Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 55

Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 55
MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 4/6 kl. 19:30 78.sýn Lau 11/6 kl. 15:00 aukasýn Sun 5/6 kl. 19:30 79.sýn Lau 11/6 kl. 19:30 Lokasýn Sýningum lýkur í vor! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 1/6 kl. 19:30 Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram! Mugison (Kassinn) Fim 2/6 kl. 20:30 Fös 10/6 kl. 20:30 Sun 19/6 kl. 20:30 Fös 3/6 kl. 20:30 Sun 12/6 kl. 20:30 Fim 23/6 kl. 20:30 Lau 4/6 kl. 20:30 Fim 16/6 kl. 20:30 Fös 24/6 kl. 20:30 Sun 5/6 kl. 20:30 Fös 17/6 kl. 20:30 Lau 25/6 kl. 20:30 Fim 9/6 kl. 20:30 Lau 18/6 kl. 20:30 Sun 26/6 kl. 20:30 Miðasala á mugison.com Play (Stóra sviðið) Þri 31/5 kl. 19:30 Listahátíð í Reykjavík Ekkert að óttast (Kassinn) Lau 4/6 kl. 19:30 Áhugaleiksýning ársins! DAVID FARR MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Þri 31/5 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 20:00 Mið 1/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00 Fim 16/6 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00 Mið 8/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00 Sun 25/9 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00 Uppselt út leikárið! Sýningar haustsins komnar í sölu. Njála (Stóra sviðið) Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00 Kona virðist sitja nakin áhækjum sér á háu borði,grafkyrr. Höfuðið erbeygt fram, hulið hári sem nær næstum niður á gólf. Andspænis henni í annars tómleg- um salnum stendur stór, opinn glerskápur en inni í honum liggja torkennilega samofnir skrokkar tveir af hrossum. Óhugnaður læð- ist að áhorfandanum sem laðast engu að síður að sérstæðri fegurð þessara umkomulausra skúlptúra. Um er að ræða sýningu belgíska myndhöggvarans Berlinde De Bru- yckere í sal 1 í Listasafni Íslands og jafnframt viðburð á Listahátíð í ár. Sýning De Bruyckere virðist vitnisburður um að eitthvað skelfi- legt hafi átt sér stað. Konan reyn- ist vera sköpuð úr vaxi og ber heit- ið Inge. Þegar nánar er að gáð virðist vanta á hana handleggina, auk þess sem hárið reynist af hrossi og er það er saumað gróf- lega á hálsinn. Líkami Inge er nosturslega útfærður ekki síður en annar vaxlíkami sem leynist á vegg þar hjá, á bak við tréplötu. Þar er afmyndað og höfuðlaust lík karl- manns. Bláleit slikja leikur um glæra húðina og það sést móta fyr- ir undirlagi beina og vefja. Hand- leggur virðist holur að innan og það á að hluta til einnig við um- glansandi, dökkleita hami hross- anna í skápnum sem hjúpast þann- ig draugalegum blæ. Sýningin kveikir hugsanir um pyntingar, limlestingar, morð. Myrkir afkimar mannshugans og hvers kyns stríðs- hörmungar höggva óþægilega nærri safngestinum. Annarleika sýningarinnar má jafnframt rekja til harmþrungins yfirbragðs sem er öðrum þræði ljóðrænt og malerískt. Húðin er einnig umfang sálarinnar. Þetta undirstrika teikningar listamanns- ins og vatnslitaverk sem sýnd eru á veggjum salarins en þar sjást ógreinilegar verur, sem virðast hverfa inn í eigin líkama, stundum í erótískum samruna. Andrúmsloft fortíðar og fagurfræði ákveðinna safna – með uppstoppuðum dýrum í sýningarskápum og stöplum, lík- amshlutum og fóstrum í formalín- krukkum, upphengdum beina- grindum og vaxmyndabrúðum – svífur yfir vötnum. Og ekki er laust við að skúlptúrarnir leiði hugann að vísindaskáldskap ýmis konar og persónum í bókmenntum og kvikmyndum. Verk De Bruyc- kere kallast einnig á við heim lista- safna og meistaraverk frá tímum endurreisnar og barokks – en einn- ig verk ýmissa listamanna 20. ald- ar sem fengist hafa við sálrænan óhugnað og mannslíkamann í af- bakaðri mynd. Slík verk hafa túlk- að stríðsþjáningar og firringu, sem og persónuleg átök. Fagurfræðileg framsetning verka De Bruyckere orka líkamlega og sálrænt sterkt á áhorfandann – en styrkur áleitinna verkanna felst ekki síst í þeim mörgu skírskotunum sem þau geyma til sögu og samtíðar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Draugalegt Dökkleitir hamir hrossa í skáp hjúpast draugalegum blæ í verkinu „Aan-één“ eftir De Bruyckere sem er frá árinu 2009. Húð við húð Listasafn Íslands Berlinde De Bruyckere bbbbn Viðburður á Listahátíð í Reykjavík 2016. Til 4. september 2016. Opið þri.-su. kl. 11-17. Aðgangur kr. 1.500. 67 ára og eldri, öryrkjar, námsmenn, hópar 10+ kr. 750. Yngri en 18 ára: ókeypis. ANNA JÓA MYNDLIST „Sýningin gekk mjög vel og miklar umræður sköpuðust að henni lok- inni,“ segir Kristín Eysteinsdóttir borgarleikhússtjóri sem nýkomin er heim frá Torun í Póllandi þar sem Borgarleikhúsið sýndi uppfærslu sína á Mávinum eftir Anton Tsékov í leikstjórn Yönu Ross á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Kontakt sem haldin hefur verið árlega frá árinu 1991. Ross var á hátíðinni verðlaunuð fyrir bestu leikstjórn fyrir Mávinn, en Illíonskviða eftir Hómer í leik- stjórn Jernej Lorenci sem var sam- starfsverkefni Þjóðleikhússins og Borgarleikhússins í Ljubljana í Slóveníu var valin besta sýning há- tíðarinnar auk þess sem leikhóp- urinn var valinn sá besti. Alls voru 11 sýningar sýndar á hátíðinni, þeirra á meðal Þjóðníðingur eftir Henrik Ibsen í leikstjórn Thomasar Ostermeier frá Schaubühne í Berlín. „Mávurinn hefur fengið mun fleiri boð á hátíðir en við höfum getað þegið,“ segir Kristín og tekur fram að stjórnendur Borgarleikhússins geti aðeins þegið boð ef enginn kostnaður hljótist af fyrir leikhúsið. „Okkar fjármagn þarf að fara í fjár- mögnun á sýningum hérlendis og því getum við ekki greitt með okkur til sýningarhalds erlendis. Við höf- um þegið boð um að sýna á stórri hátíð í Tampere í Finnlandi í byrjun ágúst þar sem hátíðin greiðir allan kostnað og auk þess erum við þessa dagana í viðræðum um að sýna á stórri hátíð í Kína að ári.“ Kristín hefur ráðið Ross til að leikstýra Sölku Völku eftir Halldór Laxness sem frumsýnd verður 30. desember nk. „Verkefnavalsnefnd leikhússins hefur lengi haft Sölku Völku til skoðunar, en við vorum ekki búin að finna rétta leikstjór- ann. Ég stakk þeirri hugmynd að Yönu að gaman væri að fá hana til að takast á við íslenska klassík. Í framhaldinu las hún Sölku Völku á rússnesku og heillaðist af þessari sögu og kom fljótt með hugmynd að sinni nálgun á verkið sem er vægast sagt afar spennandi,“ segir Kristín, en Ross mun sjálf skrifa leikgerðina í samstarfi við Sölku Guðmundsdóttur. Þuríður Blær Jó- hannsdóttir verður í hlutverki Sölku Völku, Unnur Ösp Stef- ánsdóttir leikur Sigurlínu, Hilmir Snær Guðnason leikur Steinþór og Hilmar Guðjónsson leikur Arnald. „Leikhópurinn verður að mestu skipaður sömu leikurum og voru í Mávinum auk þess sem nokkrir ný- ir bætast við.“ silja@mbl.is Ross verðlaun- uð fyrir Mávinn Yana Ross  Yana Ross leikstýrir Sölku Völku hjá Borgarleikhúsinu á næsta leikári Kristín Eysteinsdóttir Dansverkið Play verður sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld kl. 19.30 og er það á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Verkið sömdu indverski dansarinn og danshöfundurinn Shantala Shival- ingappa, sem kom fram á hátíðinni í fyrra, og marokkósk-belgíski danshöfundurinn Sidi Larbi Cherkaoui sem mun vera einn þekktasti danshöfundur samtím- ans. Shivanligappa sýndi á hátíð- inni í fyrra kuchipudi, klassískan indverskan dans sem sameinar lif- andi tónlist, dans og goðsagnir og hét það verk Akasha. Þungamiðja Play er hugmyndin um leikinn, hvort heldur sem er hlutverkaleikinn sem fram fer á leikhúsfjölunum eða þau hlutverk sem fólk tekur sér í lífinu sjálfu, að því er fram kemur á vef hátíð- arinnar, listahatid.is. „Verkið segir meðal annars sögu samskipta karls og konu og hvað gerist þegar orku þeirra lýstur saman. Líkt og börn að leik setja þau upp grímur og taka sér þannig nýtt hlutverk. Þannig sneiða þau hjá ímynd sinni, sleppa undan nafni sínu, ytra formi og sögu. En það getur reynst erfitt að flýja sjálfið og í því ferli kemur oft fleira í ljós heldur en það sem reynt er að fela,“ segir þar. Verkið er sagt gáskafullt og til- finningaþrungið, tileinkað danshöf- undinum og frumkvöðlinum heitna Pinu Bausch sem hvatti til sam- starfs dansaranna tveggja. Cherkaoui og Shivalingappa eru leikstjórar og dansarar Play og hljómsveit sýningarinnar skipa Patrizia Bovi, Tsubasa Hori, Gabr- iele Miracle og Olga Wojcie- chowska. Sviðsmynd hannaði Filip Peeters, búninga Lieve Meeussen og Alexandra Gilbert, lýsing er í höndum Adam Carrées og um myndbandsgerð sá Paul Van Cau- denberg. Ljósmynd/Koen Broos Leikur Shantala Shivalingappa og Sidi Larbi Cherkaoui stíga dans. Hugmyndin um leikinn  Shivalingappa dansar á Listahá- tíð í annað sinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.