Ragnar hefur lokið AB-þjálfarastigi frá KSÍ og mun um helgina taka B- stigið. Suðumesin á iði! „Allt er gott sem endar vel,“ segir máltækið! Verkefni okkar „Suðurnesin á iði“ | er lokið. Þrátt fyrir ið er þínu verki I ekki lokið, en það er okkar von, að verkefnið hafi skil- að þér einhverjum árangri. Leiðin er greið og vopnið er í þínum höndum, það er jú fyrst og ffemst þú sem berð ábyrgð á þinni heil- su. Nýttu þér þær upplýsingar sem þú hefur fengið og haltu áfram á réttri braut. Hvað tekur við þarft þú að ákveða. Framundan er sá tími sem sumum þykir strembinn, þ.e. kólna fer úti og dimmt er stóran hluta af sólarhringnum. Það er auðvellt að nota þessa tvo þætti sem hindrun fyrir því að fara að hreyfa sig. Auðvelt er að klæða sig eftir veðri, setja húfu á höfuðið, fara í vettlinga og góða skó. Varastu þó að klæða þig of mikið, því um leið og þú ferð að hreyfa þig, þá hitnar líkaminn. Rannsóknir hafa sýnt fram á að líkamleg áreynsla hefur jákvæð áhrif á þunglyndi. Þeir sem stun- da markvissa hreyfingu eru síð- ur í hætm á að verða þunglyndir. Skammdegið fer oft illa í þá sem þunglyndir eru, því er gott ráð að fara og hreyfa sig, þegar maður finnur fyrir því að depurð færist yfir mann. Við æfingar hækkar líkamshitinn, sem veld- ur oft slökun. Þegar þú ferð og M Föstudagur 15. nóvembe KEFLAVIK - UMFG Intersportdeildin kl. 19.15 Laugardaginn 16. nóvember KEFLAVIK - Is 1. deild kvenna kl. 16.00 AWD 1 Q dsbankinn l J . V1NTERSP#RT Landsbankinn \ OEILDIN hreyfir þig, þá dreyfir það hug- anum og fær þig til að sjá hlut- ina í nýju ljósi ! Prófaðu nú! Síðasta mæling fór fram síðasta sunnud. Það var gaman að sjá hversu góðum árangri margir höfðu náð. Það er hvetjandi þeg- ar vel gengur. Mikilvægt er að halda áfram á sömu braut. Þú getur í framhaldi sjálf/ur tekið tímann á 2 km. og séð hvernig þér hefur gengið með þvi að skoða töflu sem hangir uppi í Reykjaneshöllinni. Gott er að framkvæma slíkt sjálfspróf t.d. á mánaðarfresti. Þeir sem mættu í mælingu síð- asta sunnudag, var boðið að taka þátt í lukkupotti, þar sem 16 heppnir vinningshafar voru dregnir út. Verðlaunin voru ekki af verri endanum, tíu mánaðar- kort í likamsræktarstöðina Lífs- stíl, 10.000 kr. gjafabréf frá K- sport, tvö 20 tíma þrek, sund og gufukort í íþróttamiðstöð Njarð- víkur, 10 tima sundkort í íþróttamiðstöð Gerðahrepps, 10 tíma ljósakort í íþróttamiðstöð Gerðahrepps og að lokum fót- snyrting hjá Lóu í Snyrtistof- unni Okkar! Vinningshafar eru beðnir um að nálgast vinninga hjá Kiddý. Þeir sem unnið hafa mánaðarkort í Lifsstíl, hafa samband við af- greiðslu Lífsstíls. Við viljum þakka styrktaraðilum kærlega fyrir aðstoðina, án þeir- ra hefói verkefnið ekki orðið svona skemmtilegt. Einnig viljum við þakka öllum þeim Qölmörgu sem voru svo duglegir að hreyfa sig með okk- ur, með von um að ávinningur- inn verði þeim til góðs. Að lokum, leggið rækt við lík- ama og sál, fyllið kroppinn lífi og fjöri. Vinningshafar voru: Mánaðarkort í Lífsstíl Anna Sigríður Jóhannesdóttir Aldís Jónsdóttir Ágústa Halla Jónasdóttir Björg Alexandersdóttir Guðbrandur Valtýsson Guðmundur Stefánsson Guðrún Rósa Guðmundsdóttir Kolbrún Sigurðardóttir Sigurbjörg Halldórsdóttir Þóra Rut Jónsdóttir Gjafabréf í K-sport: Aníta Marcher Pálsdóttir 10 tíma Ijósakort í íþróttamið- stöð Gerðahrepps: Pétur Brynjarsson 10 tíma sundkort í íþrótta- miðstöð Gerðahrepps: Sigfús Ingvason 20 tíma þrek, sund og gufu- kort í íþróttamiðstöð Njarðvík- ur: Hildur Harðardóttir Þjóðbjörg Gunnarsdóttir Fótsnyrting hjá Snyrtistofunni Okkar: Heimir Sigursveinsson Kœr kveðja frá Kiddý, Begga og Ganju íþróttakeniiiirum. Föstudagur 15. nóvember 2002 UMFN - SNÆFELL Njarðvík kl.19.15 ÚRVALSDEILD SpKef Sparlsjóðurlnn í Keflavík ■ 177 20% afsl. fyrir þátttakendur Sundlaugar á Suðurnejsum Suðurnes Stuðningsmenn Keflavíkur hittast fyrir næsta leik Stuðningsmannaklúbbur^ Keflavíkur í körfuknatt- leik mun koma saman í nýja félagsheimili liðsins á Hringbraut/ fyrir leikinn gegn' órindvíkingum á fostudag. Þeir munu hittast kl. 18:00 og verða léttar veitingar í boði. Leikmaður og þjálfari Keflavík- urliðsins mæta í heimsókn og spjalla við gesti. Allir stuðningsmenn liðsins eru hvattir til að mæta! m Firmakeppni Reynis Firma og hópakeppni Knatt- spymudeildar Reynis veður hald- in laugardaginn 23. nóvember í íþróttahúsinu í Sandgerði. Leikið er eftir gömlu reglunum, þ.e.a.s. fjórir inná í einu og enginn mark- maður. Þátttökugjald er 1.000 kr. á manninn. Skráning í síma: 861- 9891 - Hannes og 863 1795 - Sissi. 20 Klipptu út greinina og geymdu!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.