Morgunblaðið - 07.06.2016, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016
Héðinn Skarp-
héðinsson, félagi
okkar í Lionsklúbbi
Keflavíkur, er látinn.
Héðinn gekk í Lions-
klúbb Keflavíkur árið 1978. Hann
gegndi ýmsum embættum fyrir
klúbbinn okkar. Hann var m.a.
stallari klúbbsins í allmörg ár. Þá
var hann gjaldkeri veturinn 1984 –
1985. Loks var hann formaður
klúbbsins veturinn 1996 – 1997.
Héðinn var einstaklega góður
félagi og vinur. Hann var oft
skemmtilegur og lagði alla tíð gott
til málanna. Við söknum vinar í
stað.
Ég minnist þess þegar við fé-
lagar í klúbbnum gengum í hús og
seldum ljósaperur en féð var nýtt
til góðgerðarmála. Þar var Héðinn
drjúgur sölumaður og lét sig aldr-
ei vanta. Síðar breyttust áherslur
okkar en alltaf tók Héðinn fullan
þátt í öllu starfi klúbbsins.
Héðinn fæddist á Dalvík en ólst
upp á Siglufirði. Hann gekk í
Gagnfræðaskólann á Siglufirði og
útskrifaðist þaðan árið 1951. Þá
hóf hann nokkru síðar nám í tré-
smíði og útskrifaðist frá Iðnskóla
Keflavíkur árið 1957.
Árið 1960 stofnaði hann ásamt
Hreini Óskarssyni trésmíðaverk-
stæði í Ytri–Njarðvík. Síðar
keypti hann Hrein út úr félaginu
Héðinn
Skarphéðinsson
✝ Héðinn Skarp-héðinsson
fæddist 21. apríl
1934. Hann lést 30.
maí 2016.
Útför Héðins fór
fram 3. júní 2016.
og rak það síðan alla
tíð einn undir nafn-
inu Trésmíðaverk-
stæði Héðins. Hann
var þekktur fyrir að
smíða fallegar inn-
réttingar í hús en
hann sérhæfði sig í
því. Hann þótti afar
góður smiður.
Héðinn dvaldi í
Bandaríkjunum árin
1974 og 1975 og var
þar verkstjóri á trésmíðaverk-
stæði.
Eiginkona Héðins var Berg-
þóra Guðlaug Bergsteinsdóttir.
Þau hjón eignuðust þrjú börn en
þau eru Kristjana Birna, Aðal-
heiður og Skarphéðinn Sveinn.
Síðasti fundur Lionsklúbbs
Keflavíkur á þessu starfsári var
haldinn þann 4. maí. Þá var farin
árleg vorferð klúbbsins um Suður-
land. Héðinn og eiginkona hans
voru með í för. Þá sá ég á Héðni að
nokkuð var af honum dregið.
Nokkru eftir það lagðist hann á
Sjúkrahúsið í Keflavík (HSS) og
lést þar 30. maí.
En svona er lífsins gangur. Við
eigum öll eftir okkar för um dalinn
dimma. Ef til vill er vitundin um
það eitt af því sem gerir okkur
mannleg. Við erum í fylgd hins ei-
lífa samtímamanns allra manna á
öllum tímum.
Ég votta fjölskyldu Héðins ein-
læga samúð mína, börnum hans
og fjölskyldum þeirra og alveg
sérstaklega Bergþóru eiginkonu
hans.
F.h. Lionsklúbbs Keflavíkur,
Gylfi Guðmundsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT ÁSGEIRSDÓTTIR,
Sóltúni 2,
lést þann 29. maí síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
.
Áslaug Ösp Aðalsteinsd Kári J. Halldórsson
Guðný Þöll Aðalsteinsd Óttar Felix Hauksson
Steingrímur Laurentz Steingrímss
Jón Jón Steingrímsson
Halldóra M. M. Steingrímsdóttir Snorri Ingvarsson
börn og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ELÍNAR KRISTJÁNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á skilunar-
deild Landspítala og starfsfólk Ölduhrauns,
Hrafnistu í Hafnarfirði, fyrir frábæra umhyggju og umönnun.
.
Sigrún Ragnarsdóttir Jörgen Albrechtsen
Skúli Ragnarsson Efemía Gísladóttir
Guðrún H. Steingrímsdóttir Snorri Ágústsson
barnabörn og langömmubörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu, langömmu og systur,
JÓNU GUNNARSDÓTTUR,
Baugholti 12,
Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hrafnistu í Reykjanesbæ, HSS og Selsins, sem sinntu henni af
einstakri hlýju og alúð í veikindum hennar.
Minning hennar er ljósið í lífi okkar.
.
Gunnar V. Kristjánsson,
G. Hulda Gunnarsdóttir, Thor Sverrisson,
Einar P. Gunnarsson, Þorbjörg Óskarsdóttir,
D. Linda Gunnarsdóttir, Jón Kr. Magnússon,
barnabörn, barnabarnabörn,
Óskar Gunnarsson og Sólrún Mary Vest Joensen.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
LILLIAN KRISTÍN ANDRÉSSON,
Bakkatjörn 3,
Selfossi,
lést föstudaginn 3. júní. Útförin fer fram
frá Selfosskirkju föstudaginn 10. júní klukkan 11.
.
Sverrir Andrésson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞÓRARINN SNÆLAND HALLDÓRSSON,
fyrrverandi sláturhússtjóri,
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
sem lést 1. júní, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju miðvikudaginn 15. júní klukkan 13.30.
.
Elín Jónsdóttir,
Aníta L. Þórarinsdóttir, Jón Helgi Þórarinsson,
Erna Þórarinsdóttir, Ingibjörg S. Siglaugsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
ARNFINNUR UNNAR JÓNSSON,
fyrrverandi skólastjóri,
Stóragerði 10, Reykjavík,
andaðist 3. júní á líknardeild Land-
spítalans. Jarðarförin verður frá
Seljakirkju 13. júní klukkan 13.
.
Jón Ragnar Jónsson, Birna Þorvaldsdóttir,
Ingólfur Jónsson, Dagný Guðmundsdóttir,
Friðrik J. Klausen, Aðalheiður Gréta Guðmundsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
SKÚLI HALLDÓRSSON
framhaldsskólakennari,
Baugstjörn 21, Selfossi,
varð bráðkvaddur 31. maí.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 9. júní klukkan 14.
.
Magnea Kristmundsdóttir,
Geir Guðjónsson, Margrét Rúnarsdóttir,
Stefnir Skúlason, Margrét Hauksdóttir,
Halldór Skúlason, Sigþrúður Loftsdóttir,
Ingi Skúlason, Erla Huld Viðarsdóttir
og barnabörn.
✝ Laufey Páls-dóttir, sauma-
kona, fæddist á
Siglufirði 2. ágúst
1921. Hún lést á
Droplaugarstöðum
25. maí 2016.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Guð-
finna Ágústa Jóns-
dóttir húsmóðir og
Páll Björnsson sjó-
maður. Laufey var
yngst þriggja systkina, þau voru
Dagbjört Jóna Pálsdóttir og
Gestur Pálsson.
Laufey ólst upp á Siglufirði og
vann þar við ýmiskonar störf, að-
allega sem saumakona, en einnig
við síldarsöltun. Hún bjó á Siglu-
firði til 1960, fluttist þá til Reykja-
víkur. Maður hennar var Sigur-
björn K. Stefánsson, skósmiður
og skáld, f. 5. maí 1917, d. 28. jan-
úar 1970. Laufey eignaðist fimm
börn. Börn hennar eru: 1) Ólafur
Z. Ólafsson, f. 1944, maki hans er
Þórunn Halldórsdóttir og börn
þeirra eru Halldór
Örn Ólafsson og Þór-
arinn Arnar Ólafs-
son, 2) Gunndís
Gunnarsdóttir, f.
1947, maki hennar er
Ragnar M. Eng-
ilbertsson og börn
þeirra eru Jóna
Björk Ragnarsdóttir,
Laufey Dís Ragn-
arsdóttir og Ingi
Gauti Ragnarsson, 3)
Ása Dagbjört Sigurbjörnsdóttir,
f. 1954, maki hennar er Georg
Schaloske og börn þeirra eru
Linda Georgsdóttir og Tina
Georgsdóttir, 4) Ásta Pálína Sig-
urbjörnsdóttir, f. 1957, börn
hennar eru Ásgeir Eiríksson og
Sigurður Karl Benediktsson
Blöndal, 5) Ágústa Guðný Sigur-
björnsdóttir, f. 1963, maki hennar
er Rögnvaldur Pálmason og börn
hennar eru Róbert Gerald Jóns-
son og Valdimar Óli Bergstað.
Útförin fer fram frá Áskirkju í
dag, 7. júní 2016, kl. 15.
Laufey Páls, tengdamóðir mín,
er látin. Það eru í kringum 50 ár
síðan ég kom í fjölskylduna og fór
alltaf einstaklega vel á með okk-
ur, hún var lítrík kona og fór ekki
troðnar slóðir.
Fyrir fimmtán mánuðum datt
hún og brotnaði og náði sér ekki
eftir það, fallið var mikið áfall fyr-
ir hana. Áður var hún mikið á
ferðinni í hvaða veðri sem var, fór
í strætó um alla borg og gantaðist
oft með það að hún væri alltaf
velkomin í strætó.
Hún hafði yndi af ferðalögum
hvort sem var innan lands eða ut-
an, fór margar ferðir til Spánar
og Mallorca elskaði hún. Til Sví-
þjóðar fór hún oft til dóttur sinn-
ar og fjölskyldu sem býr í Malmö.
Þá var gjarnan farið til Kaup-
mannahafnar. Hafði hún mikla
ánægju af því að labba Strikið og
fara í fínu búðirnar þar.
Til Västerås fór hún oft til að
heimsækja barnabarn sitt og fjöl-
skyldu, t.d mætti hún í stúdents-
veislur orðin níræð. Hún elskaði
veislur og naut þess vel að vera í
margmenni. Þá fór hún til Stokk-
hólms, skoðaði konungshöllina
því hún fylgdist vel með öllu
kóngafólkinu. Það var hennar
áhugasvið og í gegnum sænsku
og dönsku blöðin fylgdist hún vel
með fjölgun þar á bæ.
Mikil sorg var þegar hún
missti mann sinn, Sigurbjörn K.
Stefánsson, skósmið og skáld,
langt um aldur fram frá ungum
dætrum. Laufey var saumakona
og mikil hannyrðakona og eru
miklar hannyrðir til eftir hana.
Barnabörnin áttu sérstakan
sess í hjarta hennar og voru þau
mjög náin henni og mikið fannst
henni gaman þegar þau komu í
mat og ég tala nú ekki um allar
búðarferðirnar með þeim bæði
hér heima og erlendis.
Laufey var starfandi innan
kvennadeildar Slysavarnafélags
Íslands og veitti það henni mikla
ánægju.
Þakka þér samfylgdina. Guð
geymi þig, Laufey mín.
Ragnar Engilbertsson.
Elsku amma Laufey, takk fyr-
ir allt sem þú hefur gefið okkur
og gert fyrir okkur. Þú varst sér-
stök amma sem við vorum stolt af
og gátum með stolti og gleði talað
um við alla. Já, amma Laufey fór
sínar eigin leiðir í lífinu og var
svona „kúl“ amma eins og sumir
vinir okkar sögðu við okkur. Þeg-
ar við vorum lítil dansaði hún við
okkur, sat myrkranna á milli og
saumaði föt sem mann langaði í
og svo sagði hún okkur sögur frá
„den tid“ á Siglufirði. Amma
Laufey fór í ferðalög til útlanda
og fór í búðir til að skemmta sér.
Það var ekki ósjaldan sem maður
fór í búðir með ömmu og þá var
úthald ömmu miklu meira en
okkar, hún gat alltaf farið í eina
búð í viðbót.
Ömmu fannst gaman að vera í
kringum fólk og spjallaði iðulega
við alla hvort sem hún þekkti við-
komandi eða ekki. Oft gat manni
fundist það neyðarlegt, sérstak-
lega þegar maður var yngri, en
þegar maður varð eldri kunni
maður betur að meta þennan eig-
inleika ömmu og hafa gaman af
honum.
Við lærðum margt af ömmu
Laufeyju og græddum mikið á
því að hafa fengið að hafa hana
svona lengi hjá okkur. Margt sem
við lærðum hefur nýst okkur vel í
lífinu nú þegar og mun svo sann-
arlega nýtast okkur áfram, sem
dæmi veigraði hún sér ekki við að
fara ein til útlanda ef hana lang-
aði að fara.
Við barnabörnin og barna-
barnabörnin vorum allt í hennar
augum og hún hældi okkur
stundum of mikið fannst okkur,
en það fannst henni ekki því við
vorum best í hennar augum.
Guð geymi þig, elsku amma
Laufey,
Jóna Björk Ragnarsdóttir,
Laufey Dís Ragnarsdóttir,
Ingi Gauti Ragnarsson.
Frá því að við vorum litlar hef-
ur okkar litríka amma Laufey
heimsótt okkur í Malmö og minn-
ingarnar eru kærar. Amma elsk-
aði að fara í búðir, að labba um
meðal fólks og að drekka kaffi
niðri í bæ. Og það var einmitt það
sem við gerðum þegar hún kíkti í
heimsókn.
Amma var ætíð ástrík við
barnabörnin sín. Við vorum alltaf
velkomin heim til hennar í góðan
mat og til að spjalla, lengi, þar til
við sofnuðum saman fyrir framan
sjónvarpið. Ef við vildum gera
eitthvað gátum við alltaf treyst á
ömmu, hún hafði alltaf tíma fyrir
okkur.
Við eigum eftir að minnast
ömmu okkar sem stórkostlegrar
manneskju, með mikinn vilja og
mikinn karakter. Og við gleym-
um aldrei öllum þeim gleðistund-
um og notalegum dögum sem við
áttum saman á Íslandi, í Dan-
mörku og í Svíþjóð.
Í síðasta sinn sem við heim-
sóttum ömmu lásum við fyrir
hana úr tímariti um Elísabetu
Bretadrottningu og barnabörnin
hennar átta. Þá sagði amma „Ég
á ellefu barnabörn. Ég er ríkari
en Elísabet drottning!“
Elsku amma, við söknum þín.
Tina og Linda.
Þann 25. maí dó yndislega
langamma mín, eða amma Lauf-
ey eins og ég kalla hana. Þú náðir
94 ára aldri. Ég hef aldrei hitt
manneskju sem hafði svo mikinn
vilja eins og þú hafðir. Þú gerðir
það sem þú vildir, sagðir það sem
þú vildir og lést engan stoppa þig.
Þú varst ótrúlegur persónuleiki
sem ég lærði mikið af. Ég lærði
t.d. að menn eiga að vera feitir, að
það er gott að borða kartöfluflög-
ur með jarðarberjajógúrti og að
ég verð einhvern tíma að prófa að
dýfa frönskum kartöflum í kaffi.
En eitt sem ég virkilega hef lært
af þér, elsku amma Laufey, er að
maður verður aldrei of gamall til
að fara í búðir og versla. Ég
gleymi þér aldrei.
Sandra Håkansdóttir
Hamberg.
Laufey Pálsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar