Morgunblaðið - 07.06.2016, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 07.06.2016, Qupperneq 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016 Magnús var í sveit á Hraðastöðum í Mosfellsdal og í Óskoti við Hafra- vatn. Hann starfaði í skátahreyfing- unni og með Hjálparsveit skáta í Reykjavík 1967-73, bar út Morgun- blaðið með skóla og var sendisveinn, hjá Alþýðublaðinu og Gunnari Ás- geirssyni hf.. Hann var umboðs- maður hljómsveitanna Tóna og Són- et, tónleikahaldari, sölumaður hjá heildverslunum 1975-79, starfaði við verslun föður síns og var leigubíl- stjóri í Reykjavík frá 1989. „Ég var alltaf sleipur í ensku og áður en ég vissi af var ég orðinn leið- sögumaður fyrir enskumælandi ferðamenn sem tóku leigubíl hjá mér. Ég hef lengi haft áhuga á ferð- um um landið og sögu lands og þjóð- ar og dreif mig því í leiðsögunám, stofnaði ferðaþjónustuna Green Energy Travel og hef síðan sinnt akstri og leiðsögn fyrir ferðamenn. Það er skemmtilegt starf, hafi mað- ur á annað borð áhuga á því að fræða fólk um það sem fyrir augu ber.“ Fjölskylda Magnús kvæntist 1974 Jóhönnu Björk Jónsdóttur, f. 19.1. 1954, þroskaþjálfa. Hún er dóttir Jóns Adolfssonar, f. 15.6. 1927, d. 12.10. 1982, verslunarstjóra, og Matthildar Sigurjónsdóttur, f. 21.9. 1929, d. 24.11. 2011, húsfreyju í Reykjavík. Fósturfaðir Jóhönnu var Elíeser Jónsson, f. 20.4. 1926, d. 24.11. 2013, flugmaður og forstjóri Flugstöðvar- innar. Börn Magnúsar og Jóhönnu eru Andrea Þórey, f. 11.4. 1977, nemi í sálfræði í Pennsylvaníu í Bandaríkj- unum, en maður hennar er Elmar Freyr Víðisson kerfisfræðingur og eru synir þeirra Kristófer Leó, f. 1998, Ísak Þór, f. 2008, og Jóhann Elí, f. 2010; Elísa Sóley, f. 29.1. 1979, lögfræðingur í Reykjavík og eru synir hennar Baltasar Leví, f. 1998, og Bjarni Snæland Magnússon, f. 2007; Guðrún Björk, f. 1.2. 1990, nemi í fæðingarorlofi í Reykjavík, en maður hennar er Sigurður Ragnars Arnarsson viðskiptafræðingur og sölustjóri og er dóttir þeirra Berg- lind María, f. 2015, og Helgi Ársæll, f. 16.12. 1991, stuðningsfulltrúi við sambýli í Reykjavík og er kona hans Jóhanna Lind Þrastardóttir, leikari og leikskólakennari. Systkini Magnúsar eru Vilhjálm- ur Þór Kjartansson, f. 28.12. 1943, verkfræðingur og fyrrv. lektor við HÍ; Anna, f. 4.11. 1949, fyrrv. banka- starfsmaður; Kjartan Gunnar, f. 27.6. 1952, blaðamaður; Ingibjörg Ósk, f. 17.2. 1957, leikskólakennari; Birgir, f. 16.3. 1962, vélvirki, og Sveinn Sigurður, f. 6.7. 1967, tölv- unarfræðingur. Foreldrar Magnúsar: Kjartan Magnússon, f. 15.7. 1917, d. 3.12. 1998, kaupmaður í Reykjavík, og k.h., Guðrún H. Vilhjálmsdóttir, f. 3.11. 1922, d. 18.7. 2014, húsfreyja og kennari. Úr frændgarði Magnúsar Kjartanssonar Jóhannes Magnússon kaupm. í Rvík Klemens Jónsson skólastj. og oddviti í Vestri- Skógartjörn á Álftanesi Ísleifur Jónsson b. í Jórvík og Hraun- gerði í Álftaveri Teitur Jónsson b., úrsmiður, tré- og járn- smiður á Ferju- bakka, síðar í Borgarnesi Gróa Jónsdóttir húsfr. í Rvík Óskar Vilhjálmsson fyrsti garðyrkjustj. Rvíkurborgar Rósbjörg Beck húsfr. í Rvík Bjarni Jóhannesson yfirvélameistari hjá Landhelgisgæslunni Skúli Jóhannesson kaupm. í Tékkkristal Guðjón Klemensson læknir í Keflavík Jón Ísleifsson kennari, kórstjóri og organisti í Neskirkju í Rvík Ingveldur Teitsdóttir húsfr. í Borgarnesi Ingbjörg Teitsdóttir húsfr. í Rvík Þorkell Teitsson kaupm. og símstöðvarstj. í Borgarnesi Helgi Sigurðsson verkfr. og fyrsti hitaveitustj. Rvíkur Helgi Vilhjálmsson verkfr. í Þýskalandi Þórólfur Beck helsta knattspyrnukempa KR, Glasgow Rangers og Íslendinga á árum áður Vilhjálmur Skúlason framkv.stj. Teitur Jónasson forstjóri Ásgerður Búadóttir veflistakona Oddný Teitsdóttir húsfr. í Borgarnesi Trausti Jónsson veður- fræðingur Andreas Böhne framhalds- skólakennari í Þýskalandi Unnur Birna Vilhjálmsd. alheims- fegurðar- drottning Guðríður Klemensdóttir húsfreyja í Jórvík Jón Jónsson b. í Jórvík í Álftaveri Þórey Jónsdóttir húsfreyja í Rvík Vilhjálmur Árnason húsasmíðameistari í Rvík Guðrún H. Vilhjálmsdóttir húsfr. og kennari í Rvík Ingibjörg Teitsdóttir húsfr. á Hvanneyri Árni Jónsson b. á Ausu í Andakíl Rósbjörg Hallgrímsdóttir húsfreyja í Vindási Jóhannes Bjarnason b. í Vindási í Eyrarsveit Guðrún Jóhannesdóttir húsfr. á Hellissandi og í Rvík Magnús Sigurðsson sjóm. á Hellissandi og í Rvík Kjartan Magnússon kaupmaður í Rvík Þóra Kristbjörg Magnúsdóttir húsfreyja í Norska húsinu Sigurður Ólafur Sigurðsson útvegsb. í Norska húsinu í Ólafsvík Magnús Kjartansson Tómas fæddist að Kúhól íLandeyjum 7.6. 1807, sonurSæmundar Ögmundssonar, dbrm. í Eyvindarholti, og Guðrúnar Jónsdóttur. Sæmundur var sonur séra Ög- mundar, á Krossi, bróður séra Böðv- ars í Holtaþingum, föður séra Þor- valdar í Holti, forföður ýmissa menningarforkólfa, s.s. Vigdísar Finnbogadóttur, Matthíasar Jo- hannessen og Gylfa Þ. Gíslasonar. Kona Tómasar var Sigríður Þórð- ardóttir, sýslumanns í Garði Björns- sonar og komust upp tvö börn þeirra, Þórhildur, kona Helga Hálf- dánarsonar lektors, og Þórður, héraðslæknir á Akureyri. Tómas lærði hjá Steingrími Jóns- syni í Odda, síðar biskupi, lauk stúd- entsprófi frá Bessastaðaskóla 1827, tók 2. lærdómspróf við Hafnarhá- skóla, lauk próf í hebresku 1831 og guðfræðiprófi 1832. Hann ferðaðist um Suður-Evrópu 1832-34 og stofn- aði Fjölni, er hann kom til baka, ásamt Jónasi Hallgrímssyni, Brynj- ólfi Péturssyni og Konráð Gíslasyni. Tómas fékk Breiðabólstað í Fljótshlíð 1834, varð prófastur Rangárþings 1836 og hélt Breiðaból- stað til dánardags. Hann var líklega áhugasamastur og raunsæjastur um Fjölni, skrifaði mikið í ritið og gagn- rýndi Konráð fyrir ofstæki í staf- setningarmálum og Jónas fyrir rót- tækni og harða gagnrýni á menn. Tómas er, ásamt Baldvini Ein- arssyni, Jónasi og Jóni Sigurðssyni, helsta ættjarðar- og frelsishetja þjóðarinnar á 19. öld. Hans var sárt saknað er hann lést 17.5. 1841. Jónas samdi æviágrip um Tómas og Steingrímur Thorsteinsson skrif- aði um hann í bókaflokknum Merkir Íslendingar. Á legstað hans á Breiðabólstað er minnisvarði þar sem greypt er andlitsmynd hans úr marmara og þrjár myndir úr lífi hans. Um Tómas orti Jónas frægt saknaðarljóð, en síðari hluti síðasta erindisins er á þessa leið: „Flýt þér, vinur, í fegra heim; krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim.“ Merkir Íslendingar Tómas Sæ- mundsson 90 ára Ingibjörg Aðalsteinsdóttir 85 ára Anna Emilía Viggósdóttir Gríma Sveinbjörnsdóttir Guðjón Guðmundsson Jónatan Aðalsteinsson Jón Skagfjörð Stefánsson Karitas Ólafsdóttir Nanna L. Pedersen Nanna Sigfríður Þorleifsdóttir Sigurður J. Ágústsson Sjöfn Jóhanna Haraldsdóttir Svanhildur Jóhannesdóttir 80 ára Anna Guðmundsdóttir Brynjólfur Samúelsson Haukur Þorkelsson Herdís Jónsdóttir Kristján Þorkelsson Sigurður Sigurþórsson 75 ára Emhild Kjærtrud Olsen Gerður Ólafsdóttir Gestur Steinþórsson Magnús Ingvarsson Nanna Þórðardóttir Vigfús Jónsson 70 ára Björg Magnúsdóttir Finnur Birgisson Kjartan Jeremíasson Magnús R. Kjartansson 60 ára Benjamín Kristinsson Björn Guðmundsson Guðríður Sigurðardóttir Hrólfur Björnsson Ingunn Kristín Guðjónsdóttir Ketill Hólm Freysson Matthildur Ágústsdóttir Rut Magnúsdóttir Sigurbjörn Marinósson Sigurjón Ingi Ingólfsson 50 ára Berta Gerður Guðmundsdóttir Chuai Thongsawat Hrönn Pétursdóttir Ingunn Steingrímsdóttir Jun Gaviola Malana Sigurbjörg Jóhannesdóttir 40 ára Ann-Dörte Kyas Arnar Oddfríðarson Atli Eggertsson Ásgeir Bachmann Erla Birna Birgisdóttir Eva Lára Hauksdóttir Guðlaugur Júníusson Hildur Markúsdóttir Jökull Þór Ægisson Kristinn Júníusson Marta María Jónsdóttir Runólfur Geir Benediktsson Sigríður Björk Þórisdóttir Sigríður Ósk Kristinsdóttir Simon Karstensen Þórunn Bolladóttir 30 ára Haukur Þorsteinsson Iulian-Ionut Burlacu Miroslav Georgiev Karakolev Sebastian Wieslaw Witwicki Þórunn Skúladóttir Til hamingju með daginn 30 ára Þórunn ólst upp í Reykjavík, býr þar og stundar nám í þroska- þjálfunarfræði við HÍ. Maki: Særós Rannveig Björnsdóttir, f. 1982, rek- ur tómstundamiðstöð í Hafnarfirði. Börn: Embla Margret Sæ- rósardóttir, f. 2001, og Oddur Hersveinn Særós- arson, f. 2015. Foreldrar: Þuríður Pét- ursdóttir, f. 1956, og Skúli Oddsson, f. 1954. Þórunn Skúladóttir 30 ára Haukur ólst upp í Garðabænum, er bú- settur þar, lauk stúd- entsprófi frá FG og stundar nú nám í lög- fræði við Háskólann í Reykjavík. Systir: Halldóra Þor- steinsdóttir, f. 1984, lög- fræðingur. Foreldrar: Ingibjörg Hauksdóttir, f. 1957, deildarstjóri við LSH, og Þorsteinn Gunnarsson, f. 1954, skrifstofustjóri hjá MATVÍS. Haukur Þorsteinsson 40 ára Þórunn lauk B.Sc.-prófi í líffræði frá HÍ, atvinnuflugmanns- prófi og er flugmaður hjá Wow air. Maki: Sigurgeir Guð- laugsson, f. 1976, við- skiptafræðingur. Börn: Aron Fannar, f. 1998; Ísak Andri, f. 2003, og Guðlaugur Breki, f. 2006. Foreldrar: Halla Lár- usdóttir, f. 1945, d. 2009, og Bolli Þór Bollason, f. 1947. Þórunn Bolladóttir Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is 40 ára Stýrðu birtunni heima hjá þér OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku PLÍ-SÓL GARDÍNUR Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.