Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 35
lagsins og formaður þess 1986-88.
Hún var fulltrúi heilbrigðisráðu-
neytisins í skólanefnd Nýja hjúkr-
unarskólans um árabil og sat í
stjórn Hollustuverndar ríkisins í
fjögur ár. Pálína var formaður
Samtaka lífeyrisþega innan Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún
er virkur félagi í Oddfellow-
reglunni og var á framboðslista
sjálfstæðismanna til bæjarstjórnar
á Álftanesi 2010.
„Ég er afskaplega sátt við að eld-
ast þetta vel, finn hvergi til og hef
ekki óþægindi af skrokknum. Ég
spila brids, fer einu sinni í viku að
spila bæði brids og vist með eldra
fólkinu hérna á Álftanesi þar sem
ég bý og bara þar sem best er boð-
ið.“ Pálína hefur alltaf verið sjálf-
stæð og séð um sig sjálf og hittir
fyrrverandi samstarfskonur á kaffi-
húsum reglulega.
Fjölskylda
Pálína giftist 16.6. 1954 Sigmundi
Ragnari Helgasyni, f. 7.12. 1927, d.
2.11. 2008, skrifstofumanni og
bankamanni. Hann var sonur Helga
Kristins Jónssonar, verslunarstjóra
í Reykjavík, og k.h., Ingibjargar
Sigmundsdóttur húsmóður.
Börn Pálínu og Sigmundar eru:
a) Ingibjörg, f. 11.1. 1955,
hjúkrunarforstjóri, búsett í Hafn-
arfirði, gift Valdemar Pálssyni, lög-
giltum skjalaþýðanda og tónlistar-
stjóra Tónlistarsafns Hafnarfjarðar.
Börn þeirra eru Sigmundur Helgi,
f. 1986, starfsmaður í grunnskóla;
og Inger Helga, f. 1988, hjúkrunar-
fræðingur í Árósum í Danmörku, í
sambúð með Lasse Elkjær. Þau
eiga einn son. b) Helga, f. 11.4.
1956, fulltrúi, búsett á Ísafirði, gift
Jóhanni K. Torfasyni, innkaupa-
stjóra Fjórðungssjúkrahússins á
Ísafirði. Börn þeirra eru Torfi, f.
1977, viðskiptafræðingur, kvæntur
Eyrúnu Hlynsdóttur hjúkrunar-
fræðingi, og eiga þau þrjú börn;
Pálína, f. 1981, kennari, gift Jóni
Steinari Guðmundssyni húsasmíða-
meistara, og eiga þau þrjú börn; og
Matthías, f. 1994, nemi í HR. c)
Helgi Kristinn, f. 15.6. 1967, melt-
ingarfærasérfræðingur við HIMG í
Huntington, Vestur-Virginíu,og á
St. Mary’s Medical Center, kvænt-
ur Kristínu Örnólfsdóttur kennara.
Börn þeirra eru Sigmundur Ragn-
ar, f. 1993, háskólanemi í BNA;
Málfríður Arna, f. 1996, háskóla-
nemi í BNA; og Kjartan Daníel, f.
2001, grunnskólanemi í BNA.
Systkini Pálínu: Finnur, f. 14.11.
1919, d. 18.8. 1997, bókavörður á
Seltjarnarnesi; Sigurjón Helgi, f.
14.11. 1919, d. 24.12. 1936; Henný
Dagný, f. 29.4. 1922, d. 27.1. 2005,
var húsmóðir í Reykjavík; Ólöf
Ingibjörg, f. 4.10. 1923, d. 28.9.
1994, húsmóðir í Reykjavík; og Jó-
hanna Kristín, f. 31.5. 1935, d. 2006,
húsmóðir í New York.
Foreldrar Pálínu voru Sigurjón
Pálsson, f. 12.8. 1896, d. 15.8. 1975,
sjómaður og vélgæslumaður í Vest-
mannaeyjum og Keflavík, síðar
starfsmaður Reykjavíkurborgar, og
k.h., Helga Finnsdóttir, f. á Stóru-
Borg undir Eyjafjöllum 28.9. 1895,
d. 25.4. 1989, húsmóðir og sauma-
kona.
Úr frændgarði Pálínu Sigurjónsdóttur
Pálína
Sigurjónsdóttir
Guðríður Runólfsdóttir
húsfr. í Hvammi
Þórður Einarsson
b. í Hvammi undir Eyjafjöllum
Ólöf Þórðardóttir
húsfr. á Stóru-Borg
Finnur Sigurfinnsson
b. á Stóru-Borg undir
Eyjafjöllum
Helga Finnsdóttir
húsfr. og starfrækti
saumastofu
Helga Jónsdóttir
húsfr. í Ystabæli
Sigurfinnur Runólfsson
b. í Ystabæli undir Eyjafjöllum,
af Presta-Högnaætt
Sigurður
Sigurfinnsson
athafnam. í
Eyjum
Jón G. Pálsson
útgerðarmaður
í Keflavík
Einar
Sigurðsson
útgerðarm. í
Eyjum og Rvík
Páll Jónsson
fv. sparisjóðs-
stjóri í Keflavík
Sigurður Einarsson
forstj. Ísfélags Vestmannaeyja
og form. bæjarráðs þar
Ágúst Einarsson
prófessor og
fyrrv. alþm.
Ágúst Ólafur
Ágústsson
fyrrv. alþm.
Halldóra Jónsdóttir
húsfr. í Berjaneskoti
Nikulás Nikulásson
b. í Berjaneskoti
undir Eyjafjöllum
Þuríður Nikulásdóttir
húsfr. í Hjörtsbæ
Páll Magnússon
sjóm. og útgerðarm.
í Hjörtsbæ í Keflavík
Sigurjón Pálsson
sjóm. og vélgæslum. í
Eyjum og Keflavík, síðar
starfsmaður Rvíkurborgar
Valgerður Ólafsdóttir
húsfr. í Hjörtsbæ
Magnús Hjartarson
járn- og trésmiður í Hjörtsbæ
Um tvítugt Pálína Sigurjónsdóttir
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016
100 ára
Lára Helga Gunnarsdóttir
95 ára
Guðrún Gísladóttir
Jón S. Þórðarson
85 ára
Gunnlaugur Einarsson
Pálína Sigurjónsdóttir
80 ára
Bragi Sigurjónsson
Guðrún Bjarnadóttir
Helga Jóhannsdóttir
Jón Sigurðsson
Nína Kirstín Gísladóttir
Þorvaldur Jónsson
75 ára
Árni Þormóðsson
Dóra V. Hansen
Eiríkur Sigfússon
Guðmundur Björnsson
Rakel Sigríður Jónsdóttir
Rosemarie Þorleifsdóttir
Steingrímur Lilliendahl
Svandís Valsdóttir
Sveinn Pétur Kjartansson
Valgerður Magnúsdóttir
70 ára
Gísli Jónsson
Hannes Bjarnason
Jón Aðalsteinn Baldvinsson
Kristinn Ívarsson
Selma Pálsdóttir
Sigríður Steinunn
Axelsdóttir
60 ára
Anna Ólafsdóttir
Ásrún Jónsdóttir
Bjarki Bragason
Fjóla Sigrún Ísleifsdóttir
Guðbjörg Sigurðardóttir
Helena Reykjalín Jónsdóttir
Jón Halldórsson
Júlíana Dagmar
Erlingsdóttir
Sigrún Eiríksdóttir
Þórir Rafn Halldórsson
50 ára
Ásmundur Sigurkarlsson
Björgvin Þór Þórhallsson
Elfa Guðmundsdóttir
Guðríður A. Kristjánsdóttir
Hilmar Þór Hilmarsson
Hrefna Ingvarsdóttir
Jónína Björg Birgisdóttir
Manuel Gissur Carrico
María Theresa Bernardino
Selma Dröfn Birgisdóttir
Sigríður Helga
Ragnarsdóttir
40 ára
Fanney Sjöfn
Sveinbjörnsdóttir
Guðjón Helgason
Jónína Ragnh.
Kristjánsdóttir
Kristín Th. Överby
Óli Björn Ólafsson
Sigurður Freyr Árnason
Stella Sigurbjörnsdóttir
Una Dögg Evudóttir
30 ára
Berglind Ósk Gísladóttir
Davíð Ísak Ryan
Einar Símonarson
Elmar Þór Pétursson
Hrefna Dögg Sigríðardóttir
Jóhanna Gilsdóttir
Jóhanna Huld Eggertsdóttir
Karen Dögg B. Karlsdóttir
María Rúnarsdóttir
Páll Arnar Guðmundsson
Stefán Þór Jónsson
Vitalijs Gasins
Wing Kit Yu
Til hamingju með daginn
40 ára Fanney Sjöfn er
frá Neskaupstað en býr í
Reykjavík. Hún er snyrti-
fræðingur og starfar hjá
Terma heildsölu.
Maki: Þorvaldur B.
Hauksson, 1974, bakari í
Tertugalleríi Myllunnar.
Börn: Andrea Rún, f.
2000, og Haukur Helgi, f.
2006.
Foreldrar: Sveinbjörn
Tómasson, f. 1952, og
Dagmar Ásgeirsdóttir, f.
1954, bús. í Rvík.
Fanney Svein-
björnsdóttir
30 ára Páll er fæddur og
uppalinn í Garðabæ en er
nýfluttur í Hafnarfjörð.
Hann er lögfræðingur og
verkefnastjóri hjá Credit-
info.
Maki: Thelma Magnús-
dóttir, f. 1986, vinnur hjá
Heilsugæslu Hafnar-
fjarðar.
Sonur: Bjarki, f. 2016.
Foreldrar: Guðmundur
Sophusson, f. 1947, og
Margrét Elín Guðmunds-
dóttir, f. 1949.
Páll Arnar
Guðmundsson
30 ára Karen Dögg er
Hafnfirðingur, var að út-
skrifast sem framhalds-
skólakennari og kennir 6.
bekk í Hraunvallaskóla.
Dóttir: Aníta Björt, f. 2009.
Systkini: Vilhjálmur Hend-
rik, f. 1984, Tinna Björt, f.
1987, og Jóhann Friðrik, f.
1991.
Foreldrar: Guðmundur
Karl Guðnason, f. 1960,
smiður, og Bryndís Eva Vil-
hjálmsdóttir, f. 1965,
sjúkraliðanemi
Karen Dögg B.
Karlsdóttir
Olga Kolbrún Vilmundardóttir hefur
varið doktorsritgerð sína í landfræði
við Líf- og umhverfisvísindadeild Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið:
Jarðvegsmyndun við hörfandi jökla á
Suðausturlandi (Soil development wit-
hin glacier forelands, Southeast Ice-
land). Leiðbeinandi var dr. Guðrún
Gísladóttir, prófessor í landfræði við
Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla
Íslands. Meðleiðbeinandi var dr. Rattan
Lal, prófessor við School of Environ-
ment and Natural Resources í Ohio
State University í BNA.
Doktorsritgerðin fjallar um jarðvegs-
myndun og gróðurframvindu fyrir
framan tvo skriðjökla á Suðaustur-
landi, Skaftafellsjökul og Breiðamerk-
urjökul. Þar sem staða jökla á ákveðn-
um tíma er þekkt má nýta hana til að
rekja breytingar á gróðri og jarðvegi
með hækkandi aldri yfirborðsins.
Rannsóknir sýndu að breytingar á jarð-
vegi stjórnuðust af aldri yfirborðs og
gróðurframvindu; rúmþyngd og sýru-
stig lækkuðu með tíma en lífrænt efni,
lífrænt kolefni (C) og köfnunarefni (N)
jukust með tíma. Til að byrja með var
gróðurframvinda hæg, sem endur-
speglaðist í hægri jarðvegsmyndun
fyrstu 50 árin. Eftir það þróaðist gróð-
urfar við jöklana
hvort í sína áttina,
þar sem smá-
runnar og runnar
einkenndu elstu
jökulgarða við
Skaftafellsjökul, en
grös einkenndu
elstu jökulgarða
við Breiðamerkurjökul þar sem engir
runnar voru. Mesti uppsöfnunarhraði
kolefnis reyndist vera í elstu jökulurð-
inni við Skaftafellsjökul, 9,1 g m-2 yr-1
eftir 120 ár. Söfnunarhraðinn var tals-
vert lægri við Breiðamerkurjökul eða
4−4,5 g m-2 yr-1 eftir 67−122 ár. Hann
var talsvert lægri við jöklana tvo en
mælst hefur í uppgræðslum og í skóg-
rækt hér á landi. Landslag hafði áhrif
á jarðvegsmyndun þar sem lægðir inn-
an jökullandslagsins höfðu marktækt
hærri SOC, N, ál (Alox) og járn (Feox)
gildi. Við Breiðamerkurjökul skipti
fuglalíf sköpum þar sem „svalþúfur“
eða „fuglaþúfur“ höfðu myndast á
toppum jökulgarða og þær reyndust
vera „heitir reitir“ jarðvegsmyndunar í
jökulurðinni. Árleg uppsöfnun SOC í
jökulurðinni var áætluð 20,7 Mg C ár-1
við Skaftafellsjökul og 19,7 Mg C ár-1
við Breiðamerkurjökul.
Olga Kolbrún
Vilmundardóttir
Olga Kolbrún Vilmundardóttir fæddist 1981 og ólst upp á Seyðisfirði. Hún lauk
BS-gráðu í landfræði frá HÍ 2004 og meistaragráðu í landfræði frá HÍ árið 2009.
Olga er nú nýdoktor við Háskóla Íslands og vinnur að rannsóknum á gróðri og
jarðvegi við Heklu og Öræfajökul. Olga er gift Halldóri Vagni Hreinssyni og eiga
þau tvær dætur, Snædísi Erlu 6 ára og Valgerði Svönu 2 ára.
Doktor
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is - mán-föst 10-18 - lau 11-15
Mikið úrval af fallegum púðum