Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 4

Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016 SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Heyskapur er hafinn víða um land. Nokkrir bændur eru komnir vel áleiðs með fyrri slátt. Spretta er ágæt, þar sem skúrir hafa bleytt svörð en víða hefur þó sprottið illa vegna þurrka. Spáð er rigningu næstu daga og binda menn vonir við að grösin taki við sér en óttast um leið að ekki verði heyskaparveður á næstunni og grösin spretti úr sér. Vantar upp á magnið Sláttur er hafinn víða í Eyjafjarð- arsveit og á Svalbarðsströnd. „Upp- skeran hjá mér er í lakari kantinum vegna þurrka. Það hefur verið ansi þurrt,“ segir Guðmundur S. Ósk- arsson, bóndi á Hríshóli. Hann áætl- ar að 10-15% vanti upp á fulla upp- skeru. „Það eru ekki miklar skemmdir í túnum en vantar upp á magnið. Það getur vel ræst úr ef við fáum vætu núna. Þá fáum við góðan seinni slátt,“ segir Guðmundur. Bændur á Hríshóli slógu 30 hekt- ara og hafa lokið við að setja í eina stæðu. „Við eigum eftir að setja í aðra, gerum það væntanlega eftir helgina,“ segir hann. Reiknar hann með að sett verði í alls fjórar stæður í sumar. Aðalsteinn Hallgrímsson, bóndi í Garði 2 í Eyjafjarðarsveit, byrjaði að slá í kringum húsin í gær. Hann er með stæðuheyskap og hefur verið að hinkra eftir sprettunni. Reiknar hann með að setja í fyrstu stæðuna um miðja næstu viku. „Ég hef verið heppinn, fékk tvær góðar dembur fyrir viku. Komið í fyrstu gryfjuna Pétur Guðmundsson, bóndi í Stóru-Hildisey I í Landeyjum, segir að margir bændur þar um slóðir hafi byrjað slátt í þessari viku. Sumt væri vel sprottið en annað miður. Hann telur að menn séu að reyna að ná einhverju strax ef eitthvert rosa- tímabil tæki nú við. Hildur Ragnarsdóttir, bóndi á Stóru-Hildisey II, segir að þau hjón- in hafi lokið við að slá 25 hektara og sett í gryfju. Það er um helmingur túnanna. Hún segir að góð uppskera hafi verið af þeim túnum sem búið er að slá en minna sé á þeim túnum sem eftir eru. „Við megum ekki missta þau í mikla vætu, þá fara þau að spretta úr sér,“ segir Hildur. Fer að skríða of snemma Sigurgeir B. Hreinsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, segir að bændur séu farnir að hafa áhyggjur af þurrkum. Þegar þrengi að fari plantan að skríða, mynda fræ, fyrr en ella. Seg- ir Sigurgeir að það kunni að koma niður á gæðum heyjanna. Ljósmynd/Hildur Ragnarsdóttir Sláttur Vel var sprottið á nýræktinni hjá Jóhanni Nikulássyni og Hildi Ragnarsdóttur í Stóru-Hildisey í Landeyjum. Uppskera af túnum í lakari kantinum  Sláttur víða hafinn  Vonast eftir sprettu eftir rigninguna Ljósmynd/Guðrún Svana Sigurjónsdóttir Brunnið Bestu túnin í Holti í Álftaveri eru gulflekkótt eftir þurrka í sumar og vor. Bóndi hefur tekið á leigu tún í Mýrdal til að reyna að bjarga sér. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Sambærilegur fjöldi rúma verður ekki í notkun á Landspítalanum í sumar og á síðasta ári, en sum- arlokun spítalans er árviss við- burður í starfseminni. Á síðasta ári voru um 19% rúmanna lokuð þegar samdrátturinn náði hámarki en í sumar verður hlutfallið 20% og nær lokunin hámarki í lok júlí. Fleiri rúmum verður lokað á lyf- lækningasviði nú en í fyrra en ástæðan fyrir því er að ekki hefur tekist að manna stöður hjúkr- unarfræðinga til að leysa þá af sem fara í sumarleyfi. Ferðamenn áhrifaþáttur Að sögn Lovísu Agnesar Jóns- dóttur, deildarstjóra flæðisdeildar Landspítalans, er gert ráð fyrir auknu álagi á Landspítala vegna lok- ananna sem og vegna þess að sjúkrahús í nágrannabyggðum dragi einnig saman. „Það þýðir að hugs- anlega verði fólki vísað til okkar sem annars hefði leitað annað. Við fáum einnig til okkar fjölda ferðamanna sem ekki er óeðlilegt miðað við þann fjölda sem streymir til landsins. Flestir koma á bráðamóttökurnar og hluti þeirra þarfnast innlagnar,“ segir hún, á sjúkrahúsinu séu einnig margir aldraðir sjúklingar sem hafi lokið meðferð en skortur á rýmum á hjúkrunarheimilum setji strik í reikninginn. Lovísa segir að valkvæð þjónusta dragist saman til að mæta minni starfsemi. „Almennu skurðdeild- irnar draga saman og bæklunar- aðgerðum fækkar. Þetta dregur úr fjölda valkvæðra aðgerða en þeim er ekki hætt. Öllum bráðatilvikum er ávallt sinnt,“ segir hún. 20% rúma ekki í notkun í júlílok  Sumarlokun verður sambærileg og á síðasta ári  Mest á lyflækningadeild Morgunblaðið/Ómar Sumarlokun Fleiri rúm verða ekki í notkun á lyflækningasviði en í fyrra. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Mikil fjölgun hefur orðið á sérútbún- um húsbifreiðum síðustu misseri, en svo virðist sem nýr hópur erlendra ferðamanna komi til landsins í þeim tilgangi að ferðast um landið og leigi sér slíkar bifreiðar til að njóta ís- lenskrar náttúru í meira návígi. Bif- reiðarnar eru keyptar til landsins og sumum þeirra breytt úr hefðbundn- um sendibílum í húsbifreiðar. Talið er að alls séu í umferð um 600-800 bifreiðar af þessum toga og sérhæfð fyrirtæki, sem bjóða upp á þessa þjónustu, hafa sprottið upp og eru nú um tíu talsins. Almennar bíla- leigur bjóða einnig svipaða kosti, allt frá tjaldvögnum til húsbíla. Til samanburðar við fjölda hinna óhefðbundnu húsbíla, eru á landinu rúmlega 20.000 bílaleigubifreiðar. Nýtt „vídeóleiguævintýri“ Sverrir Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Happy Campers, segir mjög hafa bæst í hóp fyrirtækjanna á stuttum tíma. „Það er í þessu eins og öðru. Ef einhver sér eitthvað sem gengur vel, þá gerir hann eins, ætlar að hafa minna fyrir því og græða meira. Þetta er eins og gamla vídeóleiguæv- intýrið,“ segir hann. Happy Campers var fyrsta fyrir- tækið á markaðnum árið og hefur bætt hægt og bítandi í bílaflotann frá því það var stofnað árið 2009, þá með fimm bifreiðar til leigu. „Við byrjuðum fyrst með þetta og svo hefur fyrirtækið vaxið og dafnað. Þrátt fyrir mikinn vöxt höfum við lagt áherslu á að vanda okkur og gera hlutina rétt. Við höfum frekar fjár- fest í innviðum, bakvinnslu og bak- grunni fyrirtækisins en í fjölda bíla,“ segir hann. Dregur ekki úr hótelbókunum Að sögn Steinars Lár, fram- kvæmdastjóra Kúkú Campers, er þessi atvinnugrein sístækkandi þó að hún sé lítill hluti bílaleigumarkaðar- ins. „Við erum nokkuð lukkulegir með okkar hlut. Við þjónustum kannski um 5.000 manns á ári, um 0,2% þeirra sem koma til landsins. Við höfum vaxið um ca. 20% frá því á síðasta ári,“ segir hann, en Kúkú Campers gerir nú út um 190 bíla. Spurður hvort hinir nýju húsbílar hafi dregið úr eftirspurn eftir hótel- gistingu segir Steinar svo ekki vera. „Nýting hótelherbergja er öllu meiri en nýting húsbíla. Fjölgun út- lendinga sem hingað koma er svo langt umfram þau herbergi sem eru í boði þannig það er erfitt að leiða lík- um að því að það séu mörg tóm her- bergi,“ segir hann og segir að í raun sé um tvo ólíka hópa að ræða. Sumir vilji uppábúin hótelherbergi og aðrir kjósi að sofa og ferðast í húsbílum. Fleiri gista í sérútbúnum sendibílum  Ný gerð gistiplássa ryður sér til rúms Morgunblaðið/Þórður Húsbílar Kúkú Campers hefur um 190 húsbíla til útleigu í sumar. Kæli- og frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 Hæstiréttur Ís- lands hefur stað- fest dóm Héraðs- dóms Reykja- víkur yfir konu sem fundin var sek um fjárdrátt í opinberu starfi, en hún vann sem verkstjóri í mat- sal Landspítalans í Fossvogi. Konan dró sér samtals 841.572 krónur sem voru afrakstur sölu matvara í matsalnum og greiddar höfðu verið með peningum sem henni bar að skila í öryggishólf hjá öryggisvörðum spítalans. Var refsing konunnar ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðs- bundið í tvö ár. Þá var henni gert að greiða skaðabætur sem svöruðu til fyrrgreindrar fjárhæðar. Dró sér fé á spítalanum Spítali Konan vann hjá LSH í Fossvogi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.