Morgunblaðið - 07.06.2016, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.06.2016, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 7. J Ú N Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  131. tölublað  104. árgangur  GERIR FJÖL- SKYLDAN ÞIG GREINDARI? LEIKSÝNING- AR Á ENSKU Í RIFI „OKKUR LANGAR AÐ VINNA OG VINNA STÓRT“ NÝTT LEIKÁR 30 EM-SÆTI? ÍÞRÓTTIREKKI FORHEIMSKAST 12 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Plæging Kalið tún plægt fyrir sáningu.  Verulegt kal er í túnum bænda á Norður- og Norðausturlandi. Fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar telur þetta næstmesta kalárið frá aldamótum, næst á eftir kalárinu mikla 2013. Mikið kal er á mörgum jörðum í Hörgárdal og Öxnadal, einnig í Höfðahverfi. Slæmt kal er á nokkrum bæjum í Aðaldal og almennt kal í Þistilfirði. Vitað er um kal austan vatna í Skagafirði og á Ströndum. Þá eru kalblettir í túnum víða um land, til ódrýginda við fóðuröflun. »4 Næstmesta kalárið frá aldamótum Seinkanir » Um 20 þúsund farþegar hafa ekki komist ferða sinna vegna seinkana samkvæmt upplýsingum frá SAF. » Ekki hefur verið boðað til nýs samningafundar í deilunni. Viðar Guðjónsson Andri Steinn Hilmarsson Ómar Friðriksson Yfirvinnubann flugumferðastjóra hefur valdið seinkunum um 1.200 flugferða í heild, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair. „Það þýðir að um 200 þús- und farþegar Icelandair hafa lent í þessum töfum,“ segir hann. Er þá ótalið hversu margir farþeg- ar hjá WOW air hafa orðið fyrir þess- um seinkunum. Ljóst er þó að um þúsundir sé að ræða að sögn Svan- hvítar Friðriksdóttur, upplýsingafull- trúa WOW air. Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að deila samninganefnda flug- umferðarstjóra og SA sé í hnút og hafi verið það um þó nokkurt skeið. „Það er töluvert síðan við spiluðum út því sem við gátum miðað við þá línu sem mótuð var í SALEK-samkomulaginu. Flugumferðarstjórum hefur staðið til boða að taka þeim hækkunum. En þeir hafa staðið fastir á sínu og ég held að það sé óhætt að segja að það séu tvöfalt meiri hækkanir en aðrir hópar hafa fengið,“ segir Þorsteinn. Gríðarleg áhrif og allt í hnút  Um 200 þúsund manns hafa orðið fyrir seinkunum vegna yfirvinnubanns flug- umferðarstjóra  Vilja tvöfalt á við það sem er í boði, segir framkvæmdastjóri SA MSeinka 1.200 ferðum »6 Morgunblaðið/Ómar Ferðamenn Skortur er á salernum víða við þjóðvegi landsins. Ekki er ljóst hvort það tekst að bæta úr skorti á salernisaðstöðu fyrir ferðamenn við þjóðvegi landsins í sumar. Alþingi samþykkti nýverið að senda þingsályktunartillögu um uppbyggingu áningastaða Vega- gerðarinnar við þjóðvegi til ríkis- stjórnarinnar. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri sagði að á fundi með umhverfis- og samgöngunefnd hefði Vegagerðin gert áætlun um að setja upp bráðabirgðasalerni á um 30 stöðum. Stjórnstöð ferðamála fékk EFLU verkfræðistofu til að greina þörfina fyrir salerni fyrir ferðamenn. Í þeirri greiningu kom m.a. fram að vegna aðstöðuleysis og fjölda gesta væri talið nauðsynlegt að ráðast í úr- bætur við Jökulsárlón, Goðafoss, Dettifoss, Seljalandsfoss, Grábrók, Látrabjarg, Hjálparfoss, Dyrhólaey og Kerið. Áformað er að bæta aðstöðuna í sumar við Hjálparfoss og Dyrhóla- ey. Sveitarfélagið og Skógræktin setja upp heilsárs salernisaðstöðu við Hjálparfoss. Sjálfsafgreiðslu- salerni verða sett upp við Dyrhóla- ey. »11 Óvissa um salerni í sumar  Ríkisstjórnin komin með málið  Þarfagreining liggur fyrir Lars Lagerbäck stýrði í gærkvöldi íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu í síðasta skipti á Laugardalsvellinum, en hann hættir sem kunn- ugt er störfum eftir Evrópukeppnina í Frakk- landi. Lars var hylltur vel og lengi af áhorf- endum og leikmönnum eftir sigur Íslands á Liechtenstein, 4:0, en í dag fer íslenska liðið til Annecy í Frakklandi. Eiður Smári, sem skoraði í leiknum, slær á létta strengi með Lars. » Íþróttir Lars Lagerbäck kvaddur á Laugardalsvellinum Morgunblaðið/Eggert Öruggur sigur í síðasta leiknum fyrir Evrópumótið í Frakklandi  Fjöldi bíla- leigubíla hér- lendis hefur margfaldast á undanförnum ár- um og telur flot- inn nú 22 þúsund bíla sem stöðugt þarf að endur- nýja. Sala bílanna getur haft áhrif á verð not- aðra bíla. Ekki er þó talið raunhæft að selja bíla þessa úr landi. »16 20 þúsund bíla- leigubílar í umferð Þungaðar konur sem áður hafa misst fóstur virðast mun líklegri til að greinast með heilsukvíða en þær konur sem ekki eiga sögu um fóstur- missi. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem Guðrún Soffía Gísladóttir vann sem lokaverkefni í meistaranámi í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Í niðurstöðunum kemur enn frem- ur fram að þungaðar konur sem upp- lifað hafa fósturmissi upplifa meiri kvíða og depurð á fyrri hluta með- göngu og um miðbik hennar en þær konur sem ekki hafa misst fóstur. Einstaklingar sem upplifa heilsu- kvíða hafa mjög miklar og alvar- legar áhyggjur af eigin heilsu, að sögn Guðrúnar. „Þessi kvíði byrjar oft í kjölfar þess að einhver nákominn veikist eða eftir að eitthvað kemur upp í sambandi við heilsu viðkomandi. Og fólk verður mjög upptekið af öllum líkamlegum einkennum og óttinn gagntekur það,“ segir Guðrún og bendir á að óléttar konur með heilsukvíða breyti gjarnan hegðun sinni og hætti að þora að gera þá hluti sem þær gerðu áður. »18 Kvíði eftir fósturmissi á síðari meðgöngu  Samstaða er um nýtt fyrirkomu- lag á krabbameinseftirliti þar sem hjúkrunarfræðingar koma að í auknum mæli. Breytingarnar koma til vegna fækkunar krabbameins- lækna hér á landi, en mikill biðtími hefur einkennt eftirlitið. „Ég tel breytingarnar vera af hinu góða og alveg í takt við það sem er að gerast í kringum okkur,“ segir Brynja Björk Gunnarsdóttir, formaður Brjóstaheilla. »4 Góðar breytingar á krabbameinseftirliti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.