Morgunblaðið - 31.05.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.05.2016, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 1. M A Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  125. tölublað  104. árgangur  H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA / A ct av is 3 1 4 0 2 0 Íbúfen® 400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk SÉR FEGURÐ Í ÞVÍ DIMMA OG DRUNGALEGA FULLVINNSLA LYKILLINN NJÁLA ER MEÐ ALLS ELLEFU TILNEFNINGAR VILJA SKAPA GULLKARFA SÉRSTÖÐU 14 GRÍMAN 2016 57SNÆFRÍÐUR 12 Hann var vel búinn, ferðamaðurinn sem skoðaði Skógafoss gaumgæfilega. Ekki virðist þó vera mikil þörf á regnfötum, nema í þar til gerðum leiðöngrum, þegar líða fer á vikuna. Spáð er hægviðri eða hafgolu og víða léttskýjuðu, en líkur eru á þokulofti við sjávarsíðuna. Áfram verður hlýtt í veðri og mun hitinn fara upp í 20 stig í flestum landshlutum. »6 Í votum könnunarleiðangri við rætur Skógafoss Morgunblaðið/RAX  Alvarlegt mótorhjólaslys varð á Þingvallavegi við Leirvogsá á Mos- fellsheiði síðdegis í gær. Ökumað- urinn sem var einn á ferð virðist hafa misst vald á hjóli sínu og lent utan í vegriði að sögn lögreglu. Þingvallavegi var lokað í tæpar fjórar klukkustundir meðan rann- sókn lögreglu á vettvangi fór fram. Ökumaðurinn var fluttur á Land- spítala til aðhlynningar og er ástand hans talið alvarlegt. Mótorhjólaslys á Þingvallavegi Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjármálaráðherra sagði við almenn- ar stjórnmálaumræður á Alþingi í gærkvöldi að ekki mætti líta á það sem sjálfsagðan hlut að kaupmáttur heimilanna aukist um 11% á einu ári, eins og nú væri staðreynd. Það sé ekki hægt nema framleiðnin auk- ist jöfnum skrefum og hún vaxi ekki um 10-12% á ári. Bjarni Benediktsson sagði í ræðu sinni að frekar ætti að stefna að því að verja þann árangur sem náðst hefði og tryggja að áfram verði sótt til betri lífskjara fyrir launþegana í landinu á varanlegum grunni. Um það ætti samtal stjórnvalda og vinnumarkaðarins að snúast. Það verði hægt með grundvallarbreyt- ingum, á borð við breytingar sem gerðar hafi verið í ríkisfjármálun- um. Bætt í framkvæmdir á ný Fjármálaráðherra bætti því við að framundan væri það verkefni að styrkja innviði samfélagsins, á grunni betri stöðu ríkissjóðs. Dregið hefði verið úr framkvæmdum. Með langtímaáætlun væri verið að bæta í þann þátt að nýju. Nefndi ráðherra sem dæmi að of margar einbreiðar brýr væru í landinu og þörf væri á nýjum spítala. Einnig þyrfti að huga að þeim op- inberu stuðningskerfum sem fjár- mögnuð væru sameiginlega. Þar væru víða sprungur sem fólk félli niður um. Nefndi hann að eldri borgarar bæru of stóran hlut í kostnaði við tannlækningar. Með nýju greiðsluþátttökukerfi væri byrðunum skipt með sanngjarnari hætti. Vill verja árangur og kjarabæturnar  Bjarni segir kaupmátt ekki alltaf geta aukist um 11% á ári MÁtta ár innan hafta »2 Barnahús að íslenskri fyrirmynd hafa verið reist í 30 borgum í Svíþjóð og í tíu borgum í Noregi, en í viðtali við dagblaðið Expressen á sunnudag sagði Sylvía Svíadrottning að barna- húsin væru frábær hugmynd. Flutti hún ávarp á norrænu barnaverndar- þingi í síðustu viku og færði Íslend- ingum sérstakar þakkir fyrir að hafa kynnt barnahúsið á Norðurlöndum. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir í samtali við Morgunblaðið að Sylvía hafi lengi verið öflugur talsmaður hug- myndarinnar um barnahús. Þáttagerðarfólk frá BBC kom hingað til lands í gær til að fjalla um barnahúsin, en áformað er að reisa tvö slík í Bretlandi á næstunni. »4 Morgunblaðið/Eggert Börn Húsin hafa gefið góða raun. Barnahús í útrás  Drottning aðstoðar  Umfjöllun í BBC Sjálfstæðisflokkurinn, VG og Píratar vilja afdráttarlaust að kosið verði til þings í október í haust. Meirihluti þingflokks Framsóknarflokksins vill að ríkisstjórnin sitji út kjörtímabilið, eða a.m.k. fram yfir næstu ára- mót. Þetta kemur fram í fréttaskýringu í blaðinu í dag. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins eru þingmenn Samfylkingar og Bjartrar fram- tíðar uggandi vegna haustkosninga, í ljósi þess að fylgi þessara flokka er mjög lítið nú, samkvæmt skoðanakönnunum. Samfylkingin mælist með 6 til 8% fylgi og Björt framtíð er ekki með mann inni á þingi, sam- kvæmt nýlegum skoðanakönnunum. »16-17 Núningur um þingkosningar AFSTAÐA FLOKKANNA TIL HAUSTKOSNINGA ER ÓLÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.