Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.01.2017, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 23.01.2017, Qupperneq 13
sport Þjálfararnir Íslensku þjálfararnir á HM Guðmundur Guðmundsson Á heimleið Eftir að hafa unnið alla leikina í riðla- keppninni féllu Danir úr leik í 16-liða úr- slitum eftir 27-25 tap fyrir Ungverjum. Þetta var síðasti leikur danska liðsins undir stjórn Guðmundar á stórmóti. Kristján Andrésson Áfram eftir risasigur Strákarnir hans Kristjáns rústuðu Hvít-Rússum, 22-41, og eru komnir í 8-liða úrslit þar sem þeir mæta heimsmeisturum og heimamönnum Frakka. Leikurinn fer fram í Lille annað kvöld. Dagur Sigurðsson Engin vandamál Eins og á síðasta heimsmeistaramóti sló Katar Þýskaland úr leik. Katarar unnu leikinn 20-21. Þetta var væntanlega ekki óska- endirinn hjá Degi Sigurðssyni sem er að hætta með þýska liðið. Henry B. Gunnarsson henry@frettabladid.is Handbolti Geir Sveinsson lands- liðsþjálfari var svekktur en yfirveg- aður eftir að íslenska landsliðið lauk keppni á HM eftir tap, 31-25, gegn Frökkum fyrir framan 28 þúsund áhorfendur í Lille. Ótrúleg umgjörð og þvílík reynsla fyrir okkar lið að fá að taka þátt í þessum leik. „Það er alltaf sama tilfinningin eftir tapleik. Þá er maður svekktur. Maður fer strax að hugsa um þenn- an litla kafla í upphafi seinni hálf- leiks. Af hverju, því ég hafði góða tilfinningu fyrir þessu eftir hálfleik- inn. Það er verið að dæma á okkur hluti sem mér finnst ekki vera réttir. Eins og skrefin á Óla Guðmunds. Þetta er líka það öflugt og gott lið að okkur er refsað um leið,“ segir Geir en hann var þó ánægður með við- horf sinna manna eins og nokkrum sinnum áður á þessu móti. „Við hættum aldrei sem var jákvætt því ég hafði pínu áhyggjur um tíma að menn hefðu misst trú á verkefninu og því sem við vorum að gera. Við náðum að gíra okkur aftur inn og komum mjög flottir í lokakaflann. Ég taldi að við hefð- um getað labbað í burtu með 2-3 marka tap. Það var fullt af jákvæðu. Ég hamraði mikið á því að menn myndu skilja allt eftir á gólfinu. Ekki sjá eftir neinu er menn löbb- uðu af þessum frábæra velli. Ég er stoltur af drengjunum, stoltur af viljanum og stoltur af frammi- stöðunni.“ Geir lagði upp með margt á þessu móti. Meðal annars að breikka hóp- inn og gefa yngri, sem og reynslu- minni mönnum tækifæri. Leyfa þeim að spila og gera sín mistök. Það sé nauðsynlegt til þess að þeir verði betri. „Okkur hefur tekist að breikka hópinn og fjölga leikmönnum í landsliðinu. Menn sem voru í minni hlutverkum eru farnir að stíga upp og ég tala ekki um alla þá sem hafa aldrei farið á stórmót. Þetta var kærkomið. Ég fékk fullt af svörum líka í þessu móti,“ segir Geir en hann var ekki alveg viss um að hann fengi öll þessi svör eftir undirbúningsleik- ina í Danmörku. „Þá voru sumir hlutir ekki 100 prósent og við vorum ekki vissir um að sumir hlutir myndu smella sem gerðu það. Ég er auðvitað gríðar- lega ánægður með varnarleikinn heilt yfir á þessu móti. Ég vil meina að við höfum byggt upp virkilega massífa vörn. Vörnin í fyrri hálfleik í kvöld var stórkostleg. Sjáðu hverjir spiluðu fyrir Frakka. Þeir gátu aldrei leyft sér að slaka á. Markmiðið var að leggja inn fyrir framtíðinni og það hefur verið flottur stígandi. Við eigum kafla í hverjum einasta leik sem hefur kostað okkur eitthvað en það er fórnarkostnaðurinn. Hlut- irnir koma með reynslunni.“ Það er ekki bara að Geir sé búinn að stækka hópinn heldur á liðið inni einn besta handboltamann heims í Aroni Pálmarssyni. „Það skemmir auðvitað ekki fyrir. Samt sem áður held ég að margir hafi stigið meira upp af því að Aron var ekki með okkur. Það þjappaði hópnum saman. Á sama tíma og við söknuðum hans var það áskorun fyrir drengina að spila án hans. Það skilaði klárlega miklu fyrir liðið,“ segir Geir en hann ætlar að halda áfram að þjálfa liðið og er bjartsýnn á framtíðina. „Það má líka koma fram að and- inn í þessari ferð hefur verið ein- stakur. Þetta eru ofboðslega flottir drengir og það eru forréttindi að fá að vinna með þeim.“ Þetta eru ofboðslega flottir drengir Þó svo landsliðsþjálfarinn Geir Sveinsson sé svekktur að vera á leið heim þá er hann mjög ánægður með margt hjá íslenska liðinu á HM. Hann lítur björtum augum til framtíðarinnar með drengjum sem hann er afar stoltur af. Breiddin í landsliðinu er orðin meiri. Geir Sveinsson segir mönnum til á hliðarlínunni. nordicpHotoS/GEtty Ekki góður dagur fyrir íslensku gullþjálfarana frá 2016 Kveðjuleikurinn Dagur Sigurðsson gengur niðurlútur af velli eftir að Evrópumeistarar Þýskalands töpuðu fyrir Katar, 20-21, í 16-liða úrslitum á HM í Frakklandi í gær. Þetta var síðasti leikur Dags með þýska liðið en hann er sem kunnugt er að fara að taka við japanska landsliðinu. Ólympíumeistararnir hans Guðmundar Guðmundssonar féllu einnig óvænt úr leik í gær. Danir töpuðu 27-25 fyrir Ungverjum í síðasta leik Guðmundar með danska liðið á stórmóti. Svíar, undir stjórn Kristjáns Andréssonar, eru hins vegar komnir áfram. nordicpHotoS/GEtty 2 3 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 0 4 -4 3 7 C 1 C 0 4 -4 2 4 0 1 C 0 4 -4 1 0 4 1 C 0 4 -3 F C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.