Morgunblaðið - 31.05.2016, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
Fyrirtæki og verslanir
Sumarleikföng í úrvali
www.danco.is
Heildsöludreifing
45 cm boltar
Flottir á
trampólín
Boltar
Kútar
Sápukúlur
Vatnsbyssur
Fötur
YooHoo
GRILL
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
„Það þarf alls ekki að gefa neinn
afslátt af fagmennsku við grillið þótt
lagt sé upp í langferð,“ segir Sölvi
Snær sem nýverið tók við starfi sínu
hjá Ellingsen. „Við eigum hér til
einkar handhæg ferðagrill sem ein-
faldlega má brjóta saman og bera á
milli staða eins og ferðatösku. Það
verður eiginlega ekki þægilegra,“
bætir hann við.
Matur fyrir alla samtímis
Sölvi tekur fram að umrædd
ferðagasgrill séu fáanleg í tveimur
stærðum frá framleiðandanum
Campingaz. „Þetta fyrirtæki er sér-
fræðingur í ferðagasgrillum, ferða-
eldavélum, prímusum og öðru sem
þarf til að snara fram heitri máltíð
þegar maður er fjarri heimahög-
unum. Það þarf alls ekki að sætta sig
við lakari möguleika á grillmat þó að
maður leggi land undir fót.“
Aðspurður segir hann stærra
grillið hafa grillflöt sem rúmar auð-
veldlega tíu til tólf hamborgara í
senn, eða sem nemur átta vænum
steikum. Átta til tíu manns eiga því
að geta fengið mat á disk í sömu svif-
um.
„Alls er flöturinn 32 sinnum 66
sentímetrar. Það ættu því allir að
geta fengið að borða á sama tíma,
ólíkt því sem þekktist hér í eina tíð
þegar ferðagasgrill voru svo smá-
gerð að vart gátu fleiri en tveir feng-
ið mat á disk í einu.“ Minna grillið er
svo með um það bil helmingi minni
grillfleti, eða 1.050 fersentimetrar að
flatarmáli.
Sölvi bætir því við að þótt Camp-
ingaz-grillin séu öðru fremur hugsuð
fyrir ferðalagið þá kjósi margir að
nota þau heima fyrir líka.
„Grillunum má pakka þægilega
saman og ganga svo frá þeim í
geymslunni, þvottahúsinu eða ann-
ars staðar og það getur komið sér
vel þegar svalirnar eru litlar. Þá þarf
ekki að hafa grill þar öllum stundum
sem tekur dýrmætt pláss, líka þegar
það er ekki í notkun.“
Grillar allan ársins hring
Þegar talið berst að grillaranum
Sölva Snæ og hans grillvenjum kem-
ur í ljós að hann er einbeittur
heilsársgrillari sem lætur veðrið
ekki stöðva sig ef grillhugurinn leit-
ar á annað borð á hann. Aukinheldur
er hann yfirlýstur ribeye-maður.
„Það er biti sem ég elska. Meyrt
ribeye er toppurinn, alveg skugga-
lega gott. Mest er ég í nautakjötinu
en mér finnst líka fínt að grilla bæði
kjúkling og hamborgara. Ég er mik-
ill hamborgaramaður.“ Sölvi bætir
því við að líkast til muni hann fóðra í
sér ferðagrillarann ef hann bregður
sér á Landsmót hestamanna sem
haldið verður í sumar að Hólum í
Hjaltadal. Þar verða Ellingsen auk-
inheldur með sýningarbás til að
kynna starfsemi og vöruframboð,
nokkuð sem nýráðinn markaðs- og
þróunarstjóri mun væntanlega
þurfa að hafa veg og vanda af. „Svo
bregð ég mér mjög reglulega ásamt
fjölskyldunni í Skorradalinn en
tengdafólkið mitt á þar bústað.“
Hvað fylgihlutina áhrærir verður
Sölvi að hafa með sér griptöngina,
sem honum finnst ómissandi áhald,
spaða fyrir hamborgarana og loks
bursta til að hreinsa grindina að
grillun lokinni.
„Þá er ég með það sem þarf til að
grilla jafn-vel og ég geri heima hjá
mér,“ segir hann í léttum tón.
Grillað af list, að heiman sem heima
Það eru ýmsar kúnstarinnar reglur sem grillarar hafa í heiðri þegar þeir eru á heimavelli Málið getur
vandast þegar lagt er í ferðalag en svo þarf þó alls ekki að vera og grillarar geta iðkað matargerðarlist sína
á ferð og flugi, segir Sölvi Snær Magnússon, markaðs- og þróunarstjóri hjá Ellingsen.
Morgunblaðið/Eggert
Sælkeri Sölvi Snær Magnússon, nýráðinn markaðs- og þróunarstjóri Ellingsen, er einbeittur heilsársgrillari sem lætur veðrið ekki stöðva sig ef grillhugurinn
leitar á annað borð á hann. Aukinheldur er hann yfirlýstur ribeye-maður. „Það er biti sem ég elska. Meyrt ribeye er toppurinn, alveg skuggalega gott.“
Morgunblaðið/Eggert
Handhægt Þegar svalirnar eru litl-
ar er hagræði í því að geta pakkað
grillinu saman eftir notkun.
Morgunblaðið/Eggert
Fylgihlutir Með grillinu þarf hver og einn sínar græjur – Sölvi nefnir grip-
töng, hamborgaraspaða og bursta fyrir þrifin.
Eins og Sölvi nefnir í spjallinu jafnast fátt á við góða ribeye-grillsteik í
hans huga. Og þá er lag að inna hann eftir því hvaða meðlæti hann vill
hafa með.
„Draumamáltíðin mín er medium-grillað nauta-ribeye, ásamt bakaðri
kartöflu og fersku grænmeti. Ég nota örlítið dijon-sinnep með steikinni
og set svo smávegis af kryddblöndunni Chili Explosion frá Santa Maria á
grænmetið. Þetta er ótrúlega einfalt og alveg hrikalega gott. Ég þarf
enga sósu með kjötinu, bara örlítið af góðu dijon-sinnepi og þá er ég al-
sæll. Þetta er mitt uppáhald.“
Óskamaturinn hans Sölva Snæs