Víkurfréttir - 08.05.2003, Blaðsíða 26
jrz
%
'4
UÐURKJORDÆMI
Alþingiskosnmgar 2003
SIÐASTA TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ AKVEÐA HVAÐ A AÐ KJOSA!
-efstu Suðurnesjamenn á framboðslistum stjórnmálaflokkanna í Suðurkjördæmi í yfirheyrslu kosningablaðs Víkurfrétta.
Á laugardag verður gengið til
kosninga og þann 11. maí ligg-
ur eflaust fyrir hvaöa ríkis-
stjórn mun ríkja á íslandi
næstu ljögur árin. Víkurfréttir
hringdu í efstu Suðurnesja-
frambjóðendur í Suðurkjör-
dæmi þar sem þeir voru allir
spurðir sömu spurninga. Nú er
þaö Suðurnesjamanna að rýna
í svörin og taka afstöðu um það
hvað þeir ætli að kjósa.
■ Hjálmar Árnason í 2. sæti Framsóknarflokksins:
Hver eru þrjú hclstu mál þíns
flokks fyrir þessar kosningar?
Vinna, vöxtur og velferð. Vinna
er að halda hjól-
um efnahagslifs-
ins gangandi þar
sem verðmætin
verða til, þá verð-
ur vöxtur á öllum
sviðum mannlífs
og þá getum við
byggt upp öflugt velferðarkerfi
áfram. Við þurfum að nýta þau
tækifæri sem eru í samfélaginu
og koma í veg fyrir óráðssíu.
Af hverju ættu Suðurnesja-
menn að kjósa Framsóknar-
flokkinn?
Vegna þess að Framsóknarflokk-
urinn hefur skýra stefnuskrá.
Framsóknarflokkurinn hefur sýnt
að hann hefur kjark til þess að
standa við þau fyrirheit sem hann
gefur og vegna þess að flokkur-
inn leggur áherslu á vinnu, vöxt
og velferð. Og vegna þess að á
lista Framsóknarflokksins er eini
Suðumesjamaðurinn sem á raun-
hæfa möguleika.
Með hvaða flokkum vilt þú
vinna í ríkisstjórn?
Þeim flokkum sem em tilbúnir til
þess að ganga sem næst þeim
stefhumörkum sem við setjum.
Hvernig hefur kosningabarátt-
an verið?
Kosningabaráttan hefur tyrst og
fremst verið skemmtileg en
annasöm og það hefur verið mik-
il yfirferð. Mér finnst hún hafa
verið að sumu leiti málefnaleg,
en þó ber á því að menn grípi til
gamalkunns rógs og einhvers
sem jaðrar við persónulegt skít-
kast og haldi sig ekki við málefhi
og skýra framtíðarsýn.
Hver er þín spá um úrslit kosn-
inganna?
Eg treysti mér ekki til að spá um
úrslitin. Það er ennþá mikil
óvissa. Eg tel þó að kjósendur
séu að átta sig á því að úrslit
kosninganna geta haft mikil áhrif
á efnahagslífið og þar af leiðandi
buddu hvers og eins. En hvað
sjálfan mig áhrærir er ég annað-
hvort úti eða inni og þess vegna í
mikilli óvissu hvort ég verði
þingmaður Suðumesja eða ekki.
■ Þórunn Friðriksdóttir í 2. sæti
hjá Vinstri Grænum:
Hver cru þrjú helstu mál þíns flokks fyrir þessar kosningar?
Það eru velferðannál, umhverfismál og jafnréttismál.
Af hverju ættu Suðurnesjamenn að kjósa Vinstri Græna?
Suðumesjamenn ættu að kjósa Vinstri Græna til að
styðja þau mál sem við beijumst fýrir og sem við
teljum að séu bestu málin.
Með hvaða flokkum vilt þú vinna í ríkisstjóm?
Eg vil náttúrulega helst vinna með þeim flokkum
sem sitja í stjómarandstöðu. Það væri draumurinn.
Hvernig hefur kosningabaráttan verið?
Skemmtileg.
Hver er þín spá um úrslit kosninganna?
Ég er að vona að stjómin falli en munurinn verður ekki mikill,
kannski með einum eða tveimur mönnum. Og ég vona auðvitað að
Kolbeinn komist inn í Suðurkjördæmi.
X-Gróðurmold
Ef þú þarft gróðurmold,
hringdu þá í síma 892-1164.
Siggi Guðjóns, kranabílstjóri.
Auglýsendur
kjósa
Víkurfréttir 0 \
Síminn er 421 0000
mvusjr
■ Árni Ragnar Árnason efstur á lista Sjálfstæðisflokksins:
Hver eru þrjú helstu mál þíns
flokks fyrir þessar kosningar?
Við leggjum mesta áherslu á at-
vinnumál og vilj-
um halda áfram
fjölbreyttri at-
vinnuþróun í öllu
kjördæminu og
ekki síst á Suður-
nesjum. Við
leggjum áherslu á
áframhaldandi þróun á afla-
markskerfinu og að skoðaðir
verði kostir færeyska kerfisins,
ásamt því að skoða rétt sveitar-
stjóma til að halda veiðiheimild-
um. I þriðja lagi viljum við halda
áfram að byggja upp samgöngur,
menntastofnanir og heilbrigðis-
þjónustu.
Áf hverju ættu Suðurnesja-
menn að kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn?
Vegna þess að við viljum ekki
fara út i umbyltingu á neinum
sviðum og við viljum halda
áfram að þróa það sem vel hefur
tekist. Við emm sá flokkur sem
hefur staðið fýrir efnahagslegum
stöðugleika sem er algjör grund-
völlur þess að við getum staðið í
stórframkvæmdum og fjölgað at-
vinnutækifærum. Við viljum
enga umbyltingu í sjávarútvegi
og teljum hugmyndir annarra
flokka vera stórhættulegar í þess-
um efhum.
Með hvaða flokkum vilt þú
vinna í rikisstjórn?
Við erum tilbúnir að vinna með
hvaða flokki sem er tilbúinn að
vinna á sömu forsendum og við,
sem ég hef nefnt.
Hvernig hefur kosningabarátt-
an verið?
Hún hefur verið svolítið sér-
kennileg. Mér finnst að nokkrum
þræði að baráttan hafi verið dreg-
in aftur til fyrri tíma með per-
sónulegum aðdróttunum og jafn-
vel dylgjum. Ég verð að viður-
kenna að mér finnst sárt að sjá
þegar þannig er unnið og finnst
það ekki eiga við í stjómmálum.
Mér þykir sérlega óskemmtilegt
að fyrrverandi félagi minn, Krist-
ján Pálsson og Gunnar Örlygsson
fyrrverandi nágranni minn hafi
tekið það upp að halda fram
þeim ósannindum að ég sé eitt-
hvað sérstaklega fylgjandi þvi að
auka samþjöppun fyrirtækja í
sjávarútvegi. Það liggja margar
ræður í þingskjölum sem sýna
frarn á að mín sjónarmið eru allt
önnur, þar sem ég hef fært fram
þá sannfæringu mina að hafa
fjölbreytt fyrirtæki í sjávarútvegi
því þannig nýtum við auðlindina
best.
Hver er þín spá um úrslit kosn-
inganna?
Ég tel að við Sjálfstæðismenn
náum sæmilegum hlut eða 24
þingmönnum eða svo. Ég hef þá
trú að við munum ná 4 þing-
mönnum í Suðurkjördæmi og ef
þannig tekst til þá held ég að við
höfum náð ágætis hlut eftir 12
ára forystu í landsmálum. Hitt er
hinsvegar ljóst að Frjálslyndi
flokkurinn er að vinna á og ég
vona bara að allir þeir sem koma
inn nýir á Alþingi muni vinna að
heilindum fyrir land og þjóð.
■ Jón Gunnarsson í 4. sæti Samfylkingarinnar:
Hver eru þrjú heistu mál þíns
flokks fyrir þessar kosningar?
Jafn réttur fýrir alla. Breyting á
sj ávarútvegsstefn-
unni og að fjöl-
skyldur í landinu
geti lifað af þeim
launum og þeim
sköttum sem
lagðir eru á þær.
Af hverju ættu
Suðurnesjamenn að kjósa
Samfylkinguna?
Suðurnesjamenn eiga að kjósa
Samfýlkinguna vegna þess að ef
þeir velta því fyrir sér hvernig
ástandið á Suðurnesjum hefur
breyst á siðustu árum. Ef þeir
velta því líka fyrir sér hvernig
svignimið i ríkisfjármálum hefur
verið notað til að hygla þeim sem
betur rnega sín í stað þeirra sem
beijast við að láta mánaðartekj-
urnar endast. Þegar Suðumesja-
menn líta á þessi atriði þá hljóta
þeir að sjá að það er kominn timi
til að breyta og eina leiðin til að
breyta er að kjósa Samfýlking-
una.
Með hvaða flokkum vilt þú
vinna í ríkisstjórn?
Síst vil ég vinna með Sjálfstæðis-
flokki. Það hlýtur að vera hveij-
um manni ljóst að stefna Sam-
fylkingar og Sjálfstæðisflokks
ganga í sitthvora áttina og því
ættu þeir flokkar varla að geta
unnið saman eftir kosningar.
Hvað hina flokkana varðar þá
skiptir það máli að áherslur Sam-
fýlkingarinnar ráði í ríkisstjómar-
samstarfi. Ef aðrir em tilbúnir að
koma með okkur til þein-a verka
á þeim nótum þá er ég tilbúinn til
að vinna með öllum þeim flokk-
um.
Hvernig hefur kosningabarátt-
an verið?
Kosningabaráttan hefur verið
bæði skemmtileg og erfið. Erfið
vegna þess að kjördæmið er stórt
og kröfur um að frambjóðendur
fari víða um. En skemmtileg
vegna þess að það er virkilegur
áhugi hjá kjósendum á pólitík-
inni og þeir em mikið meira að
velta þvi fýrir sér hvað þeir eigi
að kjósa.
Hver er þín spá um úrslit kosn-
inganna?
Ég hef aldrei verið talinn góður
spámaður. Ég vona allavega að
þær fari þannig að þann 11. maí
hafi Samfýlkingin óskorað um-
boð frá kjósendum til að leiða
næstu ríkisstjóm.
26
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!