Morgunblaðið - 01.06.2016, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016
Hlökkum til að heyra frá ykkur!
Nolta
Okkar megin áherslur eru:
◆ Liðsheildarþjálfun ◆ Leiðtogahæfni ◆ Stefnumótun og umbótastarf
Sigurjón
Þórðarson
Sími: 893 1808 •
sigurjon.thordarson@nolta.is
Friðfinnur
Hermannsson
Sími: 860 1045 •
fridfinnur.hermannsson@nolta.is
Ráðgjöf og þjálfun nolta.is
Vinnustofur sem styrkja og hreyfa við fólki
Frekari upplýsingar á nolta.is
Nolta er á Facebook
Leiðtoginn á réttum kúrs
Self - Navigation er skemmtileg tveggja daga vinnustofa
þar sem leiðtoginn stillir af hvert hann stefnir og kemur
skipulagi á sín helstu verkefni.
Árni
Sverrisson
Sími: 898 5891 •
arni.sverrisson@nolta.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Kjölfesta, fjárfestingarfélag sem er í
eigu fagfjárfesta, þeirra á meðal
nokkurra stærstu lífeyrissjóða
landsins, undirbýr nú aðkomu sína
að eignarhaldi Reiknistofu bank-
anna (RB), samkvæmt traustum
heimildum Morgunblaðsins. Unnið
hefur verið að þessu um nokkra hríð
og er vinnan nú komin á lokastig.
Búast má við að áform Kjölfestu
muni skýrast betur á næstunni.
Morgunblaðið hefur einnig heimildir
fyrir því að fjárfestingarfélagið Inn-
viðir, sem m.a. er í eigu Heiðars
Guðjónssonar fjárfestis og 20 lífeyr-
issjóða, hafi sýnt áhuga á að koma
að breytingum á eignarhaldi RB og
hafa átt sér stað viðræður milli aðila
á liðnum vikum og mánuðum.
Stefnan að vera í minnihluta
Kjölfesta var stofnuð árið 2012 og
er í eigu 14 fagfjárfesta, þar af eru
12 lífeyrissjóðir. Stærstu eigendur
eru Lífeyrissjóður verzlunarmanna,
Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Stapi
lífeyrissjóður og Lífsverk, lífeyris-
sjóður verkfræðinga. Kjölfesta hef-
ur þá meginstefnu að vera minni-
hlutaeigandi í félögum með sterkum
meðfjárfestum. Meðal fjárfestinga
eru hlutir í Meniga, Odda á Patreks-
firði, Evu sem er móðurfélag Sinn-
um og Íslandshótelum.
Eins og fram hefur komið í um-
fjöllun Morgunblaðsins undanfarið
um málefni RB eru 44% hlutafjár
viðskiptabankanna í RB til sölu hið
minnsta. Sé meðtalinn 7,2% hlutur
sem Kvika seldi nýlega og ágrein-
ingur er um, er ljóst að yfir helm-
ingur hlutafjár gæti skipt um hend-
ur á næstunni.
Fjárfestingarfélagið Innviðir var
stofnað um mitt síðasta ár og hefur
það hlutverk að fjárfesta í innviða-
verkefnum og innviðafyrirtækjum.
Félagið hefur ekki fjárfest enn sem
komið er en ýmis verkefni hafa kom-
ið til skoðunar, þar á meðal RB.
Ágreiningur um forkaupsrétt
Svo sem fram kom í Viðskipta-
Mogganum í síðustu viku keypti
Gísli Heimisson og félag hans,
Mentis, 7,2% hlut í RB af Kviku og
smærri aðilum. Í kjölfar kaupa hans
á hlutnum reis upp ágreiningur um
nýtingu forkaupsréttar sem ekki
hefur verið til lykta leiddur. Gísli
vinnur nú að frekari kaupum í félag-
inu, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Greint var frá áhuga Símans á RB
í Morgunblaðinu í síðustu viku og að
Síminn væri að baki Sparisjóði
Höfðhverfinga í tilkalli sparisjóðsins
til forkaupsréttar. Fram kom hjá
Jóhanni Ingólfssyni, formanni
stjórnar sparisjóðsins, að sjóðurinn
hefur ekki í hyggju að eiga hlutinn.
Fyrir liggi samkomulag við utanað-
komandi aðila um að sá kaupi hlut-
inn, en hann sé bundinn trúnaði um
hver sá aðili sé. Morgunblaðið hefur
heimildir fyrir að um sé að ræða
Símann og að áhugi fyrirtækisins
tengist meðal annars mögulegu
samstarfi RB við Sensa, dótturfélag
Símans.
Vel er hugsanlegt að einhverjir
þessara aðila muni á endanum
standa saman að kaupum á fölum
hlutum í RB en að hve miklu leyti
það gæti orðið er óljóst. Fram hefur
komið í samtölum blaðsins við for-
svarsmenn viðskiptabankanna að
nýverið hafi orðið vart aukins áhuga
á hlutum í Reiknistofu bankanna.
Fjórir hópar hafa áhuga á RB
Morgunblaðið/Eggert
RB Áhugasamir hafa rætt við eigendur en það hefur ekki leitt til viðskipta.
Hópar lífeyrissjóða og fjárfestingafélaga þeirra eru meðal áhugasamra Við-
ræður hafa farið fram við eigendur Reiknistofunnar en ekki leitt til niðurstöðu enn
Tauganet bankakerfisins
» Rekstur og þróun kjarna-
kerfa bankanna er meginvið-
fangsefni RB.
» RB hefur grundvallað skil-
virkni bankakerfisins og hag-
kvæmni þess.
» Hjá RB starfa 180 manns og
nam velta 4,3 milljörðum 2014.
samtali við mbl.is að hugmyndin sé
sú að byggja upp nýtt miðsvæði sem
verði í raun annar miðbærinn á
höfuðborgarsvæðinu á eftir gamla
miðbæ Reykjavíkur. „Það er verið
að búa til nútímaborgarhverfi með
verslun og þjónustu að hluta til á
jarðhæðum,“ segir Ingvi.
Í skipulagi svæðisins er gert ráð
fyrir 1,1 til 1,2 bílastæðum á hverja
reista íbúð. Ingvi segir að stór hluti
bílastæðanna sé hugsaður neðan-
jarðar en að einhver stæði verði
einnig ofanjarðar. Líklegt megi þó
teljast að samnýta megi einhvern
hluta þeirra stæða sem fyrir séu á
svæðinu.
Kópavogsbær, fyrirtækið Smára-
byggð og fasteignafélagið Reginn
hafa undirritað samkomulag um
uppbyggingu á svæðinu sunnan
Smáralindar. Stefnt er að því að á
svæðinu rísi um 620 íbúðir. Þá er
einnig gert ráð fyrir húsnæði undir
atvinnuhúsnæði.
Morgunblaðið hefur áður sagt frá
fyrirhugaðri uppbyggingu á svæð-
inu en þá var gert ráð fyrir því að á
svæðinu myndu rísa um 500 íbúðir.
Nú hefur þeim áformum hins vegar
verið breytt og aukin áhersla verð-
ur lögð á minni og ódýrari íbúðir.
Ingvi Jónasson hjá Klasa, sem er
þróunaraðili verkefnisins, segir í
620 íbúðir við Smáralind í Kópavogi
Áhersla á minni og ódýrari eignir
Smárabyggð Stefnt er að þéttingu byggðarinnar sunnan Smáralindarinnar.
● Aflaverðmæti ís-
lenskra skipa nam
nær 12,2 millj-
örðum í febrúar
samanborið við
16,2 milljaðra í
fyrra, samkvæmt
tölum frá Hagstofu
Íslands. Samdrátt-
inn má aðallega
rekja til minni uppsjávarafla.
Heildaraflaverðmæti frá mars í fyrra
til febrúar í ár jókst um 2,3% miðað við
sama tímabil ári fyrr. Á tímabilinu jókst
aflaverðmæti botnfisks um 10,4% en
verðmæti uppsjávarafla dróst saman
um 25,6%.
Verðmæti uppsjávarafla
dróst saman í febrúar
Gengisskráning 31. maí 2016
Kaup Sala Mið
DOLLARI 124,45 125,05 124,75
STERLINGSPUND 182,02 182,9 182,46
KANADADOLLARI 95,29 95,85 95,57
DÖNSK KRÓNA 18,653 18,763 18,708
NORSK KRÓNA 14,857 14,945 14,901
SÆNSK KRÓNA 14,932 15,02 14,976
SVISSN. FRANKI 125,61 126,31 125,96
JAPANSKT JEN 1,1196 1,1262 1,1229
SDR 174,52 175,56 175,04
EVRA 138,76 139,54 139,15
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 173,3915
Heimild: Seðlabanki Íslands
● Á fyrsta fjórð-
ungi ársins voru
fluttar út vörur fyr-
ir 180 milljarða en
inn fyrir 211 millj-
arða. Halli varð því
á vöruviðskiptum
við útlönd sem
nam 31 milljarði,
samkvæmt tölum
Hagstofunnar. Í
fyrra voru vöru-
viðskiptin hagstæð um 8,9 milljarða á
sama tímabili. Vöruviðskiptajöfnuður-
inn er því nær 40 milljörðum lakari á
tímabilinu en í fyrra. Á tímabilinu voru
iðnaðarvörur nær 51% alls útflutnings
en verðmæti þeirra var 26,3% lægra
en í fyrra, sem skýrist aðallega af
lækkandi álverði. Sjávarafurðir voru
rúm 43% útflutnings og verðmæti
þeirra 12,8% lægra en á fyrra ári. Inn-
flutningur eldsneytis dróst saman en
jókst á fjárfestingarvörum og flutninga-
tækjum.
Halli á vöruviðskiptum
við útlönd 31 milljarður
Ál Verðlækkun
hefur mikil áhrif.
STUTTAR FRÉTTIR ...
Töluverð umskipti urðu í afkomu 365
miðla í fyrra þegar félagið skilaði 22
milljóna króna hagnaði í samanburði
við tæplega 1,4 milljarða tap árið á
undan. Í ársreikningi félagsins kem-
ur fram að tekjur jukust um tæplega
1,1 milljarð króna, sem meðal annars
má rekja til sameiningar við Tal á
seinni hluta árs 2014.
Eignir 365 námu 12,9 milljörðum
króna í lok árs 2015 og höfðu þá auk-
ist um tæpa 1,5 milljarða á árinu.
Fram kemur í ársreikningi að fram-
kvæmt hafi verið virðisrýrnunarpróf
á viðskiptavild samstæðunnar og
nemur hún 6,0 milljörðum króna.
Eigið fé félagsins var 2,8 milljarðar í
árslok samanborið við 2,5 milljarða
árið á undan. Á síðari hluta ársins
var hlutafé í A-flokki aukið með inn-
borgun að fjárhæð 550 milljónir en
hlutabréf í B-flokki var lækkað um
samtals 230 milljónir króna.
Skuldir 365 miðla jukust um tæpa
1,2 milljarða í fyrra og stóðu í réttum
10 milljörðum í árslok, en í yfirlýs-
ingu stjórnar og forstjóra kemur
fram að samið var á síðasta ári um
heildarfjármögnun hjá nýjum við-
skiptabanka félagsins.
Á efnahagsreikningi 365 er bók-
færð skatteign sem nemur 703 millj-
ónum. Þar af eru 372 milljónir sem
félagið hefur þegar greitt á grund-
velli úrskurðar Yfirskattanefndar og
varðar álagningu viðbótartekju-
skatts vegna ófrádráttarbærra
vaxtagjalda og nýtingar yfirfæran-
legs taps rekstrarárin 2009 til 2011.
Félagið hyggst höfða mál gegn rík-
inu vegna þessa og í skýringum segir
að ef niðurstaða dómstóla verði í
samræmi við úrskurð Yfirskatta-
nefndar muni það hafa marktæk
áhrif á eiginfjárfstöðu félagsins.
Skuldir 365 miðla jukust
um 1,2 milljarða í fyrra
Uppgjör Hagnaður 365 nam 22
milljónum króna á árinu 2015.
Umskipti í rekstrarafkomu milli ára
Morgunblaðið/Heiddi