Víkurfréttir - 08.05.2003, Blaðsíða 23
Aðalsafnaðarfundur Keflavíkursóknar:
Tillaga um Reykjanesprófasts-
dæmi samþykkt samhljóða
Aöalsafnaðarfundur
Keflavíkursóknar var
haldinn í Kirkjulundi
Keflavík, 27.
apríl sl. að
lokinni messu
þar sem
sóknarprest-
ur fjallaði um
kirkju og
stjórnmál.
Sóknarnefnd
bauð síðan til
hódegisverð-
ar og að hon-
um loknum
hófst fundur-
inn.
TómasTómasson, sóknamefhd-
armaður og fyrrum Sparisjóðs-
stjóri stjómaði fundinum. Aðal-
safnaðarfundur er æðsta stjóm-
stig sóknarinnar og dagskráin var
samkvæmt starfsreglum um
sóknamefndir. Fjórir aðalmenn
vom kosnir i sóknamefnd til
fjögurra ára.
Gunnar Sveinsson lét af störfum
sem formaður sóknamefhdar en
situr áfram í nefhdinni. Við starfi
hans tók Anna Jónsdóttir. Laufey
Kristjánsdóttir var valin ritari
sóknamefndar í stað Önnu. í
sóknamefhd vom kjörin Halldór
Leví Bjömsson og Ragnheiður
Asta Magnúsdóttir. Auk þeirra
tók Leifur A. ísaksson sæti í
sóknamefhd.
Gunnari, sem er nýlega orðinn
áttræður, vom þökkuð vel unnin
störf fyrir Keflavíkursöfhuð, en
hann sat einnig á kirkjuþingi fyr-
ir Suðumesjamenn um tíma. Það
er ekki ofmælt að Gunnar er einn
af öflugustu félagsmálamönnum
á Suðumesjum.
Gagnmerk tillaga var borin upp
og samþykkt samhljóða á fiind-
inum. Hún er á þessa leið: „Að-
alfundur Keflavíkursóknar styður
heilshugar að tillaga kirkjustjóm-
arinnar um nýskipan prófasts-
dæma verði samþykkt og
Reykjanesprófastsdæmi verði
komið á.
Fyrir þessari tillögu kirkjustjóm-
arinnar em augljós rök hvað
varðar landfræðilega skipan, lýð-
ræðislega þróun og breytta kjör-
dæmaskipan.
Með fullri virðingu fyrir hefð og
fortíð er kominn tími til að grisja
starf kirkjunnar svo gróskan
verði meiri og hægt verði að hlú
enn betur að þeim framfaramál-
um sem em brýn fyrir allar sókn-
ir á Suðumesjum eins og t.d.
endurbyggingu kapellu i Heil-
brigðisstofhun Suðumesja sem
mun kosta verulegt fé”. - Fleira
var ekki gert og fundi slitið.
Ólafur Oddur Jónsson.
/
Komdu á stærstu Yamaha mótorhjólasýningu sem haldin
hefur veriö á Suðurnesjum. Torfæruhjól, götuhjól, hippar og fjórhjól.
Kaffi á könnunni!
Opið kl. 12 - 16 á laugardag í Toyotasalnum, Njarðarbraut 19 í Keflavík.
VÍKURFRÉTTIR 19.TÖLUBLAB FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 23