Morgunblaðið - 07.06.2016, Side 36

Morgunblaðið - 07.06.2016, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 159. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Var í fólksbifreið á norðurleið 2. Veiðiþjófar staðnir að verki 3. Atvinnuviðtal endaði með … 4. Innlit í herbergið hennar Ísabellu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tenórsöngvarinn Þorsteinn Arn- björnsson hlýtur lof gagnrýnanda New York Times fyrir frammistöðu sína í uppfærslu Loft Opera á óperu Rossini, Le comte Ory, Ory greifa, sem sýnd er í Muse í Brooklyn í New York í leikstjórn John de los Santos. Þorsteinn syngur titilhlutverk óper- unnar, hlutverk Ory greifa, sem gagn- rýnandinn, Zachary Woolfe, segir liggja „skelfilega hátt“ fyrir raddsvið tenórsins. Þorsteinn leysi verkefnið engu að síður með glæsibrag og búi yfir persónutöfrum. Þorsteinn nam söng hér á landi áð- ur en hann hélt til Bandaríkjanna til náms við Oklahoma-háskóla árið 2003 og síðar við Oberlin-tónlistar- háskólann. Hann hefur m.a. sungið við óperuna í Sarasota og í Santa Fe og þreytti frumraun sína á sviði vestra í Le Rossignol eftir Stravinskíj með sinfóníuhljómsveitinni í Cleve- land. Hampað fyrir túlkun sína á Ory greifa  Tríó píanóleikarans Sunnu Gunn- laugsdóttur kemur fram á djass- kvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30. Með Sunnu leika í tríóinu þeir Þor- grímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Þau munu flytja djass- standarda og frum- samda tónlist. Þetta verða síðustu tónleikar tríósins á Íslandi áður en þau halda til Ítalíu. Tríó Sunnu leikur djass á Kex hosteli Á miðvikudag Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, skýjað með köflum og nánast þurrt. Hiti 12 til 19 stig, hlýjast fyrir vestan og í innsveitum á Norðurlandi. Á fimmtudag og föstudag Austanátt. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-13 m/s við suðurströndina og þykknar heldur upp en rofar til fyrir norðan. Líkur á stöku síð- degisskúrum um landið fyrir vestan. Hiti 10 til 18 stig að deginum. VEÐUR Aníta Hinriksdóttir og Ásdís Hjálmsdóttir náðu báðar besta árangri sínum á árinu á sterku móti sem fram fór í Prag í gær. Aníta hjó nærri Ís- landsmeti sínu í 800 metra hlaupi þegar hún sigraði á tímanum 2:00,54 mínútum, sem er aðeins 5/100 úr sek- úndu frá metinu. Þá hafnaði Ásdís í þriðja sæti í spjót- kasti þegar hún þeytti því 61,37 metra, sem er lengsta kast hennar á árinu. »1 Aníta og Ásdís gerðu vel í Prag „Ég held að fæstir leikmenn í deild- inni þoli Davíð Viðarsson inni á vell- inum, eins góð manneskja og hann er svo fyrir utan völlinn. Ég hef talað við nokkra sem gjörsam- lega þola ekki að spila á móti Davíð en það er auðvitað fyrst og fremst út af því hversu góð- ur fótbolta- maður hann er,“ segir leikmaður FH um fyrirliða liðsins. »4 Flestir þola ekki Davíð inni á vellinum „Við erum mjög ánægðar með það að geta tryggt okkur sætið á EM strax. Við höfum þurft að hafa mikið fyrir því að komast í þessa stöðu og von- andi klárum við dæmið núna. Mér finnst við vera á ótrúlega flottri leið,“ segir Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrir- liði kvennalandsliðsins í knattspyrnu, sem getur í kvöld tryggt sér sæti á EM 2017. »2-3 Þurft að hafa mikið fyrir þessari stöðu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þetta var skemmtilegt,“ segir Árni Snorrason, vatnaverkfræðingur og veðurstofustjóri, sem hjólaði þvert yf- ir Bandaríkin við þriðja mann, um 5.000 km á tveimur mánuðum, en Jó- hanna Bogadóttir, eiginkona Árna, ók á eftir hjólreiðafólkinu. Árni hefur lengi verið með hjóla- dellu og hefur oft hugsað um að hjóla þessa leið en ekki gefið sér tíma til þess fyrr en nú. Þegar systir hans og mágur, Anna María Snorradóttir og Bjarni Helgason, voru til í slaginn var ekkert að vanbúnaði. „Ferðin byrjaði að taka á sig mynd fyrir um tveimur til þremur árum og tækifærið kom í vor,“ segir hann. Hópurinn lagði af stað frá Corona del Mar í Kaliforníu, á milli Los Ang- eles og San Diego, og lauk ferðinni í Yorktown í Virginíu. Fyrstu og síð- ustu 20 til 30 km voru á hjólastígum en annars hjóluðu þau á þjóðvegum í 11 ríkjum. Að meðaltali hjóluðu þau tæplega 100 km á dag, oft 120-130 km undir lokin og mest 177 km. Árni segir að tímaramminn hafi verið nokkuð þröngur en þau hafi samt gefið sér tíma til þess að skoða sig um á leið- inni. Tómleikatilfinning „Við vorum óskaplega ánægð að loknu þessu verki, trúðum því ekki al- veg, en það kom líka yfir okkur ákveð- in tómleikatilfinning,“ segir Árni. „Við vorum tóm fyrstu dagana á eftir.“ Hann bætir við að ferðin hafi verið erfiðari en þau hafi átt von á. Sér- staklega hafi hæðirnar í seinni hluta ferðarinnar tekið í. „Það var upp og niður allan daginn með tilheyrandi áreynslu, auk þess sem umferðin var meiri, fleiri bæir að fara í gegnum og allt tafsamara en þegar við vorum á Route 66 og hjóluðum beint af augum dag eftir dag.“ Hópurinn var vel undirbúinn, á góð- um hjólum gerðum fyrir langferðir, fékk alltaf gistingu við hæfi og lenti ekki í teljandi vandræðum. Árni segir að aðalatriðið hafi verið að velja rétt- ar leiðir og klæðast viðeigandi fötum, því að veðrið hafi breyst hratt innan dags og milli daga. „Lykillinn að þessu vel heppnaða ferðalagi var að hafa trússara,“ segir Árni. „Það ein- faldaði marga hluti og eyddi óvissu.“ Árni segir mikinn kost fyrir mat- menn að fara í svona ferð því að borða megi eins mikið og menn geti látið of- an í sig. Í því sambandi vísar hann til þess að þegar Veðurstofan hafi farið í hjólaátak með þeim árangri að hún hafi unnið keppnina Hjólað í vinnuna tvö ár í röð, hafi hann velt fyrir sér spurningunni af hverju menn væru að hjóla og einfaldasta svarið væri til þess að geta borðað meira. „Það hefur hvatt marga til þess að hjóla,“ segir hann og bætir við að næsta verkefni sé að hjóla í liði Veðurstof- unnar í Wow-hjólreiðakeppninni í næstu viku. Hjóluðu þvert yfir Bandaríkin  Hjólaferðir heppilegar fyrir matmenn Ljósmyndir/Bjarni Helgason Á leiðinni Systkinin Anna María Snorradóttir og Árni Snorrason létu drauminn rætast í Bandaríkjunum. Næring Jóhanna, Anna María, Bjarni og Árni borðuðu vel í ferðinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.