Morgunblaðið - 17.06.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.06.2016, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu mun á næstu dögum taka fyrir aðfararbeiðni Kaffitárs sem fyr- irtækið lagði fram og tengist kröfu þess um að Isavia afhendi því gögn er varða samkeppni sem efnt var til í tengslum við útboð á húsnæði til útleigu í Leifsstöð. Þetta staðfestir Þuríður Árnadóttir, staðgengill Þór- ólfs Halldórssonar sýslumanns, í samtali við Morg- unblaðið. „Við reynum að bregðast skjótt við í málum af þessu tagi en það ræðst nokkuð af aðstæðum hversu fljótt það gengur fyrir sig. Fyrirtökudagur liggur ekki fyrir vegna mála sem komu inn í gær en al- mennt er boðað til fyrirtöku í svona málum tiltölu- lega fljótt og til að byrja með á skrifstofu embættis- ins. Þar könnum við afstöðu gerðarþola og hvort viðkomandi hafi í hyggju að láta af háttsemi þeirri sem innsetningin snýr að. Verði það ekki niðurstaðan er farið í aðför eða aðgerðir gagnvart gerðarþola eftir þeim reglum sem um þetta gilda“ segir Þuríður. Forsvarsmenn Isavia hafa ekki tekið afstöðu til að- fararbeiðninnar að sögn Guðna Sigurðssonar, upp- lýsingafulltrúa fyrirtækisins. Hann segir að fyrir- tækið muni taka afstöðu til framhaldsins þegar fyrirtaka verði í málinu hjá sýslumanni. „Málið snýst um viðkvæm viðskiptagögn þátttak- enda í forvali um verslunar- og veitingarými í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar. Gögnin eru ekki viðkvæm fyrir Isavia en að mati félagsins gæti verið óæskilegt að þau dreifist á milli samkeppnisaðila, þar sem hluti gagnanna er viðskiptaáætlanir, verðstefna og önnur viðkvæm viðskiptagögn. Í forvalsgögnum sem allir þátttakendur samþykktu kom einnig fram að gögnin yrðu ekki birt öðrum. Því var málinu áfrýjað til Hæstaréttar.“ Líkt og fram kom í Morgunblaðinu í gær mun kæra Isavia til Hæstaréttar á niðurstöðu héraðs- dóms um aðfarargerðina ekki fresta réttaráhrifum hennar og því mun aðförin að öllu óbreyttu fara fram áður en til kasta Hæstaréttar kemur. Bíður fyrirtöku sýslumannsins  Isavia telur enn mikilvægt að fá álit Hæstaréttar á aðfararbeiðni Kaffitárs Morgunblaðið/Rósa Braga Gögn Forsvarsmenn Kaffitárs vilja aðgang að gögnunum frá Isavia. Heildarskuldir sveitarfélaganna námu 578 milljörðum á árinu 2015. Það jafngildir því að hver lands- maður skuldi rúmlega 1,7 milljónir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu greiningardeildar Íslandsbanka um fjármál sveitarfélaga. Tekjur A- og B-hluta sveitarfélaga námu 338 milljörðum og höfðu aukist um 4% á milli ára. Gjöld jukust hinsvegar um 9%. Þannig verður samdráttur í rekstrarniðurstöðu (EBITDA) þeirra. Í skýrslunni kemur fram að rekstur sveitarfélaganna litast nokk- uð af hækkandi launakostnaði og líf- eyrisskuldbindingum. 12 milljarða aukning varð á lífeyrisskuldbind- ingum eða 136% og launakostnaður hækkaði um 11,5 milljarða. Fram kemur að rekstur sveitarfélaga sé nokkuð traustur og þau standi flest undir núverandi skuldsetningu. Hámarksútsvar er 14,52%. Reykjanesbær leggur þó hærra út- svar á íbúa sína, eða 15,05% á grund- velli undanþáguheimildar. Lægst er útsvarið hjá sveitarfélögunum Ása- hreppi, Skorradalshreppi og Gríms- nes- og Grafningshreppi. Þar er það 12,44%. jonth@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Íslandsbanki Fjárhagur sveitarfé- laga er almennt talinn traustur. Taprekst- ur sveitar- félaga  Launakostnaður jókst um 8% milli ára Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Gengisskráning 17. júní 2016 Kaup Sala Mið DOLLARI 123,22 123,8 123,51 STERLINGSPUND 174,95 175,81 175,38 KANADADOLLARI 95,92 96,48 96,2 DÖNSK KRÓNA 18,59 18,698 18,644 NORSK KRÓNA 14,785 14,873 14,829 SÆNSK KRÓNA 14,807 14,893 14,85 SVISSN. FRANKI 127,65 128,37 128,01 JAPANSKT JEN 1,1588 1,1656 1,1622 SDR 173,17 174,21 173,69 EVRA 138,24 139,02 138,63 MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 172,2703 Heimild: Seðlabanki Íslands 6 tíma örugg sólarvörn Þróuð fyrir viðkvæma húð þolir sjó, sund og íþróttir Sölustaðir | Öll apótek, Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaup, Fríhöfnin | www.proderm.is SÓLARVÖRNIN SEM HÚÐLÆKNAR MÆLA MEÐ Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð Yfir 90% UVA vörn, gegn sólskaða og hrukkum Mjúk rakafyllt sólbrún húð Létt að bera á, engin fituáferð Engin paraben, engin nanótækni, ilmefnalaust Berið oft og ríkulega á og stillið sólböðum í hóf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.