Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
Tilboðsverð
2.995
verð áður 4.995
stærðir 40-46
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Stærðir 40-45
Verð 6.995
Kíktu á verðið
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Vöruþróun og fullvinnsla karfans
verður að vera svar okkar til að
halda verðinu sterku og helst auka
hlutdeild á Þýskalandsmarkaði,“
segir Óskar Sigmundsson, forstjóri
Marós í Cuxhaven. Þýskaland er
enn mikilvægasti karfamarkaður
Íslendinga þó svo að hallað hafi
undan fæti síðasta aldarfjórðung-
inn. Umhverfissamtök hafa meðal
annars beint spjótum sínum að
neyslu á karfa, en nokkrar karfa-
tegundir eru veiddar í heiminum.
Óskar segir að þar hafi gullkarfi
frá Íslandi mikla sérstöðu og til að
draga fram gæðin, sjálfbærnina og
upprunann hefur fyrirtækið kynnt
nýtt vörumerki; Goldbarsch aus
Island.
Í liðinni viku stóð Íslandsstofa
fyrir fundi um þýska matvæla-
markaðinn þar sem fjallað var um
útflutning matvæla til Þýskalands.
Í yfirliti Björgvins Þórs Björgvins-
sonar, verkefnastjóra hjá Íslands-
stofu, kom fram að útflutningur á
ísfiski frá Íslandi til Þýskalands
náði hámarki árið 1989 og var þá
35.600 tonn, þar af 24.500 tonn af
karfa. Frystitogurum Íslendinga
fjölgaði upp úr 1990 og þá dróst
útflutningur á ísfiski saman.
Byrjunin lofar góðu
Á síðasta ári voru sjávarafurðir
fyrir rúmlega 16,5 milljarða fluttar
út til Þýskalands. Karfi var veiga-
mesta afurðin í þessum útflutningi
en þangað voru flutt 10.237 tonn
fyrir um 4,6 milljarða. Eins og sést
á grafi með þessari samantekt hef-
ur útflutningurinn minnkað tals-
vert frá því sem var t.d. 2006. Á
þessu fiskveiðiári er aflamark ís-
lenskra skipa í gullkarfa 45.930
tonn og þess má geta að til Rúss-
lands fóru árið 2014 alls 7.332 tonn
af hausuðum gullkarfa, en þessi
mikilvægi markaður hefur verið
lokaður frá miðju síðasta ári.
Fyrirtækið Marós var stofnað
síðasta vetur og segir Óskar að
byrjunin lofi góðu. Þeir séu með
samninga við birgja á Íslandi og
kaupendur í Þýskalandi og víðar í
Evrópu. Varan sé flutt í beinum
siglingum til Þýskalands, þar sem
fyrirtækið sé með góðar frysti-
geymslur og dreifikerfi. Engin
þörf sé fyrir siglingu um hálfan
hnöttinn eins og í þeim tilvikum
þegar karfi er veiddur í Kyrrahaf-
inu, fluttur til Kína, þíddur þar
upp, flakaður og síðan seldur í
Evrópu.
Mikil hefð fyrir karfaneyslu
Sterk hefð er fyrir neyslu á
karfaflökum í Þýskalandi og sem
svar við minnkandi neyslu segir
Óskar að neytendur þurfi að geta
neytt gullkarfa með góðri sam-
visku og jákvæðri upplifun. Nú
orðið vilji þeir fá beinlaus flök og
komin sé tækni til að skila bein-
lausum flökum og úrvals hnakka-
stykkjum. Vöruþróun og full-
vinnsla sé lykillinn að markaðnum
og þannig sé hægt að svara þörf-
um markaðarins. Til lengri tíma sé
það ekki spennandi kostur að vera
aðeins hráefnisframleiðandi.
„Í heimshöfunum eru margir
karfastofnar og veiðum á þeim er
ekki öllum jafn skynsamlega
stjórnað,“ segir Óskar. „Á þessu
hamra Greenpeace og önnur um-
hverfissamtök og á þau er hlustað
hér í Þýskalandi. Þessi samtök
segja við þýska neytendur ekki
borða þetta og ekki borða hitt og
þau eru iðin við að hamra á karf-
anum og eru þá allar karfateg-
undir settar undir sama hatt. Þess
vegna viljum við markaðssetja
karfann sem gullkarfa frá Íslandi
og skapa honum þá sérstöðu sem
hann á að hafa.
Þurfum að láta
rödd okkar heyrast
Gullkarfinn er eini karfastofninn
í heiminum sem er MSC-vottaður
og til viðbótar er hann IRF-
vottaður [Iceland Responsible
Fisheries]. Þessi tvöfalda vottun
skiptir miklu máli hér og segir
neytendum að veiðum sé vel
stjórnað. Við höfum góða sögu að
segja og erum að reyna að taka
gullkarfann út úr þessari nei-
kvæðu umræðu. Við þurfum að
láta rödd okkar heyrast svo fólk
verði aftur óhrætt við að kaupa
karfa.“
Óskar segir að alaskaufsinn hafi
að hluta tekið þann sess sem karfi
hafði áður meðal þýskra neytenda.
Síðustu ár hafi eldislax hins vegar
orðið enn stærri á markaðnum og
þá hafi pangasius, eldisfiskur sem
að mestu kemur frá Víetnam, náð
sterkri markaðshlutdeild, en hún
hafi dalað aftur.
Vöruþróun og fullvinnsla lykillinn
Dregið hefur úr neyslu á karfa í Þýskalandi Hlustað á umhverfissamtök sem ekki gera greinar-
mun á karfategundum Vilja snúa vörn í sókn svo neytendur kaupi gullkarfa með góðri samvisku
Marós Óskar Sigmundsson, Huginn Óskarsson og Eiríkur Páll Aðalsteinsson leggja á ráðin á skrifstofunni í Cux-
haven. Fyrirtækið var stofnað í vetur og sérhæfir sig í sölu og dreifingu á gullkarfa frá Íslandi í Þýskalandi og víðar.
Helstu markaðir fyrir karfa Þýskaland 2015
Útflutningsverðmæti eftir tegundum*Útflutningsverðmæti 2015 = 15 milljarðar
*Ekki fiskimjöl og lýsi, né saltaður þorskur sem fer á aðra markaði.
Karfi
Ufsi
Þorskur
Steinbítur
Annað
2.624
1.063
703
Þýskaland Portúgal Kína
Japan S-Kórea Grikkland
Bretland Rússland Frakkland
Holland Belgía Önnur lönd
Heimild: BB Íslandsstofa/Hagstofan
46%
26%
10%
31%
10%
9%7%
7%
5%
5%
4%
4%
4%
3%
11% 11%
7%
1.096
4.605
„Það var kominn tími til að fara að
starfa sjálfstætt aftur, en þegar ég
var 10 ára gamall var ég gellupeyi
í Eyjum,“ segir Óskar Sig-
mundsson, viðskiptafræð-
ingur og forstjóri Marós,
fyrirtækis sem hann
stofnaði í Þýskalandi í
vetur. Það sérhæfir sig í
heildsölu og dreifingu á gull-
karfa og sendir í brettavís af-
urðir víðs vegar um Þýskaland og
til annarra Evrópulanda. Með honum
í fyrirtækinu eru tveir Íslendingar fastir
starfsmenn, þeir Eiríkur Páll Aðalsteinsson sjáv-
arútvegsfræðingur og Huginn Óskarsson viðskiptafræðingur.
Óskar hefur dvalið í Þýskalandi meira og minna frá árinu 1985, er hann
hóf nám í háskólanum í Reutlingen, skammt frá Stuttgart. Með námi
vann hann hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í Þýskalandi og síðan
Frakklandi. Þá starfaði hann um tíma hjá SH á Íslandi og í átta ár hjá
Sölumiðstöðinni í Hamborg. „Undir aldamót seldum við einir um 13.500
tonn af karfaafurðum á ári, en nú er heildarneysla á karfa í landinu komin
niður í um 13.500 tonn upp úr sjó,“ segir Óskar.
Frá SH fór hann til German Seafrozen Fish í Bremehaven, sem er sölu-
fyrirtæki í eigu hollensks útgerðarrisa og var þar í 16 ár eða þar til hann
stofnaði Marós.
Störf við sjávarútveg í 30 ár
GELLUPEYINN ÚR EYJUM AFTUR ORÐINN SJÁLFSTÆÐUR