Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.7. 2016 VETTVANGUR Tuttugasta öldin var mestaframfaraskeið mannkynssög-unnar. Framfarirnar náðu vissulega ekki til allra jarðarbúa, fjarri því. Og hvergi var öldin galla- laus. Þetta var öld styrjalda, alræð- iskerfa, yfirgangs fjármagns og of- beldis í margvíslegri mynd. En aðgangur að síbatnandi heilbrigð- isþjónustu, menntun, húsnæði, vatni og rafmagni, sem og framfarir í sam- göngum, tryggðu almenningi stór- bætt lífskjör. Sama gildir um fram- farir í framleiðslutækni sem gerði erfiðsvinnu auðveldari. Tilfinningin var sú að mannkynið væri á framfarabraut. Þetta var hið almenna viðhorf í okkar heimshluta eftir miðbik tuttugustu aldar og fram á þennan dag; að mannkynið væri í sókn. Morgundagurinn yrði örugglega betri en gærdagurinn. Ekki bara meiri lífsgæði, heldur líka meira lýðræði og meira frelsi. Nú læðast, hygg ég, efasemdir að okkur mörgum, um að leiðin liggi öll til framfara enda víkur umburðar- lyndi fyrir þröngsýni, jöfnuður fyrir ójöfnuði og öryggi fyrir óöryggi. Þarna er rétt að staldra við. Fátt þráir fólk eins heitt og að búa við ör- yggi. Trygga lífsafkomu og sprengjulausar borgir. Stjórnmálamenn sem segjast geta losað okkur við allar ógnir – á hnef- anum – eru farnir að ná eyrum fólks beggja vegna Atlantsála. Með illu skal illt út reka, er viðkvæðið, og að tilgangurinn helgi meðalið. Við þetta ættu að klingja viðvörunarbjöllur því nákvæmlega svona er upp- skriftin að alræðisstjórnarfari. Frelsisbarátta mannsandans hef- ur tekið þúsund ár. Og var enn önn- ur þúsund ár í undirbúningi. Og þau ár áttu líka sinn aðdraganda. Við er- um að tala um langa þrautagöngu sem má aldrei láta lokið. Því frelsið mun aldrei koma áreynslulaust. Og þá aftur að örygginu; hvernig veitum við fólki öryggi? Kannski getum við lært af okkar eigin sögu; hversu mikilvægt það var fyrir ís- lensku vesturfarana hve vel þeim var tekið í Kanada og Bandaríkjum Norður-Ameríku þegar þeir komu þangað hraktir og allslausir. Þeirra beið flestra erfitt líf en það sem mest var um vert, fordómalaust samfélag sem tók þeim opnum örmum. Fordómaleysi og vinsemd gerðu Vestur-Íslendingana að góðum Kan- adamönnum og Bandaríkjamönnum. Íslendingarnir héldu lengi tryggð við sína gömlu heimahaga, lögðu rækt við menningararf sinn og tungu, jafnframt því sem þeir löguðu sig að nýju samfélagi. Tengingin við gamla landið var þeim styrkur þegar þeir stigu inn í nýja heiminn. Þetta er ekkert séríslenskt. Þetta er sammannlegt. Kunningi minn, smíðakennari, sagði mér hjartnæma en um leið lærdómsríka sögu. Í ein- um barnaskólabekknum, sem hann kenndi, veitti hann því athygli að einn nemandinn hafði á fyrsta degi kennslunnar litast um í smíðastof- unni svolítið ráðvilltur en gengið síð- an að steðja einum miklum í einu horni hennar, strokið honum var- færnislega, gott ef ekki faðmað hann að sér. Þetta átti eftir að margend- urtaka sig. Kunningi minn sagði að þetta hefði vakið forvitni sína og hefði hann grandskoðað steðjann, sem naut svo mikillar ástúðar hins unga drengs. Um síðir rann skýringin upp fyrir kennaranum. Steðjinn var framleiddur í Póllandi og í hann var greypt letur á pólsku. Þarna var fundinn samnefnarinn. Báðir voru frá Póllandi, drengurinn og steðjinn. Og það fylgdi sögunni að báðum liði nú vel á Íslandi, orðnir ramm- íslenskir, bæði drengurinn og steðj- inn. Drengurinn og steðjinn ’Stjórnmálamenn sem segjast geta losað okkur viðallar ógnir – á hnefanum – eru farnir að ná eyrumfólks beggja vegna Atlantsála. Með illu skal illt út reka,er viðkvæðið, og að tilgangurinn helgi meðalið. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is AFP Samfélagsmiðlar eru undirlagðir af skrifum um Þjóðhátíð í Eyjum en 7 hljómsveitir sem bókaðar voru á tónleika gáfu út yfirlýsingu á fimmtudaginn um að þær myndu draga sig út úr dagskrá Þjóðhátíðar nema skýr stefnubreyting kæmi frá bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyjum vegna orðræðu og verklags lög- reglustjórans, Páleyjar Borgþórs- dóttur, undanfarna daga í tengslum við upplýsingagjöf um fjölda kyn- ferðisbrota á Þjóðhátíð. Jón Viðar Jónsson var hæstánægður með ákvörðun hljómsveitanna og einn fjöl- margra sem lýstu yfir ánægju sinni með hana: „Þetta er virkilega gott hjá ykkur, strákar!! Þið missið tekjur, en takið ykkur stöðu með réttlætinu gegn ruglinu. Þið eigið heiður skilið,“ skrifaði leiklistargagnrýnandinn á Facebook. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor skrif- aði á Facebook: „Reykjavík síð- degis spyr: „Ertu sammála ákvörðun lögreglustjór- ans í Vestmannaeyjum um að til- kynna ekki jafnóðum um kynferð- isbrot sem upp kunna að koma á Þjóðhátíð?“ Ég lærði í íslensku hér áður fyrr, að menn séu sammála öðrum mönnum, en samþykki eða taki undir skoðun. Það er þó minna mál en hitt, að kynferðisbrot eru ekki kynferðisbrot, fyrr en þau sannast. Ásökun nægir ekki. Hún er ekki sönnun. Spurningin hefði átt að vera: „Ertu samþykk(ur) ákvörðun lögreglustjórans í Vest- mannaeyjum um að tilkynna ekki jafnóðum um ásakanir, sem upp kunna að koma um kynferðisbrot á Þjóðhátíð“? Samfylkingin á Akranesi aug- lýsti eftir fram- boðum til flokksvals Sam- fylkingarinnar í Norðvest- urkjördæmi fyrir komandi alþing- iskosningar. Katrín Júlíusdóttir, fráfarandi þingmaður flokksins, skrifar á Facebook af því tilefni: „Starf þingmannsins er mikilvægt og krefjandi en umfram allt fjöl- breytt og skemmtilegt. Megnið af því fer fram í ró og spekt. Þegar uppúr sýður (sem er nú ekki oft m.v. fjölda mála sem við afgreiðum) er það vegna þess að við höfum ólíka sýn á stór mál, rétt eins og kjósendur, og ekkert að því. Sumir óttast að maður missi einkalífið sitt. Eins og í öðrum krefjandi störfum er maður vissu- lega alltaf á vaktinni en það venst. Ég hef gaman af því að hitta fólk sem hefur skoðun á þinginu þar sem ég er á ferðinni með familí- unni. Og kommentakerfin eru ekki eins slæm og um er rætt.“ Og leikkonan Saga Garðars- dóttir er í sum- arfríi og segir á Twitter: „Er á lúxushóteli á Krít með fetaost í öllum vitum. Eina sem skyggir á upplifunina er að það er ekki neinn andskotans pókeimon í nágrenn- inu.“ AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.