Morgunblaðið - 31.05.2016, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu
sagði í gær að nágrannarnir í norðri
væru að undirbúa enn eitt eld-
flaugarskotið. „Við greinum merki
þess að verið sé að undirbúa eld-
flaugarskot í Norður-Kóreu og er
herinn í viðbragðsstöðu,“ hefur
fréttaveita AFP eftir embættis-
manni í ráðuneytinu.
Hann vildi ekki gefa upp tegund
þeirrar skotflaugar sem um ræðir,
en samkvæmt AFP má leiða líkur að
því að hún sé lang- eða meðaldræg.
Norður-Kóreumenn hafa að
undanförnu gert tilraunir með eld-
flaug af gerðinni Musudan, sem
dregur um það bil 3.000 kílómetra og
hugsanlega allt að 4.000 kílómetra.
Ráðamenn í Pjongjang gætu því
skotið flaug af þessari gerð á Suður-
Kóreu, Japan og mögulega á banda-
rískar herstöðvar á Gvam í Kyrra-
hafi.
Musudan aldrei virkað
AFP bendir hins vegar á að þrátt
fyrir nokkuð tíðar tilraunir hafi
Norður-Kóreumönnum aldrei tekist
að skjóta Musudan-eldflaug á loft
með góðum árangri. khj@mbl.is
AFP
Leiðtoginn Almenningur í Suður-Kóreu mótmælir oft brölti norðanmanna.
Eldflaugarskot undir-
búið í Norður-Kóreu
Ísraelskar ör-
yggissveitir hafa
handtekið þrjá
Palestínumenn á
táningsaldri sem
grunaðir eru um
að hafa veitt
tveimur ísraelsk-
um konum
stunguáverka.
Árásin var gerð fyrr í þessum mán-
uði og eru fórnarlömbin bæði á ní-
ræðisaldri. Þau eru nú á batavegi.
„Þrír ólögráða arabar voru hand-
teknir, íbúar í Jabal Mukaber,“ seg-
ir í tilkynningu lögreglunnar en
hverfi þetta er í Austur-Jerúsalem.
Fréttaveita AFP greinir frá því
að piltarnir séu á aldrinum 16 til 17
ára og var móðir eins þeirra hand-
tekin í síðustu viku fyrir tilraun til
hnífaárásar á Vesturbakkanum.
Palestínumennirnir eru sagðir
hafa setið um konurnar þar sem
þær voru á göngu í skóglendi milli
vestur- og austurhluta Jerúsalem.
Voru tveir þeirra vopnaðir hnífum
og einn með exi. Árásin var gerð
10. maí síðastliðinn. khj@mbl.is
ÍSRAEL
Piltar réðust á tvær
eldri konur á göngu
Flugmenn
franska flug-
félagsins Air
France hafa sam-
þykkt verkfalls-
aðgerðir í næsta
mánuði. Tals-
maður helsta
stéttarfélags
flugmanna, SNPL, sagði í gær að
flugmenn þess hefðu samþykkt að-
gerðir með 68% greiddra atkvæða.
Var einnig samþykkt í atkvæða-
greiðslu að verkfallsaðgerðir
myndu standa yfir í minnst sex
daga, en með þessu eru flugmenn
að mótmæla launaskerðingu.
„Verkfallsaðgerðir í júní eru
óumflýjanlegar,“ sagði Emmanuel
Mistrali, hjá SNPL, án þess þó að
nefna nákvæma dagsetningu. Evr-
ópumótið í knattspyrnu hefst 10.
júní og gæti verkfall flugmanna því
haft áhrif á ferðir fólks þangað.
FRAKKLAND
Flugmenn hjá Air
France vilja verkfall
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Hafin er að því er virðist stórsókn
íraska hersins gegn vígasveitum
Ríkis íslams þar í landi. Markmið
þessarar árásar er að ná aftur tökum
á borginni Fallujah, sem hefur verið
undir stjórn vígamanna síðan 2014,
og hafa hermenn þegar náð bænum
Karma sem er skammt frá áður-
nefndri borg á sitt vald.
„Aðgerðin gengur vel hernaðar-
lega séð. Það er nú þegar búið að
frelsa minnst einn bæ í nágrenni
Fallujah úr klóm Ríkis íslams,“ segir
Lina Khatib, sérfræðingur í málefn-
um Mið-Austurlanda, í samtali við
bandarísku fréttastofuna CNN.
Khatib bendir hins vegar á að
gríðarleg eyðilegging fylgi þessari
hernaðaraðgerð og að hún muni
óumflýjanlega hafa miklar afleiðing-
ar fyrir líf þeirra almennu borgara
sem á svæðinu búa. „Karma hefur
svo gott sem verið jöfnuð við jörðu í
þessari sókn. Þessi mikla eyðilegg-
ing mun að líkindum halda áfram eft-
ir því sem nær dregur Fallujah.“
Sagðir komnir inn í borgina
Fréttaveitan Reuters segir
minnst 50.000 almenna borgara búa
innan marka Fallujah. Hefur þeim
verið meinuð útganga þaðan af víga-
mönnum og hefur fólkið því neyðst
til þess að lifa við afar bágar aðstæð-
ur frá því að vígamenn tóku völdin.
Að sögn Reuters hafa íraskir her-
menn þegar náð inn fyrir mörk borg-
arinnar og hertekið lögreglustöð í
suðurhluta hennar. Njóta þessar
sveitir liðsinnis bandarískra orrustu-
flugvéla sem gera harðar loftárásir á
skotmörk tengd vígamönnum.
Fréttamenn breska ríkisútvarps-
ins (BBC) segja íraska herinn meðal
annars notast við stórskotaliðssveit-
ir, herþyrlur og -flugvélar, banda-
ríska skriðdreka af gerðinni M1
Abrams og brynvarða bíla.
AFP
Stórskotalið Hermenn fylgjast náið með sprengjuregni sem beint er gegn Ríki íslams innan landamæra Íraks.
Stórsókn virðist hafin
gegn Ríki íslams í Írak
Íraski herinn ætlar sér að frelsa borgina Fallujah
Herdómstóll í Sómalíu hefur dæmt
tvo menn til lífstíðarfangelsisvistar
fyrir aðild að sprengjutilræði sem
framið var 2. febrúar síðastliðinn um
borð í farþegaþotu flugfélagsins Da-
allo Airlines. Tilræðismaðurinn var
sá eini sem lést er hann sprengdi
sprengju sína um borð í vélinni, en
farþegar voru alls 74 talsins.
Mennirnir sem um ræðir heita
Abdiweli Mohamud Macow og Areys
Hashi Abdi. Hinn fyrrnefndi vann
sem öryggisvörður á alþjóðaflugvell-
inum í Sómalíu, þaðan sem vélin tók
á loft, og er hann sagður hafa skipu-
lagt hryðjuverkið. Þeir eru báðir
sagðir tengjast samtökunum al-
Shebab, en þau hafa tengsl við hin
alræmdu vígasamtök al-Qaeda.
Sprengjan falin í fartölvu
Fréttaveita AFP greinir frá því að
tilræðismaðurinn hafi falið sprengi-
efni inni í fartölvu og sprengt sig í
loft upp skömmu eftir flugtak. Við
það kom gat á hægri hlið þotunnar,
þar sem vængurinn tengist skrokkn-
um og var vélinni nauðlent skömmu
síðar án vandræða. khj@mbl.is
Ljósmynd/Af Twitter
Sprenging Gat kom á þotuna.
Dæmdir
fyrir til-
ræði í vél
Tveir fengu í
gær lífstíðardóma