Morgunblaðið - 17.06.2016, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2016
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Rökstuðningur okkar fyrir að velja
Skúla er sá að hann er fagmaður og
snillingur á sitt hljóðfæri en svo er
hann líka tónsmiður og persónuleg
nálgun hans auðþekkjanleg. Hug-
sjónamaður, brautryðjandi og vel-
gjörðarmaður annars tónlistarfólks,“
segir Þórarinn Eldjárn, formaður
stjórnar Minningarsjóðs Kristjáns
Eldjárn gítarleikara sem í gær valdi
Skúla Sverrisson bassaleikara til að
hljóta úthlutun úr sjóðnum.
Kristján lést ungur
Minningarsjóður Kristjáns Eld-
járn gítarleikara var stofnaður af
ættingjum hans, vinum og samstarfs-
mönnum eftir að hann lést 22. apríl
2002, tæplega þrítugur að aldri, eftir
nær tveggja ára erfið veikindi. Sjóðn-
um er ætlað að verðlauna fram-
úrskarandi tónlistarmenn. 16. júní
2007, þegar Kristján hefði orðið 35
ára, voru í fyrsta skipti veitt verðlaun
úr minningarsjóðnum og hlaut þau
Kristinn H. Árnason gítarleikari.
Árið 2009 hlaut verðlaunin Daníel
Bjarnason, hljómsveitarstjóri, tón-
skáld og píanóleikari. 2011 hlaut þau
Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir,
harmonikuleikari, 2012 Ari Bragi
Kárason, trompet- og flygilhornleik-
ari, og loks 2014 Sunna Gunnlaugs-
dóttir, píanóleikari og tónskáld.
Hefur leikið á yfir 100 plötum
Skúli Sverrisson hóf atvinnuferil
sem bassaleikari aðeins 14 ára gamall
og lék á örfáum árum inn á fjölda vin-
sælla íslenskra hljómplatna áður en
hann hélt til náms í Berklee School of
Music í Boston, en eftir nám sitt þar
fluttist hann til New York. Síðustu
tvo áratugi hefur Skúli byggt upp ein-
stakan feril sem samanstendur af
tónsmíðum og flutningi á eigin tónlist
annars vegar en hins vegar marg-
breytilegu samstarfi við breiðan hóp
alþjóðlegra listamanna.
Skúli hefur komið fram á yfir 100
hljómplötum og leikið vítt og breitt
um heiminn með hópi listamanna.
Hann hefur unnið sjö sinnum til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna, til að
mynda fyrir plötu ársins (2006) fyrir
Seriu I og djassplötu ársins (2012)
fyrir The Box Tree. En hann var
einnig tilnefndur til Tónlistarverð-
launa Norðurlandaráðs árin 2001 og
2011.
Fyrir aðdáendur kvikmynda er við
hæfi að benda á einleik hans í tónlist
Jóhanns Jóhannssonar fyrir kvik-
myndina Sicario og aðkomu hans sem
meðhöfundur að verkinu Glacier sem
var hluti af tónlist Ruichi Sakamoto í
kvikmyndinni The Revenant.
„Stjórn sjóðsins er skipuð ætt-
ingjum og vinum Kristjáns,“ segir
Þórarinn Eldjárn. „Ég er formaður
stjórnarinnar og þetta hefur verið
sama stjórnin frá upphafi. Við höfum
haft það þannig að við ræðum hug-
myndir að listamönnum fram og til
baka. Það hafa komið allskonar til-
lögur. Frekar en að hafa sjóð sem
tekur á móti umsóknum þá ákveðum
við þetta okkar á milli. Þegar maður
úthlutar úr sjóði þar sem ekki er sótt
um, þá gleður maður einn. En ef
hundrað manns hefðu sótt um og einn
fengið úthlutun þá væri maður að
spæla marga.
En viðmiðin eru ýmiskonar. Það
var ákveðið frá upphafi að hafa þetta
fjölbreytilegt. Ekki endilega bundið
við að þetta sé efnilegur nemandi.
Stundum er það þannig en stundum
einhver gamalreyndur. Eitthvert árið
gæti það verið 95 ára gamall tónlist-
arstjóri. Þetta hefur verið leiðarljósið
og verður það áfram.
Það er í anda Kristjáns en fyrir
honum var músík annaðhvort góð eða
vond. Ekki að einhver tegund mús-
íkur væri slæm, það er hægt að gera
allt vel eða illa. Hann var jöfnum
höndum í djassi, rokki og klassík.“
Nú fer úthlutunin fram í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar og hefur alltaf
verið þar, er einhver sérstök ástæða
fyrir því?
„Það var þar sem hann Kristján
hélt sína debut-tónleika eftir að hann
kláraði nám sitt í Finnlandi þannig að
það á vel við,“ segir Þórarinn.
Morgunblaðið/Þórður
Frá úthlutun Skúli Sverrisson er búinn að koma víða við á ferli sínum. Hann hefur komið fram á yfir 100 hljómplötum og leikið vítt og breitt um heiminn.
Hóf atvinnuferil 14 ára
Skúli Sverrisson fékk úthlutun úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárn Margir þekktir listamenn
fengið úthlutað á undanförnum árum Skúli hefur leikið með heimsþekktum tónlistarmönnum
Meðvirkni nefnist ný sýningaröð
undir stjórn Hildigunnar Birgis-
dóttur sem hefst í dag kl. 17 í Har-
binger, sýningarýminu við Freyju-
götu 1, með opnun samsýningar
þeirra Ásgerðar Birnu Björns-
dóttur og Gylfa Freeland Sigurðs-
sonar. Samstarfið nefna þau Gerðu
það!
„Meðvirkni er samsýning undir
margföldunaráhrifum sem ætlar
sér að þenja út sýningaformið og ljá
því tilfinningalega spennu. Sýn-
endum fjölgar eftir því sem líður á
sýningartímann, þar sem lista-
mennirnir vinna eftir ströngu kerfi;
efnistök eru frjáls en samfélags-
kvaðirnar miklar,“ segir í tilkynn-
ingu frá Harbinger.
Þar kemur fram að sýning-
arröðin sé tilraunaverkefni Harbin-
ger, Hildigunnar sýningastjóra og
20 listamanna. „Meðvirkni hagar
sér eins og óþolandi keðjubréf sem
bannað er að slíta. Sýningar opna á
viku fresti og hver hópur verður að
koma að sýningunni sem fyrir er og
vinna hana áfram.“ Næstu fimm
föstudaga opnar nú sýning. Sýn-
ingin er opin frá föstudegi til mið-
vikudags milli kl. 14-17 og eftir
samkomulagi.
Keðja 20 listamenn eru með í röðinni sem byggð er upp eins og keðjubréf.
Sýningaformið þanið á
Meðvirkni í Harbinger
Baðaðu þig í gæðunum
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15