Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 53

Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 53
DÆGRADVÖL 53 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016 Fyrir helgina heilsaði IngólfurÓmar leirverjum með því að sér hefði dottið í hug að setja inn hesta- vísur aðeins svona til að breyta til og kallaði þær „Blesa“: Hnarreistur um frónið fer funar glóð í æðum. Býsna slyngur Blesi er búinn snilldar gæðum. Gæddur hreysti harður er hefur stál í taugum. Afar skarpar brúnir ber blikar fjör í augum. Og um hryssuna Kolku frá Kolku- ósi: Traðir sléttar töltir nett tiginn þokka ber ’ún, Oft er sprett úr spori létt spræk á brokki er ’ún. Á sunnudagsmorgni skrifaði síðan Páll Imsland í Leirinn: „Eins og al- þjóð veit hef ég unnið hörðum huga og höndum að vexti og viðgangi sjaldgæfra lita og litmynstra í ís- lenska hrossastofninum. Í því augna- miði hef ég haldið hross til rækt- unar. Nú vildi svo til síðla vetrar að ég missti tvær hryssur, sína í hvoru amtinu. Var önnur á fimmta vetri móbrún arfhrein slettuskjótt og fyl- full við fölum fola, en hin á sjötta vetri fífilbleik stjörnótt og litförótt og gekk að auki með vindóttar erfð- ir ósýnilegar, glæsigripur á leið í framhald tamningar. Eins og við er að búast setti að mér harma við þetta og hefur mér nú farið líkt og forföður mínum, þverum og þrjóskum, Agli Skalla- grímssyni, að ég hef reynt að yrkja mig frá sorginni. Það hefur að nokkru leyti tekist, hvernig sem gæði skáldskaparins dæmast. Þeir verða að missa sem eiga, hinir geta það ekki. Og fer hér á eftir mitt Meratorrek:“ Átti’ ég hryssu harla góða’ í holdum fínum. Heytuggur í hægðum sínum hámaði’ í sig grænum, fínum. Til snjóa’ og vinda dag einn dró nú dægr- um saman. Fennti’ í kaf og hvarf þá daman. Karli fannst það ekki gaman. Önnur gekk með fyl og fannst mér frekar vaxa. Sá ég þar í framtíð Faxa fagran klár og góðan lagsa. Dauð lá merin svo einn morgun mér til ama. Þar með varð af frægð og frama folatetur. Mér ei sama. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Blesa, Kolku og lit- mynstrum í hrossum Í klípu „VERTU RÓLEG – EKKI VERÐA BUNDIN OF MIKLUM TILFINNINGABÖNDUM ÞVÍ ÞANNIG MEIÐIST ENGINN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG VEIT AÐ ÞETTA TEKUR MIG LANGAN TÍMA, EN ÉG ER AÐ REYNA AÐ STEIKJA HANDA ÞÉR EGG OG SKURNIN ER ALLTAF AÐ BROTNA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... einhver sem tikkar í öll boxin þín. ÉG HEF SÉÐ ALLT EF ÞAÐ ER Á LOFTINU HVAÐ VILTU GERA Í DAG? AF HVERJU TRÖÐKUM VIÐ EKKI YFIR EVRÓPU? ÉG ER Í MJÖG SLÆMU FORMI GÆTUM VIÐ EKKI BARA GENGIÐ YFIR HANA? Því að hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós. (Sálm 36:10) Hvað segirðu? Viltu ekki eigagóðan dag?“ sagði af- greiðslumaðurinn í sjoppunni og starði í forundran á Víkverja. Góðan dag? spurði Víkverji hvumsa. Sagðirðu ekki: Viltu afrit- ið? „Nei, ég sagði: Eigðu góðan dag!“ svaraði afgreiðslumaðurinn. Jú, auðvitað, sagði Víkverji og skellti upp úr. Auðvitað vil ég eiga góðan dag. Helst frábæran, dásam- legan og stórkostlegan. Þakka þér kærlega fyrir. Afgreiðslumaðurinn sýndi lítil viðbrögð; var bersýnilega ennþá brugðið. Ugglaust í fyrsta skipti sem viðskiptavinur tekur svona illa í kveðju hans. x x x Víkverji lifir æsilegu lífi. Ídraumum sínum. Þá er hann bæði að tala um dagdrauma og þó einkum náttdrauma. Fyrir skemmstu var hann per- sóna í glæpasögu eftir óþekktan ís- lenskan höfund. Fannst sagan í fyrstu vera eftir Arnald en fljótt kom í ljós að það gat ekki passað. Stíllinn var annar. Í sögu þessari var Víkverji, sem þó var ekki Vík- verji, á hröðum flótta undan ónefndum íslenskum bókasafnara. Víkverji kom manninum ekki fyrir sig og sá hann raunar aldrei en hann var ofboðslega vel haldinn af bókum. Þær voru upp um alla veggi á heimili hans. Ekki kom fram hvers vegna Víkverji var þar staddur. x x x Víkverji var á flótta, mögulegavar sjálft lífið í húfi, og eini maðurinn sem gat hjálpað honum var frá Bandaríkjunum, Skip Tuola að nafni. Á honum vissi Víkverji engin deili eða hvernig hann ætti að komast í samband við hann. Þegar Víkverji hrökk upp með andfælum um morguninn hafði hann ekki fundið Skip Tuola en sem betur fer hafði bókasafnarinn ekki náð í skottið á honum heldur. x x x Víkverji hefur reynt að gúglaSkip Tuola og svo virðist sem hann sé ekki til. Alltént ekki í þess- um heimi. víkverji@mbl.is VíkverjiStjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Mundu að það er hægt að lyfta sér upp án þess að kosta miklu til. Rökræður um trúmál og stjórnmál taka sig upp að nýju og nú ríður á að vera staðfastur. 20. apríl - 20. maí  Naut Það eru oft einföldustu hlutirnir sem veita manni mesta gleði. Ef einhver vill slást um molana á gólfinu er best að vera stórlyndur og leyfa viðkomandi að vinna. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ræddu um vonir þínar og drauma við nákominn vin. Einhver gerir at- hugasemd við atferli þitt. Líttu á þetta sem hrós og þakklætisvott en haltu þínu striki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert hugsi yfir því hvað þú hefur verið undir miklu álagi. Farðu varlega. Hlúðu líka að sjálfum þér og innri friði. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það ætti ekki að vefjast fyrir þér að ráða fram úr málum þessa dagana. Það gæti verið að núverandi orrusta virðist erf- ið en sigurinn er alltaf sætari ef þú þarft að hafa fyrir honum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef þú veist ekki hvað þú ert að gera skaltu bara giska. Dagurinn er kjörinn til samningaviðræðna og undirritunar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Dagurinn er fullur af gullnum stund- um, sem renna þér úr greipum. Ekki hafa áhyggjur, til að mynda af maka, stjórn- endum eða foreldrum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Notaðu daginn til þess að meta eiginfjárstöðuna, hann er frábær til þess. Taktu höndum saman við aðra til að vinna að þessu málefni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eitthvað sem þú hefur treyst á verður ekki og það veldur þér miklum von- brigðum. Leggðu áherslu á jákvætt hug- arfar. Kannski hefur þú of margar langanir sem yfirgnæfa hver aðra. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú finnur fyrir gremju því for- eldrar, kennarar, yfirmenn og fyrirmenni af einhverju tagi leggja stein í götu þína. Honum fellur dótið sitt vel í geð. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að sýna fjölskyldu þinni sérstaka þolinmæði í dag. Leitaðu hjálpar eða hafðu samband við sérfræðing svo hlutirnir séu rétt gerðir strax. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er betra að sitja uppi með of mikið af upplýsingum en of lítið. Reyndu ekki að brjótast inn í þær lendur hugans. HAMPFRÆ OG HAMPOLÍA HAMPFRÆ ERU EIN NÆRINGARRÍKASTA FÆÐA SEM UM GETUROG SÉRLEGA GÓÐUPPSPRETTA AUÐMELTANLEGRA PRÓTEINA. ÞAU ERU MJÖG RÍK AF LÍFSNAUÐSYNLEGUM OMEGA FITUSÝRUM 3, 6 & 9 OGTREFJUM. ÞAU ERU EINNIG RÍK AF STEINEFNUM EINS OGMAGNESÍUM, JÁRNI, SINKI OG KALÍUM. HAMPFRÆERUUPPLÖGÐÚTÁHAFRAGRAUTA, CHIAGRAUTA, SALÖT, Í HRISTINGA OG EFTIRRÉTTI. HAMPOLÍA ER UNDRAEFNI FYRIR HÚÐINA, HÚÐÞURRKOG OF FEITA HÚÐ. 1-2 MATSKEIÐAR DAGLEGA.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.