Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016 og öllu vel fyrir komið þar inni,“ sagði dagblaðið Vísir eftir flutning- inn. Óx og dafnaði Viðskiptavinir Ellingsen voru um allt land, enda var fyrirtækið rekið bæði sem smásala og heildsala. Þá þjónaði það erlendum fiskiskipum ekkert síður en íslenskum. Voru til dæmis mjög traust viðskipti við Færeyinga á fyrstu árunum. Á sjötta áratugnum varð enn þörf fyrir stærra verslunarrými og var þá byggt nýtt hús undir verslunina á horni Pósthússtrætis og Tryggva- götu og veiðarfæra- og vinnufata- deildin flutt þangað. Árið 1974 flutti Ellingsen svo í nýtt húsnæði í Ána- naustum við Grandagarð og þar var hún þar til núverandi húsnæði við Fiskislóð var tekið í notkun árið 2006. Othar Ellingsen var orðlagður fyrir þá alúð og samviskusemi sem hann lagði í rekstur verslunar sinn- ar. Öryggi sjómanna og góður að- búnaður var honum ofarlega í huga. Hann vandaði til innkaupa, leitaði tilboða víða, fylgdist með nýjungum og vildi aðeins bjóða upp á vörur sem stæðust gæðakröfur. Á fyrstu starfsárum verslunarinnar komu flestar vörur hingað frá Danmörku. Ellingsen keypti hins vegar einnig vörur frá Noregi og Englandi og braut í blað þegar hann beindi við- skiptum vestur um haf. Varð hann einna fyrstur til að flytja hingað til lands frá Ameríku bensín-bátavélar sem þá voru algjör nýjung á mark- aðnum. Að Ellingsen látnum árið 1935 var stofnað hlutafélag um rekstur verslunarinnar og stýrði því sonur hans og alnafni. Hann átti eftir að marka djúp spor í sögu fyrirtæk- isins því alls var hann við stjórnvöl- inn í 58 ár, fram til 1992. Sjö árum seinna seldu synir hans Olíuverslun Íslands reksturinn. Nýir eigendur endurskipulögðu reksturinn, skildu útgerðarþjónustuna frá versluninni og færðu heildsölustarfsemi á út- gerðarvörum yfir á sölusvið Olís. Aftur á móti var áherslan lögð á hvers kyns útivistarvörur og keypt- ur rekstur fyrirtækja á því sviði, Evró, Sjóbúðarinnar og J. Vil- hjálmsson, og sameinaður versl- uninni. Stutt er síðan núverandi eigendur, hjónin Helga Sverr- isdóttir og Bjarni Ármannsson, keyptu félagið. Að sögn Helgu stefna þau að því að gera Ellingsen að alhliða útivistarverslun allrar fjölskyldunnar. Með gott orðspor alla tíð  Verslunin Ellingsen í Reykjavík fagnar 100 ára afmæli  Ein elsta verslun landsins  Seldi upp- haflega veiðarfæri fyrir vaxandi fiskiflota landsmanna  Er nú útivistarbúð allrar fjölskyldunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Verslunin Undanfarinn áratug hefur Ellingsen verið í rúmgóðu húsnæði á Fiskislóð. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja og veitir ekki af þar sem sumar vörurnar þurfa talsvert pláss, svo sem reiðhjólin og vélsleðarnir. Ljósmynd/Verslunin Ellingsen. Í miðbænum Ellingsen var lengst af á horni Hafnarstrætis og Póst- hússtrætis. Þá var steinbryggjan gamla þar sem nú er komin uppfylling. SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Verslunin Ellingsen í Reykjavík fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær, stofnuð 16. júní 1916. Hún er með elstu verslunum landsins sem enn starfa, ein hin þekktasta og hefur notið góðs orðspors alla tíð. Ell- ingsen var upphaflega stofnuð sem veiðarfæraverslun en er nú alhliða útivistarverslun. Höfuðstöðvarnar eru á Fiskislóð 1, en að auki er rek- in verslun á Tryggvabraut á Ak- ureyri. Ellingsen heitir í höfuðið á stofn- andanum, Norðmanninum Othar Ellingsen skipasmið (1875-1936). Hann flutti hingað með fjölskylduna 28 ára gamall árið 1903 til að taka við starfi framkvæmdastjóra Slipp- félagsins í Reykjavík sem þá var nýlega tekið til starfa. Starfsemi fé- lagsins stýrði hann af röggsemi og festu í tólf ár og fjölskyldan festi á þeim tíma rætur á Íslandi. Seldi útgerðarvörur Ellingsen veitti því athygli að hér skorti sérverslun til að þjóna vax- andi fiskiskipaflota landsmanna. Hann trúði því að grundvöllur væri fyrir verslun með veiðarfæri og út- gerðarvörur af ýmsu tagi. Slíka verslun opnaði hann í Kolasundi við Lækjartorg sumarið 1916 og hafði að auki á boðstólum málning- arvörur, verkfæri og ýmsan annan varning. Verslunin fékk góðar við- tökur og hálfu öðru ári seinna hafði hún sprengt utan af sér starfsemina og flutti þá í nýtt húsnæði við Hafn- arstræti 15, beint upp af stein- bryggjunni gömlu, þar sem var eitt aðalathafnasvæði hafnarinnar og miðbæjarins. Þar er nú veitinga- staðurinn Hornið. „Hefir Ellíngsen leigt vesturenda hússins niðri og vita stórir og fallegir búðargluggar með nafni hans skrautletruðu á rúð- unum út að Pósthússtræti. Búðin sjálf er rúmgóð og hátt undir loft Upphaflega kom Othar Ellingsen til Íslands til að stjórna skipa- viðgerðum í Slippnum. Hann hafði ungur hrifist af Íslandi við lestur forn- sagna. Hann greip því tækifærið til að koma hingað þegar það bauðst í byrjun síðustu aldar og hafði fjölskylduna með. Sem að- komumaður hafði hann næmt auga fyrir því sem vantaði hér. Fiskveiðar voru að verða helsta atvinnugreinin, en skorti sér- hæfða verslun og faglega þjón- ustu. Þetta varð kveikjan að því að hann opnaði sumarið 1916 verslunina Ellingsen sem sér- hæfði sig í útgerðarvörum. Fyr- irtækið hefur alla tíð haft gott orðspor og notið vinsælda. Hreifst af fornköppum KOM TIL ÍSLANDS 28 ÁRA Othar Ellingsen eldri. „Þetta eru búin að vera alveg skín- andi ár,“ segir Kristján Ág. Bald- ursson, aðstoðarverslunarstjóri Ellingsen. Um síðustu mánaðamót voru 45 ár liðin frá því að hann kom til starfa í versluninni. Hún var þá til húsa á horni Hafn- arstrætis og Pósthússtrætis, þar sem veitingahúsið Hornið er núna. Kristján fylgdi versluninni síðan yfir í Tryggvagötu, Ánanaust og loks á Fiskislóð þar sem hún er nú. Kristján var verslunarstjóri Ell- ingsen frá 1986 til 2008 og á góð- ar endurminningar um samskiptin við fyrrverandi eigendur. Hann kynntist annarri og þriðju kynslóð Ellingsena, en ættfaðirinn og stofnandinn var látinn þegar Krist- ján kom til starfa. Við störf hjá Ellingsen í 45 ár „ALVEG SKÍNANDI ÁR“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Langur tími Kristján Ág. Baldursson á að baki langan starfsaldur hjá Ellingsen. Hámarkaðu árangur þinn Á milli þín og keppinauta þinna, þarf að jafna metin. Að brjóta tímamúra. Kepptu við þá bestu með Edge 520, GPS reiðhjólatölva sem gefur þér færi á að keppa við Strava tímakafla í rauntíma og þú sérð um leið árangurinn á skjánum. Æfingin skapar meistarann Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.