Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 47

Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016 ✝ Magnús HelgiSveinbjörnsson fæddist á Flögu í Vatnsdal 25. nóv- ember 1929. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga 30. apríl 2016. Foreldrar hans voru Friðbjörg Ís- aksdóttir frá Lambanesreykjum í Fljótum, f. 25.7. 1903, d. 15.3. 1972, og Svein- björn Þórarinn Tímóteusson frá Brennistöðum, Borgarhreppi í Mýrasýslu, f. 26.2. 1899, d. 26.4. 1988. Bræður Magnúsar sam- mæðra, Haukur, f. 11.11. 1923, d. 21.7. 2004, og Benedikt, f. 12.12. 1939, og systkini sam- feðra, Helga, f. 10.7. 1937, og Pétur, f. 23.8. 1945. Magnús kvæntist 8.9. 1955 Vilborgu Jónsdóttur, f. 14.11. 1936, d. 6.3. 2008. Þau eignuðust sjö börn: 1) Friðbjörg Dröfn, f. 3.1. 1955, gift Birgi Jónssyni. 2) Jón Heiðar, f. 4.10. 1956, sam- býliskona Ása Kristín Knútsdóttir, sonur Jóns er Jón Frímann, barnsmóðir Jónína Ragna Sigurbjartsdóttir. 3) Dóttir, f. 7.4. 1959, d. 8. 4. 1959. 4) Kristín, f. 14.4. 1962, gift Hilmari Hjartarsyni. 5) Guðrún Birna, f. 5.4. 1963, gift Ómari Jóns- syni, synir þeirra eru Brynjar Rafn og Daníel Hafþór. 6) Sveinbjörn Æv- ar, f. 30.3. 1965, sambýliskona Ólína Kristín Austfjörð, dætur þeirra eru Ragnheiður Rún og Kristín Birna. Fyrir átti Ólína Hauk og Hörpu. 7) Aðalheiður Lilja, f. 17.7. 1969, sambýlismaður Júl- íus Bjarki Líndal, börn þeirra eru Haraldur Holti, Vilborg Jó- hanna og Friðbjörg Margrét. Fyrri eiginmaður Aðalheiðar er Hannes Jónsson og synir þeirra eru Magnús Ívar og Jón. Einnig var Bjarki, f. 28.3. 1971, alinn upp hjá Magnúsi og Vil- borgu frá 12 ára aldri. Magnús ólst upp á Flögu í Vatnsdal og Hrísum í Fitjárdal. 1954 hóf Magnús búskap að Hrísum í Fitjárdal og bjó þar ásamt konu sinni og börnum. 1992 fluttu Magnús og Vilborg að Norðurbraut 13 á Hvamms- tanga og bjuggu þar til æviloka. Magnús vann öll hefðbundin sveitastörf auk þess að vera landpóstur í mörg ár. Útför Magnúsar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Núna er látinn hann afi minn, Magnús Helgi Sveinbjörnsson. Hans verður sárt saknað. Stóran hluta af lífi sínu var afi bóndi á Hrísum ásamt ömmu Vilborgu heitinni og voru þau með sauðfé, þar að auki þá starfaði afi sem landpóstur í Víðidal og nágrenni eins lengi og lög leyfðu. Einnig stundaði afi trjárækt af miklum móð í smáreit sem afi og amma áttu og hélt hann þeirri skógrækt áfram svo lengi sem heilsan leyfði. Eins og ég þekkti afa þá sagði hann yfirleitt ekki mikið, en það var gaman að heyra það sem hann sagði, þegar hann talaði um það sem honum fannst skemmti- legast, það er ljósmyndir og að taka ljósmyndir af náttúrunni. Afi vann einnig eins lengi og heilsan leyfði. Síðustu árin vann hann í Sláturhúsinu á Hvammstanga í sláturtíðinni. Ég mun sakna Magnúsar afa mjög mikið eins og ég saka ömmu minnar, Vilborgar. Þau voru bæði stór partur af mínu lífi þeg- ar ég var barn og lengi fram á fullorðinsár. Ég mun ætíð minnast þeirra fyrir það sem þau kenndu mér um heiminn. Ykkar barnabarn, Jón Frímann Jónsson. Við kveðjum þig með einu af þínum uppáhaldsljóðum: Hátt uppi á heiðum hvítir fuglar vaka. Vængjunum stóru veifa þeir og blaka. Það eru álftir, álftirnar, sem kvaka. Handan af hafi, heim í auðnir fjalla, vordægrin snemma villta hópinn kalla. Þá er nú sungið, sungið fyrir alla. Hringaðir hálsar hljóðar taka dýfur. Árvakur skari öldufaldinn klýfur. - Andi guðs friðar yfir vötnum svífur. Margs er að minnast. Margt er enn á seyði. Leikur er varpinn, - bærinn minn í eyði. Syngja þó ennþá svanir fram á heiði. (Jóhannes úr Kötlum) Takk fyrir allar góðu stundirn- ar í Hrísum á Norðurbrautinni og í Elliglöpinni. Við eigum eftir að sakna þess að skreppa í kaffi og smá spjall á kvöldin og um helgar. Kristin og Hilmar. Magnús Helgi Sveinbjörnsson Látin er vinkona mín, Guðrún Haf- liðadóttir, alltaf kölluð Dunna. Við kynntumst við inn- ritun í Gaggó Aust haustið 1948 og urðu þetta skemmtileg þrjú ár hjá okkur unglingunum við lær- dóminn, skíðaferðir og dansæf- ingar í skólanum og einnig fóru mörg á restrasjón á sunnudags- eftirmiðdögum í Oddfellow við Tjörnina. Svo fór að koma að al- vöru lífsins eftir þetta. Unga fólk- ið fór að finna sér maka og giftast en þá kynntust Dunna og Rúnar Guðbjartsson, skólabróðir okkar, Guðrún Þóra Hafliðadóttir ✝ Guðrún ÞóraHafliðadóttir fæddist 6. júlí 1934. Hún lést 11. maí 2016. Útför hennar fór fram 20. maí 2016. en hann stefndi á flugið, sem varð síð- an hans ævistarf. Þau eignuðust fyrst dóttur sína og síðan þrjá syni, en misstu næstyngsta son sinn í fjallgöngu í Hi- malaja-fjöllum, en hann fannst aldrei. Þetta varð þeim öll- um og vinum einnig mikið áfall. Nú fór að líða á elliárin en við Dunna vorum alltaf sömu góðu vinkon- urnar og áttum hvor aðra en henni hélt áfram að hraka og smám saman hætti hún að þekkja nokkra manneskju. Rúnar var henni afskaplega skilningsgóður og hlýr vinur og hann fær bestu þakkir fyrir það. Guð blessi ykkur og styðji þau sem eftir eru í fjölskyldunni. Magnea Kolbrún Leósdóttir. Valgerður Krist- ín eru tvö stór nöfn og hún Vala mín bar þau með sóma. Frá því ég sá hana fyrst fannst mér hún einstök. Einhvern veg- inn hafði ég hugsað mér land- námskonurnar svona. Það fylgdi henni viss reisn, alltaf svo traust og vönduð. Það var happ að fá hana inn í fjölskylduna. Nú er lokið langri veikindabaráttu sem Valgerður Kristín Sigurðardóttir ✝ ValgerðurKristín Sigurð- ardóttir fæddist 28. apríl 1956. Hún lést 13. maí 2016. Útför Valgerðar fór fram 24. maí 2016. Vala háði af miklu æðruleysi. Hún lét ekkert stöðva sig, ferðaðist og tók þátt í lífinu þegar góðar stundir gáfust. Safnaði dýrmætum samverustundum með sinni fjölskyldu sem þau geta yljað sér við í minning- unni. Kæri frændi og fjölskylda, þeir sem eiga mikið missa líka mikið. Þið hafið stutt hvert annað í þessari löngu bar- áttu og það veit ég að þið gerið áfram. Vel hefur verið tekið á móti Völu af foreldrum og barna- barni sem fylgja henni nú um Sumarlandið. Hafðu þökk fyrir samfylgdina. Megi Guð gefa ykk- ur styrk. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Halldóra Guðmundsdóttir (Dóra) og fjölskylda. Við kveðjum nú okkar kæru vinkonu sem hefur verið svo stór hluti af okkar lífi í tugi ára. Upp í hugann koma minningar um mikla kjarnakonu. Vináttan og samkenndin þróaðist með árun- um eftir því sem aðstæður okkar breyttust. Í byrjun voru það skemmtiferðir sem farnar voru í náttúru Íslands og það þurfti að skipuleggja og þar var Vala alltaf fremst í flokki. Hún var mikil útivistarkona og sá til þess að við hefðum rétta fatnaðinn með. Hún lagði á ráðin um sameiginlegt nesti og hver ætti að gera hvað. Við gátum svo hlegið alveg endalaust að því að í allri skipulagningunni hafði for- inginn Vala gleymt að taka pyls- urnar með en það var hennar hlutverk. Eftir að við stofnuðum fjöl- skyldur voru saumaklúbbar látn- ir duga og eitt og eitt afmæli. Við vorum afskaplega misduglegar við hannyrðirnar en Vala var þar afkastamest og oft göptum við af aðdáun yfir fallegri og flottri vinnu og alltaf var hún að gefa. Það voru ótal margir sem þurftu á gjöf að halda, frændur, frænkur og vinir sem Vala vildi gleðja og þannig var hún til hinsta dags. Það kom fyrir að við föndruðum jólaföndur undir handleiðslu Völu og oft tókst okkur vel upp en stundum varð það eitthvað sem við gátum hlegið að í nokkur ár. Þegar börnin okkar voru komin vel á legg gátum við farið að halda árshátíðir saumaklúbbsins með mökum og þá var nú gaman. Mat- arveislur með þema voru málið og stundum farið á veitingahús. Undirbúningur var nú orðinn frekar laus í reipum en alltaf tókst okkur að gera flottar og vel heppnaðar veislur og mikið var hlegið. Eina ferð fórum við sam- an til útlanda og skemmtum okk- ar konunglega. Nú sitjum við hnípnar vinkon- ur í sorg. Minningin lifir um góða vinkonu sem var okkur mjög hjartfólgin. Þegar sorgin hefur fengið sinn tíma mun gleðin taka við og í huga okkar mun Vala vera með okkur áfram í þeirri gleði og kannski hafa áhrif á skipulagið, hver veit? Við sendum Pálmari, Sigga, Sirrí og Ingvari ásamt mökum og litlu augasteinunum Völu, Kára Steini og Katrínu Völu, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Saumósystur, Ágústa, Dóra, Heiða og Margrét. Geiri var að eðl- isfari frekar fáskipt- inn, í rauninni þekkti ég hann lítið en þó var eins og allir Eyjamenn hefðu þekkt hann. Norðurgarður var um það bil hálfa leið úr bæn- um og suður í Stórhöfða. For- eldrar Geira ráku smá kúabú- skap, það kom því í hlut Geira að annast búskapinn með foreldrum sínum. Hann gegndi því hlutverki að færa mjólkina til viðskiptavina í bænum. Hann notaðist við kerru með reiðhjólafelgum. Það var hrein unun að sjá hann með þessa kerru. Hann var svo léttur í spori og fjaðurmagnaður í göngu og hrað- gengur. Ég tel að fáir mundu hafa haft við honum á göngunni. Sigurgeir Kristinsson ✝ SigurgeirKristinsson fæddist 6. desem- ber 1935. Hann lést 18. febrúar 2016. Útför Sigurgeirs fór fram 27. febr- úar 2016. Það hefði mátt hugsa sér hann í ýmsum íþróttum fyrir það eitt hvað fjaðurmagnaður og léttur hann var á göngunni. Fyrir gosið í Eyjum vann hann við kúabúið í Dölum sem bærinn stofnaði vegna þess hve erfitt var um mjólk á þeim árum. Í gosinu lenti hann í kúabúi að Breiðabólstað í Ölfusi. Þar hitti ég Geira er ég var við málning- arvinnu og tók hann mér fagn- andi. Þaðan fór hann í Þorláks- höfn og var þar í skjóli hjónanna Laufeyjar og Heimis, sem áður hefur verið getið um í minning- argreinum um Geira. Hann lét sig ekki vanta á bryggjuna þegar Herjólfur lagði að. Þá tók hann gjarnan fangalínuna frá Herjólfi. Ég hitti hann nokkrum sinnum og átti þá ætíð gott samtal við hann. Blessuð veri minning Geira í Norðurgarði. Gísli Brynjólfsson, málari. Antík Antíkhúsgögn og munir í úrvali. Skoðið heimasíðuna. Erum á Facebook. Opið frá kl. 10 til 18 virka daga. Þórunnartúni 6, sími 553 0755 – antiksalan.is Dýrahald Maltese hvolpar til sölu 3 maltese-rakkar, fæddir 08.04.2016 til sölu. Verða tilbúnir til afhendingar 17. júní 2016. Þeir verða með ættbók frá HRFÍ, bólusettir, heilsuskoðaðir, tryggðir hjá VÍS, örmerktir. Startpakki fylgir einnig með. Fleiri upplýsingar má fá í síma 8464221 eða e-mail laudia92@hotmail.com Hljóðfæri Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Bílar Toyota yaris árg. 2002. Ekinn 173 þús. skoðaður 2017. Verð: 550.000. Uppl.í síma 698-1844. Húsviðhald Slípa ryð af þökum, ryðbletta og tek að mér ýmis verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Smáauglýsingar Þjónustu- auglýsingar Þarft þú að koma fyrirtækinu þínu á framfæri Hafðu samband í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is og fáðu tilboð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.