Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
Verslun Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is | kemi@kemi.is
Lyktareyðandi niðurbrotsefni
fyrir safntanka ferðaklósetta
ÍEyjunni um helgina spurði BjörnIngi Hrafnsson Guðna Th. Jó-
hannesson út í þau ummæli hans í
fyrirlestri, sem haldinn var á Bifröst
og sjá má á Youtube.com, að fávís
lýðurinn gæti komið sér upp röngum
sameiginlegum minningum, og var
að vísa til þeirrar
skoðunar Guðna að
sigrar í landhelgis-
málum væru ýkju-
sögur.
Samtal BjörnsInga og Guðna
var svona:
Björn Ingi: Þú
sagðir að fávís al-
menningur gæti …
Guðni: … nei …
Björn Ingi:
… komið sér upp
röngum [minn-
ingum] …
Guðni: Það sagði ég aldrei, aldrei
nokkurn tímann. Ég held það hafi
verið haft eftir mér.
Björn Ingi: Haft eftir þér?
Guðni: Já, það er ósatt. Það er al-
veg ósatt. Alveg ósatt.
Björn Ingi: Þannig að þú hafnar
þeim ummælum.
Guðni: Ég get ekki tekið svona.
Þetta er ósatt.
Í fyrirlestrinum lýsti Guðni því að„ómenntuð sveitakona“ hefði ver-
ið „með það á hreinu að Íslendingar
voru að berjast fyrir lífsafkomu sinni
og að skipherrarnir á varðskipunum
voru þjóðhetjurnar sem unnu stríð-
ið“.
Svo sagði hann: „Yes! Íslandi allt!Og spurningin vaknar, er fávís
lýðurinn aftur að pródúsera rangar
sameiginlegar minningar? Og kemur
enn til kasta okkar sagnfræðinganna.
Því að því er ekki að leyna að í okkar
hópi eru þeir til, og kannski er ég þar
framarlega þó ég segi sjálfur frá, sem
hafa lýst efasemdum um þessa sýn.“
Dæmi nú hver fyrir sig um hversagði ósatt.
Björn Ingi
Hrafnsson
Hver sagði ósatt?
STAKSTEINAR
Guðni Th.
Jóhannesson
Veður víða um heim 30.5., kl. 18.00
Reykjavík 9 heiðskírt
Bolungarvík 7 skýjað
Akureyri 7 alskýjað
Nuuk 1 léttskýjað
Þórshöfn 11 heiðskírt
Ósló 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 23 heiðskírt
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 23 heiðskírt
Lúxemborg 15 rigning
Brussel 14 rigning
Dublin 19 léttskýjað
Glasgow 18 rigning
London 16 skýjað
París 12 rigning
Amsterdam 18 rigning
Hamborg 25 skúrir
Berlín 22 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 20 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 19 léttskýjað
Montreal 26 léttskýjað
New York 24 rigning
Chicago 23 heiðskírt
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:24 23:29
ÍSAFJÖRÐUR 2:43 24:19
SIGLUFJÖRÐUR 2:23 24:04
DJÚPIVOGUR 2:43 23:08
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Fundur í kjaradeilu Félags ís-
lenskra flugumferðarstjóra og
Isavia fer fram hjá ríkissáttasemj-
ara í dag. Ein og hálf vika er liðin
frá síðasta fundi en ekki mega líða
meira en tvær vikur á milli funda
hjá ríkissáttasemjara. „Það er von-
andi að menn nái eitthvað betur
saman,“ segir Guðni Sigurðsson,
upplýsingafulltrúi Isavia. Spurður
hvort Isavia ætli að bera nýjar til-
lögur á borðið segir hann að reynt
verði að komast betur að því hvað
Félag íslenskra flugumferðar-
stjóra sé að hugsa. „Það er ekki
komin nákvæm kröfugerð frá þeim
enn þá,“ segir Guðni.
Í samtali við Morgunblaðið síð-
degis í gær taldi hann litlar líkur á
að röskun yrði á flugi í Keflavík
fram að fundinum vegna yfirvinnu-
banns flugumferðarstjóra, en ekki
hafði verið tilkynnt um veikindi.
Bannið hefur staðið yfir frá 6. apr-
íl. Flugfarþegar eru þó beðnir um
að mæta þremur klukkustundum
fyrir flug næstu þrjá daga þar sem
unnið er að umbótum á farang-
ursflokkunarkerfi. Á meðan tengt
er á milli núverandi kerfis og hinn-
ar nýju viðbótar verður engin
sjálfvirk farangursflokkun heldur
þarf að handflokka allan innrit-
unarfarangur.
Bíða kröfugerðar flugumferðarstjóra
Ríkissáttasemjari boðar flugum-
ferðarstjóra og Isavia til fundar í dag
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Flug Innritaður farangur verður
handflokkaður næstu þrjá daga.
Til stendur að
endurnýja þing-
fundakerfi Al-
þingis. Um er að
ræða upplýs-
ingakerfi sem
heldur meðal
annars utan um
viðveru þing-
manna, atkvæða-
greiðslu, stjórn
þingfunda og skráningu þingmála.
Að sögn Helga Bernódussonar,
skrifstofustjóra Alþingis, er upp-
setning hins nýja kerfis hluti af
áætlun um endurgerð upplýs-
ingakerfa þingsins til ársins 2020.
Áætlunin er áfangaskipt og býst
hann við að nýja kerfið verði tekið í
notkun innan tveggja ára.
„Það er ekki úr sér gengið en er
auðvitað svolítið komið til ára sinna
miðað við tölvuöld,“ segir Helgi um
hið gamla upplýsingakerfi, sem
starfsmenn þingsins kalla Stýruna.
„Það var sett inn á árunum 2002-
2003 og gegnir sama meginhlutverki
og nýja kerfið. Við erum með sjálf-
stætt atkvæðagreiðslukerfi sem er
enn eldra, en það er líklega um 25
ára gamalt. Þetta var mjög vel gert í
upphafi og hefur reynst okkur vel,
en nú er kominn tími á endurnýjun.“
Helgi Bernódusson
Nýtt þing-
fundakerfi
„Stýrunni“ verður
skipt út á næstunni