Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
Askalind4,Kópavogi
Sími 564 1864
www.vetrarsol.is
w
w
w
.h
el
iu
m
.is
Sláuvél með dri
B&S 450E mótor
Hækkun í einu handfangi
55 lítra graskassi
Frábær heimilisvél
Lúxus sláuvél með dri
B&S 625E mótor, auðveld gangsetning
Tvískiptur sláuhnífur, slær 2svar
70 lítra kassi, "notendavænn"
Frábær vél í estan slá
Sga Collector 46 SB Sga TwinClip 50 SB
Sjálfskiptur lúxus sláutraktór
Kawazaki FS600V mótor, þrýssmurður
Notendavænt sæ og stýri
320 lítra graskassi
Frábær traktór í stærri svæði
Sga Estate 7102 H
Léttu þér lífið
með Stiga sláttuvél
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Íslenska ríkið kemur inn í samstarf
um athugun á uppbyggingu stór-
skipahafnar í Finnafirði á Norðaust-
urlandi, samkvæmt viljayfirlýsingu
sem gerð hefur verið um áframhald
verkefnisins. „Það að menn fara í
þessa vinnu bendir til þess að Bre-
menports hafi mikla trú á verkefn-
inu. Það er margt sem mælir með
þessu en ennþá er mörgum spurn-
ingum ósvarað,“ segir Elías Pét-
ursson, sveitarstjóri Langanes-
byggðar, en væntanlegt hafnarstæði
er innan sveitarfélagsins.
Að verkefninu standa nú, auk rík-
isins, Bremenports GmbH & Co.
KG, Langanesbyggð, Vopnafjarð-
arhreppur og verkfræðistofan Efla.
Viljayfirlýsingin sem nú var undir-
rituð er gerð í framhaldi af sam-
starfssamningi sem gerður var fyrir
ári og tekur til þátta sem koma þarf í
farveg til þess að verkefnið geti
þróast áfram.
Tilgangurinn er að koma upp um-
skipunar- og þjónustuhöfn fyrir
norðurslóðir.
Enn er margt ógert
Elías segir að verið sé að skerpa á
hlutunum og setja fram tímaáætlun
um undirbúninginn. Með þessu sé
verið að reyna að spá í framtíðina,
hvernig markaðurinn fyrir höfnina
geti þróast.
Bremenports hafa kostað undir-
búningsrannsóknir sem gerðar hafa
verið í Finnafirði og nýtast við gerð
umhverfismats, ef til þess kemur.
Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri við-
skiptaþróunar hjá Eflu, segir að bú-
ið sé að afla ítarlegra gagna um
fuglalíf og gróðurfar, gera dýptar-
mælingar í firðinum og skoða öldu-
far. Tvær veðurstöðvar hafi verið
settar upp. Þá hafi verið gerð frum-
skoðun á fornleifum, rannsóknir á
jarðvegsaðstæðum með djúpum
gryfjum. Til standi að bora. Þá sé
búið að kanna hvar viðlegukantar
gætu komið og meta kostnað við
framkvæmdir af ýmsu tagi.
Hafsteinn segir að ríkið þurfi að
koma að skipulagningu þess að
tengja höfnina við vegakerfið, dreifi-
kerfi raforku og fleiri veitur. Einnig
fara yfir hvernig tollamálum fyrir
slíka höfn yrði háttað. „Allt tekur
þetta tíma. Þetta er langhlaup,“ seg-
ir Hafsteinn.
Meirihlutaskipti töfðu
Viljayfirlýsingin sem nú var
undirrituð af Ragnheiði Elínu Árna-
dóttur, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, og öðrum aðilum samstarfs-
ins var mikið til tilbúin í desember.
Bið varð á frágangi hennar vegna
ónægju í sveitarstjórnunum með
ákveðin atriði, einkum þau sem
snéru að fjárhagslegum skuldbind-
ingum þeirra. Meirihluti sveit-
arstjórnar í Langanesbyggð sprakk
út af þessum málum.
Elías sveitarstjóri segir að nýr
meirihluti hafi strax lýst vilja til að
halda þessu samstarfi áfram.
Sveitarfélögin hafi unnið að því
saman að fara yfir yfirlýsinguna og
gera aðgengilega fyrir sveitar-
félögin. Það hafi tafið málið. Nú
séu allir komnir með betri pappíra
og sveitarfélögin taki aðeins á sig
eðlilegar og viðráðanlegar skuld-
bindingar.
Mörgum spurningum ósvarað
Ríkið tekur þátt í undirbúningi stórskipahafnar í Finnafirði Bremenports hafa kostað marghátt-
aðar rannsóknir Ríkið kemur að athugun á vegum, veitum og tollamálum Spáð í markaðinn
Morgunblaðið/Líney
Rannsóknir Bremenports hafa kostað umtalsverðar rannsóknir í Finnafirði, bæði á umhverfinu og grundvöll hugsanlegra hafnarmannvirkja. Þar eru til
dæmis tvær sjálfvirkar veðurstöðvar. Rannsóknirnar nýtast við ákvarðanir um staðsetningu mannvirkja og umhverfismat. Eftir er að rannsaka meira.
Elías
Pétursson
Hafsteinn
Helgason
Leigusölum verður aðeins heimilt að
krefjast fyrirframgreiðslu fyrir einn
mánuð og tryggingar að hámarki
fyrir þrjá mánuði, verði frumvarp
Eyglóar Harðardóttur, félags- og
húsnæðismálaráðherra, að lögum.
Frumvarpið var afgreitt með sam-
hljóma nefndaráliti úr velferðar-
nefnd Alþingis í gær og er stefnt að
því að afgreiða það á Alþingi í þess-
ari viku að sögn Sigríðar Ingibjargar
Ingadóttur, formanns velferðar-
nefndar.
Í frumvarpinu kemur fram að
leigusölum sé óheimilt að gera fjár-
nám á tryggingu fyrir leigu enda sé
tryggingin ekki eign leigusala. Þá
verður leigusölum gert að endur-
greiða tryggingu innan fjögurra
vikna frá skilum á hinu leigða hús-
næði en í núverandi lögum hafa
leigusalar tvo mánuði til að endur-
greiða trygginguna.
Ný úrræði fyrir leigjendur
Úrræði sem leigjandi getur gripið
til gagnvart leigusala eru aukin með
frumvarpinu, t.a.m. ef leigusali
stendur ekki við viðhald á leigutím-
anum þá er leigjendum gert auðveld-
ara að fara fram á riftun leigusamn-
ings. Sigríður Ingibjörg segir að til
þess að auka eftirlit með lögunum
verði kærunefnd húsamála komið á
laggirnar. Úrskurðir nefndarinnar
verða bindandi í þeim ágreinings-
málum sem lögð eru fyrir nefndina
um gerð og framkvæmd leigusamn-
inga.
Frumvarpið er eitt af nokkrum
húsnæðisfrumvörpum sem eru langt
komin hjá Alþingi. Velferðarnefnd
fjallaði um almennar félagsíbúðir í
gær og þá er frumvarp um húsnæð-
isbætur hjá nefndinni en það er ekki
eins langt komið þó að stefnt sé að
því að afgreiða það úr nefndinni í
þessari viku.
Kærunefnd húsa-
mála sett á stofn
Þrír mánuðir að hámarki í tryggingu
Húsnæði Frumvörp um húsnæðis-
mál verða rædd á þingi í vikunni.