Morgunblaðið - 01.06.2016, Page 22

Morgunblaðið - 01.06.2016, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 ✝ GunnhildurFreyja Theodórsdóttir fæddist á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. júlí 1961. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut í Reykjavík, 24. maí 2016. Foreldrar henn- ar voru Theodór Kristjánsson, f. Á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði 12. mars 1908, d. 1. maí 1994, og Guðmunda Finn- bogadóttir, f. í Krossadal í Tálknafirði 19. júní 1918, d. 4. ágúst 1996. Þau giftu sig 22. desember 1946. 1958. Börn þeirra eru: 1) Sólrún Ösp Jóhannsdóttir, f. 20. janúar 1991. Eiginmaður hennar er Jeppe Ask Do 2) Díana Sjöfn Jó- hannsdóttir, f. 5. maí 1992. 3) Sigfús Jóhannsson, f. 2. ágúst 1996. Gunnhildur ólst upp á Tjarn- arlandi í Eyjafjarðarsveit, fór síðan ung til náms í Noregi í Ås- ane-lýðháskólann 1978-1979. Árið 1983 útskrifaðist hún sem sjúkraliði frá gagnfræðaskól- anum á Akureyri, sama ár flutti hún til Reykjavíkur. Gunnhildur vann mest alla sína ævi sem sjúkraliði á hinum ýmsu stöðum, m.a. úti í Svíþjóð og á Landspítalanum, auk þess að vera heimavinnandi húsmóð- ir fyrstu ár barna sinna. Síðustu 10 árin var hún að vinna í heimahjúkrun hjá Reykjavík- urborg. Útför Gunnhildar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 1. júní 2016, klukkan 13. Systkini Gunn- hildar eru: Díana Sjöfn Helgadóttir, f. 1941, Ólafur Helgi Theodórsson, f. 1947, Fanney Theodórsdóttir, f. 1948, Kristján Theodórsson, f. 1949, Vigdís Helga Theodórsdóttir, f. 1952, Finnbogi Helgi Theodórsson, f. 1955, Auður Theodórsdóttir, f. 1956, Theodór Theodórsson, f. 1958, Svava Theodórsdóttir, f. 1960. Gunnhildur Freyja giftist 9. september 1994 sjómanninum Jóhanni Sigfússyni, f. 11. maí Elsku fallega mamma mín, ég mun sakna þín svo mikið svo lengi sem ég lifi, ég verð svo ævinlega þakklátur fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Sigfús Jóhannsson. Elsku mamma. Með sárum söknuði kveðjum við þig í dag. Þú varst og verður alltaf mín helsta fyrirmynd. Þú varst alltaf svo dugleg, hjálpsöm og heiðarleg. Þú varst algjör nagli. Ég er stolt af því að geta kallað þig móður mína. Það er ekki hægt að ímynda sér betri mömmu. Ég elska þig, mamma mín. Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festinguni sem færast nær og nær. Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund. En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund. (Megas) Þín dóttir, Sólrún Ösp. Elsku mamma, hvernig geri ég þér góð skil í svo örfáum línum? Hvernig get ég orðað kveðjuorð mín til þín þegar ég er engan veg- inn tilbúin til þess að kveðja þig? Það var svo margt sem við áttum ógert saman, svo margar stundir af okkur stolnar, enda fráfall þitt svo skyndilegt að ég hef varla náð áttum almennilega. Við deildum óteljandi góðum stundum saman, og það var aldrei neitt eins fyndið eins og þegar þú hlóst með, en þá margfaldaðist gleðin og allt varð þúsundfalt hlægilegra. Ég er svo gríðarlega þakklát fyrir hafa átt þig að. Þú varst bæði góð móðir og ein besta vinkona sem ég hef átt. Reyndar alveg hræðilegur væng- maður í bænum en aftur á móti einn besti ráðgjafi, ferðafélagi, skipuleggjari og trúnaðarvinur. Þó varstu fyrst og fremst mín helsta stoð og stytta í öllu. Hið óútreiknanlega líf tekur stundum frá okkur of fljótt, en það var bara um daginn sem þú geystist hér um ganga í gleði- vímu, hughreystir mig í ástarsorg og ritaðir skondin skilaboð og mér finnst á stundum eins og þú munir skyndilega ganga niður stigann í Ásgarðinum, segja eitthvað úr takti við það sem um er rætt, dansa smá spor og setja upp spaugilegan svip til að kæta okk- ur systkinin. Ég læt fylgja með ljóð sem ég samdi til þín þegar þú veiktist og þegar enn var mikil von í hjarta mér um að þú myndir harka þetta af þér eins og þín var von og vísa, en stundum er líkaminn huganum yfirsterkari þó að þú hafir verið með einn sterkasta vilja, dugnað og hug sem ég hef nokkurn tíma kynnst. Takk mamma, fyrir allt. Kemur þú ekki til kæra vina þar sem þú ert sú eina sem kannt að halda öllu saman taka á hlutunum og taka til í draslinu í lífi mínu já komdu! við skulum fagna tilveru þinni þú sem skópst mig og skammaðir í sefablandinni hörku en að lokum umbreyttist í minn kærasta vin kemur þú ekki? ég þarf þig til að draga mig fram undan rúmi veröldin er svo vond stundum en þú sýndir að grimmt getur verið gott og öfugt þegar kvölda fer getum við litið tilbaka séð sigra og súrar stundir horft síðan fram á við grátið og hlegið fyrir samveru og vonarneista þakkað fyrir þig viðurkennt og vottað að lífið án þín hér væri ekki neittneitt. Þín dóttir, Díana Sjöfn. Þær þrjár konur sem hafa ver- ið mér nánastar í lífinu eru mamma, Steinunn dóttir mín og Gunnhildur systir mín. Nú er Gunnhildur dáin og hér sit ég og sakna hennar og minn- ingarnar streyma. Sem börn vorum við oft eins klæddar og lékum okkur saman öllum stundum, enda bara rúmt ár á milli okkar. Ég dýrkaði Gunnhildi og dáði og var til í að gera ýmislegt fyrir hana sem hefði ekki verið í boði fyrir aðra. T.d. vorum við tvær einu sinni svo önnum kafnar í búleik úti í móum heima á Tjarnalandi að hún mátti ekki vera að því að pissa sem end- aði auðvitað með ósköpum. Við höfum sennilega verið sex og sjö ára. Gunnhildi þótti þetta slæmt og grét sáran. Ég vorkenndi henni mikið og til að sýna sam- stöðu pissaði ég bara líka í bux- urnar. Ég er fædd án lyktarskyns. Framan af gerði ég mér enga grein fyrir þessari fötlun minni en þar kom að ég áttaði mig á að ég fann aldrei neinn mun þó að fólk væri að tala um hina og þessa lykt í kringum mig. Það lá beint við að leita á náðir Gunnhildar með þessar vangaveltur mínar um hvað lykt væri. Hún var nú ekki í vandræðum með að útskýra það fyrir mér: „Æi, það er bara svona fýla.“ Og málið var dautt. Við brölluðum eitt og annað saman. Fórum í fjallgöngu með vinkonu okkar upp á Brattahjalla og lentum í þoku á niðurleið. Við prísuðum okkur sælar að hafa ekki lent í lífshættulegum villum og ræddum við það í nokkra daga hve heppnar við hefðum verið. Í annað skipti vorum við á ferð í litlum skógarreit. Gunnhildur var þá svo óheppin að labba inn í kóngulóarvef og allt í einu sat við- bjóðsleg, spikfeit, bleik – hennar lýsing – kónguló á henni og það skipti engum togum að við hlup- um organdi heim, ég orgaði að sjálfsögðu með henni þó ég vissi eiginlega ekki hvað hefði gerst fyrr en heim var komið. Við fórum mýmargar nestis- ferðir með kleinur í eldspýtu- stokkum og mjólk í dropaglösum, en slíkt nesti var í miklu uppá- haldi hjá okkur á tímabili. Gallinn við það var að það þýddi ekki að fara mjög langt vegna þess að nestið entist stutt og illa og þurfti iðulega að skreppa eftir meiru og jafnvel oft í sömu nestisferðinni. Við vorum bekkjarfélagar, fyrst í Barnaskólanum á Lauga- landi og síðan í Hrafnagilsskóla. Við fermdumst líka saman. Sjálf- sagt höfum við stundum rifist en ekki man ég mikið eftir því fyrr en komið var fram á unglingsár og sjálfstæðisþörfin fór að segja til sín. Þegar grunnskólanum var að ljúka fór ég í landspróf en Gunn- hildur tók þriðja og fjórða bekk og við það skildu leiðir og við hættum að vera eins mikið saman, eins og eðlilegt er. Síðustu árin fór ég stundum til hennar í húsmæðraorlof og gisti þá hjá henni og við áttum góðar stundir saman sem ég er þakklát fyrir. Ég get svarið að hefði ég haldið að það hjálpaði henni í viðureign- inni við krabbameinið að pissa í buxurnar fyrir hana þá hefði ég hiklaust endurtekið leikinn. Ég verð forsjóninni ævinlega þakklát fyrir að hafa átt Gunn- hildi sem systur. Ég votta Jóa, Sólrúnu, Díönu og Sigfúsi samúð mína og bið al- mættið um að styrkja þau í þeirra missi sem og alla aðra sem þótti vænt um Gunnhildi. Svava Theodórsdóttir. Gunnhildur Freyja, móður- systir mín, er látin aðeins 54 ára að aldri. Hún var aðeins 12 árum eldri en ég og 13 árum yngri en mamma. Það vildi svo til að við hófum barneignir á svipuðum tíma og vorum við því samstíga með dætur okkar sem vörðu mikl- um tíma saman þegar þær voru litlar. Við pössuðum fyrir hvor aðra og þær eru ófáar stundirnar sem við sátum og spjölluðum yfir kaffi um lífið og tilveruna. Eftir því sem stelpurnar urðu eldri þá fækkaði þeim stundum en alltaf var jafnyndislegt að hitta Gunn- hildi. Hún var einstakur húmor- isti og gerði óspart grín og greip oft í svarta húmorinn sem ein- kennir fjölskylduna okkar. Í hvert skipti sem við hittumst var talað um að hittast nú oftar en í annríki daglegs lífs okkar varð ekki mikið úr því. Við hittumst síðast hressar í árlegu fjölskyldu- boði hjá móður minni fyrir aðeins rúmum tveimur mánuðum síðan. Þar fannst mér Gunnhildur líta svo vel út og ég hlakkaði til að hitta hana sem fyrst aftur. Rúmri viku síðar frétti ég að hún hefði verið lögð inn á sjúkrahús í rann- sóknir og ég beið eftir því að hún kæmist heim þar sem ég ætlaði að heimsækja hana. En sjúkrahúsið yfirgaf hún ekki og ég náði að heimsækja hana aðeins nokkrum dögum áður en hún lést. Og þar sem hún lá fársjúk tókst henni samt að grínast lítið eitt. Ég átti erfitt með að halda aftur af tár- unum og hún teygði út hönd sína og strauk mér um vangann til huggunar og ég þerraði tár henn- ar. Það er oft sagt að vegir Guðs séu órannsakanlegir og það á svo sannarlega við núna. Systkini Gunnhildar níu talsins skilja ekki af hverju þau lifa öll yngstu systurina, hvers vegna æðri máttarvöld kusu að taka fyrst þá yngstu og veit ég að sum hver myndu glöð hafa skipt við hana ef þau hefðu haft um það val. Hugur minn er stöðugt hjá fjöl- skyldu hennar sem nú glímir við sorg sem enginn ætti að glíma við en alltof margir þurfa. Elsku Jói, Sólrún og Jeppe, Díana og Sigfús, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðj- ur svo og öllum þeim sem elskuðu Gunnhildi og eiga um sárt að binda vegna fráfalls hennar. Hörpu þinnar, ljúfa lag lengi finn í muna. Því ég minnist þín í dag, þökk fyrir kynninguna. (Á.K.) Kolbrún Hlín. Gunnhildur Freyja Theodórsdóttir  Fleiri minningargreinar um Gunnhildi Freyja Theo- dórsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Sigríður Fann-ey Jónsdóttir Ísaksen fæddist á Stokkseyri 17. sept- ember 1912. Hún lést á Blesastöðum 20. maí 2016. Foreldrar henn- ar voru Jón Þórir Ingimundarson tré- smíðameistari, f. 12. október 1888, d. 24. maí 1967, og Viktoría Halldórsdóttir, f. 7. ágúst 1889, d. 29. apríl 1972. Sigríður var næstelst níu systk- ina. Þau eru: 1) Jóna Margrét, f. 5. september 1910, d. 15. sept- ember 1990; 2) Inga Rakel, f. 19. desember 1914, d. 19. febrúar 2002; 3) Þóra, f. 25. janúar 1917, d. 1997; 4) Albert, f. 4. nóvember 1919, d. 6. ágúst 2006; 5) Sigríð- ur Dóra, f. 26. september 1921, d. 28. ágúst 2007; 6) Dagrún, f. 24. ágúst 1922, d. 16. desember 1922; 7) Njóla, f. 24. ágúst 1922, d. 30. janúar 2000, og 8) Dag- bjartur, f. 16. ágúst 1924, d. 2. febrúar 2009. Sigríður giftist 1944 Reidari Ísaksen, f. 20. maí 1915, d. 15. janúar 2003, en hann var norskur, og eign- aðist með honum tvær dætur. Þær eru: 1) Viktoría, f. 28. júlí 1945, maki Valdimar Stein- þórsson. Þau eign- uðust tvö börn: a) Sigríði, f. 12. sept- ember 1963, hún á þrjú börn, og einnig b) Örn, f. 14. september 1965 en hann á tvo syni. 2) Vilhelmína, f. 11. ágúst 1948, maki Erling Guð- mundsson, f. 1947, en þau eiga tvo syni: a) Guðmund, f. 25. maí 1968, maki Hildur Guðmunds- dóttir, f. 29. apríl 1970, þau eiga þrjár dætur. b Ómar, f. 5. mars 1970, sambýliskona Heiðdís Búadóttir, f. 19. apríl 1962, hann á þrjár dætur. Barnabörn Sig- ríðar eru nú 11 og barnabörnin eru tvö. Útför Sigríðar fer fram í dag, 1. júní 2016, frá Fossvogskap- ellu og hefst athöfnin klukkan 15. Amma á Blesó sem áður var amma á Týsgötunni er nú búin að kveðja okkur 103 ára að aldri og það á afmælisdegi afa, auðvelt að trúa að honum hafi þótt kominn tími á að sækja gömlu. Í minningunni um ömmu er margt gott að sækja, alltaf var hún bara elskan ein. Við bræðurnir vorum mikið í heimsókn hjá ömmu á Týsgöt- unni þar sem hún bjó lengst af með afa heitnum, þangað var allt- af gott að koma, amma hafði gaman af því að laga mat, sér- staklega var brauðið hennar gott, enda starfaði hún sem smörre- brauðsdama á Landspítalanum Hringbraut í mörg ár og við nut- um góðs af. Ef við bræðurnir urðum rúm- liggjandi heima frá skóla þá tók amma strætó úr miðbænum til okkar með þungan poka með öll- um þeim mat sem var efstur á lista hjá okkur. Ferðalögin austur í Fljótshlíð í sumarbústaðinn með ömmu og afa eru líka minnisstæð. Það byrjaði yfirleitt á BSÍ þar sem rútan var tekin á Hvolsvöll og þar urðum við að útvega okkur sjálf far inn í Fljótshlíðina þar sem rútan fór ekki lengra, þetta breyttist þegar þau seinna eign- uðust bíl. Í Fljótshlíðinni áttum við und- antekningarlaust góðar stundir með ömmu og afa. Við bræðurnir vorum alltaf úti að leika okkur og komum þá iðulega blautir frá læknum, amma þurrkaði þá fötin af okkur við arineldinn því ekkert rafmagn var í bústaðnum, gaf okkur heitt kakó og pönnsur sem voru í uppáhaldi. Þegar amma svo flutti í Hraunbæ til margra ára með afa heitnum þá var hún komin í heimahverfið okkar og stutt að heimsækja notalega nærveru hennar. Nú og þar sem amma náði svo háum aldri sem raun ber vitni á Blesastöðum þá hefur hún verið kölluð langamma á Blesó hjá okk- ur og okkar börnum. Elsku amma, innilegar hlýjar þakkir fyrir allt og bestu kveðjur til afa. Ómar Rósenberg Erlingsson, Guðmundur Reidar Erlingsson. Sigga amma fékk friðsælt and- lát á 104. aldursári sínu 20. maí síðastliðinn, sem var fæðingar- dagur afa. Hún flutti frá Stokkseyri að- eins 17 ára gömul og vann fyrir sér í Reykjavík við ýmis störf í 15 ár eða þar til hún giftist Reidari afa 32 ára gömul. Fjölskyldulífið átti mjög vel við ömmu og komu dæturnar tvær í heiminn með þriggja ára millibili. Þegar þær svo fluttu að heiman fór amma aftur út á vinnumarkaðinn. Við barnabörnin nutum síðan góðs af gestrisni ömmu og afa á Týsgöt- unni þar sem þau bjuggu lengst af. Það var alltaf friðsæld og hlýja í kringum ömmu og hljóðlát var hún þó mikið gengi á í eldhús- inu við smurbrauðsgerð og pönnukökubakstur. Þó amma væri ekki orðmörg þá var hún alls ekki skoðanalaus og var aldrei í vafa um hvað hún ætlaði að kjósa í alþingiskosning- um. Sigga amma var söngelsk, létt- lynd og kvik á fæti. Hún var sjálf- stæð íslensk alþýðukona sem þótti vænt um fólkið sitt. Nú hafa Sigga amma og Reidar afi sam- einast á ný og sitja örugglega að spjalli við vinahjón sín Ellen og Arne yfir góðum kaffibolla. Ég kveð ömmu með söknuði og þakka henni fyrir allt og allt. Sigríður Valdimarsdóttir. Margs er að minnast þegar ég hugsa um hana Sigríði Fanneyju móðursystur mína, eða Siggu frænku, eins og ég kallaði hana alltaf. Fyrstu minningarnar tengjast því þegar Sigga, ásamt dætrunum tveimur sem voru á aldur við mig, kom og dvaldi í eitt ár með fjölskyldu minni í sveit- inni. Þá var oft glatt á hjalla, en Sigga var gamansöm og hafði svo einstaklega skemmtilegan húmor sem okkur krökkunum líkaði vel. Ég á margar góðar minningar um góðar samverustundir með henni og dætrunum. Sigga og Reidar maðurinn hennar reistu löngu síðar sumar- hús í sveitinni sem var eitt af þeim fyrstu sem reist voru í Fljótshlíðinni. Þeim tókst að laða fram einhverja hlýju sem um- vafði mann alltaf þegar komið var í heimsókn, sem var æði oft. Allt- af var gestrisnin söm og gaman gat verið að orna sér við arineld hjá þeim Reidari. Sigga og systur hennar voru góðar söngkonur og þegar þær hittust var ávallt tekið lagið og sungið raddað, en þær höfðu einstaklega fallegar söng- raddir. Sigga kveður síðust af systk- inum sínum. Hún var orðin 103 ára þegar hún kvaddi þennan heim en ég tel að það hafi verið góða skapið og húmorinn sem olli því að hún náði þessum háa aldri. Dagrún Þórðardóttir. Sigríður Fanney Jónsdóttir Ísaksen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.