Morgunblaðið - 31.05.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
Skemmtilegir og lifandi þættir um fólk sem
gegnir fjölbreyttum störfum í iðnaði og
hefur skapað sér gott líf með forvitnilegum
áhugamálum utan vinnu.
Mbl.is stendur að þáttunum
í samstarfi við Samtök iðnaðarins.
mbl.is/fagfolkid
Fjölbreytt störf og
forvitnileg áhugamál
Gengisskráning 30. maí 2016
Kaup Sala Mið
DOLLARI 124,87 125,47 125,17
STERLINGSPUND 182,36 183,24 182,8
KANADADOLLARI 95,64 96,2 95,92
DÖNSK KRÓNA 18,69 18,8 18,745
NORSK KRÓNA 14,927 15,015 14,971
SÆNSK KRÓNA 14,986 15,074 15,03
SVISSN. FRANKI 125,7 126,4 126,05
JAPANSKT JEN 1,1232 1,1298 1,1265
SDR 174,98 176,02 175,5
EVRA 139,01 139,79 139,4
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 173,7402
Heimild: Seðlabanki Íslands
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku
í viðskiptahraðlinum Startup Reykjavík
að þessu sinni. Alls barst 241 umsókn
um þátttöku í keppninni nú í ár. Hún er
nú haldin í fimmta sinn. Teymin fá hvert
um sig 2,4 milljónir í hlutafjárframlag
frá Arion banka gegn 6% hlut í fyrir-
tækinu sem þau vinna að, 10 vikna
þjálfun frá stjórnendum og sérfræð-
ingum víða að og sameiginlega að-
stöðu. Verkefnin sem valin voru til þátt-
töku eru jafn fjölbreytt og þau eru
mörg. Viðskiptahraðallinn fer af stað
20. júní næstkomandi.
Tíu takast á í keppninni
Startup Reykjavík
● Matsfyrirtækið Moody’s hefur gefið
út álit um fyrirhugað útboð Seðlabanka
Íslands á aflandskrónum sem tilkynnt
hefur verið að fara muni fram 16. júní
næstkomandi. Þar kemur fram að út-
boðið gefi fjárfestum sem eiga fé bund-
ið í svokölluðum aflandskrónum tæki-
færi til útgöngu. Þá geti það orðið til
þess að létta þrýstingi sem myndast
hefur á innlendar eignir vegna gjaldeyr-
ishafta sem meðal annars megi merkja
í mikilli styrkingu krónunnar. Telur
matsfyrirtækið að þessir þættir muni
hafa jákvæð áhrif á lánshæfi landsins.
Telur útboðið jákvætt
fyrir lánshæfi Íslands
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Eigendur laxeldisfyrirtækisins
Arnarlax, sem tilkynnt var fyrir
helgi að keypt hefði Fjarðalax, sem
starfar á sama sviði, stefna að skrán-
ingu hins sameinaða fyrirtækis á
markað innan tveggja ára. Þetta
herma áreiðanlegar heimildir Morg-
unblaðsins en það
var fréttaveitan
Undercurrent
News, sem sér-
hæfir sig í frétta-
flutningi af
sjávarútvegi, sem
fyrst greindi frá
áformunum.
Kjartan Ólafs-
son, stjórnarfor-
maður Arnarlax,
segir að helst sé
horft til Noregs í þeim efnum en
markaðsaðstæður munu ráða því á
næstu árum hvort sú leið verði farin
eða hvort Nasdaq OMX Iceland
verði fyrir valinu.
„Í eigendahópnum eru það Bíldæl-
ingarnir Matthías Garðarsson og
Kristian Matthíasson, forstjóri fyrir-
tækisins, sem mynda kjölfestuna. En
auk norska fyrirtækisins Salmars,
sem á aðkomu að fyrirtækinu í gegn-
um þá koma íslenskir og norskir fjár-
festar að félaginu. Það stendur til að
skoða skráningu innan fárra ára til
að formfesta þá ágætu samvinnu,“
segir Kjartan.
Stærðarhagkvæmni mikilvæg
Kjartan segir að ýmsar ástæður
valdi því að ákveðið hafi verið að
renna fyrirtækjunum saman í eitt.
„Verði af þessum viðskiptum, sem
við höfum fulla trú á að gangi í gegn,
þá stendur hugur okkar til þess að
skapa Arnarlaxi þær undirstöður
sem til þarf. Leyfisstaða og staðsetn-
ingar á Patreksfirði, Tálknafirði og
Arnarfirði skipta miklu máli hvað
varðar umgengni og aðstæður fyrir
fiskinn okkar og gefur okkur mögu-
leika á stærðarhagkvæmni í rekstri.“
Þá segir Kjartan mikilvægt að
leita stærðarhagkvæmni á meðan
mikill meðbyr sé á sviði laxeldis í
heiminum.
„Þrátt fyrir sterkan meðvind á
mörkuðum nú gerum við ekki ráð
fyrir að verð haldist jafnhátt og nú til
lengri tíma og því er allt kapp lagt á
að ná rekstrarkostnaði niður. Þar
skiptir stærðarhagkvæmni miklu
máli. Við sem höfum verið til sjós vit-
um að eftir öldutopp kemur öldudal-
ur. Markmið eigenda og stjórnenda
er að gera félagið klárt fyrir næsta
öldudal ef svo má að orði komast.“
Í kauphöllinni í Ósló eru um 12
fyrirtæki skráð sem starfa á vett-
vangi fiskeldis, hvort sem það er með
beinum hætti eða í tengslum við sölu
eða þjónustu.
„Þar sem fiskeldi er mjög fjár-
magnsfrek grein þá hefur samspilið
við fjárfesta og fjármálastofnanir
gegnum skipulagða markaði verið
greininni mjög mikilvægt,“ segir
Kjartan.
Mjög verðmæt félög í greininni
Hann segir að hið háa verð á af-
urðum laxeldisstöðva hafi leitt til
mikilla verðhækkana á félögunum
undanfarna mánuði.
„Sem dæmi má nefna Bakkafrost
sem hefur rúmlega tvöfaldað útflutn-
ing á sjávarfangi frá Færeyjum síð-
ustu ár og er fyrir löngu orðið verð-
mætasta fyrirtæki landsins. Það er
metið á 15,8 milljarða norskra króna
meðan færeyski bankinn Bank Nor-
dik er metinn á 1,8 milljarða norskra
króna. Svipaða sögu má segja í Nor-
egi en Salmar ASSA er metið á 28
milljarða norskra króna í dag, meðan
markaðsverðmæti hins gamalgróna
AKER ASA er um 13 milljarðar
norskra króna.“
Kjartan segir að Íslendingar eigi
enn eftir að uppgötva laxeldið fyrir
alvöru. „Það er kannski með það eins
og sumar stærri byltingar að fótfesta
á Íslandi lætur bíða eftir sér. Hér er í
raun á ferðinni akuryrkja til sjávar
og er hluti af svokallaðri „blárri bylt-
ingu“ sem breska blaðið The
Economist nefnir og telur meðal
stærstu uppgötvana síðustu 100 ára,
ásamt þvottavélinni og
getnaðarvarnarpillunni,“ segir
Kjartan.
Skoða mögulega skráningu
Arnarlax á markað í Noregi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Laxeldi Arnarlax stefnir að því að framleiða 20 þúsund tonn árið 2020. Fyrirtækið framleiðir í ár um 10.000 tonn.
Velta fyrirtækisins mun nema 6 milljörðum króna í ár Stefna á mikinn vöxt
Kjartan
Ólafsson
Hagnaður Skeljungs árið 2015 nam
273 milljónum, en hann var 570 millj-
ónir árið 2014. Rekstarhagnaður fyr-
ir afskriftir og fjármagnsliði var 2,7
milljarðar króna og lækkaði um 100
milljónir á milli ára.
Það hafði hins vegar veruleg áhrif
á afkomu ársins 2015 að í árslok var
beitt sérstöku virðisrýrnunarprófi á
bókfært verð birgðastöðva félagsins,
sem leiddi til þess að bókfærð var ríf-
lega eins milljarðs króna virðisrýrn-
un á rekstrarreikning.
Áhrifa lækkandi eldsneytisverðs
gætir glöggt í uppgjörinu. Þannig
dregst heildarsala og kostnaðarverð
seldra vara saman um áþekka fjár-
hæð. Framlegð jókst lítillega, eða
um 3,4% á milli áranna 2015 og 2014.
Fjármagnsgjöld Skeljungs lækkuðu
um 180 milljónir króna.
Skuldir lækka milli ára
Eignir Skeljungs námu alls 18,4
milljörðum króna í árslok og nam
viðskiptavild 3,5 milljörðum króna
og rekstrarfjármunir 9,8 milljörðum.
Heildarskuldir félagsins lækkuðu
um 2,4 milljarða króna, úr 13,3 millj-
örðum 2014 í 10,9 milljarða í árslok
2015.
Eigið fé var 7,5 milljarðar króna í
árslok og var eiginfjárhlutfall félags-
ins 40,6% í lok árs 2015.
Stærsti hluthafi Skeljungs með
um fjórðungshlut er SÍA II, sem er
að mestu í eigu lífeyrissjóða, Arion
banka og VÍS, en auk þess er Arion
banki beint með tæplega 13% hlut í
félaginu og lífeyrissjóðurinn Gildi
með liðlega 9% hlut.
jonth@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Uppgjör Áhrif þróunar olíuverðs
sjást vel í uppgjöri Skeljungs 2015.
Hagnaður Skelj-
ungs minnkar
Einskiptisliðir
settu mark sitt á
uppgjör síðasta árs