Morgunblaðið - 01.06.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.06.2016, Qupperneq 10
Morgunblaðið/RAX Nokkrar vikur eru síðan niðurrrif gamla Iðnaðarbankahússins í Lækjargötu hófst. Það hýsti síðast starfsemi Íslandsbanka en eftir að húsið var dæmt ónýtt var ákveðið að byggja þar að nýju og mun Íslands- hótel reisa þar nýtt fjögurra stjörnu hótel. Þorkell Erlingsson, fulltrúi Ís- landshótela, segir að verktakafyrir- tækið Afltak sjái um niðurrifið. „Þetta gengur hægt og rólega. Ástæðan er sú að það þarf að byrja á því að taka allt innan úr húsinu og flokka það. Timburinnveggjum er fargað sérstaklega, sem og málm- hlutum og perum. Allt er flokkað niður og fargað eftir kúnstarinnar reglum,“ segir Þorkell. Að sögn hans er enn beðið eftir leyfi til að brjóta húsið niður með stærri vinnuvélum. „Það tekur ekki langan tíma að taka innan úr húsinu en við erum enn að bíða eftir leyfi til að fá að rífa þetta allt saman,“ segir Þorkell. Að sögn Þorkels er búið að rann- saka allar minjar sem fundust sunn- an og norðan við húsið og ákveða hvernig þær verða varðveittar. „En húsrifið kemur því ekkert við enda er það á öðru svæði,“ segir Þorkell. Að sögn hans gera áætlanir ráð fyrir því að búið verði að rífa húsið seint á þessu ári. „Skipulagsferlið tekur langan tíma. Þetta er vandasamt verk.“ vidar@mbl.is Tafsamt niðurrif húss í Lækjargötu 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 Skúli Halldórsson sh@mbl.is Nýr salur til farangursflokkunar verður tekinn í gagnið á Keflavík- urflugvelli á laugardag. Fram að því mælist Isavia til þess að farþegar mæti á flugvöllinn um þremur klukkustundum fyrir flug, en meðan á umbótunum stendur þarf að hand- flokka allan þann farangur sem inn- ritaður er í Leifsstöð. Guðni Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi Isavia, segir í samtali við Morgunblaðið að flokkunargetan muni tvöfaldast með tilkomu nýja salarins, en með honum lengist far- angursfæribandið úr 90 metrum í tvö hundruð. Salurinn er þó að mestu leyti gerður vegna nýrra breiðþotna íslensku flugfélaganna Icelandair og WOW air. „Í breiðþotum er notast við far- angursgáma, þar sem farangrinum er komið fyrir áður en gámarnir eru settir inn í vélarnar. Það var einfald- lega ekki rými til að sinna því í gamla salnum,“ segir Guðni. Þrjú þúsund fermetra bygging Framkvæmdir við nýja salinn hóf- ust í nóvember á síðasta ári, aðeins skömmu eftir að flugfélögin höfðu tilkynnt þá ákvörðun að taka breið- þoturnar í notkun. Nýbyggingin sem hýsir salinn er 3.000 fermetrar að stærð en þar af er nýi salurinn 2.100 fermetrar. Guðni segir umferð á flugvellinum fara sífellt vaxandi og sömuleiðis hlutfall skiptifarþega sem eiga að- eins leið um Leifsstöð á leið sinni úr einni flugvél í aðra. „Þá skiptir máli að flokkunin sé mjög hröð, svo að farangurinn geti farið hnökralaust yfir í næstu vél.“ Tæpur áratugur er síðan farangur var síðast handflokkaður á vellinum, en 4,8 milljónir farþega áttu leið um hann á síðasta ári. Innviðir þurfa að taka mið af álagstímum flugfélaga „Samt sem áður held ég að til séu flugvellir með fjórar til fimm millj- ónir farþega á ári, þar sem enn er handflokkað,“ segir Guðni og bendir á að það skýrist af ójöfnu álagi á Keflavíkurflugvelli. „Þar er álaginu dreift meira yfir sólarhringinn svo það gengur alveg. En við erum með svo stóra álags- tíma hér á landi, þar sem Icelandair og WOW air eru á svipuðum tíma sólarhringsins. Allir okkar innviðir þurfa þannig að taka mið af því.“ Flokkunarsalur fyrir nýju breiðþoturnar  Farangur handflokkaður í fyrsta sinn í tæpan áratug Ljósmynd/Isavia Salurinn Framkvæmdir við nýja salinn hófust í nóvember á síðasta ári, aðeins skömmu eftir að flugfélögin höfðu til- kynnt þá ákvörðun að taka breiðþoturnar í notkun. Handflokka þarf farangur næstu daga, eða fram að helginni. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á næstu mánuðum á að endurmæla og -reikna alla punkta í grunn- stöðvaneti landmælinga á Íslandi og er það gert til að viðhalda ná- kvæmni í landshnitakerfinu sem af- lagast vegna mikilla jarðskorpu- hreyfinga hér á landi. Verkefni þessu var formlega ýtt úr vör í gær þegar þeir Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri settu af stað mælitæki á Valhúsa- hæð á Seltjarnarnesi, en frá árinu 1904 hefur þar verið einn af grunn- punktum í mælikerfi landsins. Eftir nokkra daga ættu að vera komnar niðurstöður úr þessari einstöku mælingu. Landshnitakerfið er undirstaða stafrænnar kortagerðar, land- fræðilegra upplýsingakerfa, vökt- unar og verklegra framkvæmda. „Þetta er mikilvægt verkefni og nú er þörf á nýjum upplýsingum, því svona mælingar höfum við ekki gert síðan árið 2004,“ segir Magnús Guðmundsson. Alls verða mældir á annað hundrað mælipunktar víða um landið og tekur GPS-mæling á hverjum þeirra nokkra daga. Þegar allar tölur eru komnar í hús er veg- ið meðaltal reiknað út – og allt sett í samhengi. Mælingum ljúki í september „Með þessu eigum við að sjá ná- kvæmlega hvort land hafi sigið eða risið eða hvort jarðflekar hafi færst til,“ segir Magnús. Hann bætir því við að í reglulegum mælingum stofnunarinnar sé gott samstarf við til dæmis tæknimenn sveitarfélaga og Vegagerðar enda skipti ná- kvæmar landmælingar miklu máli í starfi þeirra. Því hafi verið vel við hæfi að fá Hrein Haraldsson vega- málastjóra á Valhúsahæðina. Áætlaður kostnaður við endur- mælingu hnitakerfisins á komandi sumri er um 13,5 milljónir og fékkst sérstök fjárveiting til verkefnisins á fjárlögum. Mælingum á að ljúka í september næstkomandi og út- reikningum verður lokið fyrir árs- lok. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mælingar Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, t.v., og Magnús Guðmunds- son, forstjóri Landmælinga Íslands, lásu í landið á Seltjarnarnesi í gær. Stafrænt Ísland verður endurmælt  Hófu starfið á Valhúsahæð í gær

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.