Fréttablaðið - 23.01.2017, Page 38
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Anna Þórarinsdóttir
Kastalagerði 6 Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir
19. janúar 2017.
Útförin fer fram í Kópavogskirkju
föstudaginn 27. janúar kl 15:00
Haukur Steingrímsson
Tómas Hauksson Alda María Magnúsdóttir
Steingrímur Hauksson Guðrún Jónsdóttir
Hjörtur Þór Hauksson Dagný Guðmundsdóttir
Sverrir Davíð Hauksson Birna Guðmundsóttir
Einar Kristinn Hauksson Eyrún Anna Felixdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Herdís Jónsdóttir
Lundi Fnjóskadal,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 18. janúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
Innilegar þakkir til starfsfólks á Eini- og Grenihlíð fyrir
góða ummönnun.
Þórólfur Guðnason
Guðni Þórólfsson Aðalheiður Pétursdóttir
Aðalbjörg Þórólfsdóttir Guðlaugur Óli Þorláksson
Ólafur Haukur Þórólfsson
Sigríður Þórólfsdóttir Pétur Ringsted
Jón Þórólfsson Hólmfríður Rúnarsdóttir
ömmubörn og langömmubarn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Einar Brynjólfsson
rennismiður,
Fróðengi 5,
áður Rjúpufelli 21, Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 11. janúar sl. á Land-
spítalanum, verður jarðsettur frá Fella- og Hólakirkju
mánudaginn 23. janúar nk. klukkan 13.00.
Kristinn Þór Einarsson Margrét K. Daníelsdóttir
Linda Björk Hávarðardóttir
Brynjar Einarsson Steinunn Björg Ingvarsdóttir
Brynjólfur Einarsson
Valdimar Einarsson Fanný Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
1907 Jón forseti kom til landsins. Hann var fyrsti togarinn
sem smíðaður var fyrir Íslendinga.
1942 Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi ráðherra, fæddist.
1943 Duke Ellington spilaði í fyrsta sinn í Carnegie Hall.
1952 Valgeir Guðjónsson, íslenskur tónlistarmaður, kom í heiminn.
1954 Guðný Halldórsdóttir leikstjóri fæddist.
1957 Ólafur Ólafsson kaupsýslumaður fæddist.
1978 Svíþjóð bannaði notkun á gasi í þrýstihylkjum, sem talið er
að skaði ósonlagið.
1979 Fyrsti reyklausi dagurinn á Íslandi.
2005 Viktor Júsjenkó tók við embætti sem þriðji forseti Úkraínu.
2007 Ríkisútvarpinu var breytt í opinbert hlutafélag.
Merkisatburðir
Einn ástsælasti tónlistarmaður lands-
ins, stuðmaðurinn Valgeir Guðjónsson,
er fæddur 23. janúar 1952 og er því 65
ára í dag. Hann ætlar ekki að halda upp á
daginn. „Ég mun taka við árnaðaróskum
á Facebook eins og gjarnan er gert núna.
Það er þar sem maður fær að vita að það
eru ekki allir búnir að gleyma manni.“
Hann segir að sextugsafmælið sé
honum enn ferskt í minni. Eftirminni-
legasta afmælið hafi þó ekki verið
hans afmæli, heldur fimmtugsafmæli
konunnar hans, en þau eru jafnaldrar.
„Þá giftum við okkur, við Ásta Kristrún,
eftir 28 ára tilhugalíf. Og við fórum alla
leið upp í Borgarfjörð til þess,“ segir Val-
geir. Þetta hafi verið ágæt veisla sem hafi
komið mörgum að óvörum.
„Við vorum gefin saman á ekki ómerk-
ari stað en Borg á Mýrum,“ segir Valgeir
og minnir á að sjálfur Egill Skallagríms-
son og kynstofn hans hafi gert þann stað
sögufrægan. „Síðan var það nú þannig að
prófasturinn á Borg á Mýrum var mikill
vinur okkar frá gömlu og nýju. Og hann
hafði einmitt verið með okkur þegar
við kynntumst fyrir alvöru, þegar hann
og við og lítill hópur fólks gekk Leggja-
brjót,“ segir Valgeir. Þetta var árið 1975,
en Valgeir og Ásta Kristrún hittust þó
fyrst rétt eftir að Stuðmenn höfðu gefið
út Sumar á Sýrlandi.
Valgeir segist hafa nóg fyrir stafni í
tónlistinni um þessar mundir. „Og er
að undirbúa verkefni sem ég segi frá
þegar að því kemur,“ segir hann. Það sé
mikil vinna að baki þessu verkefni og
þá komi sér vel að búa ekki í erli höfuð-
borgarinnar. „Heldur að vera á því sem
ég kalla á Flóarívíerunni,“ segir Valgeir
en hann hefur búið á Eyrarbakka í meira
en tvö ár. „Þar er næði til ýmislegs sem
myndi fara forgörðum í hamaganginum.
Ég mæli með því við alla að leita á rólegri
mið. Það gerir okkur gott,“ segir hann.
jonhakon@frettabladid.is
Man best eftir fimmtugs-
afmæli eiginkonunnar
Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður er 65 ára. Hann segir eftirminnilegasta afmælisdaginn
hafa verið fimmtugsafmæli konunnar sinnar. Valgeir vinnur að stóru verkefni í tónlistinni.
Eldgos hófst í Heimaey aðfaranótt 23.
janúar 1973. Í Vísi þennan sama dag var
skrifað að brunalúðrar hefðu vakið Eyja-
menn af værum blundi um klukkan tvö
um nóttina. Kona ein hafði orðið vör
við eldbjarma í nánd við hús sitt og
hringt í slökkviliðið. „Við eftirgrennslan
reyndist þarna um meira en venjulega
elda að ræða. Jörðin logaði á löngum
kafla og eldur og eimyrja vall upp úr
nær tveggja kílómetra langri eldgjá sem
lá frá Kirkjubæ að Skarfatanga í sjó fram.
Af 5.500 íbúum eyjarinnar voru um
4.000 fluttir burt um nóttina, aðallega
með skipum. Einn maður dó í gosinu
af völdum koldíoxíðseitrunar. Gosinu í
Heimaey lauk 3. júlí árið 1973. – jhh
Þ EttA G E r ð i St 2 3 . JA n úA r 1 9 7 3
Byrjaði að gjósa í Vestmannaeyjum
Valgeir Guðjónsson hélt tónleika í Hörpu á sextugsafmælinu. Fréttablaðið/GVa
Ég mun taka við árnað-
aróskum á Facebook
eins og gjarnan er gert núna.
Valgeir Guðjónsson, afmælisbarn
2 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r18 t í M a M ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
tímamót
2
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
0
4
-3
E
8
C
1
C
0
4
-3
D
5
0
1
C
0
4
-3
C
1
4
1
C
0
4
-3
A
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K