Morgunblaðið - 31.05.2016, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 31.05.2016, Blaðsíða 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016 Fákafeni 9 | 108 Reykjavík | Sími 553 7060 | Opið mánud.-föstud. 11-18 og laugard. 11-16 www.facebook.com/gaborserverslun Dömuskór í úrvali Gæði & glæsileiki Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is Fagleg & persónuleg þjónusta Dæmi: KOMO Frábær kaffivél í móttökuna 3.900,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! Enska hljómsveitin Simply Red heldur tónleika í kvöld kl. 20 í Laugardalshöll en hún hélt tónleika hér á landi fyrir 30 árum og þá einnig í höllinni. Kom hún þá fram með vinsælum hljómsveitum á þeim tíma: Fine Young Cannibals, Lloyd Cole and the Commotions og Mad- ness. Simply Red hafði þá nýverið gefið út sína fyrstu breiðskífu, Pict- ure Book, sem naut mikilla vin- sælda hér á landi sem víðar. Simply Red hefur selt yfir 60 milljónir platna og mun hún flytja vinsælustu lög sín á tónleikunum. Fyrir sveitinni fer sem fyrr söngv- arinn Mick Hucknall og meðal laga sem búast má við á efnisskránni eru smellirnir „If You Don’t Know Me By Now“, „Money’s Too Tight (To Mention)“, „Something Got Me Started“ og „Holding Back The Ye- ars“. Miðasala fer fram á vefnum midi.is. Simply Red Hljómsveitin leikur í Laugardalshöll í kvöld en þar lék hún síð- ast 16. júní 1986 og voru tónleikarnir á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Simply Red snýr aftur Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Ljóðið er einstakt eitt og sér og engu við það að bæta. Þetta var því erfitt og krefjandi verkefni að takast á við,“ segir Kristín Þóra Haraldsdóttir tónlistarkona, en tónlistarhópurinn Umbra flytur nýtt tónleikhúsverk eftir Kristínu, byggt á ljóðabálki Gerðar Kristn- ýjar, Blóðhófni, í sviðsetningu Sögu Sigurðardóttur í Tjarnarbíói á morgun kl. 20.30. Gerður Kristný hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki skáldverka árið 2010 fyrir verkið og það hefur verið þýtt á fjölda tungumála en Gerður Kristný vakti strax mikla athygli með fyrstu ljóðabók sinni, Ísfrétt, og hefur hlotið margs konar viður- kenningar fyrir ljóð sín, nú síðast Ljóðstaf Jóns úr Vör og Ljóða- verðlaun Guðmundar Böðvars- sonar. Dökku hliðar veruleikans Blóðhófnir byggist á hinum fornu Skírnismálum sem eru eitt af eddukvæðum sem finna má í Kon- ungsbók en hún er talin vera frá árinu 1270. „Gerður Kristný, ólíkt höfundi Skírnismála, segir söguna frá kvenlægu sjónarhorni jötunmeyj- arinnar Gerðar Gymisdóttur. Verk- ið er því ádeila á viðhorf fyrri tíma en á allt eins við í okkar nútíma- samfélagi,“ segir Kristín en í Skírnismálum er Gerður numin á brot úr Jötunheimum til Goðheima af Skírni, skósveini goðsins Freys. Verkið fellur vel að áherslum Umbru, sem vinnur m.a. með dekkri hliðar mannlegrar tilveru og hinn gamla tónlistararf að sögn Kristínar. „Þetta er náttúrlega svo einstakt verk að það er erfitt að bæta það að nokkru ráði en það fellur vel að Umbru sem vinnur nokkuð með tónlist frá miðöldum og eins þjóð- lagatónlist en einnig rauntónlist og samtímatónlist.“ Forn nálgun Skírnismála og nú- tímatök Gerðar í Blóðhófni falla því einstaklega vel að tónlistar- hópnum Umbru. Þekkti vel til verksins Aðspurð hvernig verkið og sam- starfið við Umbru kom til segir Kristín stelpurnar í Umbru hafa leitað til sín að semja verk úr þess- um ljóðaflokki. „Ég var búin að kynna mér Blóðhófni vel áður og þekkti til verka Gerðar þegar stelpurnar í Umbru komu að máli við mig. Umbra er spennandi hópur og auk þess að vinna að þessu einstaka verki fengu þær mig til liðs við sig sem víóluleikara.“ Umbra notar upprunahljóðfæri og raddir í tónlistarflutningi sínum en sýn hópsins felst m.a. í að skapa nána stemningu á tónleikum, ná til nýrra áhorfenda, kanna ný rými og vinna markvisst með þann hljóðheim sem hlýst af samsetn- ingu hljóðfæranna og söngs. „Við notum gömul hljóðfæri eins og keltneska hörpu, barokkfiðlu og barokkvíólu og að sjálfsögðu söng- inn en Lilja Dögg Gunnarsdóttir söngkona hefur mjög fallega rödd sem við nýtum okkur á einstakan hátt í verkinu.“ Tónleikhúsverk Beðin um að skilgreina verkið segir Kristín það ekki svo auðvelt enda blanda tóna og hreyfinga. Hún þvertekur þó fyrir að hér sé um dansverk að ræða. „Þetta er hvort tveggja í senn tilbúið verk og spuni og hreyfing. Saga Sigurðardóttir hefur t.d. ver- ið okkur innan handar að túlka hreyfinguna. Til að skilgreina þetta á einhvern hátt myndi ég kalla þetta tónleikhúsverk.“ Kristín tekur einnig sérstaklega fram að í verki Umbru er lögð áhersla á næturnar níu sem Gerð- ur Gymisdóttir dregur að fara til goðheima. „Í Blóðhófni dregur Gerður Kristný fram þessar níu nætur sem ekki er minnst á í Skírnis- málum en á þeim tíma kveður Gerður Gymisdóttir landið sitt og móður og við leggjum áherslu á það í verkinu.“ Kveður í níu nætur Ljósmynd/Helga Björg Gylfadóttir Tónverk Tónlistarkonurnar í Umbru segja sögu jötunmeyjarinnar Gerðar Gymisdóttur í tónleikhúsverki sínu á Listahátíð í Reykjavík á morgun.  Tónlistarhópurinn Umbra flytur verk úr ljóðabálki Gerð- ar Kristnýjar, Blóðhófni, á Listahátíð í Reykjavík á morgun Warcraft Ný Ný X-Men Apocalypse 1 2 Angry Birds The Movie 2 3 Alice Through the Looking Glass Ný Ný Bad neighbours 2 Sorority rising 5 4 Mother's Day 2016 6 3 Captain America: Civil War 4 5 The Jungle Book 7 7 Keanu 3 2 Zootropolis 9 14 Bíólistinn 27.–29. maí 2016 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Kvikmyndin Warcraft, sem byggð er á samnefndum tölvuleikjum sem eru einhverjir þeir vinsælustu í sögu tölvuleikja, skilaði mestum miðasölutekjum af þeim kvikmynd- um sem sýndar voru um helgina í bíóhúsum landsins. Um 3.800 manns sáu myndina og voru miða- sölutekjur tæpar 5,4 milljónir króna. Teiknimyndin um reiðu fuglana, Angry Birds: The Movie, sem einnig er byggð á tölvuleik, var sú þriðja tekjuhæsta en næst- tekjuhæst var ofurhetjumyndin X- Men: Apocalypse sem skilaði tæp- um þremur millj. kr. í miðasölu. Bíóaðsókn helgarinnar 3.800 sáu Warcraft Úr Warcraft Orkar og menn berjast í vinsælustu mynd síðustu helgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.