Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Page 12
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.7. 2016
F
yrir tuttugu árum komu ungir menn
saman í skúr í vesturbænum til að
gera tilraunir í tónlist. Annar þeirra
var búinn að gefast upp á rokkinu
en hinn á kafi í hiphopi og raf-
tónlist. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn náðu þeir
vel saman og hringdu í þann þriðja sem sungið
hafði með ýmsum rokksveitum. Úr þessu sam-
starfi spratt hljómsveitin Quarashi sem átti
eftir að verða vinsælasta hljómsveit Íslands til
margra ára og vakti athygli langt út fyrir land-
steinana.
Félagarnir tveir sem hrintu öllu af stað eru
þeir Sölvi Blöndal, sem spilað hafði með
SSSpan, 2001 og Stjörnukisa, og Steinar Orri
Fjeldsted, sem kynnst hafði hiphopi og skeit-
menningu vestan hafs og var staddur hér á
landi í sumarheimsókn. Steinar segir að þeir
Sölvi hafi kynnst um sumarið og farið að ræða
tónlist, „hann var að gera takta og ég rímur,
nýfluttur frá Bandaríkjunum og ætlaði bara að
vera sumarið. Eitt af því sem við töluðum um
var hve íslensk tónlist væri leiðinleg og það
varð til þess að ég mætti út í skúr og við förum
að taka upp grunna.“
Eins og getið er var Sölvi hættur í rokkinu,
hætti í Stjörnukisa eftir sigur þeirrar sveitar í
Músíktilraunum 1996. „Ég hafði misst áhug-
ann á að vera trommuleikari, hafði uppgötvað
tölvutæknina og var að búa til takta. Einhvern
veginn þróaðist það svo að ég fór að hanga
meira með Steina og með skeiturunum svo
þetta var líka breyting fyrir mig persónulega,
ég var að skipta um umhverfi. Það er gaman
þegar maður lokar einum dyrum og þá opnast
oft aðrar, en mig óraði ekki fyrir því hvað
þetta myndi hafa mikil áhrif.“
Steini: „Þetta var góður hópur af strákum
úr vesturbænum og krúið hans Sölva, blanda
af indíi og hiphopi. Ég hlustaði rosa mikið á
raftónlist á þessum tíma og geri enn, hlustaði
meira á hana en hiphop, og vissi eiginlega ekk-
ert hvað rokk og ról var. Það var Sölvi sem
kynnti mig fyrir rokkinu.“
Sölvi: „Umfram allt þá var þetta bara góður
fílingur. Steini kemur með raftónlistargen inn
í þetta og skeitið. Bigbeatið og Ninja Tunes og
Prodigy, ég var að hlusta á þetta allt og það
hafði mikil áhrif á mig, en við náðum best sam-
an í kringum hiphopið þannig að Quarashi
varð blanda af allskonar áhrifum, ekki beint
hiphop, ekki beint bigbeat ekki beint rokk,
hafði sitt eigið sánd.“
Steini: „Við hlustuðum gríðarlega mikið á
tónlist, Ég átti heima á Hverfisgötu og það var
partípleis, bjó þar með félaga mínum og þar
vorum við að djamma og spáðum í tónlist allt
sumarið þangað til um haustið þá formlega
vorum við orðnir hljómsveit án þess þó að hafa
sest niður og sagt: eigum við að stofna hljóm-
sveit?“
Sölvi: „Ég hringdi í Hössa, Höskuld Ólafs-
son, vegna þess að ég þekkti hann, við vorum
saman í MR. Hann var eiginlega eini gaurinn
sem ég þekkti sem kunni að syngja, eins fárán-
legt og það er, og líka svona rokktýpa. Hann
tók svo upp á því sjálfur að rappa textana,
þannig að það var eiginlega tilviljun líka, hann
bara kom og sagði: má ég ekki prófa að rappa
þennan texta? Það fannst okkur geðveikt.
Steini: „Ég man eftir því þegar Hössi labb-
aði inn í skúrinn í leðurjakka með lubbann og í
bol sem á stóð Rock ’n’ Roll. Ég hugsaði:
hvaða steik er þetta? Svo sagði hann: Ég hef
aldrei rappað áður, má ég prófa?“
Grunnarnir urðu fleiri og svo voru komin
fimm lög og þeir félagar ákváðu að gefa þau út
og þá gera það sjálfir. Þegar hér var komið
sögu voru þeir orðnir fjórir, Richard Oddur
Hauksson sá um að skráma plötur.
Það var bara hlegið að okkur
„Það vildi náttúrlega enginn gefa þetta út,“
segir Steini. „Íslenskt rapp! Það var bara hleg-
ið að okkur.“ Steini: „Þegar Switchstance kom
svo loks út eftir smá basl þá vildi enginn sjá
þetta né selja. Samt fór platan á rosalegt flug,
seldist upp á nokkrum dögum og við fórum að
spila á fullu. Við áttum samt ekki nema þessi
fjögur eða fimm lög en spiluðum þau bara
þrisvar eða fjórum sinnum á hverjum tón-
leikum.“
Sölvi: „Ég verð nú að viðurkenna að ég hafði
ekki upplifað mig sem neitt success í tónlist
fram að því, þannig að fyrir mér var þetta eitt-
hvað alveg nýtt. Bara það að dagblað eins og
Mogginn skuli skrifa um okkur var mikið mál í
mínum augum, mynd af mér í blaðinu og ein-
hver að skrifa um það sem ég var að gera, ég
ætlaði ekki að trúa því.“
Steini: „Ég hafði verið í tónlist og gert ein-
hver lög, en ég vissi ekki að það væri hægt að
vera frægur eða vinsæll á Íslandi og þegar
unglingar fóru að hlaupa á eftir manni eða rífa
í jakkann manns, ég var bara hræddur, ég
vissi ekki hvað var í gangi.“
Sölvi: „Ég verð nú að viðurkenna það að ég
hafði viljað þetta lengi, en þegar það loksins
kom fannst mér það ekkert þægilegt.“
Steini: „Furðulegt, maður fór Hverfisgöt-
una í stað Laugavegarins til að hitta engan.
Þetta gerðist of hratt.“
Sölvi: „Kannski aðeins of hratt.“
Steini: „En við tókum fullan þátt í því, vor-
um mjög virkir og hraðir á þeim tíma, vorum
að spila fimm sinnum í viku og taka upp Eggið
á nóttunni. Og síðan kom Eggið út og hún
gerði góða hluti,“ en Eggið er fyrsta breiðskífa
sveitarinnar sem hét einfaldlega Quarashi.
Sölvi: „Eggið tók alveg þrjá eða fjóra mán-
uði. Hún var furðuleg plata í vinnslu af því við
vorum alltaf að læra skrefin jafnóðum, hvernig
sándið okkar ætti að vera. Ég vissi ekkert
hvernig ætti að gera plötu, hvað ættu að vera
mörg lög á henni, 12, 15, 16?
Ég var lengi óánægður með Eggið eftirá,
var súr yfir því að hún var ekki alveg eins og
ég vildi að hún væri og hlustaði ekki á hana í
fimmtán ár. Samt hitti ég oft fólk sem fannst
hún frábær og skildi ekki hvernig við fórum að
því að gera þessa plötu á þessum tíma þegar
við vorum ekki með tölvur til að taka upp. Í
dag finnst mér Eggið frábær plata, hún er
mjög skapandi, það er mikið af hugmyndum á
henni.“
Steini: „Mér finnst Eggið æðisleg plata og
mér hefur alltaf fundist hún frábær af því að
mér finnst hún svo frjó – það er svo mikið af
Quarashi lokar hringnum
Fyrir tuttugu árum
varð hljómsveitin Quarashi
til nánast fyrir tilviljun þar
sem saman runnu rokk,
rapp og raftónlist.
Hljómsveitin sú átti eftir
að verða vinsælasta
hljómsveit Íslands til
margra ára og var við það
að slá í gegn víða um heim
þegar henni þvarr örendi.
Nú hafa Quarashi-félagar
tekið saman aftur og hyggjast
loka hringnum, eins og þeir
kalla það, ætla að spila á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
og gefa út smáskífu.
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Quarashi-liðar í árdaga, myndin er tekin í skúrnum í nóvember 1996. Sölvi Blöndal, Steinar Orri Fjeldsted og Höskuldur Ólafsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Quarashi plötur
Fimm laga platan
Switchstance
kom út 29. nóv-
ember 1996 og
seldist upp á viku.
Fyrsta breiðskífan
kom út 1997. Hét
einfaldlega Quar-
ashi, en er yfirleitt
kölluð Eggið.
Jinx kom út um all-
an heim 2002.
Byggð á Xeneizes
að miklu leyti.
Xeneizes kom út
1999 og á henni var
kynntur til sögunnar
nýr liðsmaður, Ómar
„Swarez“ Hauksson.
Á plötunni
Kristnihald undir
Jökli, sem kom út
2001, var tónlist
við leikrit.
Guerilla Disco
kom út 2004 eftir
að Höskuldur hætti
í hljómsveitinni.
Anthology kom
út 2011. Safnplata
með tveimur disk-
um af tónlist, tals-
vert óútgefið, og
DVD-diski.