Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016
Aleks er 14 ára, hann hefurásamt foreldrum sínum ogsystur þurft að flýjaheimaland sitt vegna
borgarastyrjaldar og býr nú í flótta-
mannabúðum í sænskum smábæ.
Dvölin í búðunum reynist fólkinu
miserfið; t.d. finnst
sumum þeirra full-
orðnu þeir vera
einskis nýtir þar
sem þeir eru ekki á
vinnumarkaði og
hafa takmörkuð
tækifæri til að taka
þátt í samfélaginu.
Tilfinningar fólks-
ins eru blendnar;
þau eru fegin að hafa komist úr
þessum aðstæðum en á sama tíma
hafa þau samviskubit vegna þess að
enn eru vinir þeirra og ættingjar á
heimaslóðum. En þessi lífsreynsla er
ekki síður þungbær fyrir börnin sem
hafa verið svipt öllu því öryggi sem
þau áður þekktu og hafa lítið um ör-
lög sín að segja.
Þegar góðviljaður starfsmaður
flóttamannabúðanna lánar Aleks
reiðhjól opnast fyrir honum nýr
heimur. Á hjólinu fer hann um ná-
grennið, kynnist fólki á ýmsum aldri,
eignast vini, verður fyrir barðinu á
hrekkjusvínum og byrjar að fóta sig
í nýju samfélagi. Óhugnanlegar
minningar úr stríðinu heima fyrir
eru þó aldrei langt undan og framan
af reynist honum erfitt að samsama
þær hinu nýja lífi sínu.
Frásögnin er einföld og látlaus, en
þó býsna sterk og lesandinn fær
góða innsýn í hugarheim hins unga
Aleks. Þetta er þroskasaga, þar sem
pilturinn er margs vísari í bókarlok
og hann er farinn að geta glaðst yfir
því að vera á þeim stað sem hann er
staddur á í lífinu.
Vel má taka undir það sem segir á
bókarkápu að bókin sé vel til þess
fallin að opna umræðuna um málefni
flóttafólks og hún gæti alveg örugg-
lega nýst vel í kennslu og öðru starfi
með börnum.
Höfundurinn Håkan Lindquist.
Að feta veginn
á nýjum slóðum
Barna- og unglingabók
Annað land bbbnn
Eftir Håkan Lindquist.
Salka, 2016. 156 blaðsíður
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Ljósmynd/Peter Shorely
Annað árið í röð verður blásið til
hljómsveitakeppni í Bæjarbíói á
þjóðhátíðardaginn. Keppnin, sem
hefst kl. 14 í dag, er að sögn skipu-
leggjenda hugsuð sem vettvangur til
að koma sér á framfæri og stíga út úr
bílskúrnum, en allir geta þó tekið
þátt enda eru allar tónlistarstefnur
velkomnar til þátttöku.
Hljómsveitir mæta með eigin hljóð-
færi fyrir utan trommur sem verða á
staðnum auk magnara og míkrófóna.
Samkvæmt upplýsingum skipu-
leggjenda munu sigurvegararnir frá
í fyrra, A.K.A. Sinfonían, koma fram í
Bæjarbíói í dag. Keppnin er haldin á
vegum íþrótta og tómstundaráðs
Hafnarfjarðar og Menningar og lista-
félags Hafnarfjarðar. Aðgangur er
ókeypis.
Hljómsveitakeppni
haldin í Bæjarbíói
Morgunblaðið/Eggert
Bæjarband Leitin að bæjarbandi
Hafnarfjarðar fer fram í Bæjarbíói.
Hljómsveitin Salon Islandus kemur
fram á hátíðartónleikum í Garðabæ
í kvöld kl. 20 í tilefni af þjóðhátíð-
ardeginum og er aðgangur ókeypis.
Tónleikarnir eru haldnir í Kirkju-
hvoli, safnaðarheimili Vídal-
ínskirkju.
Einsöngvari með hljómsveitinni
að þessu sinni er sópransöngkonan
Fjóla Kristín Nikulásdóttir sem
syngur nokkrar af helstu aríum
óperettubókmenntanna.
„Á efnisskránni er hressileg Vín-
artónlist, marsar, valsar, polkar en
einnig lög úr smiðju Leonards
Bernstein. Að sjálfsögðu verður
sólónúmer konsertmeistarans á sín-
um stað en hann er í þetta sinn Ni-
cola Lolli, konsertmeistari Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands,“ segir í
tilkynningu frá Garðabæ.
Þar kemur fram að hljómsveitin
Salon Islandus komi fram á tón-
leikum víða um land og hafi reglu-
lega undanfarin ár leikið á hátíð-
artónleikum í Garðabæ 17. júní.
„Forverar þessarar átta manna
hljómsveitar eru tríó og síðar
kvartett sem allt frá níunda áratug
síðustu aldar héldu reglulega Vín-
ar- og aðra skemmtitónleika og
hafa margir frábærir söngvarar
komið fram með hljómsveitunum í
gegnum tíðina. Með hljómsveitinni
leika að þessu sinni Nicola Lolli og
Sigurlaug Eðvaldsdóttir á fiðlur,
Júlía Mogensen á selló, Páll Hann-
esson á kontrabassa, Martial Nar-
deau á flautu, Sigurður Ingvi
Snorrason á klarinettu, Anna
Guðný Guðmundsdóttir á píanó og
Frank Aarnink á slagverk.“
Sópran Fjóla Kristín Nikulásdóttir
Hátíðartónleikar í Kirkjuhvoli
Uppselt er orðið
á aukatónleika
norsku sópr-
ansöngkonunnar
Sissel Kyrkjebø
sem fram fara
sunnudaginn 11.
desember kl. 18.
„Það varð svo
gott sem uppselt
á fyrstu tón-
leikana í forsölu svo við brugðum á
það ráð að slá upp aukatónleikum
sama dag; sala á þá hófst fyrir
nokkrum dögum og nú er sem sagt
uppselt á þá líka,“ segir í tilkynningu
frá tónleikahöldurum, en fyrri tón-
leikarnir verða sama dag kl. 20.30.
Á efnisskrá tónleikanna verða sál-
arskotin dægurlög og klassísk jóla-
lög, en meðal þeirra sem fram koma
með Kyrkjebø eru Wayne Hern-
andez, sem unnið hefur með m.a.
Tinu Turner, Sam White, sem hefur
starfað með Duran Duran og Annie
Lennox, og Phebe Edwards sem
hefur leikið með Adele.
Uppselt á
aukatónleika
Kyrkjebø
Sissel Kyrkjebø
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
SÖLUAÐILAR
Reykjavík: Gullbúðin Bankastræti 6 s:551-8588 | Gullúrið Mjódd s: 587-410 | Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 | Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900
Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900 | Rhodium Kringlunni s: 553-1150
Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 | Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 | Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886
Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 | Vestmannaeyjar: Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333