Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Side 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Side 22
pítur, 1-2 á mann afgangur af lambi, salati og sósunni Opnið pítubrauð og ristið. Skerið kjötið niður í þunnar sneiðar og léttsteikið á pönnu. Setjið eina msk. af dressingunni inn í pítu- brauðið og 50-60 g af lambakjötinu. Setjið næst salatið og í lokin smá dressingu yfir. Grísk lambapíta MATUR Þegar gera á smjördeig er gott ráð að frysta smjörið og rífa það meðrifjárni út í þurrefnin. Þá er auðveldara að hnoða deigið í höndunum og kakan, bakan eða bollurnar verða mýkri og betri. Ráð fyrir smjördeig 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.7. 2016 1 dós niðursoðnir tómatar afgangur af grísku lambi afgangur af kartöflum afgangur af salati Setjið út á pönnu eina dós af niðursoðnum söxuðum tóm- ötum og látið suðuna koma upp. Skerið lambið í litla bita og bætið út í. Skerið kartöfl- urnar niður smátt og bætið út í. Þegar þetta hefur verið soð- ið í u.þ.b. 1 mín þá er salatinu bætt út og látið malla í ½ til 1 mín. Passa þarf að ragúið ofeldist ekki því við eigum að finna fyrir salatinu. Borðið með nýbökuðu brauði. Grískt lambaragú Bragðlauk-arnir fara ífrí til Grikklands að þessu sinni í þætti vikunnar af Kort- er í kvöldmat. Óskar sýnir okkur taktana og galdrar fram eðal- lambalæri sem tekur skamman tíma að undirbúa. „Fáir gera lamba- læri jafn vel og Grikkir, og ég ætla að sýna ykk- ur eina ótrúlega einfalda uppskrift. Þetta verður eins grískt og það getur orðið,“ segir Óskar. Með lærinu ber Óskar fram stökka kart- öflubáta, sumarlega sósu og að sjálfsögðu grískt salat. Til að nýta afgangana mælir hann með góðum pottrétti en einnig má setja þá í pítu sem er vinsæl á mörgum heimilum. Eins grískt og það getur orðið ÞESSA RÉTTI ER HÆGT AÐ BÚA TIL ÚR AFGÖNGUNUM 1 lítið lambalæri 4 stórar kartöflur 1 græn paprika 1 rauðlaukur 1 askja kokteiltómatar ½ gúrka 1 krukka fetaostur 1 lítil krukka steinlausar svartar ólífur 1 dós sýrður rjómi 1 tsk. Dijon-sinnep 4-6 tsk. hunang edik salt og pipar Setjið lærið í fat og veltið því upp úr 3 msk. af olíu af fetaosti og 2 msk. af safa úr ólífukrukku. Kryddið með salti og pipar. Stráið smá hunangi yfir og setjið lærið inn í ofn við 180°C í 1 klst. og 20 mínútur. Með þessu eru bornir fram stökkir kart- öflubátar. Fyrst þarf að skola kartöflubát- ana og ná úr þeim sterkjunnni. Næst eru þeir þerraðir og velt upp úr olíu, settir í ofnfast mót og inn í ofn með lærinu þar sem þeir bakast næstu 45 mínúturnar. Búin er til einföld sósa með þessu. Í henni er ein dós af sýrðum rjóma, 2-3 msk. olía af fetaosti, 1 tsk. af Dijon-sinnepi, pipar og smá hunang og er öllu blandað vel saman í skál. Einnig er gott að hafa með grískt salat. Skerið og blandið saman í skál einni papriku, einum lauki, nokkrum kirsu- berjatómötum og hálfri flysjaðri gúrku og blandið saman með fetaosti, smá olíu af ostinum og 1 tsk. af ediki. Grískt lambalæri Óskar Finnsson eldar að þessu sinni dýrindis lamb á grískan máta, kartöflubáta og salat. Tvo girnilega og ein- falda rétti má gera úr afgöngunum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Í þessari viku er grískt þema hjá Óskari. Morgunblaðið/Ásdís Þú færð öll hráefnin úr þáttunum hjá okkur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.