Morgunblaðið - 31.05.2016, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Fjölbreytt úrval kæli- og frystiskápa
- Innbyggðir
- Frístandandi
- Amerískir
- Vínkæliskápar
Tilboðsdagar
10-25%
afsláttur
Undirfataverslun Glæsibæ
Full búð af
glæsilegum
vörum frá
Sendum frítt um allt land
GRILL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ný tegund af grillum, Big Green
Egg, hafa vakið verðskuldaða at-
hygli íslenskra grilláhugamanna eft-
ir að þau fóru að verða fáanleg hér á
landi. Um er að ræða bandarísk grill
sem sameina forna japanska
eldunaraðferð og háþróað
geimaldarefni til að skapa glænýja
möguleika í grilleldamennskunni.
Geimskutlukeramík
Big Green Egg, Stóra græna egg-
ið, er til sölu í verslun Garðheima
þar sem Sigurður B. Gíslason er
rekstrarstjóri: „Grillið er gert úr
mjög sérstöku keramíkefni sem var
þróað fyrir hitavarnarhjúpinn utan á
geimskutlum NASA. Keramíkið gef-
ur grillinu þann eiginleika að geta
haldið mjög jöfnu hitastigi inni í egg-
inu. Bæði má elda hægt, við lágan en
stöðugan hita, eða ná upp miklu
meiri hita en í venjulegu grilli,“ út-
skýrir Sigurður. „Matreiðslumeist-
arinn hjá grillskólanum okkar hefur
gert tilraunir með grillið og gat hann
meðal annars viðhaldið 65°C hita í
grillinu í 36 klukkustundir sam-
fleytt, og með sérstökum kolum gat
hann farið alla leið upp í 500°C.“
Eins og nafnið gefur til kynna er
Stóra græna eggið gert úr egglaga
keramíkskel, með skál að neðan en
loki að ofan. Neðst á skálinni er loft-
op sem má stækka eða minnka. Í
stað pressaðra kola eru notuð harð-
viðarkol sem hvíla ofan á grind.
Kolagrindin liggur í keramíkskál
með götum, sem beinir hitanum
jafnt upp að matnum sem situr á
sjálfri grillgrindinni þar fyrir ofan. Á
milli skálarinnar og grillgrind-
arinnar eru lagðar gjarðir sem stýra
fjarlægð matarins frá hitagjafanum.
50°C á þumal
„Hitanum er stjórnað með því að
minnka eða stækka loftopið í botni
grillsins, og opið sem hleypir reykn-
um út, efst á toppi loksins. Þum-
alputtareglan er sú að ef opið að neð-
an er einn þumalfingur á breidd þá
gefi það 50°C hita, tveir þumalputtar
100°C og þannig koll af kolli,“ segir
Sigurður.
Byggir þessi hönnun á japönskum
kamado-ofnum. Þeir vöktu athygli
bandarískra hermanna eftir seinna
stríð og bárust með þeim vestur um
haf. Var það svo árið 1974 að grill-
áhugamenn í Georgíuríki stofnuðu
fyrirtæki utan um framleiðslu Stóra
græna eggsins.
Notkunarmöguleikarnir eru nær
endalausir að sögn Sigurðar. „Þeir
sem komast upp á lagið nota Stóra
græna eggið jafnvel fyrir bakst-
ur, enda svo auðvelt að halda
hitanum jöfnum.“
Heimili og veitinga-
staðir
Garðheimar selja
Stóra græna eggið í
þremur stærðum.
„Stærsta grillið er
mjög þungt og
tveggja manna
tak að lyfta því,
enda keramíkið svo of-
boðslega massíft.
Minnsta grillið er hins vegar af
þeirri stærð að hentar inni á veit-
ingahúsum til að elda fyrir 2–3 gesti
í senn. Kemur svo lítill reykur upp af
grillinu að venjulegur eldunarháfur
dugar til að beina reyknum út úr
eldhúsum veitingastaðanna,“ segir
Sigurður en stærsta grillið kostar
um 200.000 kr. „Má segja að þetta sé
grill fyrir lengra komna, sem eru
búnir að grilla mikið með fínu We-
ber-kolagrillunum okkar en vilja
prufa eitthvað
meira.“
Grill fyrir lengra komna
Stóra græna eggið hefur einstaka eiginleika Grillið má nota til að hægelda, eða ná upp gríðarlegum hita
Einnig er hægt að baka brauð í þessu grilli enda hægt að halda hitanum mjög jöfnum í langan tíma.
Bræðingur Að sögn Sigurðar er sama keramík notað í Stóra græna eggið
og fer utan á geimskutlur NASA. Garðheimar selja þrjár stærðir.
Kríli Minnsta útgáfan af
Stóra græna egginu hent-
ar t.d. á veitingastaði.
Massíft Stóra
græna eggið
byggist á fornum
japönskum ofn-
um en hönnunin
er bandarísk.