Morgunblaðið - 31.05.2016, Side 4

Morgunblaðið - 31.05.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016 Smáratorgi, Kópavogi Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-18.00 Sunnudaga 12.00-18.00 Vínlandsleið, Grafarholti Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-16.00 Sunnudaga 13.00-17.00 Markaður Smáratorgi Outlet Grafarvogi 60% 50% 50% 40% 40% LÁGMARKS- AFLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM NÚ 40%60% Skúli Halldórsson sh@mbl.is Nokkur fjöldi starfsmanna við dægradvalir barna í Kópavogi er ósáttur við fyrirhugaðar breytingar á starfsfyrirkomulagi þeirra. Næsta skólaár verður boðið upp á þjónustu dægradvala eftir að skólahaldi lýkur fyrir jól, milli jóla og nýárs, í dymbilviku og eftir skóla- slit á sumrin. Jafngildir þetta því að 13 dögum sé bætt við vinnutíma starfsmannanna, en laun þeirra munu þó ekki hækka að sama skapi. Nokkrir tugir starfsmanna vinna við dægradvalirnar en Jófríð- ur Hanna Sigfúsdóttir, formaður Starfsmannafélags Kópavogs, segir marga þeirra íhuga uppsögn. Segir hún að þeir líti til dæmis til kollega sinna í Reykjavík, sem muni fá hærri laun fyrir sömu vinnu. „Ef þú getur fengið 60 til 70 þúsund krónum hærri laun hinum megin við lækinn, og þar vantar fólk, þá ferðu þangað,“ segir Jófríður og bætir við að líklega muni verða erfitt að fá fólk aftur til starfa í haust. Rúmist innan kjarasamninga Sigríður Björg Tómasdóttir, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, segir breytingarnar í samræmi við ákvörðun skólanefndar, sem sam- þykkt var einróma í bæjarstjórn. Þá rúmist þær innan kjarasamninga starfsmanna að mati bæjarins, en útfærsla á þessu nýja fyrirkomulagi er þó enn í vinnslu hjá hjá mennta- sviðinu, skólastjórum og for- stöðumönnum dægradvala. „Foreldrar í Kópavogi hafa ítrekað óskað eftir því að dægradval- ir verði opnar lengur þannig að með þessari breytingu er verið að koma til móts við þær óskir.“ Tugþúsundum hærri laun „hinum megin við lækinn“ Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Dægradvöl Starfsmenn eru ósáttir við starfskjör sín í Kópavogsbæ. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Á fimmta tug barnahúsa má nú finna í Skandinavíu, en öll eru þau starf- rækt að íslenskri fyrirmynd. Að sögn Braga Guðbrandssonar, for- stjóra Barnaverndarstofu, hefur Sylvía Svíadrottning talað mjög fyr- ir hugmyndinni í rúman áratug. Sylvía er stjórnarformaður sjóðs- ins World Childhood Foundation, sem vinnur gegn obeldi gegn börn- um víða um heim, en hún kom hing- að til lands í opinbera heimsókn árið 2004. Áður höfðu þó vegir hennar og Braga legið saman, eins og hann rekur í samtali við Morgunblaðið. Varð hugfangin af starfseminni „Ég flutti fyrirlestur í Polishög- skolan í Solna í Stokkhólmi árið áð- ur, sem hún hlýddi á sem verndari ráðstefnunnar. Í hléinu kallaði hún á mig út í garð og vildi fá frekari upp- lýsingar. Greindi hún mér þá frá því að hún hefði áhuga á að koma og skoða,“ segir Bragi. Í opinberu heimsókninni ári seinna kom drottningin við í Barna- húsinu í Reykjavík. „Varð hún þá hugfangin af þeirri starfsemi og við heimkomuna beitti hún sér fyrir stofnun fyrsta barna- hússins þar í landi, sem tók til starfa aðeins ári seinna,“ segir Bragi. Honum var þá sýndur sá heiður að flytja ávarp við opnunina, auk drottningarinnar. „Þetta var til marks um þá virð- ingu sem hún hefur sýnt okkur í þessu máli öllu. Næstu þrjú ár bauð hún mér árlega á aðalfund World Childhood Foundation og til Þýska- lands og fleiri landa, til að kynna barnahúsið að hennar beiðni.“ Ný dönsk lög vegna barnahúsa Í dag eru barnahús starfrækt í þrjátíu borgum í Svíþjóð og í tíu borgum í Noregi. „Þau eru í raun að verða ellefu þar, og svo hófst starf- semi barnahúss í Danmörku árið 2013. Þar er orðin lagaskylda að vísa öllum málum í barnahús en Danir eru þeir einu sem hafa sett ný lög um þetta fyrirkomulag,“ segir Bragi, og bætir við að Finnar und- irbúi einnig opnun barnahúss. Þá verður fyrsta barnahúsið utan Norðurlanda opnað í Litháen síðar í vikunni. „Ég er að fara núna á föstudag til Vilníus til að flytja ávarp við opn- unina. Við höfum einnig veitt þeim tæknilega aðstoð og meðal annars séð um þjálfun starfsfólksins.“ Stjórnvöld á Kýpur hafa enn fremur tekið ákvörðun um að reisa barnahús og hefur Bragi farið þang- að þrisvar undanfarið ár til að að- stoða við undirbúning þess. Dýrmætur haukur í horni „Og nú eru það Bretarnir,“ segir Bragi og bendir á að þar í landi hafi ákvörðun verið tekin um að reisa tvö barnahús, annað í Lundúnum og hitt í borginni Durham. Vegna þessa vinnur BBC að fréttaskýringaþætti um barnahúsin fyrir útvarp og sjón- varp, en fréttamenn þaðan voru hér á landi í gær við tökur. Ljóst má vera að drottningin hef- ur reynst þessu íslenska frumkvæði dýrmætur haukur í horni. „Án hennar hefði þetta líklega ekki breiðst út um Skandinavíu með þessum hætti. Við vorum búin að kynna þetta mjög lengi áður en hún kom til sögunnar en nú er boltinn vissulega farinn að rúlla víða.“ ESB vill barnahúsin í Evrópu Til marks um það hefur Evrópu- sambandið veitt Eystrasaltsráðinu 200 milljóna króna framlag til að koma barnahúsum upp í Evrópu. Í ráðinu eru ellefu ríki auk Íslands og munu fulltrúar þeirra allra koma hingað til lands í þjálfun og fræðslu um miðjan júní. „Það er okkur mikils virði að starf okkar hérna sé metið. Þetta er mikið framlag litla Íslands til þessa mik- ilvæga málaflokks.“ Drottning breiðir út íslensku barnahúsin  Þrjátíu sænsk barnahús starfrækt að íslenskri fyrirmynd  BBC vinnur að fréttaskýringu hér á landi um barnahús Morgunblaðið/Eggert Viðtal Daldís Perla Magnúsdóttir ræðir við Alison Holt hjá breska ríkis- útvarpinu um reynslu sína af barnahúsi sem þolandi kynferðisofbeldis. Bragi Guðbrandsson Sylvía Svíadrottning Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is Til stendur að leikskólinn Mýri verði sameinaður leikskólanum Hagaborg í um það bil eitt ár á meðan framtíðarhorfur skólans eru metnar. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð Mýrar í ljósi fækkunar leikskóla- barna og breytinga á yfirstjórn skól- ans. Í tillögunni felst að sameina leik- skólana undir eina yfirstjórn. Sam- þykkt var á fundi skóla- og frí- stundaráðs að vísa tillögunni til umsagnar foreldrafélaga og starfs- fólks leikskólanna. Beiðni foreldra samþykkt Í lok aprílmánaðar kom óvissan fyrst í ljós þegar foreldrar leikskóla- barna Mýrar fengu bréf frá skóla- og frístundasviði um að framtíð skólans væri í skoðun. Jafnframt kom fram að borgin væri í viðræðum við leik- skólann Ós við Bergþórugötu um að hann flytti starfsemi sína í húsnæði Mýrar. Í kjölfarið sendu fulltrúar foreldrafélagsins og starfsfólks beiðni um að starfsemi Mýrar yrði óbreytt í eitt ár með því fyrirkomu- lagi að nágrannaskóli tæki við stjórn leikskólans. Skúli Helgason, formað- ur skóla-og frístundaráðs, sagði í samtali við mbl.is að borgin væri að bregðast við þeirri óvenjulegu stöðu að skyndilega séu næg leikskóla- pláss í Vesturbænum. Útlit er fyrir að á Mýri verði 25 börn næsta haust en húsnæðið rúmar um 47. Einhugur er meðal foreldra um að starfsemi Mýrar haldi áfram sam- kvæmt Atla Rafni Viðarssyni, for- manni foreldrafélags Mýra. „Við skiljum sjónarmið borgarinn- ar um að það sé vandamál með fækk- un leikskólabarna á þessu svæði. Foreldrarnir vilja leita leiða til að tryggja áframhaldandi starfsemi Mýrar en núna erum við að einbeita okkur að því að finna lausn fyrir þetta ár.“ Gagnrýnir vinnubrögð Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skóla- og frístundaráði setja út á vinnubrögð meirihlutans. „Þau vissu í vetur að skráningar í skólann yrðu fáar næsta haust. Þeg- ar rekstur skóla er í óvissu þá er eðli- legt að upplýsa skóla- og frístunda- ráð sem allra fyrst. Okkur voru heldur ekki kynntar hugmyndirnar um að leikskólinn Ós tæki yfir hús- næðið, ég frétti af því í fjölmiðlum,“ segir Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi. Hann bætir við að það skipti miklu máli hvernig ferlinu sé háttað þegar borgin ætli að ráðstafa eignum, sér- staklega þegar einkaaðilar eigi í hlut. Leikskólinn Ós er rekinn af for- eldrum. „Það hefði verið æskilegra að bjóða fleirum en einum aðila til viðræðna. Til dæmis sér Félags- stofnun Stúdenta um rekstur leik- skóla í nánd við Mýri og hefur verið að þrýsta á að fá fleiri pláss.“ Búist er við að tillagan um samein- ingu verði samþykkt á næsta fundi ráðsins eftir að foreldrafélögin og starfsfólk hafa skilað inn umsögn. Morgunblaðið/Ernir Fækkun Um 25 börn eru skráð á Mýri næsta haust. Húsnæðið tekur 47. Sameinast Hagaborg  Óvissa um framtíð leikskólans Mýri Samkvæmt upplýsingum frá Barnaverndarstofu sinnir barnahús málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða of- beldi. Skapar húsið einn vettvang fyrir samstarf og samhæfingu stofnana sem bera ábyrgð á rannsókn og meðferð mála sem varða kynferðisofbeldi gegn börnum, þ.e. dómara, ákæru- valds, lögreglu, barnaverndaryf- irvalda og lækna. Er því ætlað að koma í veg fyrir áföll vegna endurtekinna viðtala við börn á ólíkum stöð- um og við mismunandi aðila. Kemur í veg fyrir áföll HVAÐ ERU BARNAHÚS?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.