Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 11

Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er lífsspursmál fyrir okkur, eitt stærsta málið fyrir sveit- arfélögin í dag. Ljósleiðari eykur samkeppnishæfni okkar og almenn lífsgæði,“ segir Árni Pétur Hilm- arsson, grafískur hönnuður í Nesi í Aðaldal og fulltrúi í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar. 250 heimili tengd Sveitarstjórnin hefur allt kjör- tímabilið unnið að undirbúningi ljós- leiðaravæðingar þessa víðfeðma sveitarfélags, í samvinnu við Póst- og fjarskiptastofnun. Nú er komið að framkvæmdum. Eftir útboð á lagningu ljósleiðara að öllum heim- ilum sveitarfélagsins var ákveðið að semja við Tengi hf. um verkefnið. Það verður unnið samkvæmt þriggja ára áætlun. Byrjað verður í ágúst og fyrstu 150 heimilin tengd á þessu ári. Þau 100 heimili sem eftir eru verða tengd á næstu árum. Árni segir að netsamband í sveit- arfélaginu sé óstöðugt með þeim ör- bylgjusendum sem nú eru notaðir. Hann segist stundum hafa lent í því að verða netsambandslaus lang- tímum saman. Markaðssvæðið sé svo lítið að viljinn til að þjóna því þegar eitthvað fer úrskeiðis sé tak- markaður. Þetta veldur marg- víslegum vandræðum. Árni nefnir dæmi af sjálfum sér. Hann rekur veiðihús og hefur lent í því að geta ekki tekið við greiðslum frá hópi gesta sem var að fara vegna þess að posinn virkaði ekki þar sem netsam- band lá niðri. Hann bætir því við að netsamband sé eitt af þeim atriðum sem fólk horfir til þegar það velur sér búsetu. Mörg störf sé hægt að vinna að heiman og það geri nokkrir íbúar nú þegar þótt það sé á mörkunum að það sé hægt vegna slæms netsam- bands. Ekki hægt að bíða lengur Afar kostnaðarsamt er að leggja ljósleiðara í dreifbýli og í raun ekki hlutverk sveitarstjórnar að standa í slíku. Eins og mörg sveitarfélög mat sveitarstjórn Þingeyjarsveitar verk- efnið svo mikilvægt að ekki væri hægt að bíða lengur eftir að mark- aðurinn eða ríkið kæmu til skjal- anna. Sveitarfélagið fær styrk úr fjar- skiptasjóði út á hverja styrkhæfa tengingu og það gerði sveitarfé- laginu kleift að fara af stað. Tengi hf. bauðst til að leggja ljósleiðarann fyr- ir um 180 milljónir króna. Sveitarfé- lagið greiðir þessa fjárhæð en fær styrk úr fjarskiptasjóði. Kostnaður við ljósleiðarann er mun meiri en fyrirtækið leggur sjálft til hluta kostnaðarins gegn því að reka ljós- leiðarann sjálft. Áætlað er að tengi- kostnaður á hvert heimili verði um 200 þúsund krónur. Reiknað er með að kostnaður sveitarfélagsins sjálfs verði 50 til 60 milljónir króna vegna þeirra 250 heimila sem eru talin styrkhæf. Í sveitarfélaginu er fjöldi eyðibýla og sumarhúsa og verður þeim boðin tenging, án styrks sveit- arfélagsins. Fýsilegra til búsetu „Það breytist meira en fólk grun- ar,“ segir Árni Pétur um kosti þess fyrir íbúa að fá ljósleiðara. Hann nefnir að sveitarfélagið sé að verða betri búsetukostur, meðal annars með tilkomu Vaðlaheiðarganga og húsnæðisskorts á Húsavík vegna at- vinnuuppbyggingar þar. Ljósleið- arinn sé lóð á þá vogarskál. „Þetta stóra svæði verður eitt atvinnu- svæði. Ég held að menn hafi ekki gert sér grein fyrir því hvað þetta þýðir. Þingeyjarsveit verður fýsi- legri búsetukostur og eins verður fýsilegra að setja hér upp fyrirtæki. Fjarlægðirnar eru svo litlar að þeg- ar samgöngur verða orðnar öruggar allt árið með Vaðlaheiðargöngum verður auðvelt að flytja sig á milli,“ segir Árni Pétur. Eykur samkeppnishæfni og lífsgæði  Þingeyjarsveit stendur fyrir ljós- leiðaravæðingu í sveitarfélaginu  Netsamband hefur verið óstöðugt Morgunblaðið/Einar Falur Laugar Reykjadalur er eitt af fjölmörgum byggðarlögum í Þingeyjarsveit sem er í Suður-Þingeyjarsýslu. Hæstiréttur Íslands hefur staðfest dóm Héraðsdóms Norðurlands vestra yfir karlmanni sem fundinn var sekur um að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis. Fyrir rétti krafðist maðurinn þess að máli hans yrði vísað frá þar, en hann taldi það ekki standast lög að lögreglumaður sá sem hefði haft afskipti af honum vegna brotsins og rannsakaði málið mætti einnig annast saksókn fyrir dómi sem fulltrúi ákæruvalds. Hæstiréttur taldi lögreglumanninn ekki vanhæfan og var hinn ákærði því dæmdur í 30 daga fangelsi og sviptur ökuréttindum ævilangt. Sviptur ökurétt- indum ævilangt mbl.is Vertu upplýstur! blattafram.is FELST AÐGERÐALEYSI ÞITT Í AÐ SAMÞYKKJA KYNFERÐISOFBELDI? Klútar 3.995,- Belti Frá 6.995,- Kápa 10.995,- Blússa 7.995,- Buxur 10.995,- Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Fylgist með okkur á facebook Við höfum lækkað vöruverð Töskur Frá 6.995,- Gallajakki 9.995,- SMART Í SUMAR Myndstef auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki og ferða- og menntunarstyrki á vegum samtakanna fyrir verkefni sem unnin eru á árinu 2016. Rétt til þess að sækja um styrki Myndstefs hafa einstaklingar sem starfa sem myndhöfundar. Sérstök umsóknareyðublöð eru á vef samtakanna www.myndstef.is og þar eru einnig nánar skilgreind þau atriði sem þurfa að koma fram í umsókninni ásamt reglum um úthlutun styrkjanna. Umsóknarfrestur rennur út 16. ágúst 2016. Umsóknir sem berast eftir þann tíma fá ekki afgreiðslu. Tekið skal fram að póststimpill gildir á innsendum umsóknum. Umsóknir skulu berast til skrifstofu Myndstefs, Hafnarstræti 16, p.o.box 1187, 121 Reykjavík fyrir ofangreindan tíma. Vakin er athygli á að þeir sem sent hafa inn umsóknir um styrki fyrir birtingu þessarar auglýsingar verða að endurnýja þær umsóknir. Allar nánari upplýsingar gefur Ólöf Pálsdóttir á opnunartíma skrifstofunnar, 10:00 – 14:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið myndstef@myndstef.is Vakin er athygli á því að Myndstef áskilur sér rétt til að birta á heimasíðu sinni texta og myndir um viðkomandi verkefni í samráði við höfund þess. Stjórn Myndstefs Verkefnastyrkir og ferða- og menntunarstyrkir Myndstefs 2016

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.