Víkurfréttir - 08.05.2003, Blaðsíða 38
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali
Sölumenn: Þröstur Ástþórsson og Þórunn Einarsdóttir
Wafnarnata Ö7 • 73fl Ifnflm/ílr • Símar A71 1 A7n nn 471 47ÞR
Njarðvíkurbraut 1, Njarðv.
Mjög gott 189m2 einbýli á 2
hæðum með 4 svefnherb. og
bílskúr. Stór verönd, nýlegt
þakjárn. 15.400.000.-
Hólabraut 8, Keflavík.
Góð neðri hæð í tvíbýli með
sérinngangi, 3 svefnh. Skolp,
miðstöð- og vatnslagnir
endurnýjaðar. 9.400.000.-
Tjarnargata 3, Keflavík.
Til sölu tvær tveggja herb.
íbúðir á 2. hæð. Lausar strax.
Uppl. um verð á skrifstofu.
Fífumói la, Njarðvík.
3ja herb. íbúð með eikar
parketi á 2. hæð í litlu fjölb.
Laust strax. 6.600.000.-
Hafnargata 15, Keflavík.
Mjög gott 170m2 verzlunar-
húsn. á besta stað í bænum.
Skipt í tvö bil í dag, bæði í
útleigu. 17.700.000.-
Heiðarból lOb, Keflavík.
50m! 2ja herb. íbúð á 2. hæð
í fjölbýli. Eign í góðu
ástandi, nýtt eldhús, hagstæð
lán. 6.400.000.-
Birkiteigur 9, Keflavík.
120m2 einbýlishús á 2 hæð-
um með 4 svefnh. og 50m2
bílskúr. Heitur pottur. Eign í
góðu ástandi. 13.900.000,-
Urðarbraut 9, Garði.
Glæsilegt og gott 183m2 ein-
býli með 5 svefnh. og 54m!
bílskúr. Verönd með heitum
potti. 15.200.000.-
Hraunholt 5, Garði.
Gott 140m! einbýli með 4
svefnh. Nýr 54m2 bílskúr.
Eign í góðu ástandi utan sem
innan. 13.800.000.-
Garðbraut 72, Garði.
173m! einbýli með 5 svefnh.
og 45m2 bílskúr. Skolp og
vatnslagnir nýlegar. Hagstæð
lán. 12.500.000,-
Efstaleiti 28, Keflavík.
Mjög gott 100m2 einbýlishús
með 50m2 bílskúr, 3 svefnh.
Parket á stofu og holi. Skipti
á minni eign möguleg.
16.900.000.-
Gerðavegur 14, Garði.
Rúmgott 173m! einbýli á
2 hæðum með 4 svefnh. og
48m! bílskúr. Hagstæð lán
áhvílandi. 14.800.000,-
ATTAI LANDSLIÐ
Það er ekki bara í politík þar
sem menn eru fyrrum félagar
og verða svo harðir mótherjar.
Sverrir Hjörleifsson þjálf-
ari 16-17 ára landsliös
kvenna og Benedikt
Guðmundsson unglingalands-
liðsþjálfari drengja fædda 1986
hafa valiö 12 manna lið sem
munu leika fyrir Islands hönd
á Norðurlandamótinu (Polar
cup) í Svíþjóð sem hefst 28.
maí. Atta leikmenn frá Suður-
nesjunum eru í liðunum en það
eru Anna María Ævarsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir,
María Ben Erlingsdóttir og
Jón Gauti Jónsson úr Keflavík,
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir,
Jóhann Olafsson og Kristján
Sigurðsson úr Njarðvík og
Elva Rut Sigmarsdóttir úr
Grindavík.
Strákamir og stelpumar voru öll
sammála því að þau hefðu verið
mjög ánægð með að vera valin i
landslið og sögðu það mikinn
heiður að fá tækifæri á því spila
fyrir Islands hönd erlendis. Bæði
liðin hafa verið að æfa töluvert
undanfarið og hafa þær æfingar
verið skemmtilegar að sögn
þeirra.
KEFLAVIKI URSLITALEIK
DEILDARBIKARSINS
Keflvíkingar gerðu sér lítið
fyrir og sigruðu Grindvík-
inga, 3-1, í 4-Iiða úrslitum
deildarbikarsins í knattspyrnu
sem fram fór í Egilshöll á sunnu-
dag og hafa því unnið átta leiki í
röð. Leikurinn var vel leikinn af
báðum liðum en það voru Kefl-
víkingar sem tóku forystuna í
fyrri hálfleik þegar Þórarinn
Kristjánsson skallaði boltann í
netið og þannig stóðu leikar í
hálfleik. Lee Sharpe, sem var að
leika sinn fyrsta leik með
Grindavík á Islandi, jafnaði met-
in stuttu eftir hlé og leit út fyrir
fjörugan síðari hálfleik.
Sú varð raunin og var jafhræði með
liðunum en Keflvíkingar voru
sterkari upp við markið og settu tvö
mörk og var það Magnús Þor-
steinsson sem skoraði þau og sigur
liðsins tryggður. Keflavík mætir ÍA
í úrslitum á Valbjamarvelli á morg-
un og hefst leikurinn kl. 18:00.
Á sama tíma tryggði Njarðvík sér
sæti í úrslitaleik Deildarbikar-
keppni neðri deildar með 3 - 1 sigri
á HK á Njarðvíkurvelli. HK menn
bytjuðu leikinn með látum og sko-
rðu strax á 3. mínútur og þannig
var staðan í hálfleik. Njarðvíkingar
vom þolinmóðir í öllum aðgerðum
sínum og það skilaði sér því á síð-
ustu 15 mínútum leiksins skomðu
þeir þrjú mörk en það vom Gunnar
Örn Einarsson, Eyþór Guðnason
og Óskar Öm Hauksson sem skor-
uðu mörkin.
Sigur heimamanna var sanngjam,
liðið var að spila boltanum vel og
var stanslaust að reyna að búa eitt-
hvað til. I hinum undanúrslitaleikn-
um léku Breiðablik og Völsungur í
Fífunni og sigraði Breiðablik 6-1.
Njarðvík mætir því Breiðablik í úr-
slitaleik, laugardaginn 10. maí og
fer sá leikur fram á Kópavogsvelli
kl. 14:00.
Austurlenskt hlaðborð
Glæsilegt og gómsætt 10 rétta
austurlensk hlaðborð á
kosningadaginn 10. maí nk.
Verð aðeins
kr. 1.750,-
Gestakokkurinn
Lovelia Diaz sér
um matseldina
J.P. CHENET
verðlaunavín á sérstöku
kynningarverði.
Fyrst og fremst:
Heigi Jónas Guðfinnsson
körfuknattleikskappi úr
Grindavík mun ekki gefa
kost á sér í landslið Islands
sem leikur á Smáþjóðaleik-
unum á Möltu í júnf. Helgi
ætlar sér að æfa fótbolta í
sumar og segja gárungarnir
að hann hafi ekki viljað
missa af því frábæra tæki-
færi að fá að leika við hlið
Lee Sharpe á miðjunni í
sumar. Eru allir leikmenn
liðsins búnir að tryggja sér
eiginhandaáritun?
RKV-stúlkursigruðu Tinda-
stól, 4-2, í deildarbikar neðri
deilda í Reykjaneshöllinni á
laugardag. Það voru Svein-
laug Guðmundsdóttir,
Bergey Sigurðsdóttir, Hrefna
Guðmundsdóttir og Hjördís
Reynidóttir sem skoruðu
mörkin en RKV stúlkur eru
sem stendur í 4. sæti með
sex stig.
Jóhann Birnir Guðmundsson
var í byrjunarliði Lyn sem
gerði 2-2 jafntefli við Molde
í norsku úrvalsdeildinni í
gær. Lyn lenti undir 2-0 en
náðu að koma sterkir til
baka og jafna leikinn. Eftir
fjórar umferðir er Lyn f 12.
sæti deildarinnar með 2 stig,
hafa skoraði fjögur mörk og
fengið átta á sig.
Logi Gunnarsson og félagar í
Uim enduðu í 3. sæti s-riðils
í þýsku 2. deildinni í
körfuknattleik á yfirstand-
andi keppnistímabili.
Sævar Sævarsson íþróttafréttamaður
tekur vorinu fagnandi.
38
VlKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!