Morgunblaðið - 07.06.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.06.2016, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016 Gulur Bústnir og gulir stokkandarungar svömluðu á Tjörninni í blíðunni og speglaðist guli liturinn á höfði þeirra og af heiðgulri fíflabreiðu sem vex við bakkann skemmtilega á vatnsyfirborðinu. Ómar Hvað sem líður tískustraumum og loft- fimleikum, þá er það staðreynd, að leikritun á Vesturlöndum stend- ur ekki með neinum sérstökum blóma um þessar mundir. Ofan- greindar og líkar til- raunir til að endurnýja leikhúsnálgun – ýmist með góðum eða ekki góðum árangri – eru í því ljósi ekki óeðlilegar og jafnvel oft frjóar. Hins vegar er mörgum sem þykir sem nú megi fara að bjóða leikskáldinu aftur inn í leik- húsið. Hér hjá okkur hefur ekki verið beinlínis hlaðið undir hæfi- leikaríkleikskáld eins og Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur og Bjarna Jónsson – svo aðeins séu tvö nefnd – og eldri skáldum, t.d. Birgi Sig- urðsson og Ólaf Hauk, ekki verið haldið fram sem skyldi. Hins vegar verður að minna á, að leikgerðir af vel auglýstum skáldsögum koma aldrei í sama stað og sú frumvinna sem vinna þarf í leikhúsinu; þar eru reyndar til undantekningar, þar sem leikgerðin tekur skáldsögunni fram eins og t.d. í verki Auðar Jóns- dóttur, Fólkið í kjallaranum. Reyndar hefur vitnast að í haust sé von á nýju verki frá Bjarna og er það vel. Í fyrra beindust augu leikhúsunn- enda fyrst og fremst að nýju verki Birgis Sigurðssonar, sem bar hæfni og þroska skáldsins fallegt vitni. Í vetur beindust augun hins vegar einkum að þremur verkum, sem öll voru á sviði Borgarleikhússins. Hið fyrsta, sem var sam- starfsverkefni Óska- barna ógæfunnar, nefndist Illska og byggðist á skáldsögu Eiríks Norðdahl. Sú saga er upp á einar 500 blaðsíður, svo að þar varð heldur betur að velja og hafna, ekki síst í ljósi þess, að þarna er, ólíkt því sem oftast er íslenskur veruleiki settur í lofs- verð tengsl við póli- tískan veruleika um- heimsins. Hinum efnilega leikstjóra, Vigni Valþórssyni, tókst að ná utan um efnið með athyglisverðum hætti, annars vegar samviskuspurning- arnar, hins vegar óræði ástarinnar, og lét allt gerast í Piscatortröppu. Helst mátti finna að því að pólitíkin gerðist meira eða minna öll í hljóð- nema, en ástarþríhyrningurinn í tröppuganginum, sem sagt full- aðskilið. Mesta eftirvæntingu vakti atlaga Þorleifs Arnarssonar sem brugðið hafði á loft Englum alheimsins með spennandi og nútímalegum hætti – að sjálfri Njálu. Það hnussaði í ýms- um, sú bók er mörgum heilög. Meira að segja hefur mörgum þótt sjálfum Jóhanni Sigurjónssyni mis- takast að vinna úr efni hennar fyrir leiksvið. En það er nú svo með hin stóru verk, að þau standast alla storma. Mér er minnisstæður hörmulegur söngleikur sem nefnd- ist Man of La Mancha og sótti efni í Don Kíkóta Cervantesar sem óð um öll leiksvið fyrir nokkrum áratug- um. Hann er í dag gleymdur, en Kí- kóti lifir sínu góða lífi. Það er ekkert lögmál sem segir að ekki megi túlka efni Njálu á margvíslegan hátt á leiksviði. Enda fór það svo, að skopfærslan var sá þáttur sem best tókst og fram eftir sýningunni spunnust fram mörg mjög svo kostuleg atriði – í anda karnivals, að manni er sagt. Um miðbik sýningarinnar komu tvö dansasmíðaratriði – bardagi fyrir hlé og að því er manni skildist kristnitaka í upphafi síðari hluta, ansi langdregin, og þessi atriði og dansflokkurinn lentu einhvern veg- inn utanborðs í sýningunni, þó að atriðið um hár Hallgerðar væri ágætt. Er á leið, burtséð frá sprenghlægilegri Njálsbrennu, var frásögnin – að ekki sé sagt end- ursögnin – of bundin sögunni sjálfri og þá vantaði einhvern veginn leik- lega innistæðu í persónuframsetn- ingunni og úr varð gamaldags de- klamasjón. Þrátt fyrir bráðskemmtilega spretti vantaði þannig herslumun- inn á þessa sýningu, kannski var listræn stefna hennar reikul og ekki alveg skýrt hvað hún átti að segja manni. En margir létu sér skemmt- unina eina nægja. Vonir voru líka bundnar við nýtt verk eins efnilegasta leikskálds okk- ar af yngstu kynslóð, Tyrfings Tyrf- ingssonar. Hér er sem sagt um leik- rit að ræða og ekki afbyggingu eða útleggingu á epískri sögu, leikrit sem ort er fyrir leiksvið og nefnist Auglýsing ársins. Heitið segir til um efnið og hugmyndin er snjöll og tímabær ádrepa á þeim tíma auglýs- ingaglyss sem við lifum. Ég býst við að þetta verk sé margslungið og við fyrstu kynni komst varla allt til skila sem fyrir skáldinu vakir, hvort sem það er vegna þess að mörgum hugmyndum var ekki nógu markvisst fylgt eftir – af hverju er Mary Poppins til dæm- is að spígspora þarna, af hverju er kúnninn haltur, skilja einhverjir aðrir en auglýsingabransinn samlík- inguna við Babelsturninn? – Of mik- ið þurftum við áhorfendur að geta okkur til án þess að von væri að botn fengist í það. Einhverra hluta vegna kom ég mjög ófullnægður af sýningunni og velti því mikið fyrir mér hvers vegna, því að þarna var spennandi verk á ferð, að ég held. Eftir miklar vangaveltur hvarflar að mér, að uppsetningin sjálf hafi verið of áþreifanleg, að afstæðari túlkun, jafnvel stílfærðari, hefði hæft leikn- um betur og leyst hann betur úr læðingi en ekki það hálfraunsæi sem valið var. Mið tekið af myndlist. En vel á minnst. Það er orðinn plagsiður í leikhúsunum að starfs- menn þeirra rjúki upp til handa og fóta af hrifningu við hverja einustu sýningu áður en aðrir áhorfendur hafa einu sinni náð að lyfta lófunum. Víðast hvar hjá siðmenntuðum þjóð- um er ekki staðið upp nema um sé að ræða einstaka viðburði – á heimsmælikvarða, hvort sem er á tónleikum eða leiksýningum. Þetta er hér orðið eins og sú ofnotkun há- stigs lýsingarorða, sem auglýsendur hafa tamið sér. Og ýlfrið á betur við á popptónleikum unglinga. Eftir Svein Einarsson » Leikritun á Vestur- löndum stendur ekki með neinum sérstökum blóma um þessar mundir. Sveinn Einarsson Höfundur er leikstjóri. Enn um íslensk leikrit Áhrifamikið Flóð er nýtt íslenskt heimildaverk um mikilvægi þess að varð- veita söguna, um samstöðu og samheldni og það sem skiptir máli í lífinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.