Morgunblaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hinn tilfinningalegi titringur sem þú skynjar er ekki bara í höfðinu á þér. Slakaðu á því þú getur vel haldið á þínum málstað án þess að beita þvingunum. 20. apríl - 20. maí  Naut Varastu að dæma hlutina af fyrstu kynnum því oft ber yfirborðið ekki með sér hvað undir býr. Þú ættir að verja fé til breyt- inga á heimilinu eða samverustunda með fjöl- skyldunni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Margar forvitnilegar hugmyndir rekur á fjörur þínar, ekki láta þær úr greipum ganga. Nöldur og neikvæðni drepa allt fram- tak, temdu þér jákvæðara hugarfar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hikaðu ekki við að segja hug þinn, hver sem á í hlut. Sýndu þó samstarfs- mönnum skilning. Félagslífið er á fullu hjá þér og mikið stuð í ástarmálum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Leitaðu á vit góðrar bókar eða skemmti- legrar bíómyndar ef þú ert eitthvað dapur. Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga. Þú ættir að nýta tækifærið og bjóða vini heim. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Láttu ekki tilfinningarnar blinda þér sýn í ágreiningi þínum við aðra. Vendu þig á að svara skilaboðum strax. Það er ekkert leiðinlegra en fólk sem lætur bíða eftir sér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú reynir á sveigjanleika í samskiptum þínum við nákomna. Vertu því ekki of hastur í máli er þú svarar fyrir þig. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Fylgdu þínum innri manni í dag til að koma betra skipulagi á líf þitt. Hjálp- semi vermir hjartaræturnar og leiðir til vellíð- unar. Taktu hlutunum bara með ró. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Notfærðu þér þann hæfileika þinn að vera fundvís á missmíðir. Nú er rétti tíminn til þess að losa sig við efnislega muni sem trufla sálarró þína. 22. des. - 19. janúar Steingeit Með aðstoð frá vinum geturðu klárað hluti sem hafa dregist á langinn. Þú þráir ævintýri og spennu, hlustaðu á þinn innri mann og stökktu af stað. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur verið svo jákvæð/ur undanfarið að þú verður hissa þegar þröng- sýni fer í taugarnar á þér. Láttu helgi dagsins sitja í fyrirrúmi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það sem kann að vera í gangi núna er tímabundið. Afbrýðisemi gæti skotið upp kollinum í ástar- og vinasamböndum, hafðu varann á. Ólafur Stefánsson hefur skrifaðskemmtilega pistla á Leirinn, sem hann kallar Undir Tindum. Hér kemur sá fyrri: „Það er bæði fróð- leikur og skemmtun að lesa ævi- minningar Böðvars á Laugarvatni, sem hann gaf út 1953, hálfáttræður, og nefndi Undir Tindum. Þar rekur hann líf sitt og margra samferða- manna og lýsir af nákvæmni öllu markverðu, hvort sem eru vinnu- brögð, mataræði, byggingar eða ferðalög. Ég staldraði við þar sem hann seg- ir frá því er hann fór fyrst til sjávar sautján ára gamall. Það var mikil til- hlökkun hjá ungum mönnum að hleypa heimdraganum og fara í ver- ið. Njóta meira frjálsræðis en í for- eldrahúsum, hafa sína eigin mat- arskrínu með kæfu, sméri og hangiketi, kynnast öðru fólki og öðr- um siðum. Þetta var manndóms- vígsla. Í verinu var ekki bara þrældómur heldur líka reynt að skemmta sér í landlegum, syngja, kveðast á eða glíma. Af Húnvetningi, lagsmanni sínum, lærði Böðvar t.d. vísurnar Hér er ekkert hrafnaþing, hér er enginn tregi. Farðu vel með Vatnsdæling, vinur elskulegi. Og: Lifnar hagur, hýrnar brá, hressist bragagjörðin. Ó, hve fagurt er að sjá, ofan í Skagafjörðinn. Seinna komst Böðvar á skútu og þar var líka kveðið: Að sigla fleyi og sofa í meyjarfaðmi, ýtar segja yndi mest og að teygja vakran hest. Einnig: Rigning slær á hauðið hér, hörund þvær á ýtum; betra væri að bylta sér á brúðarlærum hvítum.“ „Var út í Eyju eins og við köllum það,“ skrifar Höskuldur Búi í Leir- inn og er þá að tala um Grímsey í Steingrímsfirði: Blikar úa út við strönd elta frúarstélið. Gæsir fljúga, argar önd Eyju dúar þelið. Ingólfur Ómar yrkir af því tilefni að nú er sumarið að ganga í garð: Veröld ljómar drungi dvín daga rómum langa. Söngvar óma sólin skín sumarblómin anga. Ingólfur Ómar horfir út á Faxa- flóa í kvöldsólinni: Skartar eldi skýjaslóð skærum röðulsgljáa. Hugann fangar hafsins slóð hrönnin töfrabláa. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Undir Tindum Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVERS VEGNA VILDI HJÚKRUNARKONAN ÞÍN VITA UM „NÁNUSTU ÆTTINGJA“ MÍNA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að veita stuðning þegar hlutverkin skipta um hendur. EITTHVAÐ ÁHUGAVERT ÚTI? EKKI SÍÐAN ÉG KOM INN HRÓLFUR VILDI AÐ ÉG ÞAKKAÐI ÞÉR FYRIR AÐ TAKA Á ÞIG SKELLINN FYRIR HANN… …OG HONUM ÞYKIR LEITT AÐ HANN GAT EKKI VERIÐ HÉRNA Í DAG!¨ HVAR ER HANN? HANN ER AÐ EYÐA ÞÍNUM HLUTA RÁNSFENGSINS Á NÆSTA BAR… Leiðbeininga- bæklinga- þjónustan Farið inn til að fara út Víkverji fór á mánudagskvöldið aðsjá San Francisco-ballettinn flytja kafla úr ýmsum verkum í Hörpu. Það er mikill fengur að heim- sókn ballettsins. Helgi Tómasson hefur verið þar við stjórnvölinn í rúm þrjátíu ár. Ballettinn var í lægð þegar hann varð listrænn stjórnandi ball- ettsins en honum tókst fljótlega að koma honum í fremstu röð og hefur haldið honum þar síðan. Það er til marks um hæfileika Helga hversu lengi hann hefur stjórnað ballett- inum. x x x Áður en Helgi fór til San Franciscoátti hann framúrskarandi 15 ára feril hjá New York City-ballettinum. Þegar hann kom fram í síðasta skipti hjá ballettinum í janúar 1985, þá 42 ára gamall, skrifaði Anna Kisselgoff í New York Times að hann kveddi með sömu hógværð og reisn og einkennt hefði allan feril hans. Þar dansaði hann hjá einum helsta danshöfundi 20. aldar, George Balanchine. Skrif- aði hún að með Helga hefði Balanch- ine loks haft á að skipa nógu hæfi- leikaríkum dansara til að útfæra hugmyndir sínar fyrir karldansara í klassískum dansi. „Með framúrskar- andi tækni sinni og tign var hr. Tóm- asson hið fullkomna dæmi um hinn klassíska karldansara,“ skrifaði Kis- selgoff. x x x Víkverji átti þess aldrei kost að sjáHelga dansa á sviði en fékk tæki- færi til að sjá San Francisco- ballettinn þegar hann kom til New York og sýndi í viku á hans gamla heimavelli 1991 og aftur í San Franc- isco tveimur árum síðar. x x x Í Hörpu fóru skrif Kisselgoff í gegn-um huga Víkverja. Helgi hefur ávallt haldið sig við hinn klassíska ballett og kvöldið bar því vitni. Vík- verji varð að láta sér nægja að ímynda sér af hverju hann missti með því að horfa á dansarana, sem Helgi hefur mótað samkvæmt hug- myndum sínum og sannfæringu, fara á kostum á sviðinu. Þegar sýningunni lauk steig Helgi á svið og kvað við dynjandi lófatak. Áhorfendur risu úr sætum og ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að linna. víkverji@mbl.is Víkverji Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur. (Fyrra Pétursbréf 5:7) Allt fyrir eldhúsið Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið hjá Progastro Heildarlausnir fyrir heimilið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.