Morgunblaðið - 01.06.2016, Page 27

Morgunblaðið - 01.06.2016, Page 27
Staðarborg og síðan á Jörva þegar leikskólinn Staðarborg var lagður niður: „Eineltið hvarf þegar ég kom í framhaldsskóla enda yfirleitt ekkert athugavert við nörda á þeim vett- vangi. Ég held svo að leikskólastarfið hafi opnað mig aftur. Börnin eru svo einlæg og hreinskilin og ég naut mín vel að starfa með þeim og sinna þeim. Áhuginn á kennslu kviknaði undir lok grunnskóla, en ég kynntist tölvunum í framhaldsskóla í árdaga internets- ins. Það réð miklu um hvað tók við næstu ár eftir stúdent.“ Björn stundaði kvöldnám í kerfis- fræði við Rafiðnaðarskólann með- fram leikskólastarfinu. Hann varð kerfisstjóri hjá LÍN um skeið og síðan þjónustufulltrúi hjá Hugviti 1999-2000. Á sama tíma stundaði hann kennaranám í fjarnámi við KHÍ og var síðan kennari í stærðfræði, upplýsingatækni og náttúrufræði við Foldaskóla í tvö ár. Björn hætti síðan í kennaranáminu og kennslunni, fór í fullt nám í tölv- unarfræði við HÍ og lauk þaðan BSc- prófi 2008. Hann stundaði framhalds- nám í tölvunarfræði við Brandeis University í Waltham í Bandaríkj- unum frá 2008 og útskrifaðist með MA-próf þaðan árið 2013. Björn var hugbúnaðarsérfræð- ingur hjá Meniga 2013-2014, hjá Námsmatsstofnun 2014-15 og hefur verið hugbúnaðarsérfræðingur hjá Menntamálastofnun frá 2015. „Ég missti aldrei áhuga á kennslu og kennslufræði þó að ég hætti í hvoru tveggja og færi á fullt að læra hugbúnað. Þvert á móti get ég nú sameinað þessi áhugamál mín, tölur, tölvur og kerfisfræðina, og áhuga á skólamálum og kennslufræði. Hjá Menntamálastofnun er verið að vinna að margvíslegum afar spennandi verkefnum og þróa hugbúnað til að þjóna nýjum leiðum og markmiðum í kennslu og kennslufræði. Ég get því ekki annað sagt en að ég sé alsæll í mínu starfi.“ Björn hefur verið varaþingmaður fyrir Pírata frá 2013. Fjölskylda Eiginkona Björns er Heiða María Sigurðardóttir, f. 3.11. 1982, doktor í taugavísindum og lektor við sál- fræðideild HÍ. Foreldrar hennar: Sigurður Hjalti Magnússon, f. 9.11. 1945, gróðurvistfræðingur á Högna- stöðum á Flúðum, og Ásdís Birna Stefánsdóttir, f. 30.9. 1951, próf- arkalesari á Högnastöðum. Börn Björns og Heiðu Maríu eru Alexander Arnar Björnsson, f. 17.9. 2009, og Ársól Ísafold Heiðudóttir, f. 2.4. 2015. Hálfsystkini Björns, samfeðra, eru Rakel Gunnarsdóttir, f. 29.3. 1989, viðskiptafræðingur í Reykjavík, og Lárus Gunnarsson, f. 25.10. 1990, sílíkontæknir í Reykjavík. Stjúpbróðir Björns er Þórir Hall Stefánsson, f. 18.12. 1980, MA í al- þjóðastjórnmálum, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Björns eru Gunnar Þor- steinsson, f. 7.9. 1956, múrarameist- ari í Reykjavík, og Fanney Gunnars- dóttir, f. 2.4. 1959, leiðsögumaður og ferðamálafræðingur. Stjúpmóðir Björns er Sigurveig Salvör Hall, f. 19.9. 1956, sölumaður. Úr frændgarði Björns Levís Gunnarssonar Björn Leví Gunnarsson Þorgerður Björnsdóttir verslunarm. í Rvík Einar Kristinn Vilhjálmsson bílstjóri og matsveinn í Rvík Birna Einarsdóttir húsfr. og verslunarm. í Rvík Sigurður Gunnar Bogason leigubílstjóri í Rvík Fanney Gunnarsdóttir ferðamálafr. í Rvík Hólmfríður Guðmundsdóttir húsfreyja Steinunn Emilía Þorsteinsdóttir forstöðum. í Þorlákshöfn Rúnar Einarsson rafvirki í Garðabæ Sigrún Þorsteinsdóttir kartöflub. í Þykkvabæ Gunnar Einarsson vélstj. í Garðabæ Benedikt Bogason verkfr. og alþm. í Rvík Eyþór Gunnarsson leigubílstj. í Rvík Styrmir Dan Steinunnarson efnilegur frjálsíþróttam. Hildigunnur Rúnarsdóttir tónskáld Hallveig Rúnarsdóttir söngkona Jóna Katrín Guðnadóttir líffræðingur Birkir Rúnar Gunnarsson íþróttam. og alhliða snillingur Rúnar Bjarnason slökkviliðsstj. í Reykjavík Eggert Haukdal alþm. á Bergþórshvoli Guðrún Bergsdóttir húsfreyja í Rvík Þórhildur Þorleifsdóttir fyrrv. alþm. og leikhússtj. í Rvík Eggert Þorleifsson leikari í Rvík Geirrún Ívarsdóttir húsfr. í Hveragerði og á Siglufirði Jóhannes Þorsteinsson búfr. og oddviti í Ásum í Hveragerði og mjólkur- bússtjóri á Siglufirði Louísa Jóhannesdóttir húsfr. og verkak. í Þorlákshöfn Jóhann Þorsteinn Karlsson verkam. í Þorlákshöfn Gunnar Þorsteinsson múraram. í Rvík Steinunn Emilía Þorsteinsdóttir húsfreyja Karl Georg Guðfinnsson b. í Fossi í Vesturhópi og víðar í Húnavatns- sýslu og á Lambastöðum í Hraung.hr. Bogi Eggertsson b. í Laugardælum í Flóa og verkstj. í Rvík, af Waageætt og Skildinganesætt elstu Bjarni Eggertsson lögregluþjónn í Rvík Benedikta Eggertsdóttir húsfr. í Flatey og á Bergþórshvoli Rósa Eggertsdóttir kennari á Siglufirði ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 Eggert fæddist á Hálsi íFnjóskadal 1.6. 1894. For-eldrar hans voru Einar Páls- son, prestur á Hálsi, í Gaulverjabæ í Flóa og í Reykholti í Reykholtsdal, síðar skrifstofumaður hjá Söfnunar- sjóði Íslands í Reykjavík, og Jóhanna Katrín Kristjana Eggertsdóttir Briem húsfreyja. Einar var sonur Páls Jónssonar, bónda á Glúmsstöðum í Fljótsdals- hreppi og á Arnórsstöðum á Jökuldal, og Hróðnýjar Einarsdóttur húsfreyju. Jóhanna Katrín var dóttir Eggerts Ólafs Gunnlaugssonar Briem, sýslu- manns á Melgraseyri við Djúp, á Espihóli í Eyjafirði og á Reynisstað í Skagafirði, og k.h., Ingibjargar Ei- ríksdóttur Briem, f. Sverrisson. Meðal systkina Jóhönnu Katrínar voru Gunnlaugur Briem, alþingis- maður og verslunarstjóri í Hafnar- firði, Páll Briem amtmaður, afi Sig- urðar Líndal lagaprófessors, Kristín, amma Gunnars Thoroddesen for- sætisráðherra, og Sigríður, móðir Jóns Tómassonar, borgar- og ríkis- lögmanns. Meðal systkina Eggerts voru Val- gerður Einarsdóttir, húsfreyja í Kal- manstungu í Hvítársíðu, og Vil- hjálmur Einar Einarsson, bóndi á Galtafelli í Hrunamannahreppi og á Laugarbökkum í Ölfusi. Eiginkona Eggerts var Magnea Jónsdóttir húsfreyja og eignuðust þau sjö börn. Eggert lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1915 og embættisprófi í læknisfræði við Há- skóla Íslands 1921. Hann var aðstoð- arlæknir hjá Héraðslækninum í Stykkishólmi 1921-23, starfaði á sjúkrahúsum í Danmörku 1923-24, var héraðslæknir á Þórshöfn 1924-41, héraðslæknir í Borgarnesi 1941-64 og var héraðslæknir á Kirkjubæj- arklaustri 1964-71. Þá hafði hann sinnt læknisþjónustu á landsbyggð- inni í tæpa hálfa öld. Eggert var jafnframt póstaf- greiðslumaður á Þórshöfn meðan hann var þar, sat um skeið í stjórn Læknafélags Miðvesturlands frá stofnun og sat í hreppsnefnd Sauð- neshrepps í nokkur ár. Eggert lést 23.8. 1974. Merkir Íslendingar Eggert Ó.B. Einarsson 90 ára Jóhanna Sigurðardóttir Jón Hannesson 85 ára Hrefna Ferdinandsdóttir Kristján Gunnar Jóhannsson 80 ára Andrea Elísabet Kristjánsdóttir Guðrún Þorsteinsdóttir Hugrún Kristjánsdóttir Jóna Ingibjörg Þorleifsdóttir Sveinn Freyr Rögnvaldsson Vilhjálmur Hjartarson 75 ára Elsa Skúladóttir Kristján Guðmundsson 70 ára Kolbeinn Kristinsson 60 ára Árni Viðar Árnason Branislav Jökull Milutinovic Eiríkur Sigurðsson Elísabet A. Magnúsdóttir Elzbieta Ewa Smiech Hallur Mar Elíson Olsen Katrín Edda Magnúsdóttir Kristín Norðdahl Mrije Rasha Ólafur Haukur Ólafsson Reynir Sæmundsson Sveinn Jónsson Þóra Magnúsdóttir Örn Ólafsson 50 ára Arna Harðardóttir Atli Dagsson Árni Þórðarson Bjarni Kristján Gunnarsson Ingigerður Maggý Stefánsdóttir Kjartan Sigurðsson Kristbjörg Kía Gísladóttir Margrét Eyjólfsdóttir Margrét Gunnarsdóttir Pétur Vilhjálmsson Sigrún Hrönn Hauksdóttir Svanlaug Ida Þráinsdóttir Vilborg Torfadóttir Þorsteinn Einarsson 40 ára Anna Dögg Hermannsdóttir Anna K. Einarsdóttir Kaaber Björn Gíslason Björn Leví Gunnarsson Charles Otim Emil Hjálmtýr Hafsteinsson Guðmundur Óskarsson Guðrún Finnsdóttir Hulda María Stefánsdóttir Katrín Hulda Úlfarsdóttir Linda Björk Pálsdóttir Páll Gauti Pálsson Rúnar Þór Bjarnason Sólrún Ingunn Sverrisdóttir Steinunn Huld Gunnarsdóttir Viggó Maríasson 30 ára Anna Kozlowska Arnar Elís Ágústsson Friðbjörg Jensdóttir Júlíus Ágúst Jóhannesson Mirela Prenga Olga Kacianová Ólafur Þór Ólafsson Tara Lind Gísladóttir Til hamingju með daginn www.veislulist.is Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b orð á einnota veislufötum. Sé veislan 150manna eðameira eru a llar veitingar afhentar á einnota veislufötum. Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan PINNAMATUR FYRIRÖLLTÆKIFÆRI Þú getur lesið allt um pinnamat og aðra rétti á heimasíðu okkar PINNAMATUR Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím a dagsmóttakan er og hversu lengi hún á að standa. Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d fimm til sjö rétta pinnaborð. Skoðið verðin á heimasíðu okkar 40 ára Viggó ólst upp á Skagaströnd, býr á Akur- eyri og er vélstjóri og verkstjóri hjá Akureyrar- bæ. Maki: Guðmunda Ólöf Guðmundsdóttir, f. 1977, hjúkrunarfræðingur. Börn: Marías Bjarni, f. 1998, og Fanney Krist- veig, f. 2007. Foreldrar: Heiðdís Björk Sigurðardóttir, f. 1958, og Marías Bjarni Viggósson, f. 1957. Viggó Maríasson 40 ára Rúnar Þór býr í Kópavogi, lauk kennara- prófi við KHÍ og kennir við Salaskóla. Maki: Ágústa Arnardóttir, f. 1978, sálfræðingur. Synir: Tómas Örn, f. 2005; Hjalti Snær, f. 2008, og Kári Steinn, f. 2014. Foreldrar: Bjarni Ingólfs- son, f. 1950, fram- kvæmdastjóri Vöku, og Þórunn Kristjánsdóttir, f. 1951, læknaritari. Rúnar Þór Bjarnason 40 ára Emil ólst upp í Keflavík, býr í Reykja- nesbæ og starfar hjá Toyota í Reykjanesbæ. Maki: Anna María Jóns- dóttir, f. 1980, sérfræð- ingur hjá Amadeus. Börn: Hafsteinn, f. 2006, og Arna Dís, f. 2010. Foreldrar: Hafsteinn Em- ilsson, f. 1955, bílamál- arameistari, og Helena Hjálmtýsdóttir, f. 1957, húsfreyja. Þau búa í Reykjanesbæ. Emil Hjálmtýr Hafsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.