Morgunblaðið - 07.06.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.06.2016, Blaðsíða 14
frídagar voru af skornum skammti og sumt fólk vann svo vikum skipti án frídags. Samhliða þurfti þetta starfsfólk að vinna að öðrum verk- efnum, m.a. viðbúnaði vegna Ebó- lufaraldursins, skipsstrandi og fleiru. Því hefur reynst nauðsyn- legt að fá liðsstyrk í upplýsinga- miðlunina á slíkum álagstíma.“ Spenna við Holuhraun Bergþóra gerði eigindlega við- talsrannsókn á reynslu opinberra upplýsingafulltrúa, sérfræðinga, talsmanna og viðbragðsstjórnenda auk fréttamanna sem unnu að upp- lýsingamiðlun vegna jarðskjálfta- virkni í Bárðarbungu og eldgoss í Holuhrauni frá ágúst 2014 til febr- úar 2015. Hún leiddi í ljós níu atriði sem talin eru mikilvæg og árangursrík í upplýsingamiðlun opinberra aðila vegna nýlegra eld- gosa á Íslandi og skilgreina má sem bestu starfsvenjur við slíkar aðstæður. Þar er meðal annars fjallað um samskipti þeirra sem stóðu að upplýsingamiðluninni fyr- ir hönd stofnana og hins vegar fréttamanna, innlendra og er- lendra. Fram kom í fjölmiðlum á sínum tíma að nokkur pirringur var meðal fréttamanna sem áttu að flytja fréttir til landsmanna af stöðu mála við Holuhraun og kvörtuðu þeir yf- ir skertu aðgengi, samráðsleysi og aðgangshindrunum sem virtust ekki ná til vísindafólks. Samskipta- leysi var gagnrýnt en ágreiningur- inn leystist á farsælan máta. Spurð um þetta segir Bergþóra ákveðna spennu hafa verið í tengslum við aðgangshindranirnar en rannsókn- in hafi leitt í ljós að almennt hafi samskipti milli fjölmiðla og starfs- fólks stofnana gengið vel og upp- lýsingaflæðið þótt gott. „En vissu- lega var spenna vegna þessara aðgangshindrana og því er brýnt að tryggja sameiginlegan skilning viðbragðsaðila og fréttafólks á þessu atriði, svo að annars góðu sambandi sé ekki stefnt í hættu.“ BAKSVIÐ Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Ný rannsókn Bergþóru Njálu Guð- mundsdóttur um hvaða aðferðir hafa reynst vel og hvað mætti fara betur í opinberri upplýsingagjöf fyrir, eftir og meðan á eldgosum stendur á Ís- landi leiddi í ljós níu atriði sem talin eru mikilvæg og/eða árangursrík í upplýsingamiðlun opinberra aðila og skilgreina má sem bestu starfs- venjur við slíkar aðstæður. Rann- sóknin dregur fram að taka verður tillit til sérstakra aðstæðna í upplýs- ingamiðlun í hættuástandi á Íslandi. Bergþóra flytur fyrirlestur um verk- efni sitt til meistaraprófs í umhverf- is- og auðlindafræði í dag, en heiti verkefnisins er Upplýsingamiðlun í eldgosum á Íslandi: Þegar heims- pressan og heimamenn kalla. Samkvæmt rannsókninni ein- kennist upplýsingamiðlun í eld- gosum á Íslandi m.a. af mikilli eld- virkni, smáum stofnunum með takmarkað fjármagn og skort á starfsfólki; þörf á sveigjanleika og spuna við upplýsingamiðlunina; miklum áhuga erlendra fjölmiðla; persónulegu sambandi og góðu að- gengi að íslenskum fjölmiðlum; mik- illi nálægð við almenning; og mik- ilvægi samvinnu mismunandi stofnana. Glundroðinn við Eyjafjallajökul „Rannsóknin mín gekk út á að finna sem bestu viðmið, bestu starfs- venjur við upplýsingamiðlun í eld- gosum á Íslandi, en slík viðmið hafa verið skilgreind víða erlendis. Þetta sprettur upp úr þessum eldgosum á sem hér hafa verið á undanförnum árum og hafa kallað á mikla athygli erlendu heimspressunnar,“ segir Bergþóra. Gosið í Eyjafjallajökli vakti heims- athygli og kom Íslandi á kortið enda urðu fjölmargir strandaglópar vegna gossins á flugvöllum víða um heim. Töluverður glundroði myndaðist enda heimspressan á hinni línunni. „Ég var að skoða hvort aðrar starfs- venjur væru hér á Íslandi en mælt er með erlendis. Hér eru öðruvísi aðstæður, hér er mikil eldvirkni sem er að færast í aukana samkvæmt rannsóknum. Við erum fámennt, 330 þúsund manna, þjóðfélag og hér er strjálbýlt. Á sama tíma fjölgar ferðamönnum og spáð er að um 1,5 milljónir manna komi hingað á þessu ári. Á hinn bóginn erum við með stofnan- aumhverfi sem einkennist af fáum starfsmönnum og tak- mörkuðum úrræðum á sviði upplýsingamiðlunar.“ Bergþóra nefnir einnig mikið álag starfs- manna í þessu sambandi. „Starfsmenn unnu langar vaktir, fengu lítinn svefn, Skortur á fé og starfsfólki  Níu atriði eru talin mikilvæg og/eða árangursrík í upplýsingamiðlun opinberra aðila vegna nýlegra eldgosa samkvæmt nýrri rannsókn  Mikill áhugi erlendra fjölmiðla þegar eldgos hefst á Íslandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Við Holuhraun Ljósmyndarar Morgunblaðsins komust ekki nálægt Holuhrauni á sínum tíma nema um borð í flug- vél. Á sama tíma máttu jarðfræðinemar valsa um svæðið að vild og keyra eins nálægt og þeim sýndist án hindrana. Meðal þess sem stóð uppúr í rannsókn Bergþóru var jákvæð reynsla af notkun samfélagsmiðla í upplýsingamiðlun vegna Holuhraunsgoss- ins. „Samfélagsmiðlarnir reyndust gríðarlega vel og nýttust við að koma fram upplýsingum, gjarnan áður en fjölmiðlar köll- uðu eftir þeim og það létti álagið verulega,“ segir hún. Þá hafi rannsóknin sýnt að náið samband er milli starfsfólks stofnana og fréttamanna hér á landi. „Frétta- menn eru yfirleitt með farsímanúmer hjá sérfræðingum og viðbragðsaðilum og geta hringt nánast hvenær sóla- hringsins sem er. Á sama hátt hafa viðbragðsaðilar og sérfræðingar afar gott aðgengi að fjölmiðlum hér á landi, sem er ómetanlegt í náttúruhamförum á borð við eld- gos.“ Hraðar og öruggar upplýsingar SAMFÉLAGSMIÐLAR VIRKUÐU VEL Í SÍÐASTA GOSI 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016 Íslensku flugfélögin, Icelandair og WOW air, fluttu samtals yfir 420.000 farþega til og frá landinu í síðasta mánuði. Fjöldi farþega hjá WOW air jókst um 115% frá sama mánuði í fyrra og hjá Icelandair nam aukningin 20%. Þetta kemur fram í tilkynningum sem félögin tvö sendu frá sér. WOW air flutti 106 þúsund far- þega og farþegar með Icelandair voru 320.000. Sætanýting var meiri hjá WOW air, þar sem hún var 85%, hjá Icelandair var hún 71,6%. Framboð á svokölluðum sæt- iskílómetrum jókst um 109% hjá WOW air og hjá Icelandair var þessi aukning 25%. Sætiskílómetrar eru fundir út með því að margfalda sætafjölda í hverri ferð með heild- arvegalengd ferðarinnar. Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi Icelandair voru 25.000 í maí sem er aukning um 2% á milli ára. Þá juk- ust fraktflutningar á vegum félags- ins um 9% frá síðasta ári. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Leifsstöð Umferð um hana hefur aukist talsvert undanfarin ár. Í síðasta mánuði fluttu íslensku flugfélögin 426.000 farþega til og frá landinu. Aukning hjá Ice- landair og WOW  426.000 með íslensku félögunum www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Taktu bílinn með til Færeyja og Danmerkur 2016 Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500 Bókaðu núna! Bókaðu snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir í sumar. Bergþóra Njála

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.