Morgunblaðið - 07.06.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016
Gengisskráning 6. júní 2016
Kaup Sala Mið
DOLLARI 122,89 123,47 123,18
STERLINGSPUND 176,86 177,72 177,29
KANADADOLLARI 94,78 95,34 95,06
DÖNSK KRÓNA 18,718 18,828 18,773
NORSK KRÓNA 14,951 15,039 14,995
SÆNSK KRÓNA 15,055 15,143 15,099
SVISSN. FRANKI 125,89 126,59 126,24
JAPANSKT JEN 1,1458 1,1526 1,1492
SDR 173,43 174,47 173,95
EVRA 139,24 140,02 139,63
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 173,1534
Heimild: Seðlabanki Íslands
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Icelandair flutti 320 þúsund farþega í
millilandaflugi í síðasta mánuði og voru
þeir 20% fleiri en í maí á síðasta ári, að
því er fram kemur í upplýsingum frá
Icelandair Group til Kauphallar. Fram-
boð í sætiskílómetrum jókst hins vegar
um 25% og dróst því sætanýting lítil-
lega saman, úr 79,7% í 77,5% miðað
við maí í fyrra.
Alls hefur millilandafarþegum fjölgað
um 19% hjá flugfélaginu á fyrstu fimm
mánuðum ársins og eru þeir nú komnir
yfir 1,1 milljón.
Seldum gistinóttum á hótelum Ice-
landair Group fjölgaði um 5% miðað við
maí 2015. Herbergjanýting var 79,4%.
Icelandair komið yfir
milljón farþega í ár
● Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs nam
27,1 milljarði króna á fyrsta þriðjungi
ársins, sem er verulegur bati miðað við
sama tímabil í fyrra þegar það var nei-
kvætt um 35,7 milljarða. Þetta kemur
fram í greiðsluuppgjöri ríkissjóðs fyrir
janúar til apríl, en það gefur upplýsingar
um afkomu ríkissjóðs á grundvelli inn-
heimtra tekna og greiddra gjalda. Aukið
handbært fé á þessu ári skýrist að
stærstum hluta af tekjum af stöðug-
leikaframlagi sem námu 17 milljörðum í
janúar og 25 milljörðum í mars.
Handbært fé frá rekstri
ríkisins 27 milljarðar
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
„Ef fjöldi bílaleigubíla er seldur í
einu getur það haft áhrif á markað
með notaða bíla,“ segir Egill Jó-
hannsson, for-
stjóri bifreiða-
umboðsins
Brimborgar sem
jafnframt á og
rekur Thrifty-
bílaleiguna. Sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá Sam-
göngustofu eru
nú um 22 þúsund
bílaleigubílar til
útleigu fyrir ferðamenn hér á landi.
Bílaleiguflotinn hefur vaxið hraðar
en fólksbílaflotinn í heild sinni og
hlutfall bílaleigubíla því aukist af
heildinni. Þannig voru bílaleigubílar
um 2,4% af flotanum árið 2006 en
6,8% árið 2015. Hefur hlutfallið því
tæplega þrefaldast á þessu tímabili.
Fari fram sem horfir mun hlutfall
bílaleigubíla af heildarflota halda
áfram að vaxa á þessu ári.
Lengra leigutímabil
Þessa bíla þarf að selja svo að
eðlileg endurnýjun í flotanum geti
átt sér stað. Í skýrslu Íslandsbanka
um ferðaþjónustuna frá því í febr-
úar segir að helsta fyrirsjáanlega
hættan af stórum bílaleiguflota
gæti legið í endursölu á notuðum
bílaleigubílum út á hinn almenna
markað. Ekki verði auðveldlega
spáð fyrir um hvenær flotinn verði
of stór fyrir endursölumarkað not-
aðra bíla.
Egill segir nýtingu bílanna
breytta frá því sem fyrr var. Nú
séu bílaleigur að halda stærri hluta
flotans í rekstri yfir veturinn. Af-
leiðing þess sé að bílarnir séu meira
eknir og ódýrari í endursölu og
höfði þannig til annars markhóps.
„Yfirleitt er miðað við það að lág-
marki að sá tími sem bíll er í leig-
ustarfsemi nái yfir tvö sumur. En
þessi mikla fjölgun ferðamanna til
landsins hefur dreifst yfir árið og
það jafnar út árstíðasveiflur í
rekstrinum. Maí og september eru
orðnir risastórir. Bílarnir eru því
meira notaðir núna en var og það
hefur þau áhrif að sala á bifreið-
unum er á öllum árstímum. Því hef-
ur dregið úr söluálagi notaðra bíla-
leigubíla á haustin.“
Að sögn Egils eru notaðir bíla-
leigubílar yfirleitt góð söluvara og
hagsmunir bílaleiganna að fá sem
best verð fyrir bíla sína. „Þetta eru
almennt mjög góðir bílar og hafa
fengið þjónustu í samræmi við regl-
ur framleiðenda. Það eina sem
greinir þá frá öðrum bílum er að
þeir eru að jafnaði meira keyrðir,
sem kemur líka fram í verðinu,“
segir Egill. „Við erum að selja bíla
úr flotanum allan ársins hring.“
Sala úr landi óraunhæf
Aðspurður segir Egill ekki raun-
hæft að ætla að selja notaða bíla-
leigubíla úr landi. „Annars vegar
eru há gjöld á bílum á Íslandi. Jafn-
vel þó að gjöld á bílaleigubíla séu
niðurfelld að hluta er verið að
draga úr þeim niðurfellingum. Víða
eru engin gjöld á bílaleigubílum,
svo sem í Þýskalandi og Bretlandi.
Hins vegar er flutningskostnaður
mikill ef flytja á bíl úr landi. Ég sé
því ekki að þetta sé raunhæft. Not-
aðir bílaleigubílar verða áfram seld-
ir á Íslandi.“
Hætta á að endursala bíla-
leigubíla muni hafa áhrif
Morgunblaðið/RAX
Floti Bílaleigubílar eru meira notaðir nú en var og það hefur þau áhrif að sala á bifreiðunum er á öllum árstímum.
Leiga á bílum
» Um þessar mundir eru starf-
andi 150 bílaleigur hér á landi
og eru skráðir bílaleigubílar
um 22 þúsund.
» Í tölum Íslandsbanka kemur
fram að velta bílaleigufyrir-
tækja hafi verið 33 milljarðar
árið 2015.
» Þar er því einnig spáð að
bein fjárfesting bílaleiganna í
bifreiðum nemi 22,5 milljörð-
um í ár.
22 þúsund bílaleigubílar á landinu Óraunhæft að flytja bílaleigubíla utan á ný
Egilll Jóhannsson
Töluverður óróleiki einkenndi verð-
bréfamarkaði hér á landi í gær og
féllu bæði hlutabréf og skuldabréf í
verði. Hækkaði ávöxtunarkrafa
óverðtryggðra ríkisskuldabréfa um
nærri 30 punkta. Þá lækkaði Úrvals-
vísitala Kauphallarinnar um 1,75% í
4,5 milljarða króna viðskiptum.
Stefán Broddi Guðjónsson, for-
stöðumaður greiningardeildar Arion
banka, segir að lækkunin skýrist
aðallega af reglum Seðlabankans
sem gefnar voru út á laugardag.
„Sett er bindiskylda sem dregur úr
fýsileika fyrir erlenda fjárfesta að
koma inn í skamman tíma. Það mun
eflaust hafa áhrif á eftirspurn á
skuldabréfamarkaði.“
Stefán bendir á að erlendir fjár-
festar hafi verið nokkuð virkir fjár-
festar á skuldabréfamarkaði síðustu
misserin, ekki síst á bréfum með
lengri líftíma. „Þannig keyptu er-
lendir aðilar ríkisskuldabréf fyrir
um 20 milljarða á fyrstu fjórum mán-
uðum ársins og liðlega 60 milljarða á
síðari árshelmingi í fyrra. Þegar
menn sjá fram á að eftirspurn frá er-
lendum aðilum minnki hefur það
töluverð áhrif á verð á markaðnum.“
Stefán telur að þessar reglur muni
örugglega lita þróunina á markaði
áfram en erfitt sé að spá fyrir um í
hvaða átt þróunin verði. „Þessar
nýju reglur höfðu líka áhrif á
verðþróun hlutabréfamarkaðar.
Ríkisbréf eru grunnurinn að verð-
lagningu í öllum eignaflokkum í
krónum og ef ávöxtunarkrafa hækk-
ar á ríkisbréf gera fjárfestar sjálf-
krafa hærri kröfu á allar aðrar eignir
í krónum.“ jonth@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Markaðir Sviptingar hafa orðið eftir
að Seðlabankinn fékk ný stýritæki.
Óróleiki í Kaup-
höllinni í gær
Lækkanir vegna
nýrra stýritækja
Seðlabankans
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino