Morgunblaðið - 17.06.2016, Side 23

Morgunblaðið - 17.06.2016, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016 Hvíld Það er meira en að segja það að hjóla hringveginn og eðlilega þurfa keppendur í WOW Cyclothon að hvíla sig á milli leggja. Öxi upp af Berufirði er ákjósanlegur staður til þess. Eggert „Sú var tíð, segir í bókum, að íslenska þjóðin átti aðeins eina sameign, sem metin varð til fjár. Það var klukka. Þessi klukka hékk fyrir gafli Lög- réttuhússins á Þing- völlum við Öxará, fest við bjálka uppí kverk- inni. Henni var hringt til dóma og á undan af- tökum.“ Upphaf Íslandsklukkunnar er áminning þeirri þjóð er nú heldur upp á sjálfstæði sitt. Þessi eina sam- eign virtist hafa það notagilda eitt að áminna þjóðina um refsinguna, ár- angursríkasta og skilvirkasta refs- ingin var aftaka, því samfélagið hafði ekki efni á að halda uppi delikvent- um í refsivist. Efni þess sem á eftir kom í sögunni var að sönnu einnig refsing, húðstrýking fyrir þann mikla glæp að stela snæri. Snærið er í sögunni tákn frelsisins, því með snærinu má róa til fiskjar, en með því að róa til fiskjar gat leiguliðinn bætt afkomu sína til að losna undan bændaánauðinni. En eins og skáldið sagði: „feitur þjónn er ekki mikill maður. Barinn þræll er mikill mað- ur, því í hans brjósti á frelsið heima“. Það er einmitt frelsið sem hefur lifað í brjóstum okkar frá örófi alda, sem hefur haldið lífi í þjóðinni. Sögusvið Íslandsklukkunnar er tímabil stöðnunar í íslenskri þjóð- arsögu. Í kjölfar stöðnunarinnar koma hnignunartímabil í kjölfar Skaftárelda þar sem var mann- fækkun af hallærum sem á eftir fylgdu. Það kann að vera að hnign- unin hafi orðið mest þegar þinghaldi á Þingvöllum við Öxará lauk 1798. Síðasta þinghaldið virðist ekki hafa verið algerlega gagnslaust því enn er í gildi tilskipun um áritun afborg- unar af skuldabréfum frá 9. febrúar 1798. Þó má vera að tilskipunin hafi verið konungsverk eingöngu. Það sem á eftir fylgdi var að stjórnsýslan, sem var á biskupsstólum í Skálholti og á Hólum, flutti til Reykjavíkur biskups. Hnignun Alþingis hins forna Það er vert að rifja upp hvernig hnignun Alþingis, sem lesa má hér í upphafi, frá að- eins einni sameign, sem var klukka til að hringja á undan aftökum, og til þess tíma er Alþingi verður löggjaf- arsamkoma, sem ekki fer með dóms- vald, eins og hið gamla Alþingi gerði og með hvaða hætti hugmyndir nú- tímans koma til framkvæmda. Jafn einfaldur hlutur og að aðskilja lög- gjafarvald og dómsvald virðist koma með skynsemishyggju nítjándu ald- ar. Hvernig hugmyndin um sjálf- stæði mótast með þjóðernishyggju í upphafi nítjándu aldar. Jafnvel æv- intýri og bábiljur verða að verðmæt- um þegar hugmyndir um þjóðerni mótast. Söfnun Jóns Árnasonar og Magnúsar Grímssonar á íslenskum sjóðsögum og ævintýrum er dæmi um það. Sjálfsæðishetjan Jón Sigurðsson barðist ekki með vopnum eins og margar sjálfstæðis- og frelsishetjur gerðu. Baráttutæki hans var sagan og þekkingin. Alexander Jóhann- esson, þá rektor Háskóla Íslands, sagði í ræðu árið 1941: „Samn- ingamenn við erlendar þjóðir í versl- un, í viðskiptum, í utanríkismálum verða að standa jafnfætis að þekk- ingu þeim mönnum, er þeir eiga að semja við, og – ef vel á að vera að vera, öllu framar. Úrslit samninga jafnrétthárra aðila eru ætíð að veru- legu leyti komin undir þekkingu samningsaðila, og þekkingin ber að lokum sigur úr býtum.“ Stundum finnst greinarhöfundi þessi orð eins og að Jón Sigurðsson hafi getað sagt þetta í baráttu sinni fyrir frelsi og sjálfstæð íslensku þjóðarinnar. Endurreisn Alþingis Alþingi var endurreist árið 1845. Þá þegar var Jón Sigurðsson kosinn á þing fyrir Ísafjarðarsýslu. Endurreisn Alþingis sem ráðgjaf- arþings var einungs upphaf að rúm- lega aldarlangri baráttu þar sem áfangarnir eru nokkrir. Hinn mis- heppnaði þjóðfundur 1851 var áfangi, þó misheppnaður væri. Fundurinn var stjórnarskrárþing en engin kom stjórnarskrá það sinnið. Þegar haldið var upp á 1000 ára byggð í landinu 1874 heiðraði kon- ungur þegna sína með nærveru sinni og færði landinu stjórnarskrá. Það að Ísland fékk sérstaka stjórnarskrá var nokkur viðurkenning á sjálf- stæði innan danska konungsríkisins. Heimastjórnin árið 1904 var ann- ar áfangi. Það að Ísland átti sinn ráðherra með búsetu í landinu var mikil viðurkenning. Áður þurfti að fara með mál fyrir Íslandsráðherra í Kaupmannahöfn. Í kjölfar heima- stjórnar fylgdi stofnun Háskóla Ís- lands þar sem gamlir embættis- mannaskólar voru sameinaðir en að auki var hafin kennsla í íslenskum og norrænum fræðum í heim- spekideild. Stofnun Háskóla Íslands á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar er vísbending um að fæðingardagur Jóns Sigurðssonar skyldi verða þjóðhátíðardagur lýðveldisins þegar það yrði stofnað. Spurningin var ekki hvort heldur hvenær. Heimastjórn Svo bar við í upphafi heima- stjórnar að konungur Danmerkur og Íslands kom í heimsókn. Hápunktur heimsóknar konungs var ferðalag konungs austur í sveitir. Að ferð lok- inni, við komu í bæinn, sagði vor sæli konungur, sennilega ekki með öllu ódrukkinn: „ríkin mín tvö“, en það töldu Íslendingar staðfestingu þess að sjálfstæði væri eigi langt undan. Það er talið að konungur vor hafi mælt þessi fögru orð í brekkunni fyrir ofan Stjórnarráðið, þar sem verið var að ljúka við byggingu á Safnahúsinu. Það lá vissulega vel á kóngi í þessari Íslandsferð. Má vera að hann hafi orðið músíkalskur í ferðinni, jafnvel hitt Maurice Ravel á Þingvöllum! Það er nefnilega til póstkort frá tónskáldinu frá svip- uðum tíma, ritað á Þingvöllum. Sambandslagasamningurinn sem gerður var við Dani árið 1918 var viðurkenning á fullveldi Íslands, þar sem aðeins var eftir konungs- samband við Dani. Það var því eðli- legt framhald sambandslagasamn- ingsins frá 1918 að stofna lýðveldi við fyrsta tækifæri, þegar samning- urinn væri úr gildi fallinn. Vissulega var svo komið þá að Íslendingum þótti frelsið meira virði en lofthæð í húsum sínum þegar hér var komið sögu. Stofnun lýðveldis á Þingvöll- um 1944 var eðlilegt og rökrétt sögulegt framhald af sambandslaga- sáttmálanum. Fyrir það gat kon- ungur vor ekki þrætt, þó að sárt væri í hernuminni Danmörku. Viðurkenning umheimsins Viðurkenning stórvelda þess tíma var jafnframt forsenda þess að lýð- veldi yrði stofnað. Bandaríkin, Sov- étríkin, Bretland og útlagastjórnir Frakklands og Noregs í London sendu fulltrúa sína til að vera við- staddir stofnun lýðveldis á Þingvöll- um. Í því fólst viðurkenning. Ráða- menn á þeim tíma notuðu sjálfstæði landsins til þess að gerast aðilar að alþjóðastofnunum þegar árið 1944. Það að fá að vera við borðið var við- urkenning á tilvist Lýðveldisins Ís- land. Þó var það svo að fjárhagslegt sjálfstæði lýðveldisins hefur oft ver- ið brothætt. Á það var þjóðin ræki- lega minnt árið 2008 þegar misind- ismenn höfðu vélað um eignir fjármálastofnana þannig að Íslend- ingar urðu um sinn bónbjarg- armenn. Fátækt og misskipting hef- ur aldrei verið liðin. Fátækt og misskipting á sér rætur í atvinnu- leysi. Þá var um tíma atvinnuleysi verið notað sem hagstjórnartæki, Ís- land verður aldrei sjálfbært með 10% atvinnuleysi. Það voru ekki aðeins viðurkenn- ingar annarra þjóða sem skiptu máli. Þær viðurkenningar sem íslenskum einstaklingum hlotnuðust voru við- urkenningar til þjóðarinnar. Nób- elsverðlaun til handa Halldóri Kiljan Laxness og stórmeistaraáfangi Friðriks Ólafssonar voru okkar sigr- ar. Og einnig þegar Guðmundur Sig- urjónsson varð stórmeistari. Þá áttu Íslendingar tvo stórmeistara í skák en Danir bara einn. Og nú stöndum við Portúgölum jafnfætis í fótbolta. Frelsi, fullveldi, sjálfstæði og hinn þétti leir Á tímamótum þegar frelsi, full- veldi og sjálfstæði er til umræðu þá er vert að hugleiða orð Skáldsins þegar Skáldið veitti viðtöku þeirri æðstu viðurkenningu sem hægt er að veita skáldi: „Ég spurði mig þetta umrædda kvöld: hvað má frægð og frami veita skáldi? Vissulega vel- sælu af því tagi sem fylgir hinum þétta leir. En ef íslenskt skáld gleymir upphafi sínu í þjóðdjúpinu þar sem sagan býr; ef hann missir samband sitt og skyldu við það líf sem er aðþreingt, það líf sem hún amma mín gamla kendi mér að búa öndvegi í huga mér – þá er frægð næsta lítils virði; og svo það ham- íngjulán sem hlýst af fé.“ Þrátt fyrir viðurkenningu og hinn þétta leir þá þarf að hugleiða önnur og gömul gildi til að lifa og vera mað- ur. Saga, bókmenntir og tunga rétt- lætir tilveru okkar sem þjóðar meðal þjóða. Gleðilega þjóðhátíð! Eftir Vilhjálm Bjarnason » Þrátt fyrir viður- kenningu og hinn þétta leir þá þarf að hugleiða önnur og göm- ul gildi til að lifa og vera maður. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur er alþingismaður. Sjálfstæðis syng ég brag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.