Morgunblaðið - 07.06.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Sláttur er hafinn. Einna mesta sprettan á þessu ári
er í miðhluta Fljótshlíðar. Á bæjunum Teigi og
Butru hófst sláttur um helgina. Á Teigi voru slegnir
alls um fimm hektarar. Ekki er vitað til þess að haf-
inn sé sláttur víðar en á Holtsseli í Eyjafirði var sleg-
inn um helgina rúmlega einn hektari.
Á Teigi var byrjað á nýrækt sem friðuð hefur ver-
ið fyrir beit. Þetta reyndist mjög góð slægja. „Það
var sáð í þetta í fyrrasumar, góðum grastegundum.
Svo var borið snemma á og stykkið friðað,“ segir
Guðni Jensson, bóndi.
Jens Jóhannsson, fyrrverandi bóndi á Teigi, segir
óvanalegt að byrjað sé svona snemma. „Það er sjald-
an byrjað fyrr en 17. til 20. júní, eða jafnvel seinna. Í
fyrra var ekki byrjað að slá fyrr en komið var undir
mánaðamót.“ Hann getur þess að í sumar hafi verið
meiri raki í mið-hlíðinni en víða annars staðar, þar
hafi gert fjallaskúrir. „Hingað kom ráðunautur sem
verið hefur að flækjast um mestallt land. Hann sagði
að gróður hér væri einna lengst kominn,“ segir Jens.
Pétur Guðmundsson, bóndi í Stóru-Hildisey I í
Landeyjum, telur að sláttur þar um slóðir hefjist
ekki fyrr en eftir viku eða hálfan mánuð. Grasið vaxi
vel í hlýindunum en það mætti alveg vökna aðeins.
„Við slógum rúman hektara á laugardaginn. Það
er hólf sem við beitum og grasið var orðið of mikið,“
segir Guðmundur Jón Guðmundsson, bóndi í Holts-
seli í Eyjafirði. Hann telur að nærri hálfur mánuður
sé í það að hægt verði að hefja alvöru heyskap í
Eyjafirði. „Það er allt að skrælna hér. Hér í Holtsseli
hefur úrkoman verið 0,2 millimetrar frá því fyrstu
dagana í maí. Grösin skrölta á hálfum hraða,“ segir
Guðmundur. Sem dæmi um þetta nefnir hann að að-
eins hafi þurft að slá lóðina við íbúðarhúsið einu
sinni en þann blett þurfi alltaf að vera að slá í betri
árum. helgi@mbl.is
Ljósmynd/Guðni Jensson
Heyskapur Sláttur á Teigi hófst á laugardag og síðdegis í gær átti að byrja að rúlla uppskerunni.
Fyrstir í Fljótshlíð
Fjallaskúrir gefa gróðrinum í Mið-Hlíðinni forskot
Sláttur hafinn Vika eða tvær í almennan heyskap
Benedikt Bóas
Viðar Guðjónsson
Sólarhringsvakt er í gjaldskýli norð-
an Hvalfjarðar og þaðan er beint
símasamband við slökkvilið. Sívöktun
er á 57 myndavélum en alls vakta hátt
í 100 myndavélar Hvalfjarðargöngin.
Viðbragðsáætlun sem fór af stað við
harðan árekstur í göngunum á sunnu-
dag gekk vel og æfingar sem haldnar
eru reglulega í göngunum skiluðu
sínu.
Einn lést og fjórir slösuðust í alvar-
legasta umferðarslysi í Hvalfjarðar-
göngum frá því þau voru opnuð sum-
arið 1998. Líðan hinna slösuðu er eftir
atvikum, samkvæmt upplýsingum frá
Landspítalanum.
„Það er til sérstök viðbragðsáætl-
un við Hvalfjarðargöngin sem er
virkjuð og ákveðið kerfi sem fer í
gang,“ segir Ómar Smári Ármanns-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í
slysi eins og varð á sunnudag tók lög-
reglan yfir.
„Allt starf gekk vel í göngunum.
Þar eru haldnar æfingar reglulega
þar sem ákveðin atvik eru æfð. Menn
eru því vel samstilltir í viðbrögðum,“
segir Ómar.
Fimm manns voru í bílunum sem
rákust saman í göngunum. Ökumenn
og farþegar í báðum bílum voru flutt-
ir á Landspítala í Reykjavík í sjúkra-
bílum og þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar. Voru göngin lokuð í um þrjár
klukkustundir vegna slyssins.
Tölvubúnaður greinir frávik
Vaktmaður í gjaldskýli getur rofið
útsendingar útvarps og flutt vegfar-
endum í göngunum tilkynningar, ef
ástæða þykir til. Það var þó ekki gert,
að sögn Gylfa Þórðarsonar, fram-
kvæmdastjóra Spalar.
„Mínir menn sem voru niðri í göng-
um sögðu að þetta hefði gengið mjög
vel fyrir sig. Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu tók yfir og sýndi fum-
lausa frammistöðu. Viðbragðsáætlun
í gang við svona slys og hún virkaði
mjög vel,“ segir Gylfi.
Tölvubúnaður sívöktunarkerfisins
greinir á sjálfvirkan hátt öll frávik frá
því sem talið er eðlilegt ástand og læt-
ur vaktmenn í gjaldskýli til dæmis
vita ef bílar lenda í árekstri.
„Það er sívöktunarkerfi í göngun-
um og um leið og eittvað svona gerist
kemur það upp í gjaldskýli. Vaktmað-
ur lokar þá göngunum og hringir í
Neyðarlínuna. Það er hægt að koma
skilaboðum til ökumanna í gegnum
Rás 1 og 2 og Bylgjuna en það var
ekki gert svo ég viti. Annar sem er í
gjaldskýlinu þarf að fara niður í göng,
svo öryggisstjórinn og svo koll af
kolli. Það var gott að þyrlan var stutt
frá, því að hún kom á örskotsstundu.
Lögreglan, sjúkralið og slökkvibílar
komu einnig á skömmum tíma beggja
vegna. Það gekk allt upp,“ segir Gylfi.
Önnur göng öryggis vegna
Ekki kom upp eldur í slysinu en
engu að síður er vert að velta fyrir sér
brunavörnum í kjölfar þess.
Björn Karlsson, forstjóri Mann-
virkjastofnunar, segir ýmsar aðferðir
til að minnka áhættuna. Ein sé sú að
gera önnur göng við hliðina sem hægt
sé að nota sem björgunargöng. „Sam-
kvæmt stöðlum Vegagerðarinnar
sætta þeir sig við þá áhættu sem
þarna er. En við sem hugum að
brunamálum, slökkviliðin og Mann-
virkjastofnun, viljum bæta þarna
brunavarnir. Stærsta málið í því yrði
að byggja önnur göng, sem gætu
þjónað sem björgunargöng.“
Unnið vel eftir
áætlun Spalar
Æfingar í göngunum skiluðu sínu
Morgunblaðið/Golli
Banaslys Frá vettvangi slyssins í
Hvalfjarðargöngum á sunnudag.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Stjórnmálaflokkarnir eru byrjaðir að undir-
búa alþingiskosningar í haust en eru misjafn-
lega langt komnir í þeirri vinnu.
Listar líklega í ágúst
Valgerður Björk Pálsdóttir, framkvæmda-
stjóri Bjartrar framtíðar, sagði að flokkurinn
hefði ráðið kosningastjóra fyrir síðustu helgi.
Þriggja manna teymi sem vinnur að kosn-
ingaundirbúningi hefur hafið störf. Sex manna
valnefnd mun leggja fram tillögu að framboðs-
listum í öllum kjördæmum. Svo þarf 80 manna
stjórn að samþykkja framboðslistana. Stjórn-
in heldur væntanlega fund í ágúst. Líklegt er
að framboðslistar verði lagðir þar fram.
Fimm leiðir hjá Framsókn
Einar Gunnar Einarsson, framkvæmda-
stjóri Framsóknarflokksins, sagði fimm leiðir
koma til greina við að velja á framboðslista.
Þær væru: Opið prófkjör eða lokað, póstkosn-
ing, tvöfalt kjördæmisþing eða uppstilling.
Kjördæmisþing ákveða hvaða aðferð er not-
uð í kjördæminu. Þau eru boðuð með 2-3
vikna fyrirvara eftir því hvert kjördæmið er.
Ekkert þing hefur enn verið boðað.
Fyrsta prófkjörið 20. júní
Píratar hafa ráðið kosningastjóra og eru að
undirbúa prófkjör sem haldin verða í öllum
kjördæmum.
Fyrsta prófkjörið verður í Norðausturkjör-
dæmi. Framboðsfrestur er runninn út og hefst
rafrænt prófkjör í kosningakerfi Pírata 20.
júní og stendur í viku. Önnur kjördæmisráð
eru að undirbúa prófkjör en hafa ekki ákveðið
dagsetningar.
Píratar halda aðalfund um næstu helgi. Sig-
ríður Bylgja Sigurjónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Pírata, taldi að það myndi skýrast eftir
aðalfundinn hvenær önnur prófkjör yrðu hald-
in.
Hófst með landsfundinum
Landsfundur Samfylkingarinnar um síð-
ustu helgi var upphafið á kosningabaráttu
flokksins, að sögn Kristjáns Guy Burgess,
framkvæmdastjóra flokksins.
Kjördæmisráð eru að funda og þau munu
ákveða hvernig og hvenær valið verður á
framboðslista. Kristján sagði einhverja komna
langt í undirbúningsvinnu. Hann taldi að mál-
in myndu skýrast þegar liði á mánuðinn.
Framkvæmdastjórn og þingflokkur halda
sameiginlegan fund í vikunni og ný stjórn
flokksins kemur saman á morgun.
Prófkjör og kjördæmisþing
Sjálfstæðisflokkurinn hefur hafið undirbún-
ing alþingiskosninga, að sögn Þórðar Þór-
arinssonar framkvæmdastjóra.
Prófkjör verða í Norðvesturkjördæmi,
Suðurkjördæmi og Suðvesturkjördæmi.
Fundur verður í Reykjavíkurkjördæmum í
dag og liggur fyrir honum tillaga um að halda
prófkjör. Þá hefur verið ákveðið að halda tvö-
falt kjördæmisþing í Norðausturkjördæmi.
Fulltrúar í kjördæmisráði og varamenn þeirra
munu þá koma saman og stilla upp lista.
Þórður sagði stefnt að því að prófkjörin og
val á framboðslista færu fram um mánaðamót
ágúst og september.
Forval eða uppstilling
Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmda-
stjóri Vinstri grænna (VG), sagði að undir-
búningur væri hafinn. Þau færu sér þó ekki
að neinu óðslega enda lægi kjördagur ekki
enn fyrir. Að hennar sögn eru félagsfundir
haldnir í kjördæmunum um hvaða leið verður
farin við val á framboðslista; forval eða upp-
stilling.
Björg Eva gerði ráð fyrir uppstillingu í
Suðurkjördæmi og líklega einnig í Norð-
austurkjördæmi. Ekki hefur verið ákveðið
hvaða leið verður farin í öðrum kjördæmum. Í
kvöld verður haldinn fundur VG í Reykjavík
um hvaða leið verður farin við val á framboðs-
listana þar.
Stilla upp í öllum kjördæmum
Stjórn Viðreisnar er byrjuð að undirbúa
kosningabaráttu. Benedikt Jóhannesson for-
maður sagði að uppstillingarnefndir myndu
stilla upp listum í öllum kjördæmum. Væntan-
lega lægju listarnir fyrir snemma í september.
Flokkarnir búa sig undir kosningar
Flokkarnir fara mismunandi leiðir við að velja frambjóðendur á lista Opin eða lokuð prófkjör,
uppstilling, forval eða tvöföld kjördæmisþing Prófkjör Pírata í NA-kjördæmi hefst 20. júní
Morgunblaðið/Ómar
Kosningar Flokkarnir undirbúa nú að velja
fólk á framboðslista fyrir næstu kosningar.