Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.07.2016, Side 35
24.7. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Á morgun,
sunnudag, stend-
ur Björk Bjarna-
dóttir, umhverfis-
og þjóðfræð-
ingur, fyrir nátt-
úrugöngu um
Viðey þar sem
fjallað verður um
jurtir, fugla og
menn, huldufólk
og álfa. Gangan
hefst 13.30 og
lýkur 15.
Tónleikaröðin Englar og menn í
Strandakirkju heldur áfram en á
morgun, klukkan 14, verða tónleik-
arnir Í ljúfum blæ. Þar koma fram
hjónin Þóra Einarsdóttir sópran og
Björn Jónsson tenór og með þeim
leikur Svanur Vilbergsson á gítar.
Hópurinn Live Weirdness býður
til tónleika breska raftónlistar- og
listamannsins Ceephax Acid Crew
í kvöld, laugardag, klukkan 23 á
skemmtistaðnum Paloma í miðbæ
Reykjavíkur. Tónleikarnir verða
frumraun hans hér á landi.
MÆLT MEÐ
Er einhver þarna? er
önnur skáldsaga Mari-
an Keyes sem kemur út
á íslensku. Söguhetja
bókarinnar er Anna
Walsh sem stödd er
heima hjá foreldrum
sínum í Dyflinni að
jafna sig eftir slys og
dreymir um það helst
að geta snúið aftur til
New York til að geta
eytt tíma með vinum sínum og þá helst Aidan.
Fyrir einhverjar sakir hefur Aidan þó aldrei
samband og smám saman kemur í ljós að það
er meira brotið og bæklað en hnéð á Önnu.
Bókstafur gefur út, Sigurlaug Gunn-
arsdóttir þýddi.
Anna í vanda
Næstum fullorðin heitir
nýútkomin bók Esm-
eralda Santiago. Hún er
sjálfstætt framhald bók-
arinnar Stúlkan frá Pú-
ertó Ríkó, en í bókunum
rekur Santiago æsku
sína í Púertó Ríkó og
segir frá því er for-
eldrar hennar fluttu
með barnaskarann til
Bandaríkjanna. Lífið utan veggja lítillar
íbúðar í New York er henni hvíld frá baslinu
og veitir henni kjark til að fara eigin leiðir,
leita sér menntunar sem enginn í fjölskyld-
unni hefur gert og til að öðlast sjálfstæði.
Salka gefur bókina út, Herdís Magnea
Hübner þýddi.
Leit að sjálfstæði
Rachel fer í frí segir
frá Rachel Walsh sem
fjölskylda hennar kem-
ur í meðferð í fínustu
meðferðarstöð Írlands
en kemst fljótlega að
því að Klaustrið er
ekki sú slökunarstöð
sem hún bjóst við.
Höfundurinn, Mari-
an Keyes, er vinsælasti
rithöfundur Írlands og einn vinsælasti rit-
höfundur Bretlandseyja. Bækur hennar hafa
selst í ríflega tuttugu milljónum eintaka og
komið út á 33 tungumálum, þar á meðal á ís-
lensku.
Bókstafur gefur bókina út, Sigurlaug
Gunnarsdóttir þýddi.
Rachel í meðferð
Veðrið segir svolítið til um það
hvaða bækur eru á náttborðinu
hverju sinni. Nú er ég að lesa tvær
greinar í Sögu, tímariti Sögufélags-
ins. Önnur þeirra
heitir „Klám í köldu
stríði“ og er eftir
Kristínu Svövu
Tómasdóttur. Mjög
áhugaverð grein
um það hvernig
klám var notað á
stríðsárunum og í kalda stríðinu,
hvernig bæði Þjóðviljinn og Mogg-
inn nálguðust það. Önnur sem ég er
að lesa er „Siðaskiptin og Sigurður
Jónsson“ eftir Hjalta Hugason. Ég
hef haft mikinn áhuga á Jóni Ara-
syni Hólabiskupi, ein af mínum
uppáhaldsbókum er Öxin og jörðin
eftir Ólaf Gunnarsson, og Ara og
Birni sonum hans sem voru háls-
höggnir með honum, en ég hef haft
minni áhuga á Sigurði syni hans.
Greinin hans Hjalta er aftur á móti
mjög áhugaverð.
Svo er ég komin
langleiðina með
Oona og Salinger
eftir Frédéric Beig-
bede. Hún er byggð á
sannsögulegum við-
burðum og segir frá
meintri ástarsögu Oonu og J.D. Sal-
inger, en Oona giftist seinna Char-
lie Chaplin. Mjög skemmtileg bók.
Síðan er ég að lesa ævisögu Paul
O’Neill eftir Ron Su-
skind, The Price of
Loyalty, en O’Neill
var fjármálaráðherra
á tímum George W.
Bush-stjórnarinnar
og áður stjórnarfor-
maður og forstjóri Alcoa. Í bókinni
birtist O’Neill sem mjög ákveðinn
prinsippmaður, en það er ekki
brugðið upp góðri mynd af Bush,
stjórnsýslu hans og gaurunum í
kringum hann sem manni finnst
ekki mjög traustvekjandi menn til
að stjórna Bandaríkjunum. Þegar
ég les þessa bók verður mér hugsað
til Donalds Trumps, þó ég sé alls
ekki að líkja þeim saman Trump og
Bush, en það er ljóst að það skiptir
gríðarlega miklu máli hvaða eig-
inleika menn hafa í valdamiklum
embættum og hvaða fólk þeir hafa í
kringum sig.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
ÉG ER AÐ LESA
Amboðin verða tekin fram á morg-
un, sunnudag, og ljár borinn í gras á
Árbæjarsafni. Gestir geta tekið
þátt í heyönnum eins og þær tíðk-
uðust fyrir daga heyvinnuvéla, með
þeim fyrirvara að veður haldist þurrt.
Gleðin hefst 13 og stendur til 17.
Aukatónleikar verða í djass-
tónleikaröð Kex Hostels á
morgun, sunnudag, klukkan 20.30.
Fram kemur tríó sænska orgelleik-
arans Andreas Hellkvist. Auk hans
skipa tríóið þeir Samuel Hallkvist á
gítar og Daniel Olsson á trommur.
Við ætlum að reyna að hafa jafngaman í ár og var hjá okkurfyrir níu árum, þegar sein-
asta Harry Potter-bók kom út,“ segir
Dagbjört Kjartansdóttir, sem hefur
umsjón með bókadeild verslunar-
innar Nexus og skipuleggur Potter-
partí um verslunarmannahelgina,
næstkomandi laugardag.
Um er að ræða miðnæturopnun
verslunarinnar með plötusnúði, bún-
ingaverðlaunum, spurningakeppni og
fleiru skemmtilegu en tilefnið er út-
gáfa framhalds af Harry Potter-
sagnabálknum víðfræga sem ber tit-
ilinn Harry Potter and the Cursed
Child.
Hinsvegar er ekki um hefðbundið
framhald að ræða, heldur leikhandrit
byggt á sögu eftir J.K. Rowling, höf-
und bókanna. Þar er sonur þeirra
Harrys Potter og Ginny kominn í að-
alhlutverk nítján árum eftir að at-
burðir síðustu Harry Potter-bókar
áttu sér stað, en leikritið er frumsýnt
30. júlí í London og handritið gefið út
í bókarformi um miðnætti sama dag.
„Þetta er byggt á nýrri sögu þar
sem elsti sonur Harrys, Albus Seve-
rus Potter, er að hefja nám í Hog-
warts. Við sjáum hvernig þessi fjöl-
skyldusaga bókanna dregur dilk á
eftir sér,“ segir Dagbjört. „Það má
hefja sölu á miðnætti í Bretlandi,
þannig að þeir fyrstu fá handritið í
hendurnar klukkan ellefu hér á
landi.“
Dagbjört segist finna fyrir miklum
spenningi meðal áhugafólks um
Harry Potter hér á landi, en bókin
eða handritið hefur að hennar sögn
selst vel í forsölu. „Ég held að það
hafi komið mörgum á óvart að hand-
ritið yrði gefið út í bókarformi. Ég
hélt að fólk myndi láta það stoppa sig
að þetta væri leikrit en fólk er svo
þyrst í meira að því virðist vera alveg
sama.
Meirihlutinn af okkar viðskipta-
vinum sem mæta á svona viðburð er
fólk sem las Harry Potter-bækurnar
þegar það var krakkar,“ segir hún en
bætir við að alltaf bætast nýjar kyn-
slóðir í hóp áhugafólks um Harry
Potter.
Aðspurð segist Dagbjört ekki vita
til þess að það standi til að setja verk-
ið upp á Íslandi. „Það hefur ekkert
heyrst um það og ég veit ekki hvort
það er búið að gefa leyfi fyrir því
nokkurs staðar annars staðar en í
Bretlandi.“
Dagbjört segir íslenska áhugamenn um Harry Potter alltaf þyrsta í meira.
Albus Severus Potter
í nýju leikriti
Harry Potter-sagna-
bálkurinn heldur
áfram en nú á fjölum
leikhúsanna. Íslenskir
áhugamenn geta fest
kaup á handritinu
Harry Potter and the
Cursed Child í sérlegri
Potter-veislu í
versluninni Nexus.
Matthías Tryggvi Haraldsson
mth@mbl.is
Nýjasta Harry Potter-sagan er ekki
bók heldur leikhandrit.
Reuters
BÓKSALA 13 - 20. JÚLÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 Ástarsögur íslenskra kvennaÝmsir höfundar
2 Vegahandbókin 2016Steindór Steindórsson og fleiri
3 Independent PeopleHalldór Laxness
4 NicelandKristján Ingi Einarsson
5 Ég fremur en þúJojo Moyes
6 Sagas Of The Icelanders
7 Bak við luktar dyrB.A. Paris
8 EkkjanFiona Barton
9 Iceland Small World- lítilSigurgeir Sigurjónsson
10 VillibráðLee Child
1 Ástarsögur íslenskra kvennaÝmsir höfundar
2 Ég fremur en þúJojo Moyes
3 Bak við luktar dyrB.A. Paris
4 EkkjanFiona Barton
5 VillibráðLee Child
6 Konan í myrkrinuMarion Pauw
7 Hin myrku djúpAnn Cleeves
8 Næstum fullorðinEsmeralda Satiago
9 Framúrskarandi vinkonaElena Ferrante
10 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante
Allar bækur
Íslenskar kiljur